Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ qætir Farið i T—nr bilaleik í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 17 í dag. ( ATH! AðeinsQjjkr. röðin ) VIÐSKIPTI 2% tekjusamdráttur hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar 1997 Hagnaður 241 milljón Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. Úr ársreikningi 1997 Rekstrarreikningur Miiijonir króna 1997 1996 Breyt. Rekstrartekjur 3.744 3.846 -2,7% Rekstrarqjöld 3.033 3.124 -2.9% Hagnaður fyrir afskriftir 710 722 -1,7% Afskriftir 226 179 +26,3% Fjármagnsgjöld 139 109 +27.5% Hagnaður af regiulegri starfsemi 345 438 +21,2% Hagnaður ársins 241 312 -22.8% Efnahagsreikningur 31. des.: 1997 1996 | Eignir: \ Milljónir króna Veltuf jármunir 658 466 +41,2% Fastafjármunir 3.154 2.800 +12,6% Eignir samtals 3.812 3.266 +16,7% I Skuhtir oo eigið íé: I Milljónir króna Skammtímaskuldir 796 636 +25,2% Langtímaskuidir 1.647 1.558 +5,7% Tekjuskattsskuldbinding 312 226 +38,1% Eigið fé 1.057 845 +25,1% þaraf hlutafé 380 345 +10,1% Skuldir og eigið fé samtals 3.812 3.266 +16.8% Kennitölur 1997 1996 Eiginfjárhlutfall 21% 19% Arðsemi eiginfjár 29% 62% Veltufé frá rekstri, mílljónir kr. 562 539 +4,3% HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Eskifjarðar á síðasta ári nam 241 milljón króna eftir skatta. Þetta er nokkru minni hagnaður en varð af rekstri félagsins árið 1996, er hagnaður eftir skatta nam 312 milljónum króna. Rekstrartekjur Hraðfrystihúss- ins drógust lítið eitt saman á milli ára. Að sögn Magnúsar Bjarnason- ar, framkvæmdastjóra Hraðfrysti- húss Eskifjarðar, varð þessi sam- dráttur á milli ára fyrst og fremst vegna þess að loðnufrysting var mun minni árið 1997 samanborið við árið þar á undan vegna ástands loðnunnar sl. vetur. Tekjur af loðnuvinnslunni jukust engu að síð- ur um 45 milljónir króna á milli ára vegna hækkunar afurðaverðs. Þá hefur síldarfrysting einnig verið mun minni þar sem síldveiðar hafa brugðist að hluta til í haust. Einnig hefur rækjuverksmiðja fé- lagsins tekið við minni afla til vinnslu. Rekstrartekjur fiskvinnslu dróg- ust saman um rúmlega 180 milljón- ir króna á milli ára, námu 2,73 milljörðum króna samanborið við 2,91 milljarð árið 1996. Hins vegar jukust tekjur útgerðarinnar um 100 milljónir króna á milli ára enda var afli fyrirtækisins á síðasta ári hinn mesti í sögu þess. Lagt til að hlutafé verði aukið um 10% Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu var hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði hins vegar svipað- ur í fyrra og árið 1996. Afskriftir jukust hins vegar umtalsvert á milli ára sem og fjármagnsliðir en félagið réðst í auknar fjárfestingar á síðasta ári, m.a. breytingar á einu skipa sinna, Guðrúnu Þorkelsdótt- ur SU-211. Meðalfjöldi starfsmanna á síð- asta ári var 280 og launagreiðslur námu 684 milljónum króna. í fréttatilkynningu Hraðfrysti- hússins segir að á aðalfundi félags- ins, sem haldinn verður fóstudag- inn 27. mars, muni stjórn þess leggja til að greiddur verði 10% arður til hluthafa. Arðgreiðslur muni því nema 37,9 milljónum króna samanborið við 34,8 milljóna króna arð sem greiddur var vegna ársins 1996. Jafnframt verður lagt til að hlutafé félagsins verði aukið um 10% með útgáfu jöfnunarhluta- bréfa. Stálsmiðjan fær verkefni á Sultartanga Aukinn hagnaður og velta hjá Teymi hf. á síðasta ári Hagnaður nam 12 milljónum króna UNDIRRITUÐ hefur verið viljayf- irlýsing milli Fossborgar ehf. og Schulzer Esser Weiss, sem annast allar framkvæmdir við Sultartanga- virkjun, um verktöku við gerð virkj- unarinnar. Fossborg var sett á stofn síðast- liðið vor og er samstarfsvettvangur