Morgunblaðið - 01.03.1998, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓRA S.
GUÐLA UGSDÓTTIR
+ Halldóra Sigríð-
ur Guðlaugsdótt-
ir fæddist í Odda í
Vestmannaeyjum 18.
júní 1920. Hún lést á
Landspítalanum 21.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðlaugur
Brynjólfsson útgerð-
armaður, f. 23. júlí
1890, d. 30. desem-
ber 1972, og Val-
gerður Guðmunds-
dóttir húsmóðir, f. 8.
mars 1895, d. 29.
september 1937. Þau
bjuggu í Vestmannaeyjum. Hún
var elst af sjö alsystkinum.
Einnig átt hún tvö eldri hálf-
systkini og einn uppeldisbróður.
Eftirlifandi maður hennar er
Sverrir Torfason, matsveinn, ætt-
aður frá Bolungarvík, f. 20. októ-
ber 1916. Þau eignuðust tvær
dætur. Þær eru: 1) Valgerður,
húsmóðir, f. 29. nóvember 1942,
gift Jóni Vigfússyni, skipstjóra, f.
22. maí 1938, d. 14. júní 1995.
Börn þeirra eru: Guðrún, fóstra,
f. 5. aprfl 1971, og Sverrir, banka-
starfsmaður, f. 19. maí 1977. Áð-
ur eignaðist Valgerður Halldóru
S. Sveinsdóttur, bankaritara, f.
10. apríl 1960, en hún ólst upp hjá
Halldóru og Sverri. 2) Ása Sigríð-
ur, húsmóðir, f. 2. ágúst 1946, gift
Ásgrími Hilmissyni, bankaútibú-
stjóra, f. 15. febrúar 1947. Böm
þeirra em Hilmir, f.
31. júlí 1965, d. 16.
desember 1970, Auð-
ur, kennari, f. 1.
febrúar 1969, sonur
hennar er Hilmir, f.
1. desember 1996, og
Andrea, nemi f. 10.
janúar 1974. Á ung-
lingsárum sínum í
Vestmannaeyjum var
Halldóra bamfóstra
hjá Helga Benedikts-
syni og Guðrúnu
Stefánsdóttur.
Einnig vann hún á
saumastofu Helga
Ben., en síðar vann hún í Neta-
gerð Vestmannaeyja. Þegar hún
kom til Reykjavíkur var hún
vinnukona þar til hún gifti sig 19.
september 1942. Eftir að hafa
verið heimavinnandi í nokkur ár
hóf hún störf á Hótel Garði og
Hótel Skjaldbreið. Síðar fór hún
að vinna hjá Pétri á Borginni í
Ráðherrabústaðnum og veislum
sem tilheyrðu Ráðherrrabústaðn-
um. Þegar skemmtistaðurinn
Röðull opnaði vann hún þar við
þjónustustörf þar til staðnum var
lokað. Eftir það fór hún að vinna
á Þórskaffi auk þess sem hún
vann við ræstingar í Mýrarhúsa-
skóla.
Útför Halldóru fer fram frá
Seltjarnarneskirkju á morgun,
mánudaginn 2. mars og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku hjartans mamma mín, nú
ert þú farin frá mér. Nú hefur þessi
hræðilegi sjúkdómur tekið ykkur
bæði frá mér, þig og Jón manninn
minn, ykkur sem stóðuð mér næst.
Hvemig fer ég að án ykkar, þið
sem voruð minn klettur. Þú varst
mín stoð og styrkur í lífinu, alltaf
gat ég leitað til þín, við þig eina tal-
aði ég um mín dýpstu mál. Þú varst
mín trúnaðarvinkona.
Þú áttir marga góða vini, ekki
síst unga fólkið sem laðaðist að þér.
