Morgunblaðið - 10.01.1998, Side 2
2 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HFRETTIRl
Flugfélag Islands heldur áfram að fljúga til Raufarhafnar
Flugið tryggt með
3,4 milljdna styrk
FLUGFÉLAG íslands mun halda
áfram áætlunarflugi til Raufarhafn-
ar yfir vetrarmánuðina og verður
flugið styrkt með framlagi úr ríkis-
sjóði en á fjárlögum ársins er heim-
ild íyrir 3,4 milljóna kr. fjárveitingu
til að halda uppi flugsamgöngum við
Raufarhöfn og Kópasker. Þessi nið-
urstaða varð ljós í gær eftir fund
Halldórs Blöndal samgönguráð-
herra með oddvita og sveitarstjóra
Raufarhafnarhrepps.
„Niðurstaðan varð sú að áætlun-
arflugi verður haldið áfram til Rauf-
arhafnar, enda er gert ráð fyrir
fjárveitingu til þess á fjárlögum. Þó
er gert ráð fyrir því að flug falli nið-
ur í sumar en síðan verði þráðurinn
tekinn upp að nýju með haustinu,“
sagði Halldór Blöndal. Hann sagði
að Flugfélag íslands myndi annast
flugið áfram, félagið hefði miðstöð á
Akureyri og það hefði tekið við
þeirri þjónustu sem áður var í hönd-
um Flugfélags Norðurlands, sem
ÞRÁTT fyrir verulegan samdrátt
í sölu IS á sjávarafurðum á síð-
asta ári, varð árið hið næstbezta í
sögu fyrirtækisins. Samdráttur-
inn varð fyrst og fremst vegna
uppsagnar samnings ÍS við
UTRF á Kamtsjatka í Rússlandi.
Árið 1996 seldi ÍS 62.000 tonn af
fiskafurðum frá Kamtsjatka en
aðeins um 18.000 tonn í fyrra.
Alls seldi ÍS 128.430 tonn af
fiskafurðum að verðmæti um 17
milljarðar króna á síðasta ári, en
árið áður nam salan rúmlega
166.000 tonnum að verðmæti um
20 milljónir króna. í magni talið
Framkvæmdastj óri
íslandsflugs segir
að virða beri jafn-
ræðisreglu laga
hefði annast flug til ýmissa áfanga-
staða frá Akureyri.
Auka öryggi og veita
lágmarksþjónustu
Aðspurður hvaða rök væru fyrir
því að veita ríkisstyrk til áætlunar-
flugs, sagði Halldór að það færi eft-
ir því um hvaða staði væri að ræða.
I sumum byggðarlögum væri ekki
um aðrar samgöngur að ræða en
flugið. „Þessir styrkir hafa verið
veittir vegna áætlunarflugs til fá-
mennra og afskekktra staða, bæði í
öryggisskyni og til þess að reyna að
halda uppi samgöngum. Fram að
þessu flutti Flugfélag Norðurlands
póstinn á þessa staði en nú er póst-
er samdrátturinn nær 23% en
15% mælt í verðmætum. Útflutn-
ingur frá Islandi varð alls 105.000
tonn að verðmæti 14,9 milljarðar.
Það er 6,5% aukning í magni, en
tæplega 2% verðmætasamdrátt-
ur.
Benedikt Sveinsson, forstjóri
ÍS, segir ljóst að síðasta ár verði
ekki gert upp með hagnaði. Áætl-
anir fyrir þetta ár miðist hins veg-
ar við að reksturinn skili hagnaði
og stefnt sé að 35 milljarða króna
veltu á þessu ári.
■ 1997 annað bezta/18
urinn fluttur landleiðina, þannig að
það voru ekki lengur forsendur fyr-
ir því að halda fluginu áfram. Þess-
um stöðum fer fækkandi eftir því
sem vegasamgöngur batna og svo
verður reynslan að leiða í ljós hvort
ástæða sé til að halda fluginu
áfram,“ sagði hann.
