Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 9
FRÉTTIR
Myndsímafundur Rafmagnsveitu Reykjavíkur og fyrirtækisins Nortel var myndaður
Ekki var beðið um leyfí
EKKI var beðið um sérstakt leyfi
Rafmagnsveitu Reykjavíkur til
sjónvarpsmyndatöku af myndsíma-
fundi við fyrirtækið Nortel um
gagnaflutning um veitukerfi Raf-
magnsveitunnar, sem haldinn var
15. janúar sl. og þær samningstöl-
ur og tæknilegu upplýsingar, sem
veittar voru á fundinum voru trún-
aðarmál, segir í svari rafmagns-
stjóra við fyrirspum borgarráðs-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
borgarráði.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram fyrirspurn
fyrr í mánuðinum vegna fréttar á
Stöð 2 um gagnaflutning um veitu-
kefí Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Oskað var eftir upplýsingum um
hvort beðið hafi verið um leyfi Raf-
magnsveitunnar til upptöku sjón-
varpsins á símafundinum. I svai-i
rafmagnsstjóra segir að ekki hafi
verið beðið um sérstakt leyfi Raf-
magnsveitunnar til sjónvarpsupp-
töku á fundinum, hins vegar hafi
Helgi Hjörvar stjórnarmaður
skýrt einum af verkfræðingum
Rafmagnsveitunnar og tækni-
manni Landssímans frá því þegar
gengið var til fundar, að Stöð 2
væri um það bil að koma með upp-
tökumann.
Einnig var spurt um hvaðan full-
yrðingar um upphæð mögulegs
samnings Nortels og Rafmagns-
veitunnar kæmu, sem gefnar voru
upp í viðtali við Helga á Stöð 2. í
svari rafmagnsstjóra segir að sam-
kvæmt útskrift Miðlunar ehf. af
viðtalinu sé vitnað í orð frétta-
manns og að ekki sé óeðlilegt að
hann nefni hundruð milljóna í
þessu sambandi ef til samninga
komi um verkefni af þessu tagi.
Málið væri hins vegar á algeru
frumstigi.
Trúnaðarmál
Loks var spurt hvort samnings-
tölur á þessu stigi væru ekki við-
kvæmar trúnaðarupplýsingar að
mati forsvarsmanna Rafmagns-
veitunnar. I svari rafmagnsstjóra
segir að þær samningstölur, svo og
tæknilegu upplýsingar, sem hinn
breski viðmælandi hafi nefnt á
myndsímafundinum væru trúnað-
armál eins og hann hafi tekið fram
á sjálfum fundinum.
Athugíðl
Enn meiri verðiækkun
Verslunin hættir 1. mars.
Þðkkum ftfrir viðskiptin.
Dömu- og herrabúðin,
Laugavegi 55, sími 5518S90.
íuyn«ý^8
■ Medisana^^^
buxur
Styðja vel við mjóbak, mjaðmir og hné
(Styðja við hné í lengri sídd, niður fyrir hné)
Örva vessakertið og auka blóðstreymi.
Húðin endurnýjar sig örar og verður stinnari.
Hafa hjálpað mörgum í baráttunni við appelsínuhúð.
Henta vel í alla líkamsrækt,
sérstaklegaEHEEIEÖ
Fáanlegar í tveimur lengdum og sjö stærðum.
LYFJA
Lágmúla 5 - S. 533-2300
Críptu tækifærið
- meðan birgðir endast.
NÝTT
NYTT
Allt til handsnyrtingar
*NAILOID*
UtttttQ
H Y G E A
jnyrtivöruvcrjlun
Austurstræti 16 Laugavegi 23 Kringlunni
Spamaður sem leggur grunnmn
• Grunninn að því sem þú tekur þér fyrir hendur á næstu árum.
• Grunninn að varasjóði sem hægt er að grípa tii þegar á þarf að halda og þegar tækifærin gefast.
• Grunninn að því sem þú gerir á öðrum sviðum fjármála þinna.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs leggur þú grunninn að þessu
öllu á einfaldan hátt. Öryggi sparnaðar með áskrift að spariskírteinum
er ótvírætt, enda eru ríkisverðbréf öruggustu verðbréf hverrar þjóðar.
Með áskrift getur þú notið sparnaðarins hvenær sem er á lánstímanum
og einfaldari getur sparnaðurinn ekki verið. Þú greiðir áskriftina með
greiðslukorti og gerir sparnaðinn að hluta af annarri eyðslu.
Eyddu í sparnað og sparaðu með áskrift. Eftir það þarftu ekki að hugsa
um reglulegan sparnað.
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ÁSKRIFT