Þú hjálpaðir mörgum sem áttu
erfitt og um sárt að binda. Það eru
margir sem sakna þín. Þú varst
kjarnorkukona, vannst hörðum
höndum allt þitt líf og oft varst þú
þreytt en kvartaðir aldrei. Þú hugs-
aðir vel um fólkið þitt og hjálpaðir
okkur áfram i lífinu. Við í þessari
litlu fjölskyldu höfum misst svo
mikið.
Nú er þjáningum þínum lokið, nú
líður þér vel á himnum hjá Guði.
Ég trúi því að Jón og Hilmir, dótt-
ursonur þinn sem þú saknaðir svo
mikið, hafi tekið vel á móti þér,
elsku mamma mín. Ég sakna þín
svo sárt. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Þín
Valgerður.
Elsku amma mín. Nú ertu farin
frá mér yfir í aðra og betri heima
Blómastofa
Fríðfbuts
SuðurlandsbrautlO
108 Reykjavík • Simi 553 1099
eftir löng og erfið veikindi sem þú
gekkst í gegnum af krafti og dugn-
aði.
I desember 1928 varst þú að
renna þér á sleða ásamt fleiri böm-
um í Vestmannaeyjum og tókst þá
svo illa til að sleði á allmikilli ferð
lenti á kvið þínum. Páll Kolka
læknir var sóttur og skar hann þig
upp og fann að þriðjungur miltans
hafði rifnað nær alveg af. Það var
mikill tímaskortur en hann hitti á
bestu aðferðina við að bjarga þér
og fjarlægði miltað. Þetta var í
fyrsta sinn sem slík aðgerð var
framkvæmd hér á landi og varst þú
í mikilli lífshættu. Nú á tímum
hefði slíkur sjúklingur fengið blóð-
gjöf í stórum stíl en á þeim árum
voru engin tök á því svo hann varð
að láta sér nægja að gefa þér salt-
vatnsinndælingar en það bar ekki
árangur svo hann símaði til
Reykjavíkur og lét senda sér
drúfusykur með skipi sem kom til
Vestmannaeyja næsta morgun.
Hann gaf þér drúfusykurinn í æð
og telur að hann hafi bjargað lífi
þínu. Eftir þetta kallaði hann þig
„Halldóra mín“ og skrifaði hann ít-
arlega grein um þessa aðgerð með-
al annars í Læknablaðið 1929. Þú
varst honum svo kær að hann
skírði dóttur sína Halldóru.
Þú varst ekki gefin fyrir að
kvarta yfir veikindum þínum eða
öðrum erfiðleikum í lífi þínu. Und-
anfarin ár varst þú mikið veik en þú
varst alltaf jákvæð og bjartsýn um
að ná heilsu aftur og gafst aldrei
upp. Síðustu vikumar varstu orðin
svo þreytt og lasin og lást á Land-
spítalanum í nokkrar vikur. Þú
varst ekkert á því að gefa þig og
vildir fara heim aftur þótt þú hefðir
öa^ðskom
v/ FossvogskiVkjwgapð
Sími: 554 0500
IIINGAR- ÖG
TÆKIFÆRISEORT
SegCu hug þinn um leið
og þú lætur gott af þér
S 562 4400 lei0a'
tUJklHUBTOnWN
\3jfy KUUUUNNAft
varla nokkra orku til þess.
Eldsnemma á þriðjudagsmorgun-
inn 17. febrúar klæddir þú þig í fót-
in þfn því þú ætlaðir að fara heim,
það sýnir vel kraftinn og dugnaðinn
í þér. Það var ekki hægt annað en
að leyfa þér að fara heim, því löng-
unin var svo mikil og náðir þú að
vera í sólarhring heima og er ég
sátt við að þú skyldir ná þínu fram.
