Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Danir sigurvegarar í sveitakeppni Bridshátíðar Spennandi loka- umferð í jöfnu Flugleiðamóti Morgunblaðið/Arnór KRISTJAN Kristjánsson óskar Sabine Auken til hamingju með sigurinn á Flugleiðamótinu en aðrir eru Morten Andersen, Sören Christiansen og Jens Auken. NORSKA landsliðinu gekk ekki sem best í sveitakeppninni en þeir Egil Sælensminde og Boye Brogeland eru þó hinir ánægðustu með Sabine Auken á milli sín. Brogeland þykir einn efnilegasti spilari Evrópu um þessar mundir. BRIPS Hótel Loftleiðir FLUGLEIÐAMÓTIÐ Sveitakeppni Brídshátíðar, Flug- leiðamótið, var haldið 15.-16. febrú- ar með þátttöku 92 sveita. DANSKA sveitin stóð uppi sem sigurvegari á Flugleiðamótinu í sveitakeppni sem lauk á mánudags- kvöld, eftir jafna og spennandi keppni. Það hefur stundum gerst á Flug- leiðamótum að ein sveit hefur tekið afgerandi forustu snemma en að þessu sinni var jafnan nýtt nafn á toppnum fram yfir mótið mitt. Sveit skipuð Aðalsteini Jörgensen, Sig- urði Sverrissyni, Kay Schulle og Gerard Sosler höfðu til dæmis fullt hús, 50 stig, eftir tvær fyrstu um- ferðirnar en í 3. umferð var sveit Roche orðin efst með 69 stig. Þá voru Danimir í 16. sæti en þegar keppni lauk á sunnudagskvöld eftir 6 umferðir höfðu Danimir náð efsta sætinu með 121 stig, næst kom sveit Amar Amþórssonar með 119 stig og þrjár sveitir komu næstar með 115 stig, Roche, Kaupþing Norður- lands og Stilling. Danimir juku við forskot sitt í 7. umferð og héldu því í þeirri 8. en sveit Samvinnuferða-Landsýnar var þá komin í 2. sætið. Þessar sveitir unnu báðar sína leiki í 9. og næstsíðustu umferð og fyrir loka- umferðina var staða efstu sveita þessi: Danmörk 178, Samvinnuferð- ir 176, Strengur 169, Örn 168. Risaskor Þessar sveitir spiluðu innbyrðis í lokaumferðinni, Danir við Streng og Samvinnuferðir við Öm. Fyrmefndi leikurinn var sýndur á sýningar- töflu og strax í fyrsta spili fengu Strengsmenn risaskor: Austur gefur, NS á hættu. Vestur Norður ♦ 74 ¥ÁK1075 ♦ 4 *108753 Austur A10862 ¥64 ♦ DG3 *Á942 Suðu r AKDG93 ¥9 ♦ 765 AKDG6 AÁ5 ¥ D1098 ♦ ÁK10982 *- Sömu spilin vora spiluð á sex efstu borðunum og við þau flest byrjaði austur á að opna á 1 spaða og suður sýndi tvílita hönd, annað- hvort með því að segja 2 spaða til að sýna hjarta og láglit, eða stökkva í 3 lauf til að sýna rauðu lit- ina. Vestur stökk í 4 spaða og norð- ur sagði 5 hjörtu. Og þar gafst suð- ur víðasthvar upp. Það var t.d. nið- urstaðan við annað borðið í leik Samvinnuferða og Arnar, en við hitt borðið lyfti Fred Hamilton í suður í 6 hjörtu, fékk alla slagina og 12 impa. í sýningarleiknum spiluðu Mort- en Andersen og Sören Christiansen 5 hjörtu gegn Kristjáni Blöndal og Rúnari Magnússyni. En við hitt borðið sátu Hrannar Erlingsson og Júlíus Siguijónsson NS gegn hjón- unum Jens Auken og Sabine Auken: Vestur Norður Austur Suður JA HE SA JS 1 spaði dobl 4 spaðar Slyörtu pass ögrönd pass 6 lauf pass 6hjörtu pass 7 lyörtu pass pass dobV// Júlíus valdi að dobla með suður- spilin og átti ýmislegt ósagt þegar Hrannar fór í 5 hjörtu. Það var Ijóst að Hrannar átti a.m.k. 5-lit þar og Júlíus sá möguleika á alslemmu ef trompið var nægilega gott. Hann spurði því um gæði tromplitarins með 5 gröndum. Hrannar var ekki alveg viss hvað sögnin þýddi og sagði 6 lauf ef vera kynni að Júlíus vildi spila láglit- arslemmu. En þegar Júlíus breytti í 6 hjörtu hækkaði Hrannar í alslemmuna með tvo efstu í trompi. Auken doblaði með laufaásinn en alslemman vannst auðveldlega með því að trompa tígulinn góðan, og sveit Strengs græddi 18 impa á spilinu. Það var vel af sér vikið að komast í alslemmu á þessi spil, enda klöppuðu áhorfendur í sýn- ingarsalnum Júlíusi og Hrannari lof í lófa. Leikurinn róaðist eftir þetta en Strengur vann hann, 17-13. Þá nægði