Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
40. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kofi Annan kveðst
munu fara til Bagdad
Oryggisráðið samþykkir áætlun
um för framkvæmdastjórans
Sameinuðu þjóðunum, Washington, Bagdad, París, Moskvu. Reuters.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, mun fara til
Bagdad í Irak á fóstudag að því er fram kom á fréttamannafundi sem
Annan hélt í gærkvöldi eftir að hafa átt fund með fastafulltrúum í ör-
yggisráði SÞ. Fastafulltrúarnir fimm komust að munnlegu samkomu-
lagi um áætlun um för Annans, að því er bandarískir og breskir emb-
ættismenn sögðu í gærkvöldi. Bill Richardson, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá SÞ, sagði í gærkvöldi að Bandaríkjastjórn væri fylgjandi því
að Annan færi, en áskildi sér rétt til andstöðu ef hún yrði ekki sátt við
árangurinn.
Reuters
Flugbann á Tævan
Stönd-
ugir Ind-
dnesar
Singapore. Reuters.
í INDÓNESÍU er alvarleg
efnahagskreppa en nokkrir
ríkustu menn landsins gætu þó
farið langt með að greiða þá
upphæð, rúmlega 3.000 millj-
arða ísl. kr., sem IMF, AI-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn, ætl-
ar að leggja af mörkum til að
bjarga efnahagslífinu.
Bandarfska tímaritið Forbes
birtir árlega lista yfir ríkustu
menn í heimi og samkvæmt
honum eru sjö ríkustu menn-
irnir í Indónesíu skrifaðir fyrir
tæplega 40 milljörðum dollara
eða um 2.900 milljörðum ísl.
kr. Aðstoðin, sem IMF hefur
ákveðið að veita Indónesíu-
stjórn, nemur hins vegar 43
milljörðum dollara eða 3.100
milljörðum ísl. kr. Kemur
þetta fram á netsíðu tímarits-
ins en ekki segir hvenær matið
var gert.
Ríkasti maðurinn í
Indónesíu er sjálfur forsetinn,
Suharto, og eru eignir hans
metnar á rúmlega 1.100 millj-
arða kr. I öðru sæti er
Wonowidjojo-fjölskyldan með
533 milljarða kr. en aðrir með
minna.
Stefnuræða Jeltsíns
Rússlandsforseta
Brýnir
stjórnina
til dáða
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í árlegri stefnuræðu sinni,
sem hann hélt í gær fyrir þjóðþingi
landsins, að ríkisstjórn Viktors
Tsjemomyrdíns yrði vikið frá ef
hún næði ekki árangri á nokkrum
lykilsviðum, þar á meðal í ríkisfjár-
málum, að gera endurbætur á
skattheimtu og að stuðla að hag-
vexti með því að tryggja fjárfesting-
ar í framleiðsluiðnaði frekar en í
spákaupmennsku á fjármálamörk-
uðum.
„Ég ætla ekki að endurtaka
þetta. Ef ríkisstjórnin stendur sig
ekki í að ná þessum lykilmarkmið-
um, þá verðum við að fá nýja ríkis-
stjóm,“ sagði forsetinn, en þessum
orðum svaraði þingheimur með
dynjandi lófaklappi, sem þingmenn
fóra annars mjög sparlega með er
Jeltsín flutti ræðuna. Stjómarand-
staðan er atkvæðamest í neðri deild
þingsins, dúmunni.
Sérfræðingar fagna
Sérfræðingar í efnahagsmálum
fögnuðu ræðunni sem merld um
ákveðni forsetans í að framfylgja
fyrri umbótastefnu, frekar en að
hún innihéldi nýjar hugmyndir.
Jeltsín virtist við góða heilsu og
flutti ræðuna af skörangsskap.
Hann átti síðar í gær viðræður við
Li Peng, forsætisráðherra Kína,
sem er í tveggja daga opinberri
heimsókn í Moskvu.
■ Endurnýjuð krafa/20
ALLAR Airbus-þotur tævanska
flugfélagsins China Airlines hafa
verið kyrrsettar vegna rannsókn-
ar á brotlendingu flugvélar
þeirrar gerðar við flugvöllinn í
Taipei í fyrradag. Með öllu er
óljóst hvers vegna þotan brot-
lenti í íbúðarhverfi við flugvall-
arjaðarinn með þeim afleiðingum
að 203 fórust. í gær var hafist
handa við að hreinsa brakið af
slysstað.
■ Tævanar kyrrsetja/18
CNN hafði í gærkvöldi eftir Niz-
er Hamdoon, sendiherra Iraka hjá
SÞ, að írakar litu svo á að mögu-
leikar á lausn deilunnar væra nú í
höndum framkvæmdastjórans.
Annan mun í dag eiga fund með öll-
um fulltrúunum í öryggisráðinu.
Annan mun væntanlega hafa
meðferðis til Bagdad nákvæma
greinargerð um hversu langt hann
megi ganga í að bjóða Irökum til-
slakanir í deilu þeirra við SÞ um
vopnaeftirlit í írak.