Ég var svo lánsöm að fá að alast
upp hjá þér og afa sem reyndust
mér svo vel alla tíð. Þú varst mín
besta trúnaðarvinkona og á ég
erfitt með að hugsa til þess að geta
ekki lengur leitað til þín eins og ég
hef alltaf getað gert. Þú varst klett-
urinn í mínu lífi, ég gat alltaf treyst
á þig, þú brást mér aldrei. Undan-
farna daga þegar ég var hjá þér á
sjúkrahúsinu hef ég verið að rifja
upp æskuárin og allar góðu sam-
verustundirnar með þér, en það
hjálpaði mér að ganga í gegnum
síðustu sólarhringana með þér í
veikindunum. Þú varst sterk og
stórbrotin kona og hrókur alls
fagnaðar. Þú hafðir gaman af að
segja sögur og brandara og gerðir
óspart grín að sjálfri þér, margar af
sögum þínum koma til með að lifa
áfram. Þú varst fljót til svars og
sagðir skemmtilega frá og kryddað-
ir sögumar hæfilega mikið svo allir
höfðu gaman af. Æsku- og ung-
lingsárin mín var afi á sjó og við
mikið tvær saman og vorum við
bundnar sterkum böndum. Þegar
ég flutti að heiman var ég ómögu-
leg ef ég heyrði ekki í þér að
minnsta kosti einu sinni á dag og á
ég sjálfsagt oft eftir að lyfta upp
símtólinu til að hringja í þig og
heyra í þér röddina, en í staðinn
sendi ég þér hugsanir mínar og veit
að þú ert hjá mér. Það var svo
margt sem þú kenndir mér og
mörg heilræðin sem þú gafst mér
sem ég hef haft að leiðarljósi í mínu
lífi. Þú varst mjög gestrisin og var
alltaf séð til þess að enginn færi
svangur frá þér. Þú hafðir svo gam-
an af að sauma og voru allir þínir
kjólar heimasaumaðir. Þú saumaðir
margar flíkurnar bæði á sjálfa þig
og okkur stelpurnar. I mörg ár
fylgdu alltaf sængurfót og náttkjól-
ar með í jólapakkanum. Síðastliðið
sumar dreif ég þig með mér og
Stefáni til Asu og fjölskyldu hennar
á Akureyri því þú varst vön að
heimsækja hana á hverju sumri eft-
ir að hún flutti út á land. Þó þú
værir mikið veik hertir þú þig upp í
að fara norður og veit ég að þau eru
þakklát fyrir þessa heimsókn þína.
Við keyrðum norður og sagðir þú
okkur sögur alla leiðina og sá afi til
þess að við værum vel nestuð. Gist-
um við hjá Asu og fjölskyldu henn-
ar og áttum þar góðar stundir sam-
an.
Mig langar til að færa öllu starfs-
fólki á deild Ue og llf á Landspít-
alanum kærar þakkir fyrir þeirra
umönnun og hlýju sem þau gáfu
ömmu minni. Sérstakar þakkir
langar mig til að færa Þórami
Sveinssyni lækni sem annaðist
ömmu í mörg ár og reyndist okkur
báðum vel. Einnig langar mig til að
þakka hjúkrunarþjónustunni Karit-
as fyrir þeirra aðhlynningu og
stuðning.
Elsku amma mín, ég sakna þín
svo mikið, ég hef kviðið þeirri
stundu svo lengi að þú færir frá
mér. Ég er búin að vera að undir-
búa mig í langan tíma en alltaf
kemur kallið manni á óvart. Ég
þakka þér fyrir allar góðu samveru-
stundirnar og allt sem þú gafst mér
í lífinu. Ég bið Guð um að styrkja
og varðveita afa í hans miklu sorg.
Ég veit að nú líður þér vel. Megi
Guð lyfta þér upp til ljóssins.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skfija,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
Nú héðan hk skal hefja,
ei hér má lengm- tefja
ídauðans dimmum val.
Ur inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(V. Briem)
Megi algóður Guð styrkja okkur
sem eftir lifum. Hvíl þú í friði, elsku
amma mín.
