Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica - Kringlunni
Teg: Galway
: 11.990,-
2 ■ .■
Teg: Parana
Verð: 11.990,-
Frábær þáttur um LlllYli
skó sýndur á Stöð 2
kl. 16:20 í dag, sunnudag
—
SKOR FYRIR KARLMENN
SKOÐUIM
UPPBYGGINGAR-
STARFIÐ í BOSNÍU
OG HERZEGOVÍNU
í DAG eru liðin tvö ár frá því að
Dayton-friðarsamningurinn var und-
irritaður í París. Á þessum tímamót-
um er við hæfi að beina sjónum að
því mikilvæga uppbyggingarstarfí
sem nú fer fram í Bosníu og Herzegó-
vínu. Við undirritun samningsins
hafði blóðugt borgarastríð geisað í
landinu í meira en þrjú ár. í þessu
stríði er áætlað að 250.000 manns
hafí látið lífíð, 200.000 hafí særst
og a.m.k. 13.000 manns orðið fyrir
varanlegu heilsutjóni. Strax að lok-
inni undirritun hófst öflugt uppbygg-
ingarstarf sem í megin dráttum er
þríþætt: Samkvæmt umboði öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna tryggir
herlið Atlantshafsbandalagsins og
samstarfsríkja þess, SFOR, frið og
skapar öruggt umhverfi fyrir aðrar
alþjóðastofnanir er sinna uppbygg-
ingarstarfí. í öðru lagi gegnir Orygg-
is- og samvinnustofnun Evrópu, OSE,
veigamiklu hlutverki varðandi undir-
búning og eftirlit með framkvæmd
kosninga í landinu, stuðlar að eflingu
mannréttinda og er vettvangur af-
vopnunarviðræðna. í þriðja lagi leiða
Evrópusambandið og Alþjóðabankinn
samstarf u.þ.b. 50 ríkjaog 10 alþjóða-
stofnana um að koma_ efnahagslífí
landsins á réttan kjöl. í mars 1996
samþykkti ríkisstjóm íslands að verja
110 miiljónum króna til uppbygging-
arstarfsins. Tíu milljónir fóra til
bráðabirgðaaðgerða og vora þær
lagðar í sérstakan neyðarsjóð Al-
þjóðabankans. Jafnframt var ákveðið
allt að 100 milljóna króna framlag
sem varið yrði til endurreisnar og
uppbyggingar á áranum 1996 til
1999. Þessu til viðbótar starfar nú
íslensk heilsugæslusveit, skipuð
tveimur læknum og tveimur hjúkran-
arfræðingum, í SFOR undir verk-
stjóm breska hersins. Auk þess sem
þrír íslenskir lögreglumenn starfa í
alþjóðalögreglu Sameinuðu þjóðanna.
íslensk aðstoð við
fórnarlömb stríðsins
Uppbyggingarstarfíð í Bosníu og
| Dýnur eftir máli, margar gerðir og útfcerslur
3000 m1 sýningarsalur
TM - HÚSGÖGN
SíSumúla 30 - Sími 568 6822
Herzegóvínu er um-
fangsmikið og flókið.
Það er því mikilvægt
fyrir lítil ríki eins og
ísland að aðstoð
þeirra sé skýrt af-
mörkuð og vel skil-
greind. Strax í upp-
hafí mörkuðu íslensk
stjórnvöld þá stefnu
að beina meginþorra
framlaga að tveimur
verkefnum á sviði
heilbrigðismála og
hefur gott samstarf
myndast við Alþjóða-
bankann um fram-
kvæmd og eftirlit með
framvindu þessara
verkefna. Að höfðu
samráði við heilbrigðisyfirvöld í Bos-
níu og Herzegóvtnu var boðin aðstoð
við þau fómarlömb stríðsins sem
misst hafa fætur neðan við hné.
Stoðtækjafyrirtækið Össur hf. er
á meðal hinna fremstu á sínu sviði
Þátttaka íslands snýst
ekki einungis um krónur
og aura, segir Halldór
Asgrímsson, heldur
einnig um siðferði og
_ Halldór
Ásgrímsson
samkennd.
í heiminum og þótti því tilvalið að
leita eftir samstarfí við fyrirtækið
um framkvæmd verkefnisins. Gerður
var samningur um að Össur hf. þjálfí
starfsmenn á stoðtækjaverkstæðum
í Bosníu og Herzegóvínu og leggi til
allan búnað til framleiðslu gervifóta.
Nú þegar hafa sérfræðingar Össurar
hf. þjálfað starfsfólk á þremur stoð-
tækjaverkstæðum og er meðferð
sjúklinga sem þarfnast gervifóta í
fullum gangi. Þegar verkefninu lýkur
munu allt að 600 einstaklingar hafa
notið góðs af framkvæði Islendinga.
Það er samdóma álit þeirra er
koma að þessu verkefni að árangur-
inn sé ótvíræður og er það skoðun
mín að vel hafí tekist til af hálfu
íslendinga. Þörfín á þessu sviði er
mikil og íslensk sérfræðiþekking í
hæsta gæðaflokki. Ég var svo hepp-
inn að hafa tækifæri til að heim-
sækja Bosníu og Herzegóvínu í júnf
síðastliðnum. Þar sá ég með eigin
augum hvers vænta má af þessu
starfí. Stór hluti sjúklinga era böm
sem misst hafa útlimi af völdum jarð-
sprengna og era örkuml þeirra yfír-
leitt slæm og vandasöm meðhöndlun-
ar. Með réttri aðstoð gerast lítil
kraftaverk og börn sem misst hafa
báða fætur geta nú hlaupið um og
tekið þátt í leikjum jafnaldra sinna.
