Morgunblaðið - 10.01.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 49 '
Geng’ið á
reka á suð-
urströnd
Reykja-
nesskagans
ÚTIVIST stóð sl. vetur fyrir rað-
göngu meðfram vesturströnd
Reykjanesskagans. Með raðgöng-
unni var minnt á þann þátt í dag-
legu lífi þeiiTa sem bjuggu við sjáv-
arsíðuna að ganga með sjónum og
kanna hvort hann hefði skolað ein-
hverju nýtanlegu að landi og þá
sérstaklega eftir sterka hafátt og
stórstraumsflæði.
Á morgun, sunnudaginn 11. jan-
úar, verður þetta tekið upp að nýju
og gengið á reka á suðurströnd
Reykjanesskagans í fyrstu göngu-
ferð af sjö sem farnar verða hálfs-
mánaðarlega í vetur. Að þessu
sinni verða teknir fyrir rekar
ákveðinna jarða og þeir gengnir í
fylgd staðkunnugra heimamann og
með leyfí jarðeigenda. í gönguferð-
unum sem hefjast og enda við bæ-
ina eða bæjarstæðin verða rifjaðir
upp atburðir er tengjast svæðun-
um og þjóðtrú og rekinn og lífríki
fjörunnar skoðað. Nesti verður
tekið upp við lítið fjörubál ef veður
leyfir og land jarðanna kannað eft-
ir því sem tími leyfir en gönguferð-
in tekur 3-4 tíma.
Brottför er frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 10.30, stansað við Bita-
bæ í Garðabæ og Sjóminjasafnið í
Hafnarfirði og kl. 11.15 við Fitja-
nesi í Reykjanesbæ og kl. 11.45 við
F esti í Grindavík.
Námskeið um
ævintýraleiki
NÁMSKEIÐIÐ Leikurinn öfi-
ugt boðunartæki verður haldið
í Biblíuskólanum við Holtaveg
laugardaginn 17. janúar kl.
13-18.
Viðfangsefni námskeiðsins
er leikurinn, möguleikar og
samhengi leiksins í starfi og
boðun. Sérstaklega verður
fjallað um ævintýraleiki og
þátttakendur leysa verkefni og
vinna hugmyndavinnu sem
tengist viðfangsefninu. Nám-
skeiðið ætti sérstaklega að nýt-
ast öllum sem vilja koma með
nýjan tón í kristilegt æskulýðs-
starf en er öllum opið.
Kennari er Henning Emil
Magnússon. Námskeiðsgjald
er 1.500 kr. Innritun fer fram á
skrifstofu skólans kl. 10-17
alla virka daga og lýkur
fimmtudaginn 15. janúar.
Kennsla fer fram í aðalstöðv-
um KFUM og KFUK við
Holtaveg.
Málfræðifyrir-
lestur í HI
DR. PETER Svenonius, dósent við
Háskólann í Troms0, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði hetaspeki-
deildar Háskóla íslands og íslenska
málfræðifélagsins þriðjudaginn 13.
janúar kl. 17.15 í stofu 311 í Árna-
garði.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og ber heitið „The Syntax of
Cleft Constructions in Scandinavi-
an“.
Peter Svenonius er Bandaríkja-
maður af skandinavískum ættum og
hefur verið dósent við enskudeild
Háskólans í Troms0 undanfarin ár.
Hann hefur getið sér gott orð fyrir
rannsóknir sínar á setningafræði
norrænna mála, flutt fyrirlestra á
ráðstefnum og birt greinar í rit-
rýndum tímaritum.
Fyrirlesturinnn er öllum opinn og
eru málfræðingar og aðrir áhuga-
menn hvattir til að koma, segir í
fréttatilkynningu.
FRÉTTIR
Fræðslukvöld
um þroska-
frávik
í TILEFNI af Alþjóðlegum geð-
heilbrigðisdegi hinn 10. október sl.
sem helgaður var málefnum barna
með geðheilsuvanda var ákveðið af
starfsfólki bama- og unglingageð-
deildar Landspítalans að bjóða upp
á fræðslu til almennings tíunda
hvers mánaðar í tíu skipti.
Fræðslukvöldin bera yfirskrift-
ina: Hegðun, tilfmningar og þroski
- Hefur þú áhyggjur af barninu
þínu? Efni þeirra hefur verið skipt
í þemu, þannig fjalla fyrstu kvöldin
um geðheilsu barna, næst verður
tekið fyrir geðheilsa ungbama og
að lokum verður fjallað um geð-
heilsu unglinga.
Næsta fræðslukvöld verður nk.
mánudagskvöld 12. janúar kl. 20 á
barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans, Dalbraut 12. Efni
kvöldsins verður Þroskafrávik og
námserfiðleikar barna sem Mál-
fríður Lorange sálfræðingur og
Ragna Freyja Karlsdóttir sérkenn-
ari sjá um. Spurningar frá þeim
sem sækja fræðsluna verða vel
þegnar. Aðgangur að fræðslu-
kvöldunum er ókeypis. Boðið verð-
ur upp á kaffíveitingar.
FRÁ afhendingu gjafanna.
Morgunblaðið/Silli
Afhentu peningagjafir
Húsavík. Morgunblaðið.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur færði
á dögunum Starfsmannafélagi
Fiskiðjusamlagsins, Björgunar-
sveitinni Garði og Leikfélagi
Húsavíkur 100.000 kr. hverju að
gjöf.
í máli Einars Svanssonar fram-
kvæmdastjóra kom fram að Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur vildi virða
það góða samstarf sem það hafi
átt í 50 ár við bæjarbúa því starf-
semi þess hafi og sé mjög samof-
in sögu Húsavíkur. Því hafi
stjórn félagsins ákveðið að færa
þessum þremur félagasamtökum
á Húsvík peningagjöf til staðfest-
ingar á virtu samstarfi og til
styrktar starfsemi félaganna.
