Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.02.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Stefnuræða Borís Jeltsíns Rússlandsforseta Endurnýjuð krafa um frekari umbætur Moskvu. Reuters. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, lagði í árlegri stefnuræðu sinni, sem hann hélt í gær, hvort tveggja að rík- isstjórninni og neðri deild þingsins, þar sem stjórnarandstaðan er at- kvæðamest. Forsetinn krafðist þess að báðir aðilar sæu til þess að hag- vöxtur í landinu yrði tryggður og að fjárlögin verði afgreidd með skyn- samlegum hætti. Hann gerði mikið úr nauðsyn þess að tryggja bættan hagvöxt, sagði að spilling væri enn mikið vandamál, að stjómkerfí ríkisins þyrfti á endur- bótum að halda og hét því að í her- afla landsins yrði haldið áfram á um- bótabrautinni. Sagði forsetinn að rikisstjórn Viktors Tsjemomyrdíns yrði að fara frá ef henni tækist ekki að ná mikil- vægustu takmörkunum - að gera endurbætur á fjárlögum og skatt- heimtureglum og að ná hagvexti með fjárfestingum í framleiðsluiðnaði frekar en spákaupmennsku á fjár- málamarkaði. „Ég ætla ekki að endurtaka þetta. Ef ríkisstjórnin stendur sig ekki í að ná þessum lykilmarkmiðum, þá verð- um við að fá nýja ríkisstjórn," sagði forsetinn, en þessum orðum svaraði þingheimur með dynjandi lófaklappi, sem þingmenn fóm annars mjög sparlega með. Áherzlan á bætta skattheimtu kem- ur til af því, að Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn setti fyrirvara við greiðslu frek- ari lána til Rússlands ef skattheimta yrði ekki bætt. Mikill misbrestur hef- ur verið á því að álagðir skattar skili sér í rússneska ríkissjóðinn. Til stóð að fjárlagafrumvarpið yrði í gær tekið til fjórðu og síðustu um- ræðu í neðri deild þingsins, en þing- forsetinn Gennadí Seleznjov, sagði að henni yrði að öllum líkindum frestað í Ijósi ummæla Jeltsíns. Mi- hkaíl Zadomov fjármálaráðherra sagði mögulegt að Jeltsín beitti neit- unarvaldi gegn fjárlögunum ef ekki yrðu samþykktar þær breytingar sem hann vildi sjá á þeim. Jeltsín og Li Peng fordæma hernað gegn Irak Varðandi utanríkismál lýsti Jeltsín því yfir að beiting hervalds til lausn- ar Iraksdeilunni væri ,;síðasta og hættulegasta úrræðið". I sameigin- Iegri yfirlýsingu sem gefin var út eft- ir fund Jeltsíns síðdegis í gær með Li Peng, forsætisráðherra Kína, seg- ir að hvorki Rússland né Kína geti sætt sig við hemaðarárás gegn Irak. í ræðu sinni endurtók Jeltsín einnig þá hótun að ef Eystrasaltsrík- in þrjú yrðu aðilar að Atlantshafs- bandalaginu myndi það hafa mjög neikvæð áhrif á samskipti Rússlands við bandalagið. Þetta var í fimmta sinn frá árinu 1994 sem Jeltsín flutti stefnuræðu, en þá fyrstu flutti hann nokkrum mánuðum eftir að sló í brýnu milli hans og sovétsinna á þingi. í kjölfar þess uppgjörs vora gerðar breyting- ar á stjómarskránni sem meðal ann- ars fólu í sér að ætlazt var til þess af forsetanum að hann flytti báðum deildum hins nýja þjóðþings stefnu- ræðu einu sinni á ári. I öllum þeim stefnuræðum sem hann hefur flutt íram að þessu hefur hann ítrekað lagt áherzlu á atriði eins og hagvöxt og baráttuna gegn glæpum og spillingu. En ef reynsla liðinna ára er höfð til hliðsjónar munu mörg þessara fyrirheita ekki ganga í uppfyllingu eða aðeins að litlum hluta. Stefnuræðan gaf líka vísbendingar um heilsu Jeltsíns, en hún hefur eins og kunnugt er ekki alltaf verið sem skyldi undanfarin ár. Að þessu sinni virtist forsetinn við góða heilsu og mælti styrkum rómi. „ Reuters RUSNESKIR hermenn, sem stóðu heiðursvörð við komu Li Pengs, forsætisráðherra Kína, til Moskvu í gær, anda í gegn um hanzkaklæddar hendur vegna nístandi