Morgunblaðið - 10.01.1998, Side 55
MORGUNB LÁÐIÐ________________________________________________________LAUGARDÁGtJR 10. JÁNÚAR1998 55 -
FÓLK í FRÉTTUM
S
A bak jólum
ÞÁ ER hvunndagurinn aftur geng-
inn í garð eftir þrálátt hátíðahald
um jól og nýár, þegar ekki linnti
barnakæti, ámaðaróskum og
sprengingum svo undir tók í fjöll-
unum. Fréttir birtust jafnvel á
þessum jólum um, að einn helsti
andstæðingur jólanna síðustu tvo
áratugi eða svo, Fidel Castro, hefði
leyft þjóð sinni að halda jól og þótti
merkilegt og gáfulegt eins og allt
sem frá kommúnistum er komið.
Nýjasti og fínasti fjölmiðill heims-
byggðarinnar, sjónvarpið, hefur
enn ekki boðað frestun á jólum og
kemur víst ekki til með að gera
það. Bæði er að þá reynir sjónvarp-
ið að láta Ijós sitt skína í bókstaf-
legri merkingu og hefur auk þess
ómældan gróða af auglýsingum.
Hvernig ljósið skein í íslensku
sjónvörpunum skal ósagt látið,
enda ekki kurteisi að tíunda fall-
valtleika heimsins í sömu andrá og
verið er að þjóna menningunni.
Jóladagskráin svonefnda saman-
stóð af söng og meiri söng sam-
kvæmt venju. Allt var gott um það.
Svo söng Kristján Jóhannsson í
Hallgrímskirkju með tilþrifum og
gladdi okkm- bæði sunnanlands og
norðan, austanlands og vestan, en
einkanlega fyrir norðan, því þaðan
koma söngvarar eins og Stefán Is-
landi og Kristján og eru þó ekki all-
h’ taldir. Svo var eitthvað af
Shakespeare og íslensk kvikmynd
um Natan Ketilsson og atburði,
sem leiddu til aftöku Agnesar og
Friðriks. Ætti að viðhalda þeim sið
að sýna íslenskar myndir á jólum.
Myndin þykh’ góð, einkum seinni
hlutinn. Þykir Agnes sérlega vel
leikin af Ellingsen. Um sagnfræð-
ina fer eflaust eins og biblíu skratt-
ans, að hún er á hvolfí, eða hvað
segja Húnvetningar um „kúrek-
ann“ Blöndal? Hitt er annað að
kvikmynd þarfnast ákveðinna lög-
mála og þá verður sagnfræðin að
víkja.
Gaman var að sjá kvikmyndina
um Ódysseif og basl hans við að
komast heim til sín í tíu ár eftir
Trójubardaga. Þarna var komin ein
af hetjum æsku minnar, að vísu í
mikið fullkomnari mynd. En ég
fékk snemma bók í hendur, að mig
minnir mynd-
skreytta, um
Ódysseif að fást við
eineygða risa og
önnur undur og stórmerki. AUt er
þetta úr kviðu Hómers en eftir
skáldskapnum að dæma virðast
menn og þjóðir hafa lifað í ævin-
týraheimum munnmælasögunnar,
nema helst Snorri og frændi hans
Sturla. En hetjulegt var basl
Ódysseifs og greiðlega gekk honum
að fyrirkoma vonbiðlum konu sinn-
ar, sem voru við það að éta út búið í
fjarveru hans.
Islendingar hafa aldrei vikist
undan erfiðleikum og lagt fyrir sig
margar þrautir til þess að sigrast á
þeim. Menn kepptu í glímu og
steinatökum, þegar fábrotnara var,
en nú er keppt í íþróttum og flestu
því sem býður upp á sigur. Þaðan
er sprottin hin
mikla og almenna
verðlaunagleði Is-
lendinga í einu og
öllu. Á síðasta ári og í byrjun þessa
árs hafa verið unnin afrek sem fáa
óraði fyrir, en þau þykja einhvern-
veginn sjálfsögð, þegar þau hafa
verið leyst af hendi. Fyrst var
gangan á Everest og nú gangan á
Suðurpólinn. Bent hefur verið á, að
hér sé hópur menningarvita, karla
og kvenna, sem sæki kaffihúsin í
Reykjavík frá svona Laugavegi 30
og niður í miðbæ, en hafi að öðru
leyti hreiðrað um sig í útvörpum og
sjónvörpum með dagskrárefni þar
sem vinum og vandamönnum er
boðið og láti sig lítið varða hvað
gerist utan hópsins. Sýnilegt er að
Everest og Suðurpóllinn eru ekki á
hinu fjölmiðlavæna sérreykvíska
menningarsviði.