Halldór var spurður hvort ekki
fælist í þessu brot á þeirri stefnu
ríkisstjómarinnar að beita ekki sér-
tækum stuðningsaðgerðum við fyr-
irtæki í landinu. „Við erum að tala
hér um byggðamál. Við getum ekki
sagt að við séum að halda uppi
Flugfélagi Islands. Þama er um það
að ræða að Alþingi féllst á að
ástæða væri til að halda áætlunar-
flugi til Raufarhafnar nokkuð áfram
á meðan verið er að byggja upp
veginn um Tjömes," svaraði Hall-
dór. Benti hann einnig á að á und-
anfömum ámm hefði þjóðvegurinn
til Raufarhafnar oft lokast svo mán-
uðum skipti vegna snjóa. „Þetta er
gert bæði í öryggisskyni og til að
halda uppi einhverri lágmarksþjón-
ustu,“ sagði samgönguráðherra.
íslandsflug hefur áhuga
„Ætli samgönguráðuneytið eða
Alþingi að úthluta styrk til þessa
flugs er það almenn regla í þjóðfé-
laginu með tilkomu nýrra sam-
keppnislaga að jafnræðisregla gildi,
þannig að allir hafi jafna mögu-
leika,“ segir Ómar Benediktsson,
framkvæmdastjóri íslandsflugs.
Hann segir að félagið hafi áhuga á
flugi til Raufarhafnar. „Við höfum
ekkert verið að skoða þetta sérstak-
lega en hins vegar er staðan sú að
við munum skoða öll mál ef við telj-
um það skynsamlegt og sjáum það
ganga upp fjárhagslega. Því skyld-
um við ekki hafa áhuga á því eins og
hinn aðilinn?" segir hann. Ómar
bendir á að áætlunarflug til Raufar-
hafnar gefí kost á ýmsum hagræð-
ingarmöguleikum. Islandsflug sé í
mjög nánu samstarfi við Flugfélag
Austurlands, sem hafi staðsetta
flugvél á Egilsstöðum og nefnir
hann möguleika á einhverskonar
hringflugi á flugleiðinni milli Egils-
staða, Akureyrar og Raufarhafnar.
Þorri geng-
ur brátt
í garð
ÞAÐ fá eflaust ýmsir vatn í
munninn þegar þeir sjá Þórarin
matreiðslumeistara með matinn
sem hann ætlar að bjóða við-
skiptavinum sínum á þorranum.
Hann hefur verið að taka mat-
inn upp úr tunnunum og koma
þeim fyrir í trogum. Þetta er
ekta súrmatur eins og sjá má.
Nú styttist óðum f að matmenn
taki gleði sína, því þorrinn byij-
ar eftir tæpan hálfan mánuð.
Bóndadagurinn er að þessu
sinni föstudaginn 23. janúar.
Handtekinn
eftir elting-
arleik
ÖKUMAÐUR sem fór yfir á vitlaus-
an vegarhelming og ók utan í bfl við
Stekkjarbakka í Breiðholti í gær var
handtekinn af lögreglu eftir nokkum
eltingarleik.
Maðurinn, sem grunaður er um
ölvun við akstur, ók strax af vett-
vangi eftir áreksturinn. Ökumaður
hins bílsins hóf eftirfór og hringdi í
lögreglu úr farsíma.
Tveir lögreglubflar komu fljótlega
á vettvang en stöðvunarmerki þeirra
voru ekki virt. Að lokum tókst þó að
króa hann af í blindgötu við Faxafen.
Sjávarafurðasala ÍS á síðasta ári
Annað bezta árið í
sögu fyrirtækisins
þrátt fyrir samdrátt
Ágreiningur heilbrigðisráðuneytis og ríkissaksóknara vegna dóms héraðsdóms
Deilt um refsi-
heimild vegna
alsæluefnis
STARFSMENN heilbrigðisráðu-
neytis og ríkissaksóknara greinir á
um hvort alsæluefnið MDEA hafi
verið skilgreint sem ávana- og
fíkniefni og þar af leiðandi hvort
refsiheimild sé í lögum. í fyrra
voru tveir menn sýknaðir af ákæru
um að hafa haft alsæluefnið undir
höndum og maður sem handtekinn
var með efnið í október í fyi-ra var
ekki ákærður vegna þess.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í fyrradag 22 ára gamlan
mann, Jón Andra Júlíusson, í
tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir
að hafa haft undir höndum töluvert
magn amfetamíns, metamfetamíns,
MDMA-klóríðs (alsælu) og kanna-
bisefna. Jón Andri var handtekinn
í október 1997 þegar hann vitjaði
efnisins í felustað í trjálundi í
Vatnsendahlíð.
