Morgunblaðið - 10.01.1998, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
öömlu dansami»*
Kefjast í ■H^eyf-ilskwsÍKvu
í Uvöld kl. 22
Félag harmonikuunnenda
Reiki', heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Hvaíf«þitttdendur út
* I slLínúmskei^ *
#Læ ra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og /eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
^Læ ra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt, í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
^Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Ndtnskeið í Reykjavík
13. -15. jan. 1. stig kvöldnámskeið
17.-18. jan. 1. stig helgamámskeið
14. —15. feb. 2 stig helgamámskeið
Kynningarfundur
mánudagskvöldið 12. jan. Id. 20.30 í Safamýri 18 kjallara.
Lausir einkatímar
í heiiun og ráðgjöf.
Sáttmdlinn:
Hugrtektar- og hamingjunámskeið í tveimur hlutum með 6 vikna millibili.
27.- 29. jan................kvöldnámskeið, seinni hluti.
10,— 12. mars...............3 kvöld
31.jan. — l.feb.............helgamámskeið, seinni hluti
14. - 15. mars..............helgamámskeið
FÓLK í FRÉTTUM
HLJÓMSVEITIN The Rolling Stones hefur ekki misst aðdráttarafl sitt
þrátt fyrir áratuga langan feril.
Rolling
Stones vin-
sælastir
ÖLDUNGARNIR í Rolling Stones
voru sú hljómsveit sem reyndist
hafa mesta aðdráttarafl á banda-
ríska tónleikagesti á síðasta ári,
samkvæmt árlegu yfirliti fyrirtæk-
isins Pollstar.
AIls eyddu bandarískir neytend-
ur 1,3 milljörðum dollara í
popptónleika á síðastliðnu ári og er
það næstmesta upphæðin nokkurn
tímann. Sérfræðingar segja þó
skýringuna á því ekki einungis
mega rekja til aukinnar aðsóknar
að tónleikum heldur fyrst og
fremst þess að miðaverð hefur
hækkað. Mestar hafa tekjur popp-
iðnaðarins af hljómleikum orðið ár-
ið 1994 en þá námu þær 1,4 millj-
örðum dollara.
Tónleikaferð Rollinganna bar
að þessu sinni yfirskriftina
„Bridges to Babylon“ og seldust
alls 1,5 milljónir miða að andvirði
89,3 milljónir dollara. Raunar
seldust fleiri miðar á tónleika
sveitarinnar U2, 1,7 milljónir, en
tekjur af tónleikum Rolling Stones
voru eigi að síður hærri. Þá urðu
írsku poppararnir oft að sætta sig
við að fjölmörg óseld sæti voru á
tónleikum á seinni helmingi „Pop-
mart“-hljómleikaferðarinnar, er
þeir voru komnir í beina sam-
keppni við Rolling Stones um hylli
aðdáenda.
Flestir miðar á tónleika Rolling
Stones og U2 kostuðu um 60 doll-
ara eða um 4.400 íslenskar krónur.
Miðaverð á tónleika Fleetwood
Mac enn hærra. Tónlistarmenn
sem ekki njóta slíkra vinsælda en
reyndu eigi að síður að skrúfa upp
miðaverð urðu fyrir nokkrum and-
byr frá tónleikagestum.
A lista Pollstar yfir vinsælustu
hljómleikaferðmnar er að finna
margar gamlar kempur, m.a. Tinu
Turner, Aerosmith, Grateful Dead
og Artist, en hinn síðastnefnda
þekkja flestir undir fyrra lista-
mannsnafni hans, Prince.
TONLISTARHELGI
i 9 OC 10 JAN. i
Papar^iin.’
leika í kvöld
Oh mtj Goodness, mg OaíDDess !
nfr geisladiskur Papanna
GleðisÉODd DJilli 19:00 og 22=00
fgrir allö grœDö og glöðö
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ►12.55 Fyrsta mynd dagsins
er Veiðiþjófarnir (The Far Off
Paíace, ‘93) ★★'/2, prýðisgóð barna-
og fjölskyldumynd sem segir af flótta
tveggja ungmenna (Reese Wither-
spoon og Ethan Randall) undan veiði-
þjófum í Kalahari-eyðimörkinni. Þeim
til bjargar verður ungur búskmaður.
Minnir talsvert á Walkabout, þá
mögnuðu mynd sem Nicholas Roeg
gerði í óbyggðum Ástralíu, enda báð-
ar þroskasögur unglinga undir svip-
uðum kringumstæðum í hliðstæðum
félagsskap. Með Maximillian Schell
og Jack Thompson. Leikstjóri Mikael
Salomon.
Stöð2^21.00 Bandarískir kvik-
myndagerðarmenn sækja mikið í
gamla sjónvarpsþætti. Raunir rétt-
vísinnar (Dragnet, ‘87) er ein slík og
byggist á vinsælum þáttum frá því á
sjöunda áratugnum um ólíka lög-
reglumenn, sem hér eru leiknir af
Dan Aykroyd og Tom Hanks. SV og
AI gefa ★★ í Myndbandahandbók-
inni og segja myndina fislétta
skemmtun þar sem Aykroyd steli
senunni af Hanks í hlutverki sérvitr-
ingsins og lögreglumannsins Joes
Friday.
Sjónvarpið ►21.00 Hún leynir á sér
gamanmyndin Frændsystkin (Cous-
ins, ‘89), kynlífskómedía gerð eftir
samnefndri frægri og franskri mynd
um mann sem verður ástfanginn af
frænku sinni. Ted Danson og Isabella
Rosselini fara vel með aðalhlutverkin
en auk þeirra leika Sean Young, Willi-
am Petersen og Lloyd Bridges í
myndinni, sem Joel Schumacher leik-
stýrir. ★★Vi.
