Morgunblaðið - 18.02.1998, Qupperneq 7
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 7
FRÉTTIR
Dvalarheimili aldraðra
í Þingeyjarsýslum
Meintum
fjárdrætti
vísað til ríkis-
saksóknara
TRÚNAÐARRÁÐ Dvalarheimilis
aldraðra sf. í Pingeyjarsýslum hefur
ákveðið að vísa meintum fjárdrætti
fyrrverandi fonnanns trúnaðar-
ráðsins til ríkissaksóknara, en fjár-
drátturinn er talinn nema 8 milljón-
um króna á nokkurra ára bili, sam-
kvæmt yfirlýsingu sem Morgun-
blaðinu hefur borist.
Dvalarheimili aldraðra sf. í Þing-
eyjarsýslum er sameignarfélag ell-
efu sveitarfélaga. Sjö manna trún-
aðarráð fer með stjórn á málefnum
dvalarheimilsins. Rekstur félagsins
hefur verið í tveimur aðskildum
deildum, þjónustudeild og fast-
eigna- og byggingardeild. Þjónustu-
deildin hefur lagt fram endurskoð-
aða ársreikninga árlega, en árs-
reikningar byggingardeildarinnar
fyrir árin 1991-1997 hafa ekki verið
frágengnir fyrr en nú að því er fram
kemur í yfirlýsingu sem Morgun-
blaðinu hefur borist.
Þar segir ennfremur að Egill 01-
geirsson, sem verið hafi forstöðu-
maður byggingardeildarinnar og
formaður trúnaðarráðsins, hafi sagt
af sér formennskunni og látið af
störfum hjá félaginu 19. desember
síðastliðinn. Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík, hafi verið tilnefnd-
ur í trúnaðarráðið og jafnframt
kjörinn formaður þess.
Hefur endurgreitt 4,5 milljónir
Síðan segir: „Endurskoðun er nú
lokið. Endurskoðunin hefur leitt í
ljós að fyrrverandi formaður trún-
aðarráðsins, Egill Olgeirsson, hefur
á þessu tímabili dregið sér fé af
bankareikningum félagsins að upp-
hæð kr. 8 milljónir. Hluta af þessu
fjármagni, 2,7 milljónir, hefur hann
dregið sér vegna Tækniþjónustunn-
ar ehf. en hann hefur á þessum
tímabili verið framkvæmdastjóri
þess félags. Auk þessa gerir endur-
skoðandi athugasemdir við reikn-
inga, sem gefnir hafa verið út af fv.
formanni trúnaðarráðsins persónu-
lega og vegna Tækniþjónustunnar
ehf. á Dvalarheimili aldraðra sf. Eg-
ill Olgeirsson hefur endurgreitt 4,5
milljónir króna af því fé sem hann
hefur dregið sér og sett tryggingar
fyrir hluta af því sem enn er ógreitt.
Trúnaðarráð félagsins hefur krafist
fullra trygginga fyrir því' sem út.af
stendur ásamt vöxtum og öðrum
kostnaði, þar til krafa félagsins hef-
ur verið að fullu greidd.“
----------------
Akureyri
Afskrifa 5,7
milljóna
skuldir
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
samþykkt að afskrifa skuldir vegna
ógreiddra lána og húsaleigu samtals
að upphæð um 5,7 milljónir króna.
Um er að ræða skuldir sem orðið
hafa til á síðustu 5 árum.
Félagsmálaráð lagði á fundi ný-
lega fram yfirlit yfir ógreidd lán allt
aftur til ársins 1993 og samþykkti
íyrir sitt leyti að afskrifa skuldrin-
ar. Alls er um að ræða að lán að
upphæð rúmar 4 milljónir króna
verða afskrifuð og skuldir vegna
ógreiddrar húsaleigu undanfarinna
ára að upphæð um 1,7 milljónir
króna.
A sama fundi félagsmálaráðs
Akureyrar var lagt fram yfirlit yfir
fjárhagsaðstoð í janúai-mánuði ný-
liðnum. Afgreiddar vora 46 um-
sóknir og voru allar utan ein sam-
þykkt, en upphæðin nafm rúmlega
1,1 milljón króna.