Samkvæmt henni gæti Annan
boðið Irökum að til greina kæmi að
vopnaeftirlitinu yrði breytt þannig
að það færi eingöngu fram í íbúðar-
byggingum í svonefndum „forseta-
bústöðum" í Bagdad, en deilan hef-
ur snúist um að Irakar hafa meinað
eftirlitsmönnum aðgang að forseta-
bústöðunum.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, varaði í gær Saddam Hússein
Iraksforseta við því að ef írakar
létu ekki undan mættu þeir búast
við árásum. Clinton sagði að þó
væri enn kostur á samningalausn á
deilunni. „Saddam Hússein gæti
leyst þennan vanda á morgun, ein-
faldlega með því að leyfa vopnaeft-
irlitsmönnunum að sinna störfum
sínum,“ sagði Clinton.
írakar hétu því í gær að þeir
myndu gera allt sem í sínu valdi
stæði til þess að för Annans yrði ár-
angursrík. „írak mun einbeita sér
að raunhæfum aðgerðum til að
sendiför Kofi Annans, fram-
kvæmdastjóra SÞ, til höfuðborgar
Iraks verði árangursrík," sagði í op-
inberri yfirlýsingu frá stjómvöldum
í Bagdad.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Iraks, sagði í gær að Irakar
hefðu ekki átt frumkvæðið að deil-
unni um vopnaeftirlit SÞ og hefðu
gert hvað þeir gætu tO þess að finna
SINN FEIN, stjórnmálaarmur
írska lýðveldishersins (IRA), ásak-
aði í gær bresk stjórnvöld um að
vilja með gerræði bola sér frá samn-
ingaborðinu í viðræðum er standa
um frið á Norður-írlandi. Bretar
vísuðu ásökuninni á bug.
Sinn Fein fór þess á leit síðdegis í
gær að viðræðunum yrði frestað
meðan flokkurinn leitaði lagalegrar
ráðgjafar vegna tilrauna Breta til að
koma honum frá samningaborðinu.
„Hér er ekki um að ræða lög eða
ólög, heldur snýst þetta um pólitísk
samskipti," sagði Mo Mowlam, N-
írlandsmálaráðherra bresku stjórn-
arinnar. Mowlam sagði að írsk og
bresk stjórnvöld, sem hafa forgöngu
um viðræðurnar, myndu ákveða
hver framtíð Sinn Fein í viðræðun-
um yrði að höfðu samráði við alla
átta stjórnmálaflokkana sem taka
þátt í þeim. Embættismenn sögðu
mætti samningalausn þar sem jafn-
vægis væri gætt.
Um væntanlega heimsókn Ann-
ans til Bagdad sagði Aziz að Annan
myndi gegna hlutverki sáttasemj-
ara, ekki sendiboða. Bandarískir
embættismenn hafa sagt að eini til-
gangurinn með fór Annans yrði sá
að gera írökum grein fyrir að þeir
yrðu að fara að vilja SÞ.
Hafa „enga heimild“
I viðtali við CNN í gær gagn-
rýndi Aziz orð Clintons og sagði að
Bandaríkin hefðu enga heimild til
árása á Irak. Hann sagði að banda-
lag þeirra ríkja sem hefðu lýst
stuðningi við Bandaríkin væri
„bandalag um að gera út af við heila
þjóð“.
Mohammed Saeed al-Sahaf, utan-
ríkisráðherra Iraka, átti í gær fund
með Jacques Chirac Frakklandsfor-
seta og tjáði fréttamönnum að því
búnu að Irakar myndu „taka já-
kvætt“ í allar hugmyndir sem ætlað
væri að leysa vopnaeftirlitsdeiluna.
Jevgeníj Prímakov, utanríkisráð-
heraa Rússlands, sagði í samtali við
rússneska sjónvarpið í gær að hann
teldi Iraka reiðubúna til að fara að
samþykktum öryggisráðs SÞ og
leyfa vopnaeftirlit. „Þessari sendi-
för verður að ljúka. [Hún] var farin
í því augnamiði að fá Iraka til þess
að verða skilyrðislaust við þeim
kröfum sem þjóðir heims hafa gert
til þeirra. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem við höfum eru þeir
reiðubúnir til þess.“
I sameiginlegri yfirlýsingu í gær
frá Borís Jeltsín, forseta Rússlands,
og Li Peng, forsætisráðheraa Kína,
sagði að þeir höfnuðu alfarið beit-
ingu vopnavalds gegn Irak, og
hvöttu þeir til samningalausnar á
deilunni. Li Peng er í opinberri
heimsókn í Rússlandi.
að ákvörður.ar væri að vænta í dag.
Fulltrúar Sinn Fein söfnuðust
tugum saman að hliði Dublin-kast-
ala, sem hefur um aldaraðir verið
tákn breskra forráða á Irlandi, og
mótmæltu því að Sinn Fein yrði vís-
að frá viðræðunum. „Það er sjúklegt
að árið 1998 skuli bresk stjómvöld
vera komin í Dublin-kastala að segja
írskum stjórnvöldum að útiloka
þátttöku íra,“ sagði einn fulltrú-
anna.
Samkvæmt reglum er settar voru
um viðræðurnar er þær hófust geta
þeir flokkar, sem eru í tengslum við
hópa er standa að ofbeldisaðgerð-
um, ekki tekið þátt í viðræðunum.
IRA segir vopnahlé, sem lýst var yf-
ir í september, enn í gildi. Mowlam
sagði á mánudag að lögreglustjórinn
á Norður-írlandi teldi fullvíst að
IRA hefði staðið að tveim morðum í
Belfast í síðustu viku.
Friðarviðræður á Norður-Irlandi
Þátttaka Sinn
Fein á bláþræði
Dublin. Reuters.