Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 4
4 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mál innflytjenda franskra kartaflna fyrir Hæstarétti
Sýknaður en búinn að
afplána fangelsisdom
MAÐURINN, sem var sýknaður í
Hæstarétti í fyrradag af ákærum
um lögbrot í tengslum við innflutn-
ing á frönskum kartöflum, hefur
þegar afplánað fangelsisvist vegna
málsins. Hið sama á við um annan
mann sem á fimmtudag var dæmd-
ur í 100 þúsund króna sekt vegna
brota í tengslum við innflutninginn.
Þetta er í annað skipti sem Hæsti-
réttur dæmir í þessum málum
mannanna. Eftir að álagning jöfn-
unargjaldsins, sem málið snerist
um, var dæmd ólögmæt heimilaði
Hæstiréttur að fyrri dómar í málum
mannanna yrðu teknir upp að nýju.
Samkvæmt þeim dómum höfðu
mennimir verið dæmdir til fangels-
isvistar. Sá sem var dæmdur til 100
þúsund króna sektar hafði verið
dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar
af 11 mánuði skilorðsbundna, og
hafði hann afplánað hinn óskilorðs-
bundna hluta dómsins.
Þriðji maðurinn, sem í fyrradag
var dæmdur til 200 þúsund króna
sektargreiðslu, hafði einnig verið
dæmdur í fangelsi en hafði ekki af-
plánað þann dóm, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
í dómskerfmu eru einnig til með-
ferðar mál sem fyrirtæki mann-
anna hafa höfðað til að fá endur-
greiddar milljónafjárhæðir sem
þeim var gert að greiða með jöfn-
unargjaldinu, sem Hæstiréttur hef-
ur dæmt ólögmætt.
40 milljóna endurkrafa
Jón Magnússon, hrl., lögmaður
þess þremenninganna, sem í fyrra-
dag var dæmdur í 100 þús. kr. sekt,
sagði að endurkröfumál skjólstæð-
ings síns, sem snýst um 40 milljóna
endurkröfu hans á hendur ríkinu,
verði fiutt í Héraðsdómi Reykjavík-
ur næstkomandi miðvikudag. Það
er lengst komið endurkröfumál-
anna en þau byggjast á því að
mennimir fái endurgreiddar þær
fjárhæðir sem innheimtar voru í
jöfnunargjöld þau sem nú liggur
fyrir að hafí verið lögð á án laga-
heimildar.
Jón Magnússon sagði einnig að
nú, að gengnum þessum dómum í
enduruppteknu málunum, blasi við
að kanna möguleika á því að höfða
skaðabótamál gegn ríkinu fyrir
hönd þeirra manna, sem séu þegar
búnir að sitja af sér fangelsisvist
vegna brota, sem nú liggi fyrir að
ekki hefði átt að afgreiða nema með
sektargreiðslu.
Neyðar-
blysum
stolið
VIÐ EFTIRLIT björgunar-
sveitarmanna og Landhelgis-
gæslu með slysavamaskýlum
á Vestfjörðum í liðinni viku
kom í ljós að neyðarblysum-
og flugeldum hafði verið stolið
úr skýli á Látmm í Aðalvík.
Rúmlega tugur skýla var
skoðaður í þessari eftirlitsferð
og kom hvarf neyðarblysanna
úr Aðalvík í Ijós á fimmtudag.
Talið er að ferðalangar hafi
haft þau á brott í sumar eða
haust, en um mikilvægan ör-
yggisbúnað er að ræða.
Að sögn lögreglunnar á ísa-
firði var gert viðvart um hvarf.
blysanna í fyrradag. Hún að
ekki verði of oft brýnt fyrir
fólki mikilvægi þess að láta
búnað í skýlum í friði.
