Morgunblaðið - 10.01.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 13
Bæjarráð Akureyrar
^ Morgunblaðið/Kristján
Oskað eftir stækkun
Krossanesverksmiðju
KROSSANES hf. hefur sótt um
nýtt starfsleyfi fyrir fiskimjölsverk-
smiðju sína en leyfið rann út um
nýliðin áramót.
Jafnframt því að sótt er um nýtt
starfsleyfi fyrir verksmiðjuna til
fjögurra ára er óskað eftir því að
heimiluð verði aukning á afkasta-
getu verksmiðjunnar úr 550 tonn-
um á sólarhring í 750 tonn af hrá-
efni á sólarhring. Hollustuvernd
hafnar í drögum að nýju starfsleyfi
óskum um aukin afköst verksmiðj-
unnar og gerir í þeim ráð fyrir að
starfsleyfið gildi til loka þess árs,
þar sem reynsla verði að fást af
nýjum mengunarvarnabúnaði í
verksmiðjunni. Búnaðurinn var
settur upp síðastliðið haust.
Forsvarsmenn verksmiðjunnar
hafa leitað eftir stuðningi bæjar-
stjórnar við umsókn vegna stækk-
unarinnar og á fundi bæjarráðs var
tekið undir þau sjónarmið sem
fram koma í umsögn heilbrigðis-
nefndar um stækkunina þar sem
mælt er með því að gefið verði út
leyfi til að auka afkastagetu verk-
smiðjunnar í tilraunaskyni á þessu
ári.
Höfðakirkjugarður
yfír Þórunnarstræti
KIRKJUGARÐAR Akureyrar
hafa sent bæjaryfirvöldum á Akur-
eyri bréf og fara í því þess á leit að
við skipulag á svæðinu vestan Þór-
unnarstrætis verði gert ráð fyrir
þörf Höfðakirkjugarðs á stækkun
til vesturs, yfir götuna. Bæjarráð
fjallaði um erindið á fundi í vikunni
og vísaði því til skipulagsdeildar
og skipulagsnefndar til umfjöllun-
ar.
A fundi bæjarráðs var einnig
tekin fyiár tillaga Sigurðar J. Sig-
urðssonar þess efnis að menning-
armálanefnd verði falið að leita
eftir sölu á húsnæði bæjarins í
Kaupvangsstræti 23, Deiglunni til
starfsemi á sviði menningarmála.
Óskaði bæjarráð eftir að menning-
armálanefnd fjallaði um tillöguna.
A fundi ráðsins á fimmtudag var
lagður fram til kynningar samn-
ingur sem bæjarstjóri hefur geft
við Valgerði Þorsteinsdóttur í
Reykjavík um kaup á bókasafni dr.
Steingríms J. Þorsteinssonar,
fyrrverandi prófessors. Þá var
kynntur samningur sem bæjar-
stjóri hefur gert við Jón Hjaltason
sagnfræðing um ritun og útgáfu á
þriðja bindi af sögu Akureyrar.
Bæjarráð samþykkti líka á fundi
sínum að kaupa fasteignina
Strandgötu 17, en kaupverð hús-
eignar ásamt eignarlóð og leigu-
lóðaréttindum er 7.450.000.
AKUREYRARBÆR
Umsóknir um styrki frá
nefndum á vegum Akureyrarbæjar.
Á næstunni fer fram úthlutun eftirfarandi styrkja:
Þrettándagleði
í Deiglunni
Björg og
Fjórir
fíörugir
FJÓRIR fjörugir og Björg
Þórhallsdóttir söngkona efna
til þrettándagleði í Deiglunni í
kvöld, laugardagskvöldið 10.
janúar kl. 22.
Fjóri fjörugir eru þeir Dan-
íel Þorsteinsson á harmoníku,
Bjöm Leifsson á klarínett,
Jón Rafnsson á bassa og Karl
Petersen á trommur. Þeir
hafa allir leikið með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands, m.a.
á tónleikum um síðustu helgi
en þar lék Daníel einleik á pí-
anó með hljómsveitinni. Björg
hefur getið sér gott orð fyrir
klassískan söng, en bregður
sér nú í hlutverk dægurlaga-
söngkonu.
Tónlistin verður úr ýmsum
áttum, þekkt dans- og dægur-
lög og suður-amerísk sveifla.
Tillaga um
systkina-
afslatt a
leikskólum
BÆJARRÁÐ Akureyrar
leggur til að frá næstu mán-
aðamótum, 1. febrúar næst-
komandi verði gefinn systk-
inaafsláttur af dvalargjöldum
í leikskólum og skólavistunum
hjá Akureyrarbæ.