Samvinnuferðum jafhtefli í sínum leik, því sveitin hafði unnið Danina fyrr í mótinu. Öm vann leik- inn hins vegar 16-14 og því unnu Danimir mótið með 1 stigs mun. Þetta var lokastaðan: Danmörk 191 Samvinnuferðir 190 Strengur 186 Öm Amþórsson 184 Stilling 182 Kaupþing Norðurlands 182 ÍSLAND, yngri spilarar 178 Eimskip 177 Kjörís 176 Samskipti 175 Lífeyrissjóður Austurlands 175 Danska sveitin er skipuð lands- liðsmönnum, bæði dönskum og þýskum, en Sabine Auken er þýsk og varð m.a. heimsmeistari kvenna með þýska landsliðinu fyrir þremur árum. Margrét Hauksdóttir upplýs- ingafulltrúi Flugleiða og Kristján Kristjánsson forseti Bridssam- bands íslands afhentu verðlaun í mótslok, bæði fyrir tvímennings- keppnina og sveitakeppnina. Röðin í tvímenningnum breyttist við end- urreiknun og Hermann og Ólafur Lámssynir enduðu í 4. sæti en ekki því 5. eins og sagði í Morgunblað- inu í gær. Guðm. Sv. Hermannsson ATVINNUAUGLÝSINGAR Arkitektar Byggingafræðingar Tækniteiknarar Vegna aukinna umsvifa leitar ein stærsta arki- tektastofa landsins að starfsfólki í eftirfarandi störf: Arkitektar/Byggingafræðingar Sóst er eftir arkitektum og eða hugmyndarík- um byggingafræðingum, með starfsreynslu. Þekking á notkun helstu tölvukerfa í faginu; ritvinnslu, töflureiknis og tölvuteiknunar (Auto Cad), er lykilatriði. Reynsla í gerð og frágangi útboðsgagna mikill kostur. Æskilegt er að við- komandi hafi leyfi til að gera eignaskiptayfir- lýsingar. Tækniteiknari Við leitum að tækniteiknara með fullkomna þekkingu á notkun AutoCad teikniforrita. Um er að ræða starf við frágang á aðaluppdráttum og verkteikningum. Þekking í notkun tölvu (rit- vinnslu og töflureikni) æskileg. Leitað er eftir samvinnulipru fólki sem fellur að vinnuglöðum hóp. Unnið er í tölvuvæddu umhverfi. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum er greini frá menntun, starfs- reynslu og þ.h. skulu berast til afgreiðslu Morgunblaðsins, merktar: „Art — 1246". Umsóknarfrestur er til 25. febrúar. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum um- sóknum verður svarað. LÍNUHÖNNLíN VERKFRÆÐISTOFA Tækniteiknari - tæknimenntaður starfmaður Verkfræöistofan Línuhönnun hf. auglýsir eftir tækniteiknara til starfa hið allra fyrsta. Tæknimenntaður maður með þekkingu á tækniteiknun, sem einnig gæti sinnt öðrum tæknistörfum kemur einnig til greina. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða tölvukunnáttu, búi yfir þekkingu á auto-cad og hafi reynslu í tækniteiknun. Lfnuhönnun hf. var stofnuð árið 1979. Hjá fyrirtæk- inu og systurfyrirtækjum starfa nú um 60 starfsmenn. Línuhönnun hf. veitir alhliða verkfræðiráðgjöf á sviði mannvirkjahönnunar, viðhaldsverkefna og umhverfis- mála. Línuhönnun hf. rekur eigin rannsóknastofu, þar sem framkvæmdar eru steypurannsóknir, jarðefnarann- sóknir og umhverfisefnagreiningar. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Sigurðsson á skrifstofu Reksturs og Ráðgjafar ehf. og skal umsóknum skilað þangað fyrir 24. febrúar nk. [í^ Rekstur og Ráðgjöf ehf. Rekstrar- og stjórnunarráögjöf, áætlanagerö, ráöningarþjónusta o.fl. Suöurlandsbraut 4a Sími 568-2100 108 Reykjavík.________Bréfsfmi 568-0681 Gröfumaður Vanan gröfumann vantar strax. Upplýsingar í símum 434 1549 eftir kl 20, og einnig 852 5568 og 565 3140 á daginn. H| Fiæðslumiðstöð Rejdcjavíkur Starfsmenn óskast Leitað er eftir starfsmönnum í eftirtaldar stöður: Húsaskóli, sími 567 6100 Starfsmaður í lengda viðveru (heilsdagsskóla) til að annast matargerð fyrir nemendur. Vinnutími frá kl. 10.00—14.00. Selásskóli, sími 567 2600. Starfsmaður skóla, 100% starf. Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Reykjavíkurborg. Upplýsingar um stöðurnar gefa skólastjórar og aðstoðarskólastjórar skólanna. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.