Þín
Halldóra Sigríður.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast minnar ágætu tengdamóð-
ur, Halldóru S. Guðlaugsdóttur,
sem ég átti samleið með í 35 ár. Allt
frá okkar fyrstu kynnum bar ég
mikla virðingu fyrir henni. Hún
reyndist mér ákaflega vel og studdi
mig og styrkti í gegnum árin. Að-
eins 17 ára gömul missti hún móður
sína, en Halldóra var elst sjö systk-
ina. Lífsbarátta Dóru (eins og hún
var kölluð) einkenndist af uppruna
hennar. Hún var mikill dugnaðar-
forkur og vann oftar en ekki tvö-
falda vinnu. Markmið hennar var
að sjá til þess að fjölskylda hennar
liði ekki skort. Tvítug að aldri flutti
hún til Reykjavíkur en flutti árið
1956 út á Seltjamarnes og bjó fjöl-
skyldan þar eftir það. Starfsvett-
vangur hennar var við framreiðslu-
störf. Hún vann hjá Helgu á veit-
ingahúsinu Röðli frá því að það var
opnað og þar til staðnum var lokað
fyrir fullt og allt. Einnig starfaði
hún til fjölda ára á Þórskaffi. Hjá
Pétri á Borginni starfaði Dóra í
mörg ár á Gamla Garði og þegar
veislur vora haldnar í Ráðherrabú-
staðnum og víðar. Einn af mörgum
kostum Dóru var hversu auðvelt
hún átti með að segja sögur. Marg-
ar stundir áttum við saman þar sem
hún fór á kostum í frásagnargleði
sinni. Hún hélt svo sannarlega at-
hyglinni og mikið var hlegið og
hent gaman að þegar hún lýsti
mönnum og málefnum á sinn ein-
stæða hátt.
Eiginmaður Dóru er Sverrir
Torfason matsveinn, ættaður frá
Bolungarvík, og varð þeim tveggja
dætra auðið. Arið 1960 tóku þau að
sér dótturdóttur sína sem skírð var
í höfuðið á ömmu sinni, Halldóra
Sigríður, og ólst hún upp hjá þeim.
Dóra Sigga, eins og hún er kölluð,
reyndist ömmu sinni mikil stoð í
veikindum hennar og dvaldi hjá
henni öllum stundum undir lokin.
Fyrir hönd fjölskyldunnar færi ég
Dóru Siggu innilegustu þakkir fyrir
þá mikiu umhyggju sem hún sýndi
ömmu sinni á erfiðum tíma og allt
þar til yfir lauk.
Ég þakka tengdamóður minni
samfylgdina. Ég bið hæsta höf-
uðsmið himins og jarðar að styrkja
Sverri, dætur þeirra og barnaböm
á erfiðum tíma. Minningin um heil-
steypta og heiðarlega konu mun
ætíð verða mér efst í huga. Hvíli
hún í friði.
Ásgrímur Hilmisson.
Mig langar til að minnast Hall-
dóru S. Guðjaugsdóttur með fáein-
um orðum. Ég kom inn í þína fjöl-
skyldu fyrir tæpum tveimur árum
er ég hóf sambúð með dótturdóttur
þinni og nöfhu. Ég tók strax eftir því
hvað þið voruð líkar á mörgum svið-
um og hvað þú varst stór hluti af
hennar lífi og máttuð þið vart hvor
af annarri sjá. Oft var ég að reyna
að hringja heim af sjónum og var þá
oftar en ekki á tali svo mínútum
skipti og loks þegar ég náði sam-
bandi þá var svarið: „Ég varð að
heyra í ömmu.“ Það er mikill missir
hjá svona lítilli fjölskyldu að missa
þig, klettinn sem allir gátu treyst á,
og þú stóðst hnarreist fram til hins
síðasta. Akveðið tóm er í huga mín-
um þegar ég skrifa þessar línm-.
