Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 35. dómsmálaráðuneytið hvort bjóða ætti í bréfin, ef hann taldi það fýsi- legt, þar sem sektarkrafan var tryggð með 1. veðrétti í bréfunum. Ég tel raunar sjálfgefið að dóms- málaráðuneytið hefði ekki tekið í mál að láta bjóða í bréfin og vísa í því sambandi til þess, að ráðuneytið hefur hafnað erindum manna sem hafa óskað eftir að fá að greiða sektir með skuldabréfum," segir í umsögn Ragnars. Einnig vísar hann í þessu sambandi til umburðarbréfs sem dómsmálaráðuneytið sendi öll- um lögreglustjórum 9. október 1997 í tilefni af breytingu á almennum hegningarlögum. Misráðið að setja ekki fram kröfu um gjaldþrotaskipti Ragnar bendh- á það í umsögn sinni að þegar umrædd fjárnámsað- gerð hafi farið fram hafi verið liðnir 10 mánuðir frá því að ÞÞP hafði ráðstafað eignum sínum til einka- hlutafélagsins sem sé skuldari á umræddum skuldabréfum, og ráð- stöfun eigna til nákominna sé að öðrum skilyrðum uppfylltum riftan- leg ef hún hefur átt sér stað á síð- ustu 24 mánuðum fyrir þann dag sem krafa um gjaldþrotaskipti kem- ur fram. „Ég tel að það hafi verið misráðið að setja ekki fram kröfu um gjald- þrotaskipti á búi ÞÞÞ áður en þessi tími rann út, sem var í byrjun mars 1997, en innheimtuaðilar ríkissjóðs hafa af minni tilefnum knúið fram gjaldþrotaskipti á búum skuldara. Þegar fjámámin voru gerð 9. sept- ember 1997 voru riftunarmöguleik- ar hins vegar úr sögunni og þess vegna tilgangslítið að knýja fram gjaldþrotaskipti," segir Ragnar H. Hall. ---------------- Ríkisendurskoðun um athugasemdir ráðuneytanna Lúta að öðr- um atriðum en hags- munagæslu ríkissjóðs í GREINARGERÐ Ríkisendur- skoðunar vegna athugasemda við skýrslu stofnunarinnar um uppboð á bréfum ÞÞÞ á Akranesi segir að þau atriði sem ráðuneytin geri at- hugasemdir við lúti fremur að öðr- um atriðum málsmeðferðarinnar en fjárhagslegri hagsmunagæslu ríkis- sjóðs, sem Ríkisendurskoðun telji að ekki hafi verið gætt sem skyldi. í niðurstöðuorðum Ríkisendur- skoðunar segir meðal annars: „Að mati Ríkisendurskoðunar snýst mál þetta og skýrsla stofnunarinnar um að fjárhagslegra hagsmuna ríkis- sjóðs í þessu afar sérstaka og um- fangsmikla skattsvikamáli var ekki gætt sem skyldi. f skýrslunni er lögð áhersla á sérstöðu málsins og að meðhöndla hefði átt það sam- kvæmt því. Flest þau atriði sem við- komandi ráðuneyti gera að umtals- efni í fréttatilkynningum sínum og greinargerðum verður að telja lúta fremur að öðrum atriðum málsmeð- ferðarinnar en fjárhagslegri hags- munagæslu ríkissjóðs í málinu, s.s. eins og deilum um túlkun lagaá- kvæða, atriða sem koma fram eftir útgáfu skýrslunnar og embættis- færslur sýslumannsins á Akranesi við málsmeðferðina alla. Eins og oft hefur komið hér fram var það meg- inathugunarefni Ríkisendurskoðun- ar hvernig fjárhagslegra hagsmuna ríkissjóðs var gætt á umræddu upp- boði og niðurstaðan að það hafi ekki verið gert sem skyldi.“ Að lokum þakkar Ríkisendur- skoðun ráðuneytunum fyrir að hafa gefið stofnuninni tækifæri til að koma að sjónarmiðum sínum og andsvörum áður en umfjöllun um skýrsluna fari fram í þingsölum. TÓMAS JÓHANNESSON + Tómas Jóhann- esson fæddist í Neskaupstað, Norð- firði, 24. nóvember 1911. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur í Fossvogi 10. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Tómasar voru Jóhannes Þor- leifsson, bóndi á Hrjóti í Hjaltastaða- þinghá, fæddur 26.7. 1856, dáinn 1.6. 1938, og Ingveidur Árnadóttir, fædd 22.6. 1872 á Klifi í Viðfirði, S- Múlasýslu, dáin 28.3. 1950. Al- systkini Tómasar voru Helgi, Hildur og Sigurður Jóhannesar- börn sem öll eru látin. Jóhannes faðir þeirra átti af fyrra hjóna- bandi 8 börn sem flest bjuggu í Ameríku. Hinn 28. júní 1940 giftist Tómas Birnu Björnsdóttur, hús- freyju, f. 30.1. 1913. Foreldrar hennar voru Björn Emil Bjarna- son, f. 7.1. 1885 í Veturhúsum í Eskifirði, dáinn í kringum 1962, bakari í Neskaupstað, og Guð- björg Bjarnadóttir, f. 21.3. 