Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 19 ERLENT Reuters STEVE Hanke, bandarískur hagfræðingur og ráðgjafi Indónesíu- stjórnar, á fréttamannafundi í Jakarta í gær. Hann er hlynntur því að festa gengi rúpíunnar gagnvart dollara og mótmælir því, að vextir muni hækka mikið í kjölfarið. Indónesar vilja festa gengi rúpíunnar IMF hótar að hætta aðstoð Djakarta, Washington. Reuters. RÍKISSTJÓRN Suhartos, forseta Indónesíu, vék í gær seðlabanka- stjóranum úr embætti og er ástæð- an talin vera andstaða hans við að festa gengi rúpíunnar gagnvart er- lendum gjaldmiðlum, aðallega Bandaríkjadollara. Hafa ýmis er- lend ríki og IMF, Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn, harðlega gagnrýnt þá fyrirætlun og IMF hótar jafnvel að hætta við fyrirhugaða aðstoð verði látið verða af henni. í tilkynningu frá ríkisstjórninni sagði, að Soedradjad Djiwandano seðlabankastjóri hefði látið af störfum „með sæmd“ en ekkert frekar sagt um ástæður uppsagn- arinnar. Eftir heimildum er hins vegar haft, að hann hafi verið and- vígur því að festa gengi rúpíu gagnvart dollara. Aukið svartamarkaðsbrask með gjaldeyri Almennt er búist við, að gengi rúpíunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum verði fest og strangt gjaldeyriseftirlit tekið upp en það mun óhjákvæmilega leiða til mikils svartamarkaðsbrasks með gjald- eyri. Talið er líklegt, að gengi rúpíu verði ákveðið 5.500 á móti einum dollara en það var 2.400 þegar efna- hagskreppan reið yfir í júlí á síðasta ári. í gær var það í 9.300 til 9.500. Bandaríski hagfræðingurinn Steve Hanke, sem er Indónesíu- stjóm til ráðgjafar, hefur rekið áróður íyrir því að festa gengið en gagnrýnendur segja, að þótt slíkt fyrirkomulag geti litið vel út á pappírnum, þá hafi Indónesíustjóm ekki gjaldeyrisvarasjóði til að halda því uppi. 220 milljarða kr. greiðsla í mars Ýmis ríki, sem leggja hvað mest til IMF, til dæmis Bandaríkin, Þýskaland og Japan, hafa gagn- rýnt þessa fyrirætlan Indónesíu- stjórnar og IMF hefur jafnvel hót- að að hætta að greiða upp í 43 milljarða dollara, rúmlega 3.100 milljarða ísl. kr., aðstoð við indónesískt efnahagslíf. Til stendur að greiða af henni 220 milljarða kr. í mars og myndi einhver dráttur á því hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Vestrænir bankamenn segja, að brottrekstur Djiwandano komi á slæmum tíma og muni ekki auka trá erlendra fjárfesta á Indónesíu en stjómmálaskýrendur segja, að Su- harto, sem hefur stjórnað landinu í 32 ár í skjóli stöðugleika og hag- vaxtar, sé orðinn örvæntingarfullur og vilji umfram allt festa gengi rúp- íunnar til að vinna gegn verðhækk- unum og atvinnuleysi og vaxandi ókyrrð í landinu. Bandaríska dagblaðið The Was- hington Post sagði í gær, að Su- harto teldi, að aðstoðin frá IMF hefði ekki breytt miklu um krepp- una í landinu og þess vegna vildi hann grípa til þess að festa gengið. Sagt er, að hann hafi skýrt Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, frá því í símtali sl. fóstudag en þá ítrek- aði Clinton kröfur IMF. MEGANE OPERA gefur rétta tóninn í umferðinni Staðalbúnaður í Mégane Opera: Fullkomið hljómflutningskerfi með geislaspilara, 6 hátölurum og fjarstýringu í stýrinu. SamUtir stuðarar Álfelgur « Rafdrifnar rúður Vökva- og veltistýri • Fjarstýrðar samlæsingar Litað gter * Þjöfavöm ♦ Tölvustýrður oUuhæðarmæUr 8 Öryggisbeltastrekkjarar með dempara kombí; og Revjjsluaktu , RRnault mégane opera MEGANE 0PERA - HLJOMLEIKAHOLL A HJOLUM RENAULT B&L • Armúla 13 • sími 575 1200 • söludeild 575 1220 • fax 568 3818 • netfang t Ertu búinn að smakka þessi gómsætu sa löt? 'fífi ÍÆí rLÍ __ . • ■ Ifiííi'- •i J Salötin frá Hollt og Gott eru frábær ofan á brauð eða með fersku grænmeti. Salötin fást í öllum helstu matvöruverslunum. «9loUt & ffott

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.