Ríkisendurskoðandi
Oll laxveiði
verður könnuð
RÍKISENDURSKOÐANDI hefur
ákveðið að taka fyrir alla laxveiði á
vegum Landsbanka íslands og
dótturfélaga bankans í skýrslu
sinni tii bankaráðs í framhaldi af
ósk Sverris Hermannssonar
bankastjóra um úttekt á meintum
kaupum bankans á veiðileyfum í
Hrútafjarðará.
Bankaráð Landsbankans sam-
þykkti á síðasta fundi að fresta
allri umræðu um laxveiðileyfí þar
til skýrsla ríkisendurskoðanda
liggur fyrir. „Við erum að byrja
þessa vinnu og ég hef ákveðið að
líta einnig á dótturfélög Lands-
bankans og tek þá fyrir alla lax-
veiði bankans," sagði Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi.
Hann sagðist ekki geta sagt til um
hvenær skýrslan lægi fyrir en ósk-
að hefði verið eftir því að verkinu
yrði flýtt eins og mögulegt væri.
Framboðslisti R-
lista samþykktur
Á FUNDI Samráðs Reykjavíkur-
listans, sem haldinn var í gær, var
samþykkt tillaga uppstillingar-
nefndar Reykjavíkurlistans vegna
borgarstjórnarkosninganna 1998.
Listann skipa eftirfarandi: 1.
Helgi Hjörvar, framkvæmdastjóri.
2. Sigrún Magnúsdóttir, borgar-
fulltrúi. 3. Hrannar B. Amarsson,
framkvæmdastjóri. 4. Steinunn V.
Óskarsdóttir, borgarfulltrúi. 5.
Guðrún Ágústsdóttir, borgarfull-
trúi. 6. Alfreð Þorsteinsson, borg-
arfulltrúi. 7. Helgi Pétursson,
markaðsstjóri. 8. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri. 9. Anna
Geirsdóttir, heilsugæslulæknir. 10.
Stúlkan
komin 1
leitirnar
LÖGREGLAN í Reykjavík
fann skömmu fyrir hádegi í
gær 15 ára gamla stúlku sem
hvarf af heimili sínu fyrir um
viku síðan og grennslast hef-
ur verið eftir undanfama
daga.
Stúlkan fór frá heimiii sínu
að kvöldi föstudagsins 6.
mars síðast liðins. Hún fannst
í húsi f Austurborginni og var
komið í hendur forráðamanna
sinna í kjölfarið samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu.
Ámi Þór Sigurðsson, borgarfull-
trúi. 11. Kristín Blöndal, myndlist-
arkona. 12. Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt. 13. Pétur Jónsson, borg-
arfulltrúi. 14. Guðrún Erla Geirs-
dóttir, myndlistarkona. 15. Vanda
Sigurgeirsdóttir, landsliðsþjálfari.
16. Sigrún Elsa Smáradóttir, mat-
vælafræðingur. 17. Óskar Bergs-
son, trésmiður. 18. Einar Már
Guðmundsson, rithöfundur. 19.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir,
stjórnmálafræðinemi. 20. Sólveig
Jónasdóttir, fræðslufulltrúi. 21.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, versl-
unarmaður. 22. Kjartan Ragnars-
son, leikstjóri. 23. Þuríður Jóns-
dóttir, lögfræðingur. 24. Margrét
Pálmadóttir, kórstjóri. 25. Rúnar
Geirmundsson, framkvæmda-
stjóri. 26. Guðrún Ögmundsdóttir,
borgarfulltrúi. 27. Guðrún Hall-
dórsdóttir, forstöðukona Náms-
flokka Reykjavíkur. 28. Kristján
Benediktsson, fyrrverandi borgar-
fulltrúi. 29. Adda Bára Sigfúsdótt-
ir, fyrrverandi borgarfulltrúi. 30.
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi ráð-
herra.
Samþykkt var að vísa framboðs-
listanum til staðfestingar hjá AI-
þýðuflokki, Alþýðubandalagi,
Framsóknarflokki og Samtökum
um kvennalista, sem funduðu um
málið í gær.
Uppstillingarnefnd Reykjavík-
urlistans skipa Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Valdimar K. Jónsson,
Guðmundur Haraldsson, Einar D.