Sýn ►21.20 Hún er ekki af verri
endanum hrollvekjan Þokan (The
Fog), orðin sígild á meðal unnenda
hryllingsmynda. Hún er frá þeim
tíma þegar Ieikstjórinn, John
Carpenter, gerði þessar líka fínu
myndir af litlum efnum. Með Jamie
Lee Curtis gjaman í aðalhlutverki og
buffið Tom Atkins kom oftar en ekki
við sögu. Hal Holbrook, Adrienne
Barbeau, John Houseman og Janet
Leigh fara með önnur stór hlutverk í
þessari spennandi draugasögu frá
sjávarþorpi í Kaliforníu. Einn
drungalegan aftan knýja sjódraugar
úr aldagömlu strandi dyi'a hjá vita-
verðinum Barbeau. Fullir af hefndar-
hug hyggja þeir á makleg málagjöld
til handa afkomendum þeirra manna
sem tældu þá í hina votu gröf fyrir
sléttum 100 árum. ★★'/2
Stöð 2 >22.45 Óaldarflokkurinn
(The Wild Bunch, 69), sjá umfjöllun í
ramma.
Sjónvarpið ►23.10 Þvi miður er
eiginlega ekkert gott hægt að segja
um Víkingasögu (Viking Saga, ‘94),
sem er ekki áhugaverð að neinu leyti
öðru en að hún er tekin hérlendis með
slatta af ágætum, íslenskum leikur-
um. Efnið sótt í Islendingasögur með
Stjörnustríðsívafi. Afleit della sem er
jafnframt eitt fyrsta leikstjórnarverk-
efni kvikmyndatökumannsins góð-
kunna Michaels Chapman. 'h
Stöð 2 M .10 Öskubuskuævintýrið
Stórkostleg stúlka (Pretty Woman,
‘90), um götumelluna með gullhjartað
(Julia Roberts) sem kynnist vellauð-
uga draumaprinsinum (Richard
Gere), er besta skemmtun og parið
hið borginmannlegasta. Glórulaus vit-
leysa sem gæti aðeins gerst í
Hollywood, en afþreyingargildið engu
að síður ótrúlega mikið. ★★★
Stöð 2 ►3.10 Stórborgarvestrinn
Kúrekar í stórborginni (‘94) segh' af
félögunum Woody Harrelson og Ki-
efer Sutherland, kúasmölum úr sveit-
inni, sem bregða sér í bæinn til að
hjálpa vini í nauð. Ómerkileg grínút-
gáfa af kringumstæðunum í Coogan’s
Bluff, gamalli og góðri Eastwood-
mynd. Utan Harrelsons er leikaraval-
ið fremur ógeðfellt. Sutherland, Dyl-
an McDermott, Marg Helgenberger
og Thomas Milian ★V2.
Sæbjörn Valdimarsson
Ofbeldis-
fullir
harðnaglar
Einn frægasti vestrinn sem gerð-
ur hefur verið á síðari hluta ald-
arinnar er hinn ofurraunsæi og
blóðidrifni Óaldarflokkurinn (The
Wild Bunch, ‘69) og hefur, ásamt
Butch Cassidy and the Sundance
Kid, haft ómæld áhrif á þessa gerð
mynda æ síðan. Um hann hafa verið
ritaðar heilu bækurnar. Leikstjór-
inn var Sam heitinn Peckinpah, sem
var einna kunnastur fyrir ofbeldis-
fullar harðnaglamyndir sínar sem
urðu margar hverjar feikivinsælar
og settu mark sitt á verk fjölmargra
leikstjóra frá þessu tímabili. Ofbeld-
ið er hrikalegt í Óaldarflokknum og
best að taka það strax fram að
myndin er ekki við hæfi viðkvæmra
né barna yngri en 16 ára. Hún
styðst að einhverju leyti við endalok
samnefnds gengis, sem stundaði
rán og gripdeildir í landamærahér-
uðum Bandaríkjanna og Mexíkó
fram á annan áratug aldarinnar.
Gengið og starfsaðferðir þess frá
öldinni sem leið dagaði loks uppi í
smábæ sunnan landamæranna 1914.
Þar var það hreinlega skotið í tætl-
ur í sögufrægri fyrirsát sem Peckin-
pah lýsir í ekki síður kunnum atrið-
um þar sem hann undirstrikar ljót-
leika og grimmd blóðsúthellinga í
löngum senum, sem hann sýnir
gjarnan hægt. Hið roskna bófa-
gengi, sem var búið að lifa sitt feg-
ursta, er mannað einvala liði frá-
bærra skapgerðarleikara sem líður
seint úr minni. William Holden, Er-
nest Borgnine, Robert Ryan og
Warren Oates eru magnaðir 19. ald-
ar bófar á rangri öld, orðnir tíma-
skekkjur. Þeir eru dyggilega studd-
ir af Edmund O’Brian, Ben John-
son, Strother Martin og L.Q. Jones.
Þvflíkur mannskapur, þreyttur,
skítugur, blóðugur, rifinn og tættui'
í ofanálag. Þó er draumkennd feg-
urð yfir slátruninni, sem er frábær-
lega kvikmynduð af Lucien Ballard
og meistaralega klippt. Verður þó
ætíð fyrst og fremst mynd leikstjór-
ans og leikhópsins.