Gengið er út frá þeirri við-
miðun að gjald fyrir yngsta
barn verði greitt að fullu, 25%
afsláttur er gefinn vegna eldri
systkina, hvort sem þau em í
leikskóla eða skólavistun og
vegna barna, þar sem einnig
er gefinn annar afsláttur en
vegna systkina reiknast
systkinaafslátturinn af þeirri
upphæð sem annars hefði átt
að greiða.
Til leigu (efríhæð)
Á besta stað á Akureyri er til leigu
260 m2 í Kaupvangsstræti 4.
Upplýsingar í símum
462 7466 - 892 7766 (Pétur) - 462 5400 (jón)
fErt þú „skáld á
bakvið tjöldin“
Sigurhæðir - Hús skáldsins
Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri
býður rithöfundum og/eða fræðimönnum á sviði hvers
kyns orðlistar fullkomna skrifstofuaðstöðu til leigu á
árinu 1998. Um er að ræða tvö herbergi með öllum
nauðsynlegum búnaði — tölvu, prentara, síma, faxi,
internettengingu, skanna, ljósritun, pappír o.s.frv. — og
hefur afnotagjald verið ákveðið 6.000 krónur á mánuði
fyrir hvort. Þau leigjast til 1—3ja mánaða í senn og gefst
að öðru jöfnu möguleiki á framlengingu, sé hennar óskað
í tíma. Athygli er vakin á því að hér er ekki um afnot að
íbúð að ræða, heldur vinnuaðstöðu í umhverfi sem ætti að
geta orðið til andlegrar hvatningar þeim er hafa hug á að
fást við skriftir, en hefur til þessa e.t.v. vantað aðstöðu
eða lítið næði gefist. Er því sérstaklega beint til
heimamanna að hagnýta sér á þennan hátt hina nýju
bókmenntamiðstöð sem reist er á gömlum grunni.
Umsóknir, ásamt greinargerð um verkefnið og á hvaða
tíma sá/sú kýs að njóta aðstöðunnar, sendist undirrituðum
forstöðumanni fyrir 20. janúar. Hann gefur jafnframt allar
upplýsingar í síma milli kl. 14 og 16 virka daga.
Sigurhæðir - HÚS skáldsins - Evrarlandsvegi 3. 600 Akruevri.
Erlingur Sigurðarson. forstöðumaður - viðtalstími þriðiud.-föstud. kl. 14-16.
Sími: 462 6648 - fax 462 6649
Netfang: skaldis
Styrkir Félagsmálaráðs til félaga sem vinna að félags- og mannúðarmálum sem
snerta verksvið ráðsins.
Styrkir íþrótta- og tómstundaráðs til félaga v/rekstrar, einnig námskeiða og
sumarbúða fyrir börn.
Styrkir Menningarmálanefndar til félaga á sviði lista og menningarmáia.
Við styrkveitingar þessa árs verður m.a. horft til fyrirbyggjandi starfs vegna
markmiðs bæjarstjórnar Akureyrar að útrýma notkun grunnskóiabarna á hvers
kyns vímuefnum fyrir árið 2000.
Uinsóknir á þar til eerðum evðuhlöðum skulu berast fyrtr 1. febrúar nk. til
móttöku- og upplýsingafulltrúa að Glerárgötu 26, sími 460 1400.
Eyðublöðin liggja frammi á skrifstofum Akureyrarbœjar 26 og Geislagötu 9.
Sviðsstjórar Glerárgötu 26.
í"' ) A 0 <•.<,// 1 c
iÁ-ÁO'V' )
AJjálut\ámskeið ^
sem ctáut* vat* auglýsf í /;-Húsi
skáldsikts" |i*estasf um Kálj-art mártuð
v/flutrtirtgs á bókasafrti
dt*. SteingHms 'Po»*steirtssorta>*.
/SJámsUeiðið vet'ðut4 vikulega
í tveimut* Kópwm; "14 vikut* alls.
Sfjót*rtandi: éSflingut* Sigut*ðssort.
■Hóput* A mánudögum kl. 47.20 -48.40
■fyr'st 2ó jartúat1.
■Hóput* B: A þt*iðjudögum Ul. 49.40 - 24.00
fyt*st 27. jartúat*.
"Páti+ökugjalcl: 4.000 k^ÓKVU^.
(Snn et* Kægt et* bæta nokkmm
(oátftakendum í Kvot*n Kóp,
Skmið ykkut1 kjá f-ot*s+öðumaumi, sem vei+it*
allat* K\át\at*i upplýsm^at*, fyHt* 2d. jai4Úat*.