Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 23

Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 23 ERLENT Reuter Gafst upp á ísbaði NORÐMAÐURINN Trygve Bauge freistaði þess í gær að setja heimsmet í ísbaði en mistókst í fyrstu atrennu. Vatnið í karinu var við frostmark en Bauge er ekki jafn ókulvís og hann taldi. Gafst hann upp á bað- inu í bænum Ramstadsletta eftir 36 mínútur en metið er klukku- stund og 14 mínútur. Hann hyggst gera aðra mettilraun á næstunni. Ohugnanlegt morðmál í Tennessee Sex ungmenni krafín um 3,2 milljarða bætur SEX ungmenni á aldr- inum 15 til 21 árs eiga yfír höfði sér alít að 229 ára fangelsisdóm vegna morða á norsk- um manni, bandarískri eiginkonu hans og sex ára dóttur á síðasta ári. Þriggja ára sonur hjónanna lifði árás ungmennanna af. Rétt- arhöld hófust yfir ung- mennunum í Tenn- essee í Bandaríkjunum á mánudag og er gert ráð fyrir að þau standi í viku. Hefur verið krafist um 46 milljóna dala, um 3,2 milljarða ísl. króna, í skaðabæt- ur vegna morðanna. Lillelid-fjölskyldan var á leið frá fundi hjá Vottum Jehóva og ók út á hliðarakrein sem eru hvfldarstöðv- ar fyrir ökumenn. Þar bar að ung- mennin sex, sem rændu fjölskyld- una og skutu hjónin og böm þeirra. Að því búnu óku þau yfir lfldn. Að- koman að morðstaðnum var sögð skelfileg og ekki bætti úr skák að ungmennin höfðu á brott með sér persónulega muni fjölskyldunnar sem nokkurs konar „minjagripi". Þau voru handtekin í bfl fjölskyld- unnar á mexíkósku landamærun- um nokkrum dögum síðar. Krafist var dauða- dóms yfir fjórum af sex úr hópnum, þar sem þau voru yfir 18 ára aldri, en tvö ung- mennanna voru 18 og 15 ára. Ungmennin játuðu sig sek til að komast hjá dauða- dómi. Er krafist lífs- tíðardóms yfir þeim, auk þess sem þau hafa þegar verið dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að ræna fjölskylduna. Þau eiga allt að fjór- faldan dauðadóm yfir höfði sér og gætu því átt í vændum 229 ára fangavist. Skaðabótanna er krafist fyrir hönd sonar þeirra, vegna for- eldramissis og til að tryggja að þau hagnist ekki á því að selja sögu sína. Við réttarhöldin hefur þvi verið haldið fram að nítján ára stúlka, Natasha Cornett, hafi verið leið- togi hópsins sem framdi morðin. Félagar hennar segja hana hafa stundað svartagaldur og fullyrða að hún hafi viljað drepa. Hafi hún m.a. lagt á ráðin um að láta myrða móður sína. Reuters NATASHA Cornett f réttarsal er hún bar vitni. 0140+326RD1 fundin Washington. Reuters. VÍSINDAMENN hafa fundið unga vetrarbraut sem er fjær jörðinni en nokkurt fyrirbæri í al- heimnum sem áður hefur verið vitað um. Brautin hefur fengið sitt einkenni á máli stjörnufræð- innar og gengur undir nafninu 0140+326RD1 meðal vísinda- manna, sem stytta það þó stund- um í RDl. Vetrarbraut þessi er 90 milljón- um ljósára Qær jörðu en fjærstu hlutir sem þekktir hafa verið til þessa. Uppgötvunin þykir mai-k- verð og er talin geta auðveldað stjarnfræðingum að finna svör við þeim lykilspurningum stjamfræð- innar hvenær og hvernig vetrar- brautir myndast. RDl er lýst sem meðalstórri vetrarbraut og er hún Ijósminni en vetrarbraut sú er jörðin er hluti af. Ljósið frá henni hefur farið 12,22 milljarða ljósára vega- lengd er það berst til jarðar. Vegna fjarlægðar RDl og jafn- hraða ijóssins sjá stjörnufræðing- ar hana nú eins og hún var þegar aldur alheimsins var aðeins 6% af núverandi aldri, eða 820 mifljón- um ára eftir Miklahvell. V///7777>. CANON BJH250 litaprentari Tilboðsverð aðeins 11.900 kr. stgr. sími m/símanúmerabirti Tilboðsverð aðeins 6.900 kr. stgr. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is PHILCO FR350 kæliskápur • Hæð 170 cm • Breidd 60 cm • 340 lítra Tilboðsverð aðeins 39.900 kr. stgr. Áður 55.900 kr. stgr. HBH elektrónísk brauðrist Tilboðsverð aðeins I .990 kr.stgr. Áður 2.790 kr. stgr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.