Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ eru alkunn sannindi að þá er menn hætta reyking- um vilja þeir gjaman gildna um miðjuna og víðar um líkamann. Þegar ofan á þetta bætist kyrrseta yfir tölvum, lang- tímum saman, er ekki að sökum að spyrja. Þá er oftast stutt í vöðva- bólguna, millirifjagigtina og hvað þeir heita nú allir þessir menningar- sjúkdómar, en öllu þessu fylgir svo ótímabær mæði, slen, slappleiki og almennur lífsleiði, svo talað sé bara hreint út. Þessir kvillar samanlagðir ráku greinarhöfund af stað í leit að nýjum lífsstíl, með breyttum áhersl- um í mataræði og athöfnum. Hann sá í hendi sér að við svo búið mátti ekki standa og tímabært að veita meðfæddri hreyfiþörf sinni eðlilega útrás og fara í „ræktina" að hætti nútímamanna. Jónfna kenndi mér allt í líkamsræktarstöðinni Planet Pulse starfar Yesmine Olsen, brosmild og dökk á brún og brá, Hún er sænskur ríkisborgari en rekur ættir sínar til Sri Lanka. „Ég fæddist á Sri Lanka, en átta mán- aða gömul var ég ættleidd til Sví- þjóðar,“ segir hún. Aðspurð kvaðst Yesmine aldrei hafa komið til suð- urhafseyjunnar, þar sem hún er upprunnin, og hún veit engin deili á ættfólki sínu. „Ég veit ekki einu sinni hvort ég á bræður eða systur. Einhvern tíma fer ég þangað til að vitja uppruna míns og það er spenn- andi tilhugsun. En ég er ekki tilbúin til þess ennþá.“ Yesmine hefur menntun í einka- þjálfun og næringarráðgjöf frá 28 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 YESMINE stjórnaði „spinning" þjálfuninni af mikilli innlifun. Líkamsrækt er vaxandi þáttur í lífsstíl nú- tímamannsins, enda ekki vanþörf á í tölvu- væddum heimi vefsíðunnar. Hér á landi WlllllM bjóðast nú ýmsir möguleik- ar til að styrkja líkamlegt og andlegt heil- brigði og Sveinn Guðjdnsson kannaði einn þeirra undir handleiðslu einkaþjálfarans Yesmine Olsen í Planet Pulse líkamsrækt- arstöðinni. Morgunblaðið/Golli „Fitness Industry Aktiverum" í Sví- þjóð og hefur starfað við líkams- rækt undanfarin fimm ár. Það var Jónína Benediktsdóttir sem kom henni á sporið í líkamsræktinni, en áður hafði Yesmine vakið athygli sem dansari og danshöfundur. „Ég var að dansa í auglýsingu fyr- ir verslun þegar Jónína kom auga á mig, og henni fannst ég hafa eitthvað SKREF FYRIR SKREF TIL ARANGURS ► KYNNING Á AÐSTÖÐU ► EIGIN ÆFINGAÁÆTLUN ► ÖNDUN OG SAMHÆFING ► ÖRYGGI í ÞJÁLFUN ► EINFALDAR OG SKEMMTILEGAR ÆEFINGAR AÐ BYRJA ARANGUR LIKAMINN AÐLAGAST MERKJANLEGUR ÁRANGUR BÆTT ÚTLIT OG HEILSA ÆFINGAÁÆTLUN ÞRÓUÐ MARKMIÐ ENDURSKOÐUÐ VIÐHALD ÆFINGAAÆTLUN FINSTILLT LÍKAMLEGUM MARKMIÐUM NÁÐ NÝJUM ÆFINGUM BÆTT VIÐ BETRA ÚTLIT AUKIN ORKA OG SJÁLFSTRAUST Hvernig á að bregðast við þeim sem sjá aldrei eigin sök? GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: Hvemig á maður að bregðast við gagnvart nákominni manneskju, sem sér aldrei eigin sök? Allt er öðrum að kenna. Þetta hefur skapað mikia spennu f öllum samskiptum. Hvað er til ráða? Svar: Flest okkar þekkjum við dæmi um þetta, enda eru það margir sem reyna að koma af sér sök eða hafa þörf fyrir að varpa sök á aðra. Þetta er ákaflega al- gengt hjá bömum, en margir fullorðnir hafa einnig tilhneig- ingu til þess í mismiklum mæli. Sumir bregðast nær alltaf þannig við og getur það orðið hvimleitt fyrir aðra sem hlut eiga að máli. Auðvitað er hugsanlegt að til sé svo vammlaust fólk að það þurfi aldrei að kenna sér um neitt sem aflaga fer, en miklu