Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 53 r
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
+ Guðný Þórarins-
dóttir var fædd á
Fljótsbakka, Eiða-
þinghá í Suður-Múla-
sýslu, 25. október
1927. Hún lést í
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 2. mars síðast-
liðinn. Guðný var eitt
sex barna hjónanna
Mattheu Einarsdótt-
ur Long frá Seyðis-
firði og Þórarins
Guðmundssonar frá
Borgarfirði eystra,
en þau voru ábúend-
ur á Fljótsbakka.
Guðný giftist ekki en átti eina
Fyrir hádegi 2. mars sl. rauf sím-
inn þögnina hjá mér. í símanum var
Guðrún skólasystir mín að tilkynna
mér að skólasystir okkar frá Löngu-
mýri, Guðný Þórarinsdóttir, hefði
látist þá snemma um morguninn eft-
ir stutta legu á sjúkrahúsi. Við
þökkuðum Guði fyrir að gefa henni
langþráða hvíld. Hana þráði hún
heitt, enda búin að stríða í fjölda ára
við mikið heilsuleysi og fotlun vegna
sjúkdóms síns. En þrátt fyrir heilsu-
leysi sitt var hún samt ótrúlega dug-
mikil að bjarga sér og til hinstu
stundar á heimili sínu hugsaði hún
að mestu leyti um sig sjálf. í 30 ár
vann hún á saumastofu Gefjunnar
eða þar til fótlun hennar gerði henni
illkleift að vinna. Þrátt fyrir að
hendur hennar væru illa famar af
liðagigt prjónaði hún, heklaði og
saumaði út til hinsta dags.
Hugur minn reikar rúm 50 ár aft-
ur í tímann til haustins 1946 er 25
glaðar og hressar stúlkur hittust á
Löngumýri í Skagafirði til að hefja
nám í heimilisfræðum hjá fröken
Ingibjörgu skólastýru. Komum við
hver frá sínu landshorninu. Við urð-
um fljótar að samlagast og áttum
i þarna yndislegar samverustundir
< þar sem hver dagur var hafinn með
1 sálmasöng undir stjórn Astu
* Thorarensen matreiðslukennara
' okkar, gekk svo hver okkar til sinna
• verka.
Tíminn leið ótrúlega hratt og vor-
+ Guðrún Þórðardóttir fæddist
á ísafirði 18. ágúst 1915. Hún
lést á heimili sínu 11. janúar síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Húsavíkurkirkju 17. jan-
úar.
Svo snöggt, svo óvænt, en þó ekki
alveg fyrirvaralaust kvaddi hún
Guðrún, og fjölskyldan stendur eftir
höggdofa, því þrátt fyrir háan aldur
og kannske ekki alltaf fulla heilsu,
var hún ern og hress, þar til réttum
sólarhring áður en hún lést.
Guðrún Þórðardóttir var dóttir
hjónanna Þórðar Þórðarsonar vél-
smiðs og Kristínar Sæmundsdóttur,
næst yngst fjögurra dætra. Þegar
dæturnar voru í frumbernsku lést
móðir þeira, og var þeim þá komið
fyrir hjá vandalausum en fáum ár-
um síðar kvæntist faðir þeirra Sig-
þrúði Jessen ekkju með tvö böm og
tók hann þær þá til sín aftur. Þórð-
ur og Sigþrúður eignuðust þrjá syni
sem allir fetuðu í fótspor föður síns
og eru kunnir vélstjórar í Reykja-
vík.
Ekki ílentist Guðrún á Isafirði
heldur hélt að heiman í atvinnuleit
og mun hafa verið víða, m.a. í
Breiðafjarðareyjum, í Reykjavík, á
Akureyri og víðar, en árið 1942
kemur hún að Hrolllaugsstöðum á
Langanesi til Vilhjálms Magnús-
sonar sem bjó þar ásamt móður
sinni Hólmfríði Sveinbjörnsdóttur,
og síðan hafa leiðir þeirra Vil-
hjálms og Guðrúnar ekki skilið fyrr
en nú.
Þau eignuðust átta börn og áttu
dóttur, Hafdísi Vil-
hjálmsdóttur. Maður
hennar er Grímur
Kjartansson, verk-
fræðingur, og eiga
þau tvö börn, Einar
og Guðnýju Helgu.
Um tvítugt fluttist
Guðný tíl Reykjavík-
ur og bjó þar æ síð-
an, siðast í Hraunbæ
128. Hún starfaði í
um það bil 30 ár hjá
Saumastofu Gefjunn-
ar.
Útför Guðnýjar
fór fram frá Árbæj-
arkirkju 10. mars.
ið kom áður en við vissum af með
handavinnusýningu, afrakstri vetr-
arins, og skólaslitum og síðan skildi
leiðir og hver fór til síns heima.
Sambandið rofnaði ekki. Bréfa-
skriftir, símtöl og hin seinni ár hitt-
umst við ótrúlega oft. Var þá glens
og gaman. Þá kom vel í ljós hvað
Guðný var fróð enda víðlesin og
hafði gaman af að grúska í mörgu
og þá ekki síst ættfræði.
A fögrum sólskinsdegi í júni sl.
hittumst við skólasysturnar frá
Löngumýri heima hjá Beggu, einni
úr hópnum. Áttum við þar yndisleg-
ar stundir hjá þeim hjónum bæði í
mat og drykk og skemmtilegu
spjalli frá samverustundunum á
Löngumýri. En ein okkar kom alla
leið frá Ameríku þar sem hún hafði
búið í 46 ár og flestar okkar höfðu
ekki séð síðan við vorum saman í
skóla.
Úr þessum 25 stúlkna hópi er
hittust fyrst fyrir rúmum 50 árum á
Löngumýri eru nú sex horfnar héð-
an úr heimi ásamt þremur kennur-
um okkar. Að lokum sendi ég sam-
úðarkveðjur til Hafdísar, dóttur
Guðnýjar, og fjölskyldu hennar. Þið
áttuð góða móður og ömmu. Nú er
hún komin til betri heima. Guð
blessi minningu Guðnýjar Þórarins-
dóttur. Fari hún í friði, hafi hún
þökk íyrir allt og allt.
Arndís Salvarsdóttir, Norð-
urhjáleigu, Meðallandi.
sitt barnið hvort er þau hófu bú-
skap. Bömin eru því tíu, bamabörn-
in 28 og töluvert mun vera komið af
þriðja ættlið.
Trúlega hefur búskapur þeirra
verið erfiður, jörðin rýr og afskekkt
og án nútímalegra samgangna og
því allir aðdrættir erfiðir og því
þurfti að treysta á sjóinn, bæði fisk
og fugl.
Árið 1946 bragðu þau búi og
fluttu til Húsavíkur vegna heilsu-
brests Vilhjálms, sem fékkst þó að
mestu bót á, en lífsbaráttan hélt
áfram því fjölskyldan var stór og
aðeins elstu börnin voru farin að sjá
fyrir sér sjálf. En svo smáléttist
róðurinn og þegar leið að vinnulok-
um höfðu þau eignast góða íbúð.
Þegar um hægðist komu í ljós
hæfileikar og listfengi, sem ekki var
tími til að sinna áður. Guðrún var
listamaður í höndunum og munu
dúkar sem hún málaði á og era
sumir hverjir hreinustu listaverk,
vera í eigu allmargra afkomenda
hennar.
Og svo leið að ævikvöldi. Þau
undu vel íbúð sinni, og ástvinir og
afkomendur slógu um þau skjald-
borg og léttu undir með þeim eftir
þörfum. Á engan mun hallað þó
nefnt sé nafn dóttursonar þeirra
Vilhjálms Sigmundssonar, en ekki
mun hafa liðið sá dagur að hann liti
ekki til þeirra eða hefði samband.
Og nú er Vilhjálmur einn í vaxandi
þögn og þverrandi birtu, en skjald-
borgin stendur og mun standa svo
lengi sem þörf er á.
Blessuð sé minning mætrar konu.
Skúli Geirsson.
Safnaðarstarf
„Góðuru
sunnudagur
í Neskirkju
BARNASTARF. Sunnudagaskóli
fyrir börnin verður kl. 11. Sigur-
þór A. Heimisson leikari kemur í
heimsókn og feðgarnir Jónas Þór-
ir og Aron Dahín, 9 ára, flytja tón-
listaratriði á píanó og fíðlu. Á
sama tíma er starf fyrir 8-9 ára
börn. Opið er frá kl. 10 í safnaðar-
heimilinu þar sem börnin geta lit-
að og teiknað og fullorðnir fengið
sér kaffi.
Kl. 14 verður guðsþjónusta sem
fjallar sérstaklega um málefni inn-
flytjenda og nýbúa en í Nessókn
býr mikið af fólki af erlendu bergi
brotið. Sr. Toshiki Toma, prestur
innflytjenda, prédikar. Prestur er
sr. Halldór Reynisson. Allir inn-
flytjendur eru boðnir sérstaklega
velkomnir. Að lokinni guðsþjón-
ustu er boðið upp á kaffiveitingar í
safnaðarheimilinu og munu sr.
Toshiki Toma og Kristín Njáls-
dóttir, forstöðukona upplýsinga-
og menningarmiðstöðvar nýbúa,
ræða um stöðu þeirra á íslandi.
Kvöldmessa með léttri sveiflu. Á
sunnudagskvöldið verður síðan
flutt kvöldmessa með léttri sveiflu
og era flytjendur tónlistar nokkrir
af helstu tónlistarmönnum þjóðar-
innar. Söng annast Egill Olafsson
og hljóðfæraleik Björn Thorodd-
sen á gítar, Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa, Ásgeir Óskarsson á
trommur og Jónas Þórir á slag-
hörpu. Flutt verða m.a. lög úr
Porgy og Bess og lag eftir Egil
Ólafsson við biblíutexta auk sálma-
flutnings með léttu djassívafi. Guð-
fræðinemar aðstoða í guðsþjónust-
unni og mun Stefán Gunnlaugsson
guðfræðinemi prédika. Dagski-á
kvöldsins hefst kl. 20 með tónlist-
arflutningi og kvöldmessan kl.
20.30. Prestur er sr. Halldór Reyn-
isson. Eftir messu verða kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu.
Æðruleysis-
messa í Dóm-
kirkjunni
SVOKÖLLUÐ æðraleysismessa
verður haldin í Dómkirkjunni
sunnudaginn 15. mars kl. 21. Hún
er tileinkuð fólki á öllum aldri í
leit að bata eftir tólfsporaleiðinni.
Á guðsþjónustunni er frjálslegt
form, létt tónlist og söngur í um-
sjá Sigurðar Ingimarssonar og
Harðar Bragasonar. Léttur söng-
ur og fyrirbæn. Sr. Anna S. Páls-
dóttir flytur hugleiðingu, sr. Karl
V. Matthíasson leiðir bænargjörð
og sr. Jakob Hjálmarsson dóm-
kirkjuprestur leiðir guðsþjónust-
una.
Fundur um
æskulýðsstarf
safnaða í Lang-
holtskirkju
SUNNUDAGINN 15. mars kl.
20.30 heldur Safnaðarfélag Lang-
holtskirkju almennan fund um
æskulýðsstarf kirkna. Fyrirlesari
á fundinum verður Hreiðar Öm
Stefánsson en hann hefur langa
reynslu að baki við æskulýðsstarf
og almennt safnaðarstarf kirkna
og starfar nú við Bústaðakirkju. Á
fundinum verður m.a. rætt um
hvernig æskulýðsstarf kirkna get-
ur tengst öðra æskulýðsstarfi í
söfnuði og hvernig félag eins og
safnaðarfélag getur stutt æsku-
lýðsstarfsemina. Fundurinn er öll-
um opinn. Fundarmönnum gefst
einnig tækifæri á að kynna sér
starfsemi hins nýstofnaða Safnað-
arfélags Langholtskirkju.
Kirkjudagur
Safnaðarfélags
Asprestakalls
ÁRLEGUR kirkjudagur Safnað-
arfélags Ásprestakalls er á morg-
un, sunnudaginn 15. mars. Um
morguninn verður barnaguðsþjón-
usta í Áskirkju kl. 11 og síðan
guðsþjónusta kl. 14. Ingibjörg
Marteinsdóttir syngur einsöng,
sóknarprestur prédikar og
Kirkjukór Áskirkju syngur undir
stjórn Kristjáns Sigtryggssonar
organista.
Eftir guðsþjónustuna og fram
eftir degi verður kaffisala í Safnað-
arheimili Áskirkju. Allur ágóði af
kaffisölu kirkjudagsins rennur til
framkvæmda við kirkjuhúsið og til
öflunar kirkjumuna, en kirkjudag-
urinn hefur lengi verið einn helsti
fjáröflunardagur Safnaðarfélags-
ins.
Eins og jafnan á kirkjudaginn
verða glæsilegar veitingar á
boðstólum og vona ég að sem flest
sóknarbörn og velunnarar Ás-
kirkju leggi leið sína til hennar á
sunnudaginn og styðji starf
Safnaðarfélagsins.
Bifreið mun flytja íbúa dvalar-
heimila og annarra stærstu bygg-
inga sóknarinnar að og frá kirkju.
Fræðslumorg-
unn í Hallgríms-
kirkju
SUNNUDAGINN 15. mars verð-
ur fræðslumorgunn í Hallgríms-
kirkju kl. 10. Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson fjallar um efnið: Upp-
risan - tálsýn eða veraleiki. I er-
indinu mun hann fjalla m.a. um
hvernig Marteinn Lúter lítur á
upprisu Jesú Krists og hvemig nú-
tíminn bregst við upprisuboð-
skapnum. Eftir erindið gefst kost-
ur á fyrirspurnum. Fræðslu-
morgnunum er afmarkaður tími
vegna þess að kl. 11 hefst messa
dagsins og barnastarf.
Áskirkja. Kirkjudagur Áskirkju
verður sunnudaginn 15. mars kl.