í dómsniðurstöðum kemur fram
að í vörslu sakbornings hafl einnig
fundist annað hættulegt fíkniefni,
alsæluefnið MDEA, sem hefur
svipuð áhrif og MDMA. Ákæra var
þó ekki lögð fram vegna þessa efn-
is, vegna þess að MDEA hafí ekki
verið bannað með lögum hér á
landi, „og hefur yfirvöldum þó ver-
ið kunnugt um eiginleika efnisins
um árabil", segir í dómnum.
Einnig kemur fram að árið 1996
hafi tveir menn verið sýknaðir af
ákæru fyrir meðferð þessa efnis
vegna þess að refsiheimild skorti í
lögum.
Heilbrigðisráðuneytið vísar
gagnrýni á bug
DV birti í gær frétt um dóminn
yfir Jóni Andra þar sem fullyrt var
að fíkniefnasali hafi fengið vægari
refsingu en ella vegna „trassaskap-
ar ráðuneytis". í fréttatilkynningu
sem heilbrigðisráðuneytið sendi frá
sér í gær er þessari gagnrýni vísað
á bug. Þar er því haldið fram að
umrætt efni hafi verið sett á lista
yfir ávana- og fíkniefni með reglu-
gerð sem gefin var út 2. ágúst 1990
samkvæmt heimild í 2. grein laga
um ávana- og fíkniefni. Þar segi að
ráðherra sé heimilt að mæla svo
fyrir um að varsla og meðferð ann-
arra ávana- og fíkniefna en tiltekin
eru í lögunum og sem sérstaklega
mikil hætta er talin stafa af sam-
kvæmt alþjóðasamningum, sé
óheimil á íslensku forráðasvæði.
MDEA ekki skilgreint sem
fíkniefni í lögum
Egill Stephensen saksóknari
segir að skilningur heilbrigðisráðu-
neytisins sé rangur og að í reglu-
gerðina frá 1990 vanti tengingu við
lög um ávana- og fíkniefni.
„Samkvæmt reglugerðinni er
efnið eingöngu skilgreint sem efni
sem er undir sérstöku eftirliti og
sem þarf sérstakt leyfi til inn- og
útflutnings á. Það er ekki bannefni
eins og til dæmis hass, kókaín eða
MDMA.“
Egill segist hafa bent heilbrigðis-
ráðuneytinu á þessa staðreynd fyrir
um tveimur árum í tengslum við
annað mál þar sem fíkniefninu
efedrín, sem er náskylt amfetamíni,
var smyglað til landsins. Efedrín
taldist þá ekki til ávana- og fíkni-
efna samkvæmt lögum en var bætt
á þann lista. Egill segir að það hafi
hins vegar farist fyrir að koma
MDEA þar að einnig.
„Það hefði kannski þurft að reka
eitthvað meira á eftir þessu, en ég
taldi það ekki mitt hlutverk að segja
löggjafanum til um þetta. Ég taldi
að þeim væri Ijós þessi vöntun.“
Engin formleg fyrirspum frá
rfkissaksóknara
Einar Magnússon, skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, seg-
ir að ráðuneytinu hafi borist óform-
leg fyrirspum um efnið frá starfs-
manni ríkissaksóknara fyrir tveim-
ur árum. í fyrstu hafi starfsmenn
ráðuneytisins ekki áttað sig á hvert
efnið væri, því það bar annað nafn
en í skrám ráðuneytisins.
Einar segir að búist hafi verið
við því að formleg fyrirspum bær-
ist síðar frá ríkissaksóknara, en
hún kom aldrei. Engu að síður hafi
þeir kannað málið nánar og komist
að því að efnið hefði þegar verið
sett í reglugerð árið 1990.
„Þetta er flokkað sem ávana- og
fíkniefni á íslandi og það fer ekk-
ert milli mála að öll ólögleg varsla
slíkra efna er bönnuð og fellur und-
ir ávana- og fíkniefnalöggjöfina.
Maður verður undrandi á því að
verið sé að gagnrýna heilbrigðis-
ráðuneytið fyrir þetta, bæði af sak-
sóknara og héraðsdómi, og svo DV,
án þess að málið virðist hafa verið
kannað nánar,“ segir Einar.