Morgunblaðið - 18.02.1998, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
'
..
▲ „ÞETTA er frá fyrstu æfingu á gólfi, þegar leikararnir byrja að hreyfa sig með textann. Þá er aðallega verið
að finna út réttu aðstæðurnar og stemmninguna en ekki verið að hugsa um hvar leikarinn stendur eða á hvern
hann horfir þegar hann fer með textann. Með tímanum hverfa blöðin og tímasetningar og réttar uppstillingar
Lagermál eru okkar sérgrein
verða til.“
► „ÞETTA er Helga Rún leikmynda-
og búningahönnuður að hengja upp
æfingaleikmun. I byrjun var ekki búið
að útvega réttu leikmunina og því var
þessi Ijóti „krúsifix“ hengdur upp svo
leikararnir gætu leikið á sama lilut-
inn. Þetta er í byijun janúar en þá var
að koma heildarmynd á hverja senu
fyrir sig, byijað að smíða áhorfenda-
pallana, hengja fyrir alla gluggana og
festa upp ljósin. Það voru ótal erfið-
leikar við húsnæðið sem við sáum ekki
fyrir í upphafi. Það tók til dæmis
langan tfrna að koma ljósabúnaði fyrir
því lofthæðin er 13 metrar.“
WIMEMLUXI
Bretta-
rekkar
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusla - þehking - raögjöf. Áratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SUNDABORQ 1. RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305
▲ „ÞETTA er mynd úr kaffistofunni og er tekin þegar var hvað kaldast
í kirkjunni. Á þessum tíma æfðum við í um 45 mínútur uppi í kuldanum
og komum svo niður til að hlýja okkur og fá kaffi. Svo var farið aftur
upp í kuldagallana og frostið. Það var stundum að leikararnir hreinlega
frusu í kuldanum uppi og gleymdu texta sem hafði flætt í hlýjunni niðri
skömmu áður. Stemmningin minnir á sögur úr Iðnó þegar það var opn-
að, en þá var einn ofn á miðju sviði og vandamál fyrir alla leikstjóra að
hreyfa sýninguna um sviðið því leikararnir færðu sig ósjálfrátt í hlýjuna
í miðjunni."
Frá upphafi
til frum-
sýningar
Leikritið Heilagir syndarar var sett upp
við frumstæðar og sérstakar aðstæður í
rétt fokheldri Grafarvogskirkju. Kristinn
Ingvarsson ljósmyndari festi vinnuferli
leikhópsins á fílmu en Magnús Geir Þórð-
arson leikstjóri sýningarinnar lýsir því sem
fyrir augu ber.
▲ „VIÐ byrjuðum að vinna leikritið síðastliðið vor. Þá unnum við í text-
anum, breyttum honum og bættum. Það er svo oft sem leikrit eru
frumsýnd á Islandi án þess að vera tilbúin og til að fyrirbyggja það
ákváðum við að fara saman yfir handritið. Þetta er lúxus sem menn leyfa
sér sjaldnast í stóru leikhúsunum en með því að gera þetta náðum við að
sníða helstu vankantana af. Við byijuðum svo að æfa leikritið í byrjun
desember.“
▲ „HÉRNA erum við rétt byijuð að nota rétta leikmuni, búninga og ljós.
Þetta er á svokölluðu tæknirennsli og sviðið bara hálfklárað. Á æfingum
er aðaláherslan á leikarana og allt tæknifólk og sviðsfólk þarf að virða
það. Vandamál tengd þeirra störfum eru því leyst utan venjulegs
æfingatíma. Á tæknirennsli er hins vegar reynt að fara í gegnum sýning-
una án þess að leikararnir séu í forgangi. Þá er í raun bara verið að
ganga tæknilega í gegnum sýninguna og stoppað í hvert sinn sem eitt-
hvað tæknilegt atriði er fínpússað og hnökrar hreinsaðir upp. Þetta getur
tekið þó nokkuð langan tíma því smáatriðin eru óteljandi."