Morgunblaðið/Arctic Trucks
JÖKLAJEPPARNIR þurfa ekki síður viðhald og eftirlit þótt á Suður-
skautslandinu sé. Þessi farartæki sem breytt hefur verið samkvæmt
reynslu íslenskra jeppamanna hafa reynst vel á Suðurskautslandinu
og oft flýtt fyrir leiðangursmönnum.
Jeppamenn á Suðurskautslandi
s
Oveður tefur heimför
LEIÐANGUR sænsku pólstofn-
unarinnar á Suðurskautslandinu
hefur átt í erfiðleikum við að
koma föggnm sínum um borð í
suður-afríska ísbrjótinn Outen-
iqua sem mun flytja leiðangur-
inn aftur til Höfðaborgar. Óveð-
ur tafði jeppamennina Frey
Jónsson og Jón Svanþórsson
ásamt félögum þeirra í þrjá
daga. Leiðangursmenn hafa
hafst við í bfiunum og Ijöldum
undanfarna daga.
Hafísinn er horfinn af þessum
slóðum og því ekki hægt að
Ieggja ísbrjótnum upp að ís-
röndinni eins og þegar föggum
leiðangursins var skipað upp. f
fyrradag voru flestir leiðang-
ursmenn fluttir um borð í ís-
brjótinn með þyrlu og var Jón
Svanþórsson þeirra á meðal.
Freyr varð eftir í landi ásamt
fjóruin öðrum og átti að reyna
að taka tækin um borð í gær
með stórum krana. Ef það tekst
ekki verður beðið fram á föstu-
dag, en þá er rannsóknarskipið
Aqulas væntanlegt með öflugri
krana.
©
'brandlng
Námstefna í Háskólabíói
20. febrúar
kl. 09.00-15.00
■ Hvað er vörumerki?
Hver er ávinningurinn af því að byggja upp sterkt vörumerki?
Vörumerki sem sölutæki.
Hvernig er hægt að nýta sér ný tækifæri á markaðinum?
Nýtist vörumerkjastefna á fyrirtækjamarkaði?
Aóalfyrirlesari og sérlegur gestur námstefnunnar er
Jonathan Hoare og er yfirskrift fyrirlestra hans - Branding in the 21 st century.
Hann mun m.a. fjalla um vörumerkjastefnu Wonderbra og Absolut vodka.
Einnig mun Steinþór Skúlason fjalla um vörumerkjastefnu Sláturfélags Suóurlands
en fyrirtækió hlaut markaósverðlaun ÍMARK fyrir árió 1997.
I anddyri Háskólabíós verður sýningarsvæði þar sem fjölmörg fyrirtæki kynna
áhugaverðar nýjungar fyrir markaðsfólk og stjórnendur fyrirtækja.
Þátttökugjald er 7.900 kr. fyrir félaga í ÍMARK
og 10.900 kr. fyrir aðra.
Innifalið: Léttur hádegisverður og kaffiveitingar. Þátttökugjaldið
má greiða með VISA eða EURO. Til að fá aðgöngumiða
á félagsverði þarf viðkomandi að hafa greitt félagsgjöld ÍMARK.
Unnt er að greiða félagsgjöld viö skráningu eða við innganginn.
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu ÍMARK í síma 568-9988 eða 899-0689.
Einnig má tilkynna þátttöku með þv( aö faxa I sama númer, skrá sig á heimasíðu:
www.imark.is eða senda tölvupóst: imark@mmedia.is.
Athugiö að tilkynna þátttöku sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.
7
G3áCa)©ö©(fe)ia(jO ©Œ SfíOœD ®£ÉXb
IMARK
ISLENSKI
MARKAÐSDAGURINN
FLUGLEIÐIR,
Mar^t smdtl sfni
. . . . w ....... .. CC ^ T
OPIN KERFI HF
Landsbanki
íslands