Bragason og Guðrún Ögmunds-
dóttir.
Morgunblaðið/Þorkell
UÓSMYNDIR Rúríar frá Bosníu-Herzegovínu hengdar upp á Kjarvalsstöðum.
Umfangsmikið listaverk Rúríar sett upp á Kjarvalsstöðum
" stríði
LISTAVERK geta verið af öllum
stærðum og gerðum. Sjaldgæft er þó
að þau þeki fimm hundruð fermetra,
að minnsta kosti inniverk, og sé
skipt upp í sex hluta, eins og lista-
verkinu sem Rúrí hefur komið fyrir
á sýningu í vestursal Kjarvalsstaða.
Sýningin var opnuð í gær.
Yfirskrift hennar er Paradís -
hvenær? og hefur Rúrí tekið helstu
miðla samtímans í sína þjónustu til
að lýsa ógnum og afleiðingum stríðs-
átaka í heiminum.
Sýningin er að sönnu mikil að um-
fangi og yfirgripi, eins og blaðamað-
ur og ljósmyndari Morgunblaðsins
fengu að kynnast, er þá bar að garði
á Kjarvalsstöðum tveimur tímum
fyrir opnun í gærkvöldi. Þegar þeir
„gengu inn í verkið“, í orðsins fyUstu
merkingu, hittu þeir þar fyrir vel á
annan tug manna, sem vann þá baki
brotnu við að leggja lokahönd á upp-
setningu þess - enda í mörg hom að
líta.
í miðjum hópi stóð „verkstjórinn“
sjálfur, Rúrí. „Þetta verk er ekki ein-
ungis viðamikið, snertifletimir era
líka margir - bæði tilfinningalega og
skynrænt," sagði listakonan, þegar
blaðamanni hafði sem snöggvast tek-
ist að draga hana afsíðis. „I raun og
vera er varla hægt að tala um einka-
sýningu í þessu samhengi," bætir
hún svo við. „Það hafa svo margir
lagt mér lið og lagt mér til efni.“
Nefnir Rúrí sérstaklega Ijós-
myndarana Þorkel Þorkelsson og
Irenu Guðrúnu Kodic og kvik-
myndatökumanninn Pál Steingríms-
SPJALDSKRÁ sem hefur að geyma upplýsingar um fórnarlömb stríðs
í heiminum undanfarin tíu ár. Rúrí er lengst til hægri.
son, sem öll eiga verk inni í verkinu.
Segja má að sýningin sé einn alls-
herjar gagnabanki enda styðst Rúrí
við margþætta tækni. Grannunnn
era blaðaúrklippur úr Morgunblað-
inu um stríð í heiminum frá árinu
1994, sem Rúrí safnaði, ásamt upp-
ranalegum fréttatexta frá Reuters
og dagbókarbrotum listakonunnar.
A sýningunni era einnig ljósmyndir,
litskyggnur, fjölmargar skriflegar og
tölulegar staðreyndir um stríð og
fórnarlömb þess, myndbönd, munir
frá stríðshrjáðum löndum og sitt-
hvað fleira, að ekki sé minnst á tölv-
ur en alnetið hefur stóra hlutverki að
gegna á sýningunni.
Rúrí hefur unnið með þetta þema,
stríðsátök, í meira en áratug. Kveðst
hún draga alla sína reynslu saman í
Paradís - hvenær?
En hvað vakir fyrir listakonunni
með þessu verki? „Mér hefur alltaf
ofboðið skammsýni mannsins. Hann
á að vera vaxinn upp úr því að ráð-
ast á nágranna sína til þess eins að
ásælast eitthvað, en undirrót ódæð-
isverka af þessu tagi er alltaf
græðgi, sama hverjir eiga í hlut. En
þrátt fyrir þetta verðum við að lifa í
voninni - það geri ég að minnsta
kosti!“
■ Drög að framtíð?/Lesbók 10