Morgunblaðið - 14.03.1998, Qupperneq 29
TEYGT var og togað á flestum vöðvum líkamans Á FÆRIBANDINU geta menn horft á sjónvarp eða
undir handleiðslu Yesmine. hlustað á tónlist á meðan skokkað er.
AGNES Jóhannsdóttir sá um nuddið í pottinum og andlitsleirbaðið, en
leirinn er fluttur inn frá Ungverjalandi og er sagður vera um 15 til 20
þúsund ára gamall.
við mig sem myndi henta vel við
þjálfun í líkamsrækt og það sem hún
var að vinna að í „Studio Aktiverum"
í Svíþjóð. Og það má segja að Jónína
hafi kennt mér allt sem ég kann í lík-
amsrækt óg þjálfun,“ segir Yesmine.
Hún hefur oft komið hingað til lands
til að þjálfa og á íslenskan kærasta,
Steindór Gíslason, knattspymumann
í Fylki, sem einnig starfar við Planet
Pulse heilsulindina.
Dreymir um að verða söngkona
í heimi danslistarinnar er nafn
Yesmine vel þekkt og hún hefur
unnið til fjölda verðlauna og viður-
kenninga á því sviði og samið dansa
fyrir marga þekkta skemmtikrafta.
Má þar nefna að hún er höfundur og
jafnframt dansari í myndbandinu
„Sweet Thing“ með Joncetown, sem
oft birtist á MTV-sjónvarpsstöðinni
og hún samdi dansa fyrir Þýska-
landstúr „Back Street Boys“ svo
fátt eitt sé nefnt.
„Þegar þessari törn líkur í júlí
ætla ég að snúa mér aftur að dans-
inum og jafnframt að koma mér á
framfæri sem söngkona," segir hún
og brosir við tilhugsunina. „Mig
hefur nefnilega alltaf dreymt um að
slá í gegn sem söngkona. Reyndar
hef ég fengist dálítið við söng og
unnið meðal annars með Mána
Svavarssyni, til dæmis á plötu sem
gefin var út með lögum úr kvik-
myndinni „Blossa“. Lagið heitir „I
love the Nightlife" og þótt það sé
kannski ekki alveg í mínum stíl var
þetta skemmtileg reynsla. Vonandi
áttu eftir að heyra meira frá mér
sem söngkonu. Hver veit...?“
Vöðvarnir teygðir og togaðir
Greinarhöfundur hafði aldrei
stigið fæti sínum í líkamsræktar-
stöð áður en hann vogaði sér í Pla-
net Pulse. Einhverra hluta vegna
hafði hann ímyndað sér að á slíkum
stöðum væri mikill hávaði og læti,
ys og þys, þar sem sveittir búkar
troðast hver um annan þveran und-
ir dúndrandi teknó-tónlist. Sú var
ekM raunin á þessum stað heldur
þvert á móti. Þarna ríMi afar þægi-
legt andrúmsloft, að vísu sveitt fólk
í tækjum hér og þar, en menn virt-
ust tiltölulega afslappaðir og tónlist-
in á þægilegu nótunum. Þeir sem
vildu æfa við villtari hljóðfæraslátt
gátu sett á sig þar til gerð heyrnar-
tæM og horft á sjónvarp á meðan
þeir skokkuðu á færibandinu, sem
þjónar hlutverki hlaupabrautar.
Fyrst var farið á hlaupabrautina
og síðan í tæMn og lagst á hinar
ýmsu gerðir af bekkjum, þar sem
teygt var og togað á flestum vöðv-
um líkamans undir handleiðslu
Yesmine. Hún sagði að æfinga-
prógramið væri miðað við átta vikur
og leiðin til árangurs tekin skref
fyrir sM'ef. „Ég byrja á því að
kanna líkamlegt ástand viðkomandi
og mataræði, og miða þjálfunina út
frá því. Þess vegna geta leiðirnar að
settu merM verið eins mismunandi
og mennirnir eru margir."
