Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 18.02.1998, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjálfstæðismenn í borgarráði vilja flýta lagningu Sundabrautar Lokið á 4 árum með einkafj ármögnun Morgunblaðið/Ásdís AFGREIÐSLU á tillögu Vilhjálras Þ. Vilhjálmssonar (t.v.) og Árna Sigfússonar var frestað i borgarráði í gær. LÖGÐ var fram tillaga í borgarráði í gær frá Árna Sigfússyni og Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarfull- trúum Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að kannað verði hvort mögu- legt sé að efna til einkaframkvæmd- ar á Sundabraut, þ.e. að fjármagna framkvæmdir utan vegaáætlunar, með það að markmiði að taka hana í notkun eftir þrjú til fjögur ár. Til- lögumenn segja ekki gert ráð fyrir uppbyggingu Sundabrautar á vega- áætlun næstu 9-12 árin. Með Sundabraut er átt við brú yf- ir Kleppsvík, veg áfram norður á Geldinganes á uppfyllingu, brú yfir í Gunnunes og veg um Alfsnes sem tengjast myndi Vesturlandsvegi sunnan Kollafjarðar. Kostnaður er áætlaður 8-9 milljarðar króna. Síðar er einnig gert ráð fyrir brú yfir Kollafjörð. Sundabraut forsenda fyrir nýrri byggð Arni og Vilhjálmur kynntu tillögu sína í gær og sögðu að Geldinganes og síðar Álfsnes væru vænleg bygg- ingarlönd framtíðarinnar og greiðar samgöngur, þar á meðal Sunda- braut, væru forsenda þess að hægt yrði að hefja þar uppbyggingu. Borgarfulltrúamir hafa áhyggjur af lítilli fjölgun íbúa í Reykjavík, hún hafí aðeins verið 1% í fyrra en 6,7% í Kópavogi. Nauðsynlegt væri að t-ryggja áframhaldandi fólksfjölgun og uppbyggingu með tilheyrandi út- svarstekjum og fasteignasköttum. Til að geta mætt þeirri fjölgun og nauðsynlegum verkefnum í sam- göngumálum vilja sjálfstæðismenn athuga gaumgæfílega þá möguleika sem felast í því að flýta verkefnum sem ekki eru á lista hjá ríkinu og fela þau einkaaðilum. Tillaga borgarfulltrúanna gerir ráð fyrir að borgarverkfræðingi og borgarhagfræðingi verði falið að at- huga hvort möguleiki sé á einka- fjármögnun. Telja þeir nauðsynlegt að Reykjavíkurborg hafí með hönd- um forystu í þessu máli, að öðrum kosti myndi lítið gerast í samgöngu- bótum Reykvíkinga næstu ár. Tvær leiðir eru hugsanlegar til að flýta framkvæmdunum og er í báð- um tilvikum gert ráð fyrir að borgin hafi forystu um að koma fram- kvæmdum af stað. Önnur leiðin ger- ir ráð fyrir að brautin verði í eigu verktaka og fjárfesta og fjármögn- uð með vegagjaldi af umferðinni. Reykjavíkurborg gæti greitt vega- gjöld fyrir íbúa norðan Grafarvogs og á nýjum byggingasvæðum sem opnast myndu strax með tilkomu Sundabrautar. Hin leiðin væri sú að leitað yrði samninga við ríkið um að flýta framkvæmdum sem faldar yrðu einkaaðilum, svo og reksturinn í tiltekinn tíma og að ríkið greiddi tiltekið gjald fyrir hvem bfl sem æki um brautina, notkunargjald. Þá yrði bflafjöldinn áætlaður og gjald greitt samkvæmt þvi. í báðum til- vikum er gert ráð fyrir að einkaaðil- inn eigi mannvirkið fyrst í stað og beri ábyrgð á viðhaldi þess en að ríkið taki við því eftir tiltekinn tíma. Vænlegri leið til fjármögnunar Þeir Árni og Vilhjálmur telja auð- veldara að fá framlög frá ríldssjóði til greiðslu á notkunargjaldi en til vegaáætlunar og álíta þessa leið þvi vænlegri til að flýta megi fram- kvæmdum. Vísa þeir til góðrar reynslu af samgönguframkvæmd- um í Noregi og Finnlandi með þessu fyrirkomulagi. Þeir telja einnig liklegt að fjárfestar gætu haft áhuga á þessu máli. I lok gi’ein- argerðar sinnar með tillögunni segja þeir: „Það er ófært að á næstu árum verði ekki hafist handa við uppbyggingu samgöngumannvirkja á borð við Sundabraut. Þess vegna vilja sjálfstæðismenn að gerð verði ítarleg athugun á möguleikum þess að hefja þessar framkvæmdir sem yrðu á ábyrgð og í rekstri einkaað- ila þar til ríkið tæki yfír rekstur þeirra samkvæmt þeirri vegaáætlun sem liggur fyrir.