Jórturfénaður margvíslegur hef-
ur sífellt tönnlast á því, að íslend-
ingar séu mikil bókaþjóð. Svo gerð-
ist það nú fyrir jólin, að bækur
seldust eitthvað betur en undanfar-
in haust, svo búast má við nýjum
söng um bókaþjóðina. Sannleikur-
inn er sá að við höfum kannski ver-
ið bókaþjóð þegar grannt er skoð-
að, en alla tíð skrítin bókaþjóð.
Vegna ágangs á bókavertíð hefur
það verið draumur sjónvarpsstöðva
hér að losa sig alfarið við frétta-
flutning af bókum. Það mun hafa
tekist að mestu fyrir þessi jól. Því
má búast við að bækur í næstu
framtíð verði skrifaðar í kringum
hneykslismál, eða að hægt verði að
gera þær að hneykslismálum svo
unnt verði að komast fréttaleiðina
á skerminn. Sjónvörpin hafa þá af-
rekað nokkuð í þágu bókanna.
Indriði G. Þorsteinsson.
SJONVARPA
LAUGARDEGI
Ljúfa lífinu lokið
► ÓLÁTABELGURINN Liam
Gallagher í bresku hljómsveitinni
Oasis segist hafa lagt hið ljúfa líf á
hilluna og hyggst helga sig fjöl-
skyldulífinu og eignast börn.
Þetta kemur fram í viðtali í tíma-
ritinu GQ við söngvarann og seg-
ist hann orðinn leiður á að sniffa
eiturlyf og vill fremur eiga rólegt
kvöld með eiginkonunni Patsy
Kensit. „Núna, þegar ég hef Pats
líður mér best með henni. Það
þroskar mig,“ sagði Liam í viðtal-
inu. Hann segist ákveðinn og vera
tilbúinn að eignast börn. „Eg á
eftir að hafa ótrúlega gaman af
því. Ég er á réttum aldri, 25 ára, á
hús og hef ennþá vinnu.“
Liam ætlar ekki láta þar við
silja heldur hefur ákveðið að fá
sér hund sem mun bera nafnið
„Hendrix" eftir rokksljörnunni
frægu og eyða meiri tíma á sveita-
setrinu sem hann er að endumýja.
Skaphiti Liams er þó ekki með
öllu horfínn því í' miðju viðtalinu
stökk hann upp á kráarborðið til
að bölva Bítlunum George Harri-
son og Paul McCartney fyrir að
LIAM Gallagher í Oasis ætlar
að helga sig fjölskyldunni.
gagnrýna Oasis. Hljómsveitin hóf
tónleikaferðalag sitt um Banda-
ríkin 9. janúar og nýjasta smá-
skífa þeirra „All Around the
World“ kemur út 12. janúar.
UTSALAN
er ífullum gangi
fierra
GARÐURINN
KRINGLUNNI
nsarar
Opnir tímar á
Laugardögum
Nú er tækifærið til
að bæta við sig.
Tírriar hjá
Maríu Gísladóttur,
Kötu Ingvadóttur og
Báru Magnúsdóttur.
Jazz + ballett
5 laugardaga kr. 2.500
JassbaJlett
Innritun nýrra
nemenda í skólann
mánudaginn 12.janúar
kl. 10.00-17.00
Örfá pláss laus.
Búðin
Nýjar vörur vivntanlegar.
• Langar legghlífar
• Jazzpants
• Frábærir jazzdanskór o.fl
Kata ingvadóttir
Bára Magnúsdóttir
Lágmúla 9, símar 581 3730 & 581 3760 • l:ILD - Félag íslenskra listdansara DÍ - Dansrái) íslands