Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ______________________
FÓLK í FRÉTTUM
Um baðstofulíf og drauga
ÚTLENDINGUM þótti bað-
stofulíf á Islandi í fjörugi'a lagi
þegar þeir komu hingað í heim-
sóknir á átjándu og nítjándu
öld til að líta á þessa merkilegu
þjóð, sem háttaði sig í torfbað-
stofum og svaf alsnakið þrátt
fyrir litlu ísöld á bak við löng
bæjargöng, sem héldu úti kuld-
anum. Síðan hafa og jafnvel áð-
ur áttu þjóðir sínar fjölskyldu-
hugsjónir, sem ekki urðu bein-
línis sagnfrægar. Einhvern tím-
ann minntist John Steinbeck á
engilsaxneska fjölskylduhug-
sjón svo hún hefur þá verið til
og sagði að hún hefði tekið
miklum breytingum með til-
komu Fordbílsins, en hann varð
snemma kunnur bæði í Kali-
forníu á æskuárum Steinbecks
og annars staðar. Nú um stund-
ir hafa áhorfend-
ur sjónvarps haft
af því nokkra
skemmtun að
horfa á upp-
diktaða fjölskylduhugsjón í
teiknimyndaröð Sipson fjöl-
skyldunnar án þess sjáist
Fordbíll. Simpson er fluttur á
Stöð 2, en honum var náð frá
sjónvarpi ríkisins annað hvort
vegna sparnaðarstefnu eða
vegna þess að einhverjir hafa
sofnað í æviráðningunni hjá
ríkinu nema hvort tveggja sé.
Simpson fjölskyldan er ekki
dæmigerð amerísk fjölskylda
heldur dæmigerður almenning-
ur, jafnt í Ameríku sem annars-
staðar í heiminum, líka á Is-
landi. Pess vegna þykja þætt-
irnir skemmtilegir og er sem
hver maður sjái sjálfan sig þar
sem Simpson er.
Öðrum þætti hefur Stöð 2
náð frá ríkinu, en það er
draugaspilið Ráðgátur, þar sem
þeir birta mynd af myrkum
himni og prenta á hana: „The
Truth is Out There“. Síðan þarf
ekki að orðlengja það, að leik-
ararnir hefja glímuna við lítt
skýrða hluti, sem oftar en hitt
sýna sig í því að vera illa dul-
búnir skúrkar frá FBI. Það sér
á þessum þáttum, að þeir hafa
ekkert lært af þjóðsögum Jóns
Árnasonar, enda virðast draug-
arnir í Ráðgátum vera mennsk-
ir. Til allrar guðslukku hefur
Hollywood ekki komist inní
raunverulegan draugaheim,
eins og hann gerist bestur bæði
hér og í Englandi, þar sem vof-
ur eru hluti af
fasteignum land-
ins. Það er dálít-
ið sérkennilegt,
að á sama tíma
og ríkissjónvarpið er ekki of
skemmtilegt skuli Stöð 2 ná frá
því tveimur ágætum framhalds-
þáttum. Auðvitað snertir þetta
ekki svo vitað sé nokkurn mann
hjá ríkisstofnuninni. Þar á bæ
eru menn uppteknir af Dags-
ljósi og öðru eigin ágæti, auk
þess sem mannaráðingarferlinu
verður ekki breytt í bili. Ann-
ars er undarlegt hvað hljótt er
um allar mannabreytingar síð-
an Hrafn Gunnlaugsson hætti,
en hann virtist einhver ógnars-
klefir setuliðsins. Nú stjórnar
gamall fisksteikingarmaður úr
Dagsljósi og brasar til hagræð-
is fyrir gáfumannaliðið á Iðnó-
vængnum.
Sá siður í ríkissjónvarpinu að
sýna íslenskar kvikmyndir á
sunnudagskvöldum er góðra
gjalda verður. Hann er nokkur
búbót fyrir blöðruleikritið, sem
enn er verið að reyna finn út
um hvað var. Nú Síðast var
sýnd myndin Bíódagar og fór
vel á skjánum. Friðrik Þór er
kvikmyndaframleiðandi, en á
vettvagni fer lítið fyrir honum
sem leikstjóra. Aftur á móti er
Aiá Kristinsson, kvikmynda-
tökumaður tveífellefttur á töku-
stað sem von er, og skiptir þá
ekki alltaf máli hvort hann þarf
upphækkun við tækin. Bíódagar
eru augsýnilega æskuminning-
ar Friðriks Þórs og verða ekki
verri fyrir það. Stórkostlegur
var Sigurður Sigurjónsson að
koma heim úr Keflavíkurgöngu,
eða Jón Sigurbjörnsson að ber-
ast við drauginn. Þá var söngur
Skagfirðinganna góður, og ekki
skemmdi að honum stjórnaði
frú framan úr Skagafirði, sem
var organisti í átta kirkjum.
Mega allir sjá hvernig farið
hefði með messurnar hefði hún
fengið flensu.
Sýnd var í ríkisimbanum
mynd af tveimur frönskum
skáldum og þótti víst mörgum
mikið til koma, enda um tvö
frönsk höfuðskáld að ræða.
Margir urðu mjög hrifnir, en
undiri'itaður getur ekkert sagt
því til staðfestingar af því hann
sofnaði undir miðri andagiftinni
og taldi sig hafa vel sloppið.
Indriði G. Þorsteinsson.
SJONVARPA
LAUGARDEGI
Minna að-
dráttarafl
HLJÓMSVEITIN Rolling Ston-
es hélt tónleika í Tókýó í vik-
unni en alls mun sveitin spila á
sex stöðum í Japan. Það vakti
athygli að bresku rokkararnir
hafa minna aðdráttarafl en áð-
ur því mun færri hafa keypt
niiða en á tónleikunum 1990 og
1995 sem sveitin hélt í Japan.
Tónleikaferð Rolling Stones
um heiminn kallast „Bridges to
Babylon“ og hófst í Chicago í
september síðastliðnum. Næsti
viðkomustaður sveitarinnar
verður í Suður-Ameríku, stutt
stopp í Bandaríkjunum og þar á
eftir tónleikaferð um Evrópu.
PturpwMíiMti
- kjarni málsins!
Ártún
Vagnhöföa 11, sfmi 567 4090 og 898 4160.
Gömlu og nýju dansarnir í kvöld. Tríó Þorvaldar leikur
ásamt söngkonunum Vordísi og Frigg.
Húsið opnaó kl. 22.30
Full búð af nýjum vörum
Ný og spennandi verslun
Mikið úrval aí fallegu
páskaföndri.
Trévara í miklu úrvali.
Sfit
Einnig snið og efni í gamaldags
bangsa, silkiblóm, körfur og
kransar, frauð, efni, gjafavara,
smávara o.fl.
Húsið
Faxafeni 14
sími 581 2121
Landsins mesta úrval
af skapalónum. Nám-
skeið í trémálun,
postulínsbrúðugerð o.fl.
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 6^,
Hljómsveitin Saga Klass
Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með
hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni
FERöasaga
m Laddi og félagar 6*
fara á kostum » ferðabransanum
GLEÐI,SONGUR OG FULLT
AF GRINI í SULNASAL
Raggi Bjarna og Stefán Jökulsson
sjá um stuðið á Mímisbar
Sean Penn var valinn
„Besti leikarinn“
á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1997
Sean Penn og John Travolta eru í
hlutverkum harðra nagla sem berjast
um hylli sömu konunnar.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
ATHUGIÐ MYNDIN ER ÓTEXTUÐ!