1888 á Dúki í Sæmundarhlfð, d. 28.6. 1951. Hófú Tómas og Birna bú- skap í Neskaupstað og bjuggu m.a. á Akranesi, í Vestmanna- eyjum, Reykjavík og nú síðast á Seltjarnamesi. Barn Tómasar og Birnu var Hilmar Gísli Tóm- asson, f. 16.6.1932 í Vestmanna- eyjum, sjómaður í Neskaupstað, dáinn 26.6. 1962. Hilmar giftist hinn 1.1. 1955 Kolbrúnu Ár- mannsdóttur, f. 1.3. 1932 í Nes- kaupstað. Börn þeirra eru Hall- veig, f. 30.5. 1952, gift Ingi- mundi Sigurpálssyni, f. 24.9. 1951. Þeirra börn eru Jóhann Steinar, f. 15.9. 1974, Hilmar, f. 7.3. 1978, og Sigurbjörn, f. 24.2. 1986; Birna, f. 18.2. 1955, gift Gústaf Sa- mir Hasan, f. 26.9. 1951. Þeirra börn eru Ægir Amin, f. 7.7. 1983, Kolbrún Amanda, f. 17.9. 1984, og Inga Amal, f. 26.3. 1990; Tómas, f. 10.2. 1957, giftur Valgerði Halldórs- dóttur, f. 25.9. 1959. Þeirra börn eru Sig- rún Steingerður, f. 6.1. 1984 og Kol- brún, f. 20.3. 1989. Valgerður á fyrir Jóhann Inga, f. 29.12. 1979. Kolbrún giftist síðar Reyni Sigurþórssyni. Kjör- dóttir Tómasar og Bimu er Inga Elísabet Tómasdóttir, f. 25.5. 1949, í sambúð með Eiríki Am- þórssyni, f. 19.7. 1949. Barn þeirra er Arnar Már, f. 9.6.1979. Börn Ingu fyrir em Hilmar Tómas, f. 27.2. 1967, sem frá fimm ára aldri ólst upp hjá Tómasi og Bimu. Hann á tvö böm, Elmar Snæ, f. 2.12. 1988, og Sölva Snæ, f. 12.2.1986. Guð- rún Bima, f. 27.12. 1970, gift Jóni Helga Sigurðssyni, f. 6.7. 1969. Þeirra börn era Eyrún Telma, f. 28.2., 1993, og Jón Birnir, f. 3.3. 1997. Ingimar Öra, f. 29.10. 1972, í sambúð með Est- er Erlingsdóttur, f. 24.5. 1972. Hennar sonur er Alexander, f. 15.8. 1991. Tómas tók minna skipstjóra- próf árið 1932 í Neskaupstað, fór í Stýrimannaskólann í Reykjavík 1942-1943 og stund- aði sjómennsku á ýmsum skipum á ámnum 1936-1966. Tómas vann síðustu árin sem vigtar- maður við Reykjavfkurhöfn. Útför Tómasar verður gerð frá Seltjamameskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. HÓLMFRÍÐUR ÁSBJARNARDÓTTIR + Hólmfríður Ás- bjarnardóttir fæddist á Litla Hóli í Eyjafírði hinn 13. febrúar 1915. Hún lést á elli- og hjúkr- unarheimilinu Grand hinn 6. febrúar síð- astliðinn. Hún var dóttir Ásbjamar Ámasonar og Gunn- laugar Gestsdóttur. Maður hennar, Snorri Pálsson múr- arameistari frá Stað- arhóli við Eyjafjörð, er látinn fyrir all- mörgum árum. Dóttir þeirra er Guðlaug Dóra, búsett í Hvera- gerði, maður hennar er Hans Christiansen og dætur þeirra eru; Bryndís, Gréta og Þóra. Útfor Hólmfríðar fór fram frá Akureyrarkirkju 13. febrúar síð- astliðinn. Kæra frænka. Okkur systkinin langar að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar. Þú varst Fríða frænka, ekki bara hjá okkur, heldur öllum systkinabörnum þínum. Þú komst á Sigló flest sumur og hafðir alltaf litla herbergið sem sneri út að sjón- um því þú hafðir yndi af því að horfa á bátana koma og fara og fylgjast með störfum trillukarlanna. Þú varst náttúrubarn, elskaðir blómin og allt er við kom náttúrunni. í síð- asta skiptið sem þú heimsóttir eitt okkar var rigning og það var hlaupið út með regnhlíf til að skýla þér en þú sagðir: „æ, leyfðu mér að finna rigninguna, hún er svo notaleg." Eitt sinn er við vorum í bænum gekkst þú út á götu, hálfpartinn í veg fyrir bíl. Það var kippt í þig en þú snerir þér við og sagðir, „það keyrir enginn á gamla konu með staf‘ og gekkst síðan yfir göt- una. Þú varst alltaf hress og það var svo notalegt að koma til þín. Við vorum ung þegar þið Snorri bjugguð í Hveragerði en við munum enn eftir gula húsinu ykkar og garðinum sem var svo fallegur. Á Akureyri voruð þið síðustu árin hans Snorra en svo fluttir þú suður til Dóru og bjóst á neðri hæðinni hjá henni, fyrst á Berg- staðastrætinu og síðan á Hring- brautinni, áður en þú fórst á Grund. Það var sama hvar þú bjóst, alls staðar voram við velkomin og nota- legt að sækja þig heim. Þú sagðir meiningu þína og lést okkur vita ef þér fannst við ekki sanngjörn. Þú kenndir okkur að horfa á björtu hliðarnar og við vildum að við kynn- um