Mér fannst ótrúlegt þegar mér var
sagt að þú værir búin að vera með
alvarlegan sjúkdóm í mörg ár. Mér
fannst það varla geta verið því þú
varst alltaf svo hress og skemmtileg.
Ég gleymi ekki norðurferðinni síð-
astliðið sumar þegar þú fórst með
mér og Dóru Siggu og sagðir létt-
kryddaðar sögur alla leiðina svo við
veltumst um af hlátri. Ég hef kviðið
þeim degi sem myndi aðskilja ykkur
nöfnurnar um óákveðinn tíma. En
þannig er nú lífið að það eina sem
við vitum er að við deyjum öll ein-
hvem tíma. Nú ert þú búin að yfir-
gefa okkar jarðneska heim og ert á
leiðinni á æðra tilverustig þar sem
þú munt fá lækningu á þínum sjúk-
dómi og verða fiísk á ný. Það er
alltaf sárt að horfa á ástvin þjást og
geta lítið gert honum til hjálpar ann-
að en að veita styrk og biðja Guð og
allt það góða um hjálp til þess að
lækna eða líkna.
Elsku Halldóra mín, með söknuði
kveð ég þig og þakka ljúfar minn-
ingar um góða og yndislega konu
og bið Guð að fylgja þér til nýrra
heima.
Ég vil votta Sverri Torfasyni og
fjölskyldu hans innilega samúð
mína í þeirra miklu sorg.
Lýs milda stjama leiðir jardar allar.
Leys hverja deilu, er mennimir kjjást.
Líknaðu þreyttum, þegar degi hallar.
Við þröskuldinn hinsta skal sigurinn nást.
(Ul&r Ragnarsson.)
Stefán Ivar ívarsson.
Elsku amma Sigga. Þá ertu bara
farin fyrir fullt og allt. Okkur lang-
ar að kveðja þig í síðasta sinn og
þakka þér fyrir allar skemmtilegu
samverustundimar sem við áttum.
Þó við höfum ekki alltaf búið ná-
lægt þér var samband okkar mikið
og náið og alltaf varst þú sú fyrsta
og síðasta sem við hittum þegar við
komum í bæinn. Þegar við fluttum
svo til Reykjavíkur á skólaárunum
gátum við alltaf leitað til þín og þú
varst okkar stoð og stytta. Þú
hvattir okkur áfram í öllu sem við
gerðum og misstir aldrei trúna á
okkur. Það er því skrýtið að hugsa
til þess að þú sért ekki lengur á
meðal okkar og að við getum ekki
lengur skroppið til þín „út á nes“
hvenær sem er. Alltaf tókstu jafn
vel á móti okkur og þó að síðustu
mánuðirnir hafi verið þér erfiðir
gerðir þú allt sem þú gast til að láta
okkur líða vel. Þér tókst það svo
sannarlega og við eigum þér mikið
að þakka.
Við munum alltaf eiga minning-
arnar um stundfrnar sem við áttum
saman í eldhúsinu hjá þér þar sem
þú sagðir sögur og brandara á þinn
einstaka hátt.
Elsku amma, við söknum þín svo
mikið. Við munum aldrei gleyma
þér og geymum minninguna um þig
á sérstökum stað í hjörtum okkar.
Guð geymi þig, elsku amma.
Auður og Andrea.
Yndisleg dóttir okkar, unnusta, systir,
mágkona, frænka og dótturdóttir,
GUNNHILDUR LÍNDAL
ARNBJÖRNSDÓTTIR,
lést af slysförum fimmtudaginn 26. febrúar.
Sólveig Hafdfs Haraldsdóttir, Arnbjörn Óskarsson,
Guðlaugur Eyjólfsson,
Haraldur Líndal Arnbjörnsson, Þóra Brynjarsdóttir,
Bryndís Lindal Arnbjörnsdóttir, Gunnar Pétur Róbertsson,
Hafdís Hildur Gunnarsdóttir, Fjóla Eiríksdóttir.