fyrirtækja í málmiðnaði, verkfræði- stofa og rafmagnsfyrirtækja, sér- staklega að því er lýtur að tilboðs- gerð í virkjunarframkvæmdir. Hlut- verk þessa félags er að geta boðið heildarlausnir, allt frá hönnun til uppsetningar. Félagið er að einum þriðja hluta í eigu Stálverktaks hf. sem er sam- starfsvettvangur Stálsmiðjunnar hf. og Vélsmiðjunnar Norma hf. í Garðabæ. Þriðjungur er í eigu Hraunvers ehf., fyrirtækis Afls og orku hf, Hnits hf, og Rafhönnunar hf. Þá er þriðjungur í eigu Rafverk- taks ehf. sem er fyrirtæki eigu Rafafls hf., Rafbergs hf. og Rafvers hf. í hlut Stálsmiðjunnar og Vél- smiðjunnar Norma kemur niður- setning á vélakosti virkjunarinnar ásamt smíði á afrennslisrörum og niðursetningu lokubúnaðar. Verk þetta hefst í sumar, en meginþung- inn verður á árinu 1999 og eru verk- lok áætluð í lok þess árs. Ágúst Einarsson, forstjóri Stálsmiðjunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta verkefni hefði verulega þýðingu fyrir fyrir- tækið, en kvaðst ekki geta nefnt neinar tölur í því sambandi. Hluta- bréf í Stálsmiðjunni hækkuðu í verði á Verðbréfaþingi íslands eftir að tilkynnt var um undirritun vilja- yfirlýsingar um verkefnið á Sultar- tanga. Síðustu viðskipti urðu á föstudag á genginu 5,20 sem er um 5% hækkun frá því félagið bauð út ný hlutabréf á síðasta ári. HAGNAÐUR Teymis hf. á síðasta ári nam 12 milljónum króna eftir skatta. Þetta er nokkuð betri af- koma en varð af rekstri fyrirtækis- ins árið 1996 er hagnaður nam rúmum 8 milljónum króna. Velta Teymis nam 169 milljónum króna á síðasta ári og jókst um 39% frá ár- inu á undan. Að sögn Elvars Steins Þorkels- sonar, framkvæmdastjóra Teymis, er þetta ívið betri afkoma en gert hafði verið ráð fyrir. Hann segir að fyrirtækið hafi náð að vinna vel úr fjárfestingu í mannskap og þekk- ingu auk þess sem farið hafi verið út í ákveðnar skipulagsbreytingar og sölu- og markaðssetning efld. Það sé merki um góðan árangur að velta íyrirtækisins hafi aukist um 40% án þess að starfsfólki hafi fjölgað. „Á miðju ári, í framhaldi af við- horfskönnun sem gerð var meðal viðskiptavina okkar, var ákveðið að breyta áherslum og markmiðum til að þjóna betur þörfum viðskipta- vina okkar og markaðarins. Við er- um þekkingarhús, sem hefur byggt upp gríðarlega þekkingu í kringum lausnir frá Oracle og Legato, og nú síðast í haust var bætt við lausnum frá Remedy. Aukið samstarf við öll helstu hugbúnaðarfyrirtæki á markaðnum hefur skilað góðum ár- angri, og við ætlum okkur að vinna nánar með þessum samstarfsaðil- um okkar, og ná þannig betur til markaðarins," segir Elvar. Hann segir að Teymi muni vaxa með sama hraða á þessu ári og því síðasta. Gert sé ráð fyrir að velta og hagnaður muni aukast um 40% á milli ára og sé nú verið að bæta við starfsfólki og útvikka þjónustu fyrirtækisins. Þá sé verið að vinna grunnvinnu varðandi erlenda markaði og muni sú vinna skila sér á næstu mánuðum. Möguleikar á útflutningi kannaðir „Þá kemur í ljós hvort ástæða er til að herja á erlenda markaði með þá þekkingu sem við höfum yfir að ráða. Við höfum frá byrjun sett markið hátt og ætlað okkur að ná 40-50% vexti á milli ára næstu árin, en við þurfum ekki erlenda mark- aði til að ná þessum markmiðum okkar,“ segir Elvar. Finnland þurrt í marz? Helsinki. Reuters. STARFSMENN áfengiseinok- unarinnar í Finnlandi munu ef til vill leggja niður vinnu í næstu viku vegna deilu um kaup og kjör að sögn verka- lýðsfélags þeirra. Lokatilraun til að leysa deil- una verður gerð í þessari viku og ef hún ber ekki árangur verður búðum rikiseinokunar- innar Alko lokað frá 3. marz.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.