“ Borgarráð frestaði afgreiðslu á tillögu tvímenninganna í gær. Þess má geta að í áfangaskýrslu Vegagerðarinnar og borgarverk- fræðings um Sundabraut, sem kynnt var þingmönnum Reykjavíkur, borg- arfulltrúum og öðrum sveitastjóm- armönnum á svæðinu seint á liðnu hausti, kemur fram að samanlagður hönnunar- og framkvæmdatími er áætlaður fjögur og hálft til sjö ár. Morgunblaðið/Arni Sæberg SÆTI eru fyrir 80 manns í nýrri setustofu Flugleiða í Leifsstöð, sem er tvöfalt stærri en sú gamla. Ný og stærri setu- stofa í Leifsstöð FLUGLEIÐIR hafa opnað nýja og betri stofu, sem svo er nefnd, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Tekur hún 80 manns í sæti og er tvöfalt stærri en eldri stofan eða um 200 fermetrar. Nýja stofan er innaf þeirri gömlu og stækkar almcnni bið- salurinn sem því nemur. I frétt frá Flugleiðum segir að vegna mikillar fjölgunar Saga Class farþega hafí verið nauðsynlegt að stækka biðstofuna og að nú gefíst einnig tækifæri til að veita betri þjónustu. Farþegar sem ferðast með handfarangur eingöngu geta innritað sig við móttökuborð í stofunni. Þar eru afmörkuð svæði með síma, faxtæki og tölvutengingum og þægilegir stólar fyrir þá sem vilja hafa það náðugt fyrir flugferð. Inn- lend og erlend blöð og tímarit liggja frammi og þar er einnig sjónvarp. Boðið er uppá léttar veitingar og drykki á sjálfsaf- greiðsluborði. Stærstur hluti stofunnar er reyklaus en sér- svæði er fyrir reykingamenn. Á snyrtingum eru einnig sturtur. Aðgang að setustofu hafa Saga Business Class farþegar, og félagar í Saga Business og Saga Gold vildarklúbbum fé- lagsins. Innréttingar teiknaði Björgvin Sveinbjörnsson arki- tekt í samstarfí við Teiknistofu Garðars Halldórssonar. A Samanburður OECD á Islandi og öðrum löndum Skattbyrði barna- fjölskyldna léttari SKATTBYRÐI fjölskyldna á íslandi er léttari en víðast hvar annars stað- ar samkvæmt árlegri skýrslu Efna- hagssamvinnu- og þróunarstofnun- arinnar, OECD, sem nýverið kom út. Þannig kemur fram að ísland er í sjötta neðsta sæti af öllum OECD- ríkjunum þegar borin er saman skattbyrði fjölskyldu með tvö böm. Miðað er við 210 þúsund króna at- vinnutekjur á mánuði og að tvær fyr- irvinnur afli teknanna. Skattbyrðin telst þá vera 12,8% hér á landi og er aðeins minni í Portúgal, Japan, Mexíkó, Lúxemborg og Kóreru. Ef hins vegar litið er til skattbyrði íjölskyldu með eina fyrirvinnu og tvö börn og atvinnutekjur sem nema 125 þúsund krónum á mánuði kemur fram að skattbyrðin er lægst hér á landi samkvæmt skýrslunni. Hár persónuafsláttur I frétt frá fjármálaráðuneytinu segir að ástæðurnar fyrir lægri skattbyrði hér á landi en víðast ann- ars staðar séu fyrst og fremst hár persónuafsláttur og háar barnabæt- ur. Einnig séu tryggingagjöld laun- þega nánast engin hér á landi en þau séu umtalsverð í flestum hinna OECD-ríkjanna. Jafnframt er bent á að þessi samanburður taki einungis tfl tekjuskatta og tryggingagjalda en ekki virðisaukaskatts og vörugjalda til dæmis. Loks er einnig bent á að framlög einstaklinga í lífeyrissjóði geti verið með mismunandi hætti frá einu landi til annars, þ.e. komi ýmist fram hjá hinu opinbera eða utan þess líkt og hér á landi. Þá er vakin athygli á að þessar upplýsingar nái til ársins 1996, þ.e. áður en ákveðið var að lækka tekjuskatt hér á landi um 4%. Danmörk Svíþjóð Italia Kanada Bandaríkin Nýja Sjáland Noregur írland Ástralía Frakkland Bretland Grikkland Ungverjaland Spánn Austurríki Sviss Tékkland Pólland Portúgal Japan 28,4% _ 25,5% _ 24,5% 23,3% _ 21,7% "21,3% 21,1% _ 19,8% _ 19,8% 19,3% ___17,5% _ 16,4% _ 16,4% .16,1% 15,7% _ 14>4% _ 14,0% 12,8% 12,6% .11,£ Mexíkó 8,2% 6,5% Lúxemborg 3,4% S-Kórea Tekjuskatts- byrgði hjóna með tvö börn sem hlutfall af heildartekjum Sameiginlegar tekjur eru 210 þús. kr. ámánuði. Gert er ráð fyrir tveim fyrirvinnum þar sem önnur er með 67% af tekjum hins. Tekið er tillit til barnabóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.