helminginn af lýsingarorðunum þínum, þú áttir svo mörg og notaðir þau svo óspart. Elsku frænka, um leið og við kveðjum þig, viljum við þakka allar stundirnar með þér, elskusemina við börnin okkar og maka. Þér var Spá- maðurinn eftir Kahlil Gibran kær en hann segir svo um sorgina: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín“. Með þessum orðum kveðjum við þig, þess viss að hann Snorri þinn tekur á móti þér. Við vottum Dóra, Hans, Bryndísi, Grétu, Þóra og fjölskyldum þeirra samúð. Hafðu þökk fyrir allt, guð blessi þig. Gunnlaug, Gunnar, Ásbjörn og Rósa Ásgeirsbörn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. mikið ljós og kærleika og biðjum al- góðan Guð um að geyma þig. Með kærri kveðju og fyrir hönd fjölskyldna okkar, Guðrún Bima og Ingimar Örn. Far þú í friði, friðurGuðsþigblessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nú ertu farinn, elsku afi okkar. Þó að um háan aldur hafi verið að ræða þá finnst okkur systkinunum afar sárt að sjá á eftir þér. En við trúum því og vitum að nú sért þú laus við allan sársauka og að þú sért nú kominn í faðm ættingja þinna. Við trúum þvi líka að þú sprangir um víðan völl og að þú sjáir eins langt og augu þín mögulega sjá. Við minnumst þín sem alveg ein- staklega góðs og kærleiks afa. Alltaf þegar við komum í heimsókn þá opnaðir þú faðm þinn og bauðst okkur velkomin því það voram við alltaf. Þú varst alltaf svo natinn og duglegur og vildir allt fyrir alla gera. Þú vildir líka alltaf fylgjast vel með okkur öllum, hvar við væram að vinna eða vildir vita hvort hagir okkar hefðu breyst eitthvað. Við viljum líka þakka þér fyrir allar sögumar sem þú sagðir okkur. Það var alveg einstaklega gaman að hlusta á þig þegar þú fræddir okkur um hagi ykkar ömmu og eins allt sem gerðist þegar þú varst á sjón- um sem skipstjóri. Þú vissir jú allt sem tengdist sjónum. Þú varst afar fróðleiksfús. Fylgdist mjög vel með öllum fréttum og hlustaðir alveg á einhver ósköp af allskyns sögum. Elsku afi okkar, við munum geyma minningu þína í hjörtum okkar um eilífð. Viljum við votta ömmu Birnu okkar dýpstu samúð sem og öllum ættingjum og vinum. Okkur langar að kveðja þig hinsta sinni eins og þú kvaddir okkur alltaf, með útbreiddan faðm þinn og sagðir okkur ávallt velkomin með tilheyrandi knúsi. Við sendum þér Elsku langafi okkar. Núna ertu kominn upp í skýin þín, englamir eru búnir að sækja þig á sjúkrahús- ið og ætla að fara með þig til Guðs í stóra mjúku skýin. Takk fyrir að sækja alltaf dótakassann fyrir okk- ur fram í geymslu heima hjá þér og langömmu og fyrir alla boltaleikina og bílaleikina og fyrii- allt knúsið sem við fengum alltaf hjá þér, og líka alla molana sem þú laumaðir upp í okkur frammi í eldhúsi ýmt molaskúffunni þinni sem þú einn áttir. Elsku langafi, við ætlum að passa langömmu fyrir þig. Blessuð sé minning þín. Þín Eyrún Telma og Jón Birnir. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfararöegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fóstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útranninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. + Konan mín og móðir okkar, GUÐLAUG GfSLADÓTTIR, Hvolsvegi 27, Hvolsvelli, lést á heimili dóttur sinnar f Reykjavík, mánudaginn 16. febrúar sl. Fyrir hönd vandamanna, Guðni Gunnarsson, Ragnheiður Guðnadóttir, Gunnar V. Guðnason, Gísli H. Guðnason. + Elskuleg móðir mfn og tengdamóðir, BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Litluvöllum, Reykjavík, lést að morgni mánudagsins 16. febrúar sl. Jóhannes Haraldsson, Margrét Kristjánsdóttir, og aðrir aðstandendur. + Elskuleg systir okar, mágkona og frænka, GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR, Álftamýri 10, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 19. febrúar kl. 13.30. Svanborg Jónsdóttir, Guðni Jónsson, Jón Jónsson, Rannveig Jónsdóttir, Axel Guðmundsson, Edda Kristjánsdóttir, Sesselja Gísladóttir og bræðrabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.