Morgunblaðið - 10.01.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 25
ÚTSÖLURNAR byrja nú víða
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞORVALDUR Magnússon beið
rólegur með syni sína Pétur Þór
og Hjálmar Darra meðan
eiginkonan Elena K.
Pétursdóttir kíkti á útsölurnar.
Þau eru í jólafríi hér á iandi,
eru búsett í Hollandi og voru
sammála um að verðlækkun
væri ekki mikil á vörum hér
heima miðað við það sem
gengur og gerist í Hollandi.
„Uti í Hollandi veita
verslunareigendur miklu meiri
afslátt í upphafi útsölu en hér
tíðkast. Það er jafnvel algengt
að fólk fái 70-80% afsiátt strax
eftir áramót.
Þegar fer svo að líða að
útsölulokum færist fjör í leikinn
og verslanir lækka vöruverð enn
frekar. Þá er hægt að gera
sannkölluð reyfarakaup."
strax eftir áramót og einhverj-
ir eru kannski ekki búnir að
skila jólagjöfunum þegar þær
fara af stað. Ef skipta á flík í
minna eða stærra númer er
sjaldnast vandi á ferð en ef fá
á innleggsnótu kann málið að
vandast. Sumar búðir taka
ekki við innleggsnótum á út-
sölu. Þess vegna borgar sig
fyrir fólk að semja strax og
nótan er fengin um gildistíma
og hvort hún gildi á útsölu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VALGARÐUR Breiðfjörð var
að kaupa ferðatöskur á útsölu
og sagði verðið hafa lækkað
um meira en helming. Hann
hafði séð töskurnar fyrir út-
sölu og var ekki lengi að
ákveða sig þegar hann sá verð-
lækkunina. Valgarður bjóst
ekki við að kaupa mikið á út-
sölunum að þessu sinni, helst
eina eða tvær skyrtur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SÓLVEIG Baldursdóttir var á
rölti um ganga Kringlunnar
með son sinn Unnar Lúðvík
Björnsson. Hún sagðist vera að
leita að fótum á börnin, sem
eru tvö, og kvaðst lítið hafa
skoðað fyrir útsölurnar. Engu
að síður sagði hún koma fyrir
að hún biði með að kaupa flíkur
fyrir jólin og færi siðan á útsöl-
urnar íjanúar.
Thorarensen Lyf
Varnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 568 6044
Nicotinell nikótíntyggjóið er nýtt, ferskt og gott
bragð í baráttunni við reykingarávanann.
í Nicotinell nikótíntyggjóinu er
einmitt bragðið sem þú þarft til þess að hætta að
reykja. Nicotinell hefur sömu eiginleika og venju-
legt tyggjó og fæst bæði með ávaxta- og pipar-
myntubragði. Komdu í næsta apótek og fáðu
bækling um það hvernig Nicotinell tyggjóið
hjálpar þér best í baráttunni við tóbakið!
Tyggðu frá þér tóbakið
með Nicotinell!
Nicolinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til þess að hætta reykingum. Aðeins má nota lyfiö et reykingum er hætt. Það inniheldur nikótin sem losnar úr því þegar tuggið er, frásogast
I munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstakJingsbundinn en ekki má
tyggja fleirl en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfiö leigur en (1 ár. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragöi og (2 styrfteikum, 2 mg og 4 mg. Nikótíniö í Nicotinell getur valdið
aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði og hiksta. Einn ig ertingu í meltingarfærum. Ðöm yngri en 15 ára mega ekki nota Nicotinell tyggigúmmi án samráðs við lækni. Bamshafan dl konur
og konur með bam á brjósti eiga ekki að nota nikótínlyf. Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki aö nota Nicotinell án þess að ráðfæra sig við lækni. Lesa skal vandlega leiðbeiningar
á fylgiseðli sem tylgir lyfinu. Varúð - Geyma skal lyfið þar sem bðr n ná ekkl til.
Í
Gott bragð
til að hætta
að reykja!