líklegra er að viðkomandi hafi veikleika eins og annað fólk, sem hann hafi óvenju mikla þörf fyrir að dylja fyrir sjálfum sér og öðrum. Hann hef- ur þá komið sér upp fúllkomnari ímynd af sjálfum sér en hann getur staðið undir og jafnvel minni háttar ávirðingar særa sjálfsvirðingu hans. Þvf grípur hann til þess að horfast ekki í augu við eigin mistök og varpa þeim þess í stað yfir á aðra. Hér eru varnarhættir eins og bæling, réttlæting og frávarp að verki, sem hjálpa okkur til að komast af í daglegu lífi, en koma jafnframt í veg fyrir raunsætt mat á aðstæð- um og innsæi í eigið sálarlíf. Þetta getur oft valdið erfiðleikum í samskiptum við aðra. Flestir gera sín mistök í dag- legu lífi eða hafa rangt fyrir sér stundum og geta tekið því án þess að það valdi þeim teljandi óþægindum. Aðrir fá sektar- kennd, mikla fyrir sér minni hátt- ar ávirðingar og mistök sem þeir gera og verða jafnvel þunglyndir. Þeir sem sffellt afneita eigin ávirðingum eða koma þeim yfir á Varnarhættir aðra, mundu því líkast til verða kvfðnir og þunglyndir, ef þeir hefðu ekki þessar varnir til að verjast sektarkenndinni. Vamir af þessu tagi geta orðið þrálátt skapgerðareinkenni og öðrum finnst þessir einstaklingar ^ft sjálfúmglaðir og sjálfmiðaðir. í ævintýrinu um Mjallhvít stend- ur vonda drottningin gjaman fyr- ir framan spegilinn og spyr: „Spegill, spegill, herm þú mér, hver fegurst er á landi hér?“ Það fer illa fyrir drottningunni og boðskapur ævintýrisins er m.a. sá, að sjálfsdýrkun leiði ekki til velfamaðar. I grísku goðsögninni um konungssoninn Narcissus kveður við sama tón. Hann gat ekki elskað nokkra konu, en varð ástfanginn af spegilmynd sinni í vatnsfletinum, festist þar í aðdá- un á sjálfum sér og breyttist í vatnalilju (narcissus). Þetta skap- gerðareinkenni hefúr verið nefnt sjálflægni (narcissismus) og skýrt sem óvenju sterk tilhneig- ing til sjálfsdýrkunar í þeim til- gangi að breiða yfir djúpstæða vanmetakennd. Sjálflægni er þannig ein leiðin til að viðhalda sjálfsvirðingu sinni og getur m.a. komið fram í þvi að viðurkenna aldrei sök hjá sjálfum sér. Hvað er til ráða? Andmæli eða rökræður duga yfirleitt skammt við hina vammlausu og geta jafn- vel gert illt verra, þannig að vamir þeirra tvíeflist og sann- færing þeirra um eigið ágæti festist enn betur í sessi. Þveröfug aðferð gæti jafnvel verið væn- legri til árangurs. Með því að sýna þeim alla samúð og styðja við sjónarmið þeirra í einu og öllu svo jaðraði við fjarstæðu (ad abs- urdum), kynnu þeir af örlæti sínu að draga nokkuð í land og láta hina njóta sannmælis. Önnur að- ferð og uppbyggilegri væri að gefa gott fordæmi með því að vera ófeiminn við að segja frá eigin mistökum og að allir geri einhvem tíma mistök. Það verður þó að viðurkennast að það eru engin haldbær ráð til að breyta svo þrálátum skapgerðareinkenn- um á einfaldan hátt, og jafnvel sálfræðileg meðferð kemur oftast að takmörkuðu gagni, nema þeir sjálfir finni hjá sér þörf til að leita aðstoðar vegna annarra sál- rænna vandamála. Líklega er best að reyna að una við þessa hegðun og leiða hana hjá sér eftir bestu getu. • Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sálfræðinginn um það sem þeim liggur & hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða sfmbréfum merkt: Vikulok, Fax: 569 1222. Enn- fremur sfmbréf merkt: Gylfi Ás- mundsson, Fax: 560 1720.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.