kuldans. Ráðherrum fækkað í sparnaðar- skyni Vilníus. Reuters. FORSETI og forsætisráðherra Litháen hafa ákveðið að fækka ráðherrum í ríkisstjóm lands- ins úr 17 í 12 í sparnaðarskyni. Talsmaður Valdas Adamkus, nýkjörins forseta Litháen, sagði að forsetinn og Gediminas Vagnorius forsætis- ráðherra hefðu orðið ásáttir um að fækkunin myndi eiga sér stað í tveimur áföngum. „Adamkus vill draga úr bákn- inu og gera stjómsýsluna skil- virkari líkt og fram kom í stefnuskrá hans,“ sagði tals- maðurinn. Hann vildi ekki greina frá því hvaða ráðherrar yrðu látnir hætta en fjölmiðlar í Litháen segja Adamkus hafa hug á að leggja niður Evrópumálaráðu- neytið, þar sem hann telji það sinna sömu verkefnum og utan- ríkisráðuneytið. Vagnorius sé þó andvígur slíkum hugmyndum. Kinkel hafnar EMU-gagnrýni KLAUS Kinkel, utanríkisráðherra Þýzkalands, vís- aði í gær á bug nýlegum áköllum tveggja hópa þýzkra háskóla- prófessora um að áformum um stofnun Efnahags- og myntbandalags Evrópu (EMU) skuli frestað. Kinkel sagði á fundi með hinum belgíska starfsbróður sínum í norð- ur-þýzka bænum Furstenberg að hvergi yrði hvikað frá því að mynt- bandalaginu verði hleypt af stokkun- um á þeim tíma sem að hefur verið stefnt, 1. janúar 1999. „Gagnrýnendur áformanna, og þar á ég líka við hagfræðiprófessor- ana, verða að gera sér grein fyrir að evróið er nú þegar orðið að veruleika á fjármálamörkuðum," sagði Kinkel. Fjórir prófessorar hafa kært EMU-áformin til stjórnlagadómstóls Þýzkalands í því skyni að reyna að hindra að Þýzka- land verði meðal stofnaðildarríkja ef af stofnun myntbandalags- ins verður um næstu áramót. Og hópur 155 hag- fræðiprófessora lögðu sitt lóð á vog- arskálamar í þágu frestunar EMU- áformanna í opnu bréfi sem birtist í blöðum í liðinni viku. „Látið ekki villa um fyrir ykkur þótt nokkrir prófessorar kvarti við stjórnlagadómstólinn eða skrifi dag- blöðum bréf,“ sagði Kinkel, og bætti við að á sínum tíma þegar þýzka markið var tekið upp í Vestur- Þýzkalandi hefðu margir hagfræð- ingar verið fullir efasemda. „Þeir sögðu að nýja markið væri bezta leiðin til að breyta stórfé í lítið fé. Svona getur mönnum skjátlazt - hið andstæða var rétt, saga þýzka marksins hefur verið einstök sigur- ganga,“ sagði Kinkel. Matgæðingi úthýst af veitingastað London. Daily Telegraph. MICHAEL Winner, kvik- myndaleikstjóra og matgæð- ingfi, hefur verið úthýst af Le Gavroche, einu frægasta veit- ingahúsi Lundúna, vegna ruddalegrar framkomu við móttökustjóra, sem hann skildi eftir grátandi. Er hún tjáði Winner að ekkert borð væri laust er hann hugðist panta fékk hún yfir sig fúkyrða- fiaum. Eigendur Le Gavroche segja Winner, sem skrifar um veit- ingastaði í enska blaðið Times, sjálfbirgingslegan og óæski- legan í húsakynnum þeirra. Er móttökustjórinn, ungfrú Pauline Hobbs, Ijáði honum að allt væri fullt spurði hann af drambsemi hvort hún vissi ekki hver hann væri og bætti við: „Ég ætla út að borða með Jane Asher og Joan Collins svo það er eins gott að þú finnir borð.“ Eigendur veitingahússins segja í bréfí sem birtist í blað- inu Sunday Business, að ekki sé hægt að hafa ýmis orð Winners við ungfrú Hobbs eft- ir vegna innihaldsins en segja, að hann hafi m.a. sagt henni að hún myndi missa vinnuna er yfirmenn hennar kæmust að því að hún hefði vísað honum á dyr. Winner vísaði ásökunum um dónaskap á bug og hélt þvi fram, að eigendur Le Gavr- oche væru að hefna sín á hon- um fyrir að gefa matnum á öðru veitingahúsi þeirra, Wa- terside Inn í Bray í Berkshire, slæma dóma. Þar er hann sömuleiðis sagður hafa fengið útrás fyrir þótta sinn og kraf- ist þess, eftir að hann var sest- ur til