Ferðastyrkir
Letterstedtska
sjóðsins
ÍSLANDSDEILD Letterstedtska
sjóðsins veitir ferðastyrki á árinu
1998 til íslenskra vísinda- og
fræðimanna sem ferðast vilja til
Norðurlanda á árinu í rannsóknar-
skyni.
Ekki er um eiginlega náms-
styrki að ræða heldur koma þeir
einir til greina sem lokið hafa
námi en hyggja á frekari rann-
sóknir eða þekkingarleit á starfs-
sviði sínu svo sem við rannsóknir á
vísinda- og fræðastofnunum eða
með þátttöku í fundum eða ráð-
stefnum.
Umsóknir með greinargóðum
upplýsingum um tilgang ferðar
skal senda til ritara íslandsdeildar
Letterstedtska sjóðsins, Þórs
Magnússonar þjóðminjavarðar,
Þjóðminjasafni Islands, Suður-
götu 41, Reykjavík, fyrir 1. mars
1998. Veitir hann einnig nánari
upplýsingar.
Gigtarfélagið
efnir til nám-
skeiða
Á VORMISSERI 1998 mun Gigtarfé-
lag Islands standa fyrir nokkrum
námskeiðum. Læknar, sjúkraþjálfar-
ar og iðjuþjálfar munu íjalla um
ákveðna gigtarsjúkdóma, líkamsvit-
und og slökunarsjúkdóma.
Líkamsvitundamámskeið hefst í
lok janúar. Leiðbeinandi verður
Hulda B. Hákonardóttir, sjúkraþjálf-
ari og mun hún fjalla um líkamsvitund
og sjálfsfyrkingu. Námskeiðið verður
tíu mánudaga kl. 15-17 og byrjar 19.
janúar 1998.
Onnur námskeið á vormisseri
verða:
Iktsýkisnámskeið (liðagigt) í lok
janúar. Gigtarlæknir, sjúkraþjálfari
og iðjuþjálfi munu fjalla um iktsýki og
meðhöndlun hennar.
Slitgigtamámskeið í febrúar. Helgi
Jónssonar gigtarlæknir, Ema Am-
þórsdóttir sjúkraþjálfari og Unnur Al-
freðsdóttir iðjuþjálfi munu fjalla um
slitgigt og leiðir til bættrar heilsu.
Einnig stendur til að fá bæklunar-
lækni til að fjalla um aðgerðir vegna
siitgigtar.
Vefjagigtamámskeið í byijun mars.
Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari
mun fjalla um vefjagigt og leiðir til
bættrar heilsu. Námskeiðið verður
þrjú mánudagskvöld kl. 20-22.
Slökunamænskeið í lok mars.
Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir sjúkra-
þjálfari mun fjalla um orsakir streitu
og hvað sé til ráða. Áhersla verður
lögð á að finna muninn á spennu og
slökun og fer Ragnheiður í gegnum
mismunandi slökunaraðferðir. Nám-
skeiðið verður þijú mánudagskvöld
kl. 20-22.
Markmið námskeiðanna er að
byggja gigtarfólk upp en vitneskja um
eigin sjúkdóm og hvað hægt sé að
gera sjálfur í baráttunni við gigtina er
lykilatriði fyrir gigtarsjúklinga.
LEIÐRÉTT
Minningargrein
í BLAÐINU í gær var nafni
Magnúsar E. Finnssonar ofaukið í
undirskrift minningargreinar um
Svanfríði Jónsdóttur, greinina
skrifaði Guðmunda Helgadóttir.
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með fóðurnafn
Armanns Kr. Ólafssonar í frétt í
blaðinu í gær um prófkjör sjálf-
stæðismanna í Kópavogi. Velvirð-
ingar er beðist á mistökunum.
Röng mynd
í MORGUNBLAÐINU í gær, .
fóstudaginn 9. janúar, blaðsíðu 38,
er birt grein eft-
ir Þurðíði Árna-
dóttur, lækni,
sem hefur yfir-
skriftina: Leik-
reglur í stríði.
Með greininni
birtist röng höf-
undarmynd.
Rétt mynd birt-
lSt her Og nu. Árnadóttir
Viðkomendur
eru beðnir velvirðingai- á þessum
mistökum.
Nöfn flytjenda
vantaði
í INNGANGI að dómi um tónleika
á Kjarvalsstöðum sem birtist í
blaðinu s.l. föstudag láðist að geta
flytjenda. Þeir voru Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó, Sigurður
I. Snorrason klarínetta, og Bryn-
dís Halla Gylfadóttir, selló. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um.
■
Leikendur: Steinunn Olma Þorsteinsdóttír / Sigrún Waage, Orn Arnason, Arnar Jónsson, Haildóra Björnsdottir,
Ragnheibur Steindórsdóttir, Anna KrÍstin Arngrimsdóttir, Valur Freyr Einorsson Gisli Rúnar Jónsson ^ jjj1
ÞýSing og söngtextar: Þórarirm Eídjcrn týsing: Egill ingibergsson
leikmyncí og búningar: Sigurjón Jóhonnsson Tónlist: Johann G. Johormsscn xrí
H'joð. Svemn Kicirtansson Dansar: Hony Hadaya Leikstjori: Kolbrún Hollclorsdoftir MÖDLE
MODLEiKHUSlÐ
ALHL0A TOLVUKERFI
HUGBUNAÐUR
FYRIRWINDOWS
Verðlaunagetraun á vefsíðu
www.islandia.is/kerfisthoun
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Simi 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun