Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 33
Þrautir
Hugos
LEIKiR
Leikurinn Ævintýri Hugos er úr
smiðju danska fyrirtækisins Interact-
ive Television Entertainment, ITE.
Islenskur umboðsaðili er Cazual ehf.
Leikurinn krefst að minnsta kosti 66
MHz 486Dx2, 8 Mb innra ntinnis og
VGA-skjákorts. Hann styður hljóð-
kort en hægt er að vera án þess.
hefur hann verið seldur til tuttugu
landa og vel tekið hvarvetna; Hugo
er vinsælasti sjónvarpsþáttur sög-
unnar í Svíþjóð, vann til verðlauna
í Þýskalandi og naut slíkrar hylli í
Brasilíu að hátt í tvær milljónir
hringdu í sérstakan Hugo-síma
þegar best lét, svo dæmi séu tekin.
Vinsældirnar urðu höfundum
Hugos hvatning til að setja saman
tölvuleik og sá hefur ekki notið
minni vinsælda en þátturinn og
víða náð metsölu ef marka má áð-
urnefnda heimasíðu framleiðand-
ans. Þar kemur og fram að fjöldi
Hugo-leikja er í smíðum, til að
mynda PlayStation-gerðir, en þeg-
ar eru til kennsludiskar, jóladiskur
og leikirnir sem snarað hefur verið
á íslensku, aukinheldur sem Hugo-
er til fyrir GameBoy.
SKÓGARPÚKINN Hugo, sem
þýðandi umrædds leiks kallar
reyndar tröll, kom fyrst fram í
sjónvarpi í Danmörku fyrir tíu ár-
um og vakti þegar hrifningu
yngstu kynslóðarinnar. Þátturinn
gekk það vel í Danmörku að sjón-
varpsstöðvar víða um heim leituðu
eftir sýningarrétti og samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu útgef-
Afbragðs
golfleikur
LEIKIR
Actua Golf 2, leikur fyrir PlayStation
frá Gremlin Interactive.
GREMLIN Interactive hefur
verið einn af stærstu framleiðend-
um íþróttaleikja og meðal góðra
leikja eru Actua Golf, Aetua Soccer
og Actua Icehockey. Skammt er síð-
an framhald af Actua Golf kom út
og nefnist einfaldlega Actua Golf 2.
Actua Golf 2 er afbragðs golfleik-
ur, brautimar eru gerðar nákvæm-
lega eftir fyrirmyndinni og má þar á
meðal nefna Oxfordshire-brautina,
sjóbrautina á Kiawah-eyjum og
fleiri góðar brautir. Hægt er að
velja um átta leikmöguleika, æf-
ingu, eina braut, keppni milli
tveggja, leik milli fjögurra, áhuga-
manna, keppnisferð og loks at-
vinnumannakeppni.
Tveir frægir golffréttamenn lýsa
áliti sínu á skotum þess sem leikur,
Peter Alliss og Alex Hay. Frekar
leiðigjarnt er að heyra stanslaust
tal um hversu lélegt skotið var,
veðrið í brautinni og allt um braut-
ina og sleppir greinarhöfundur
vanalega hljóðinu í þessum annars
ágæta leik. Allar hljóðupptökur eru
þó mjög vel gerðar og kemur ekki
oft fyrir að lýsendurnir endurtaki
sig.
Meiri metnað hefði mátt leggja í
grafík leiksins og sleppa þá jafnvel
alveg Peter og Alex en sumum
finnst kannski gott að láta gagn-
rýna sig stanslaust allan tímann er
á golfinu stendur og hafa gaman af
sífelldu þvaðri um hitt og þetta.
Mjög margar útsýnisstegundir
standa leikmanni til boða og spillir
þar ekki fyrir hversu vel allt um-
hverfi er teiknað.
Leikur þessi ætti að höfða til
allra golfáhugamanna og gæti jafn-
vel dregið fleiri að sportinu.
Ingvi M. Árnason
Þrautir og
þrengingar
Sagan er ekki ýkja flókin, gengur
út á það að ill norn hefur handsam-
að maka Hugos, Hugolinu, og af-
kvæmi til að halda fegurð. Það
kemur í hlut Hugos að frelsa fjöl-
skylduna og til þess þarf hann að
leysa nokkrar þrautir í tjórum
leikjum sem eru leiðimar að prís-
undinni, köfunarleikur, hjólabretta-
leikur, íshelhshopp og lurkahopp.
Enginn leikjanna er teljandi erfið-
ur, en þó þarf að gæta að sér og
vera vel á verði, til að mynda þarf
að forðast illvíga krabba og viðsjár-
vert þang og safna fjársjóðum.
Leikirnir eða þrautirnar eru
hannaðir fyrir yngstu kynslóðina
og nýtast henni bráðvel; bráð-
spennandi á köflum og prýðileg
dægrastytting. Þýðingin á leiknum
er og vel heppnuð og talandi Hu-
gos óþvingaður og eðlilegur.
Helsti ljóður á leiknum er frum-
stæð innsetning hans og grafíkin
harla gamaldags, að minnsta kosti
fyrir þá sem vanir era hátækni-
væddum teiknimyndatöfrum. Sá
sem setur leikinn inn verður helst
að kunna einhver skil á hljóðkort-
um og kenjum þeirra, enda er leik-
urinn DOS-leikur sem keyrir i
Win32-ham með bein kerfisköll.
Ekki ætti þó nokkur að láta
þetta aftra sér frá því að festa kaup
á Hugo fyrir yngstu kynslóðina,
því auðvelt er að sigrast á hugsan-
legum göllum á uppsetningu og
þegar komið er inn í leikinn skýrir
hann sig sjálfur.
Árni Matthíasson
ítoAukþessurval
afejtirréttum.
Lj* leikurfyrirdanst
rn _ tií kL_3
Pantið með
góðum fyrirvara á
r skemmtiatriðin og
missið ekki af vin-
sælasta kór landsins,
frábærum skemmti-
HÓTEL ÍSLANDI
Miða- og borðapantanir í síma 533 1100.
Verð 4.900, matur og sýning. 2.200, sýning. 1.000, dansleikur.
kröftum og hljómsveit.
r r f r f ) f- > h v
Laugardaginn 14. mars
DAGSKRÁ:
Karlakórínn Heimir meö stórskemmtilega
og fjölbreytta söngdagskrá.
Söngstjóri: Stefán R. Gíslason.
Einsöngvarar: Einar Halldórsson, Óskar Pétursson,
Pétur Pétursson og Sigfús Pétursson.
Undirleikarar: Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason
PSé^Sngrímur J. Sigfússon, alþingismaður
og Jóhannes Kristjánsson
Álftagerðisbræður taka lagib.
Kynnir: Geirmundur Valtýsson.
Hefur t)ú prófað að tippa á netinu?