14 og hefst með messu þar sem
Ingibjörg Marteinsdóttir syngur
einsöng. Eftir messu verður safn-
aðarfélagið með kaffísölu til
styrktar kirkjunni.
Breiðholtskirkja. I tilefni af 10 ára
vígsluafmæli kirkjunnar verða af-
mælistónleikar til styrktar orgel-
sjóði í dag kl. 15.
KEFAS, Dalvegi 24. Almenn sam-
koma í dag kl. 14. Allir velkomnir.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
v/>
07! §
Nnllvpig.irstíg 1 • simi 561 4330
Dagsferðir sunnud. 15. mars
Kl. 10.30 frá BSÍ. Skíðaganga,
Kolviðarhóll — Skarðsmýrarfjall.
Kl. 10.30 frá BSÍ. Ganga um
Hveradalsvæðið.
Páskaferðir
9.—13. apríl. Skaftárdalur —
Lakagígar.
Gengið á skíðum frá Skaftárdal
um Leiðólfsfell í Hrossatungur.
Gengið um Lakagíga og á Laka.
Farangur fluttur milli náttstaða
með vélsleðum.
9. —13. apríl. Sigalda
— Fjallabak — Skaftárdalur.
Skíðaganga i Landmannalaugar
úr Sigöldu. Þaðan er gengið í
Jökuldali og síðan um Græna-
fjallgarð í Skælinga. Þar er gist í
gangnamannaskála.
9.—13. apríl. Sigalda — Land-
mannalaugar — Básar.
Skíðaganga í Landmannalaugar
úr Sigöldu. Þaðan er gengið í
Hvanngil. Þriðja daginn er
gengið um Emstrur og gist í
Botnum. Komið í Bása á páska-
dag.
11.—13. apríl. Básar um
páska
Þriggja daga skemmtiferð fyrir
alia. Fjölbreyttar gönguferðir t.d.
á skíðum og kvöldvökur.
11.—13. apríl. Fimmvörðu-
háls um páska.
Gengið frá Skógum upp I Fimm-
vörðuskála. Gengið niður í Bása
daginn eftir.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 15. mars:
Kl. 10.30 Skíðaganga á Þing-
vallasvæðinu. Farið þangað
sem snjóalög eru hagstæðust.
Fararstjóri: Bolli Kjartansson.
Verð 1.300 kr.
Kl. 13.00 Valfell (nýtt).
Gönguferð I 2—3 klst. á skemmti-
legu svæði norðaustan við
höfuðborgina, m.a. skoðaður
foss í vetrarbúningi. Verð 1.000
kr„ frtt f. börn m. fullorðnum.
Fararstjóri: Sigurður Kristjáns-
son. Brottförfrá BSÍ, austanmeg-
in og Mörkinni 6.
Selatangaferð er frestað.
Mætið á myndakvöld miðvik-
udaginn 18. mars í Mörkinni
6 kl. 20.30.
Sýnt frá Færeyjaferð sl. sum-
ar og ferðir til Færeyja 10.—
18. júní og Skotlands 7,—17.
ágúst verða kynntar.
Kl______
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ljós og friðarþjónusta
Hugleiðsluhópurinn Sjöstirnið
verður með þjónustu fyrir ijósi
og friði á jörð á Sogavegi 108, 2.
hæð (sama hús og Garðsapó-
tek), sunnudaginn 15. mars kl.
11. Jytta Eiríksson leiðir. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
JS""* Frá Sálar-
^ rannsóknar-
félagi
íslands
Opið hús fyrir félagsmenn
sunnudaginn 15. mars kl. 14.00 í
Garðastræti 8. Kaffi, spjall, upp-
lestur o.fl. Aðgangur ókeypis.
SRFl.
Opið hús
fyrir nemendur
mína í Safamýri
18 mánudags-
kvöldið 16. mars
kl. 20.00.
• Fræðsla.
• Hugleiðsla.
• Reikimeðferðir.
Guðrún Óladóttir,
reikimeistari,
sími 553 3934.
KENNSLA
Geta ungbörn lært að lesa?
Já, rétt eins og þau læra að
tala og þau vita ekkert
skemmtilegra en að leika
kennsluleikínn með pabba og
mömmu.
Námskeið fyrir foreldra í mars
og april. Leiðbeinandi: Kolbrún
Sveinsdóttir, höfundur væntan-
legrar bókar um efnið.
Námskeið í dag, laugardag,
kl. 15.00-18.00. Örfá pláss
laus. Næsta námskeið þriðjud.
kl. 15.00. Gjald kr. 3.500, hálftfyr-
ir maka. Námsgögn innifalin.
Skráning í síma 561 6076
GUÐNY
ÞÓRARINSDÓTTIR
GUÐRÚN
ÞÓRÐARDÓTTIR
t