Morgunblaðið - 14.03.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
I MORGUNBLAÐ-
INU laugardaginn 28.
febrúar sl. geystist
fram á ritvöllinn fram-
bjóðandi sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ,
Pétur U. Fenger fram-
kvæmdastjóri. Skrifaði
hann um samning
Hitaveitu Reykjavíkur
(HR) og Hitaveitu
Mosfellsbæjar (HM)
um heitavatnsmál.
Þar kvartar fram-
kvæmdastjórinn yfir að
hafa ekki fengið nægi-
legar upplýsingar um
málið sem er undarlegt
þar sem ítarlegar
gi’einargerðar hafa verið lagðar
fram í bæjarstjórn. Til viðbótar
hefur einnig verið haldinn fjöl-
mennur fundur með öðrum rétt-
höfum um málið og var ekki annað
að heyra á fundinum að mönnum
þætti þetta góður samningur.
Núverandi meirihluti
Framsóknar og Al-
þýðubandalags vinnur
að því, að sögn Þrastar
Karlssonar, að einfalda
veitumál í Mosfellsbæ.
Slæmt er ef Pétur hefur ekki feng-
ið upplýsingar frá sínum flokks-
mönnum, ekki er við neinn annan
að sakast. Skýringar er þó senni-
lega að nýju frambjóðendurnir hafi
lítil tengsl við núverandi bæjarfull-
trúa. Á síðasta fundi bæjarstjórnar
var samningurinn samþykktur án
mótatkvæða fulltrúa sjálfstæðis-
manna og eru þeir auðsjáanlega á
öðru máli um samninginn en hinn
nýi frambjóðandi flokksins.
Með framangreindum samningi
er leyst úr áralöngum ágreiningi
HR og HM um uppgjörsaðferðir
við mat á vatnsréttindum, en tekið
skal fram að ekki er um eiginleg
vanskil að ræða hjá HR eins og
lesa má úr grein Péturs.
I stuttu máli sagt er núverandi
meirihluti Framsóknar og Alþýðu-
bandalags að einfalda veitumál í
Mosfellsbæ með samningnum.
Helstu atriði hans eru:
1. Samið er um 20% lækkun á inn-
kaupsverði á heitu vatni, sem bætir
stöðu HM um 7 milljónir á ári mið-
að við núverandi byggð en eykst að
sjálfsögðu í hlutfalli við fjölgun í
byggðarlaginu.
2. Yfirtaka á dreifikerfi sem HR á í
bænum, sem tryggir þannig af-
hendingu til allra notenda í bæjar-
félaginu.
3. HR afhendir bænum á árinu til
eignar nýja stofnæð (Mosfellsbæj-
aræð) sem liggur frá Reykjalundi
að Skarhólamýri. Áætl-
aður kostnaður við
gerð hennar er um 100
milljónir. Samhliða
þessu fjarlægir HR
gamla hitaveitustokk-
inn sinn sem liggur á
sömu slóðum.
4. Sala á heitavatns-
réttindum sem við eig-
um. Greiddar eru kr.
145 þúsund á mínútu-
líterinn, sem er 70%
hærra en HR hefur
verið að kaupa síðustu
2 ár.
Þröstur 5. Sjálfdæmi í gjald-
Karlsson skrármálum. Bæjar-
stjórn Mosfellsbæjar
mun þar að lútandi hafa alfarið
ákvörðunarrétt um verðlagningu.
Til að leiðrétta allan misskilning
á HM áfram fullan rétt á að bora
og nýta sér það vatn sem finnast
mun í framtíðinni á því landi sem
ekki hafa verið seld réttindin af.
Hagkvæmi athugun var gerð á því
hvort hagkvæmt væri fyrir Mos-
fellsbæ að standa fyrir virkjun og
dreifingu. Niðurstöður leiddu í ljós
að slíkt væri ekki góður kostur.
I grein Péturs má skilja að Mos-
fellsbær sé að sökkva í skuldum.
Samkvæmt Árbók Sambands sveit-
arfélaga 1997 eru skuldir pr. íbúa á
höfuðborgarsvæðinu næstlægstar í
Mosfellsbæ, sem segir allt sem
segja þarf. Til viðbótar skal tekið
fram að í úttekt Talnakönnunar yf-
ir öll sveitarfélög í landinu var
Mosfellsbær valið þriðja best
rekna sveitarfélagið í landinu.
Þetta eru ekki slæmar einkunnir
íyrir fjárhagslega stöðu bæjarfé-
lagsins.
Með vísun í ofangreindar stað-
reyndir er ljóst að ofangreindur
samningur tryggir sjálfstæði HM
og eykur arðsemi hennar í framtíð-
inni öllum íbúum Mosfellsbæjar til
hagsbóta. Þökk sé núverandi
meirihluta framsóknar- og alþýðu-
bandalagsmanna.
Höfundur er formaður bæjarráðs
Mosfellsbæjar og oddviti framsókn-
armanna í bæjarstjóm.
Gerðu
ævintýralegá
góð lcaup
NÝIar
vo
sréw
◄---
KRINGWN
Frðbæit Pðshatilboo
Homsðn mefl IgOuí á slifflötum getur þú látið draimiin^
111
Tahmoítiafl magn
litip víntauOut. Ijúsbrunn. grænn. svartur. döHHbrUnn
TM - HUSGOGN
SÍÖUMÚLfl 30 • SÍMI 568 6822
Qpið: Mán-fös. 9-18 • lau.10-16 • Sun. 10-16
Furuhúsgögn Dýnur
Stólar Rúm
Skrifstofuhúsgögn Sófasett
3000 m2
Sýningarsalur
AÐSENDAR GREINAR
Sjálfstæðisflokk-
urinn í Mosfells-
UNDIR-
FATALÍNA
Kringlunni
S. 553 7355
bæ og „gulleggið“