Eins sá ég hvemig ungt fólk með
brostna framtíð öðlast nýtt líf með
aðstoð stoðtækja og getur tekið full-
an þátt í enduruppbyggingu landsins.
Sálarkvöl fómarlamba stríðsins er
inu, en skortur er á vinnu-
reglum og þjálfuðum
mannafla. Auk þess er
aðbúnaður á sjúkrastofn-
unum ekki viðunandi.
Frá lokum stríðsins
hefur þessum málaflokki
ekki verið sinnt sem
skyldi og því er ísland að
taka þarft framkvæði.
Aðstoð íslands mun fyrst
og fremst beinast að
þjálfun og endurmennt-
un. Hópur lækna, hjúkr-
unarfræðinga og ljós-
mæðra frá þremur borg-
um í Bosníu og Herzegó-
vínu, Sarajevo, Mostar og
Tuzla kemur tii íslands
til að endumýja þekkingu
sína á þessu sviði. í framhaldi af því
munu íslenskir sérfræðingar og
hjúkranarfólk heimsælqa Bosníu og
Herzegóvínu til að fýlgja málum eft-
ir og annast þjálfun og kennslu í
samvinnu við þarlenda aðila. íslensk
stjómvöld munu leggja til allan nauð-
synlegan kennslubúnað og þýdd
kennslugögn.
íslensk þekking á sviði læknavís-
inda er með því besta sem þekkist
og í þessu verkefni mun hún nýtast
einstaklega vel. Heimamenn í Bosníu
og Herzegóvínu era afskaplega
áhugasamir um framkvæmd verk-
efnisins og viðbrögð annarra landa
er sinna hjálparstörfum era mjög
jákvæð. Ég er því vongóður um
árangur og sannfærður að með þess-
um hætti sé framlagi íslands vel
varið. Það er þó nauðsynlegt að sýna
þolinmæði, því hér er hugsað til
framtíðar, og áþreifanlegur árangur
mun ekki koma í ljós fyrr en að
nokkram árum liðnum.
Til viðbótar fyiTnefndum verkefn-
um er vert að minnast á stuðning
stjómvalda við lofsvert framtak
Blindrafélags íslands til aðstoðar
systurfélögum í Bosníu og Herzegó-
vínu, og átak Stúdentaráðs íslands,
sem safnað hefur kennslugögnum
og tækjum og sent háskólum í hinu
fyrram stríðshijáða landi.
Allir þurfa að leggjast á eitt
Uppbyggingarstarfíð í Bosníu og
Herzegóvínu mun taka mörg ár og
hörmungar stríðsins munu lifa með
íbúum landsins um ókomna framtíð.
Á þeim tveimur árum sem nú era
liðin frá undirritun friðarsamningsins
hefur ýmislegt áunnist með góðri
samvinnu heimamanna og samfélags
þjóðanna. Lögð hefur verið áhersla
á húsnæðis- og menntamál, ríkis-
stofnanir hafa verið endurreistar og
félagsleg þjónusta styrkt. Þá hefur
mikil áhersla verið lögð á uppbygg-
ingu atvinnulífsins og sköpun nýrra
atvinnutækifæra. í heild má segja
að árangur uppbyggingarstarfsins
sé ásættanlegur og hefur efnahags-
bati Bosníu og Herzegóvínu verið
hraðari en vonir stóðu til. En betur
má ef duga skal. Ótryggt stjómmála-
ástand hefur hamlað ábyrgri efna-
hagsstjórn og enn er langt í land á
sviði samgöngumála, orkumála, fjar-
mikilog þáu sár gróa séint. En þakk-
lætið í augum þess fólks sem ég hitti skiptamála og heilbrigðismála, svo
á ferðalagi mínu sánnaði sVo ekki
verður um villst að hvert framlag
getur skipt sköpum.
Áframhald aðstoðar íslands
Annar meginþátturinn í aðstoð
íslendinga er á sviði barnalækninga,
kvensjúkdómalækninga og mæðra-
verndar. Nýlega var íslensk sendi-
nefnd á ferð í Bosníu og Herzegóvínu
til að leggja drög að þessu verkefni
sem mun hefjast á fyrri hluta næsta
árs. Ástand heilbrigðismála í landinu
er mjög alvarlegt og sem dæmi hefur
ungbarnadauði tvöfaldast frá árinu
1990. Verkkunnátta á sviði barna-
lækninga, kvensjúkdómalækninga
og mæðravemdar er til staðar í Iand-
dæmi séu tekin:
Það er mikilvægt að ísland taki
þátt í uppbyggingarstarfínu sem nú
fer fram í Bosníu og Herzegóvínu
og skorist ekki undan ábyrgð á al-
þjóðavettvangi. Áætlað er að það
uppbyggingarstarf sem nú stendur
yfír muni kosta rúmlega 5 milljarða
bandaríkjadala. I því samhengi virð-
ast framlög íslands lítilvæg. En hér
snýst þátttakan ekki einungis um
krónur og aura, heldur einnig um
siðferði og samkennd. Aðstoð íslands
getur skipt sköpum fyrir þúsundir
íbúa landsins og ég þori að fullyrða
að þeim peningum er vel varið.
Höfundur er utanrikisrádherrn.