borðs, að borðaskipan i sainum yrði breytt. Öllu þessu neitar Winner, sem dæmt hef- ur mat og þjónustu veitinga- húsa 1 42 ár. „Á öllum þessum tíma slá þessar ásakanir allt út sem um mig hefur verið skrif- að hvað ónákvæmni og lág- kúrulegheit varðar," sagði hann. Hann neitaði því að hafa ætlað að borða með Asher og Collins, heldur handritshöf- undunum Laurence Marks og Maurice Grann. „Þeir vildu fara á Le Gavroche. Ég sagði þeim að ég hataði staðinn en þangað vildu þeir. Ég sló því á þráðinn og talaði ekki við þessa konu. Herramaður tjáði mér hins vegar, að eigandinn vildi ekki að mér yrði þjónað því ég hefði verið ruddalegur í garð föður hans í einum dóma rninna," sagði Winner. Ungfrú Hobbs heldur hins vegar fast við sína sögu og kveðst aldrei munu gleyma samtalinu. „Ég man hvert ein- asta orð og þar sem ég er sveitastúlka frá Dorset varð mér nyög bilt við. Stórbokka- skapurinn var mikill og hann spurði mig hranalega hvort ég vissi ekki hver hann væri,“ segir hún. Talsmaður Hvíta hússins um samband Clintons og Lewinsky „Flókin saga“ Chicago. Reuters. SAMBAND Bill Clint- ons, forseta Bandaríkj- anna, og Monicu Lewin- sky er hugsanlega „mjög flókið mál“ og ekki svo auðvelt að út- skýra það. Er þetta haft eftir Mike McCurry, talsmanni Hvíta húss- ins, í viðtali, sem dag- blaðið The Chicago Tri- hune birti í gær. Á fréttamannafundi síð- degis í gær gekkst McCurry við orðunum en sagði að hann hefði betur látið þau ósögð. McCurry, sem stendur í því alla daga að svara spumingum um sam- band þeirra Clintons og Lewinsky, sagði í viðtalinu, að það væri ef til vilí ekki svo auðvelt að útskýra sam- bandið. „Kannski er til á því einföld skýring en ég held þó ekki. Hún væri þá komin fram,“ sagði McCurry og bætti því við, að líklega væri um að ræða flókið mál eins og oft væri með mannleg samskipti. „Og ég held, að það verði ekki auðvelt að útskýra það.“ Talsmaður „á stundum að þegja“ McCurry sagði ennfremur í viðtal- inu, að Clinton hefði verið tregur til að segja frá sambandi sínu við Lewinsky að öðra leyti en því, að það hefði ekki verið kynferðislegt. Ein af ástæðunum væri ótti við, að aðrir kynnu að notfæra sér þær upplýs- ingar til að fá fólk til að hagræða sannleikanum. „Það er lagt mjög hart að fólki og reynt að fá það til að gefa ákveðnar yfirlýsingar og af því hafa lögfræðingar okk- ar áhyggjur," sagði McCurry. Talsmaður forsetans sagði um viðtalið í gær: „Eg sannaði með því að bara fífl svara spurn- ingum sem byggjast á tilgátum." Hann bætti þvi við að hlutverk tals- manns gæti stundum verið fólgið í því að þegja. A fréttamannafund- inum í gær var hann spurður hvort forsetinn hefði ekki atyrt hann fyrir að hafa látið þessi orð falla, en McCurry svaraði: „Ég fór sjálfur í minn eigin skammarkrók." The Chicago Tribune sagði, að McCurry beitti aðferð, sem hann kallaði að „miðla sannleikanum í smáskömmtum“. „Við getum ekki enn sagt frá öllu og því verðum við að gæta þess, að það, sem við segj- um, sé rétt og satt og stangist ekki á við söguna þegar hún verður loks sögð,“ sagði McCurry í viðtalinu. „Clinton er einstaldega agaður maður og lætur þetta ekki setja sig út af laginu. Það er engin hætta á, að einhver rekist á hann á göngum Hvíta hússins í hrókasamræðum við málverkin,“ sagði McCurry ennfrem- ur, en bætti við, að andrúmsloftið væri þó þannig, að Clinton gæti ekki treyst fyllilega sumum sínum nán- ustu samstarfsmanna af ótta við, að þeir hlypu með allt saman í fjölmiðla. „Svona er Hvíta húsið við lok 20. aldar. Flóðljós fjölmiðlanna era um allt, það á enginn neitt einkalíf leng- McCurry
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.