Púl og svo fullkomin afslöppun
Fyrirbrigðið sem kallað er
„spinning“, og nýtur mikilla vin-
sælda um þessar mundir, felst í því
að menn setjast á bak kyrrstæðum
hjólhesti og hjóla eins og þeir eigi
lífíð að leysa í um það bil þrjá
stundarfjórðunga. Um leið er þetta
eins konar yoga þar sem lögð er
áhersla á hugleiðslu og viðeigandi
tónlist leikin undir. Þetta er heil-
mikið púl og tekur auðvitað á fyrir
óvana enda fékk greinarhöfundur
verk í kálfana og hætti eftir hálf-
tíma. Það borgar sig ekM að fara of
geyst í byrjun. En þjálfararnir hafa
ráð undir rifi hverju í svona tilvik-
um og einn þeirra kenndi nýliðan-
um að þrýsta tánum upp við vegg til
að losna við verMnn.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
fullkomin afslöppun í nuddpottunum
þar sem nuddkonan Agnes Jóhanns-
dóttir fór mjúkum höndum um axlir
og háls blaðamannsins, og veitti ekki
af enda þjáður af langvarandi vöðva-
bólgu á þessum líkamspai'ti. I pott-
unum eru steinefnarík sölt, sem unn-
in eru úr heilsulind einni í Ungverja-
landi. Upp á þennan lúxus er boðið í
hvert sinn og einu sinni í viku fá
menn fría andlitshreinsun með þar
til gerðu leirbaði. Leirinn er einnig
frá Ungverjalandi, teMnn úr botni
ævafomrar heilsulindar og er sagður
vera 15 til 20 þúsund ára gamall. Á
eftir getur maður svo skellt sér í
gufubað, og er um tvo klefa að ræða,
annan með „piparmyntulyM“ og
hinn með „furunálalykt", sem stafar
af því að í gufunni era ilmolfur, ann-
ars vegar „Eucalypthus“, sem talið
er afar hollt fyrir öndunarveginn, og
hins vegar „pine“, sem er alhliða ilm-
olía og „góð fyrir líkama og sál“, eins
og nuddkonan orðaði það.
Undirritaður var að vonum upp-
rifinn yfir þessari meðhöndlun og
hugsaði með sér að hinn nýi lífsstíll
nútímamannsins væri kannski ekki
svo galinn þegar allt kemur til alls.
Hann ákvað því að fara í skipulagða
þjálfun og meta svo árangurinn að
þremur mánuðum liðnum. Var okk-
ar maður nú mældur í bak og fyrir,
bæði þrek- og fitumældur auk þess
sem málbandi var slegið á kálfa,
læri, rass, mitti, brjóst og upphand-
legg-
Vitaskuld geta menn notað mis-
munandi aðferðir til að koma sér í
form og þær þurfa ekki allar að
hafa svo miMnn kostnað í för með
sér. Menn geta farið út að skokka
eða hjólað í vinnuna. Þeir geta farið
í sund eða stundað Mullersæfingar
heima í stofu. Það er líka hægt að
fara að dæmi Stuðmanna og „taka
til við að tvista“ til að losna við
aukakílóin. Svo er hinn kosturinn
líka fyrir hendi: Að skella sér í
„ræktina“. Aðalatriðið er bara að
hrista af sér slenið, drífa sig af stað
og hvika hvergi frá settu marki...
MU LLERSÆFINGAR
Æfingar þær sem kenndar eru við þýska heiisuræktarfrömuð-
inn J.P. Miiller reyndust mörgum drjúg heiisubót hér á árum
áður. Þessar myndir eru úr bók, sem út kom á fyrri hluta þess-
arar aldar, en í formála hennar segir m.a.:
„Yfirburðir þessarar aðferðar yfir aðra heimafimleiki eru að-
allega í því fólgnir, að hún snýr einkar heilsusamlegan samþætt-
ing úr öilu þrennu: fimieikum, loftbaði og vatnsbaði, er við allra
hæfí með litlum afbrigðum og þó öðrum aðferðum ódýrari, um-
svifaminni og auðlærðari.“
0 HÖFUNDURINN, J.P.
Muller, sat sjálfur fyi-ir á
mörgum myndanna í bók-
inni, enda bráðmyndar-
legur maður eins og sjá
má.
0 MULLER í kunnug-
legri stellingu, en þetta
var ein af eftilætisæfing-
um meistara Þórbergs
Þórðarsonar.
0 ALGENGT var að
menn stunduðu Miill-
ersæfingarnar kviknaktir
og gilti þá einu hvort æft
var innandyra eða
utan, vetur eða sumar.
Handavinnuklúbburinn Nýtt á prjónunum og
garnverslunin Storkurinn efna til prjónasam-
keppni. Leitað er eftir nýrri hönnun og
uppskriftirnar mega ekki hafa birst áður á
prenti. Ekki er nauðsynlegt að uppskriftin fylgi
með en tekið verður á móti innsendum flíkum til
15. maí hjá Vöku-Helgafelli í
Síðumúla 6. Þeim ber að skila
undir dulnefni ásamt lokuðu
umslagi með upplýsingum um
höfund. Eina skilyrðið er að
flíkin sé prjónuð úr Rowangarni.
(jlœóilecj verðlaim
loði
ev'a i
1. 50.000 kr., ásamt Rowangarni að verðmæti
15.000 kr. og ársáskrift að Nýju á prjónunum.
2. -3. Rowangarn að verðmæti 15.000 kr.
og ársáskrift að Nýju á prjónunum.
4.-10. Rowangarn að verðmæti 10.000 kr. og
Stóra draumaráðningabókin i nýrri og aukinni útgáfu.
STORKURINN
göötnöeRsGun