Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 64
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
íi ______________________
FÓLK í FRÉTTUM
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTÖÐVANNA
Gáfumannaklúbbur
Dorothy Parker
Stöð 2 ► 21.00 Dorothy Pai-ker
var virtur rithöfundur um sína
daga, einkum sem handrita- og
smásagnahöfundur. Orðheppin,
hæðin, snefsin og snögg uppá lag-
ið, engu að síður andlegur leiðtogi
gáfumanna í listamannaheimi
New York-borgar. Par leiddi hún
um árabil fræga klíku i hring-
borðsumræðum í veitingasal Al-
gonquins-hótelsins. Þar stendur
borðið hennar enn í dag. Persónu-
leiki hennai- var yfírþyrmandi,
ýmist elskuð eða hötuð af sam-
ferðafólki sínu, sem m.a. taldi
mai-ga helstu rithöfunda fjórða og
fímmta áratugarins. Einkalífið
vai- stormasamt, menn komu og
fóru og Parker sjálf áfengissjúk-
lingur síðari árin.
Sá umdeildi leikstjóri, Alan Ru-
dolph, stjórnar og skrifar handrit-
ið. Myndir hans eru jafnan metn-
aðarfullar og undeildar. Frú Par-
ker og bókmenntahirðin, ★★★,
er aðgengilegri en flest verk hans
og leikhópurinn athyglisverður að
vanda. Jennifer Jason Leigh kem-
ur á óvai-t sem hin snjalla,
hvassyrta, fyllibytta, og stendur
sig vel - ef menn á annað borð
sætta sig við framsögn hennar.
Mörgum þykir hún tilgerðarleg
en hér fer leikkonan að ráði Ru-
dolphs, sem lætur Leigh herma
eftir sérkennilegu málfari rithöf-
undarins eins nákvæmlega og
henni er unnt. Hún gerir rithöf-
undinn skemmtilega fylginn sér í
allri karlrembunni og drykkjunni.
Mennii'nh' í lífi Pai'ker eru
leiknir af Campbell Scott og
Andrew McCarthy. Nick Cassa-
vetes fer með hlutverk Roberts
Sherwoods og David Thornton
leikur George S. Kaufman, annað
frægt skáld frá þessum tíma. Ru-
dolph er athyglisverður eins og
fyrri daginn. Forvitnilegt verður
að sjá hvernig honum tekst til við
kvikmyndagerð á verki Kurts
Vonneguts, Breakfast of Champ-
ions, sem hann vinnur að um
þessar mundir. Með sannkölluð-
um meisturum; Bruce Willis, Al-
bert Finney, Nick Nolte og Bar-
böru Hershey.
Sæbjörn Valdimarsson
Stöð 2 ► 13.20 Steinaldarmennirn-
Ír (The Flintstones, ‘94) birtast enn
eina ferðina, hádegisverðarsýning
fyrir smáfólkið. *-kV.í
Sýn ► 21.00 Því miður er ekkert að
fínna um sjónvarpsmyndina Saigon
Baby, (‘95), sem segir frá hjónum
sem geta ekki eignast bai-n og halda
til Austurlanda fjær, þar sem tekið
er öðruvísi á slíkum málum en í Evr-
ópu. Myndin er framleidd af BBC,
sem er oftar en ekki gæðastimpill, og
meðal leikara er John Hurt, sem
sjaldan á vondan dag.
Stöð 2 ► 21.00 Frú Parker og bók-
menntahirðin (Mrs Parker and the
'Vicious Ch-cle ',95jSjá umsögn í
ramma.
Sjónvarpið ► 21.15 Feðgar á ferð
The Indiana Jones Chronicles (Tra-
vels With Father, ‘95). Átakalítil
færibandaframleiðsla.
Sjónvarpið ► 22.55 Á réttu augna-
bliki (The Public Eye, ‘92), um blaða-
ljósmyndara (Joe Pesci), sem flækist
inní morðmál, fékk misjafna dóma.
Oftast vonda, einstaka maður hóf
hana til skýjanna. Góðir aukaleikar-
ar, einsog Barbara Hershey og St>
anley Tucci, hjálpa uppá sakirnar.
★★
Stöð 2 ► 23.10 Hjarta þessarar
smámyndar bærist í brjósti nýstirn-
isins Liv Tyler, sem komin er um
lángan veg frá Bandaríkjunum í
sveitasælu Toscanahéraðsins. Til-
gangurinn að komast að því hver er
faðir hennar - og láta meydóminn
lönd og leið. Það hefst. Tyler hefur
því miður fátt til að bera annað en
huggulegt útlit. Þeir sem ásækjast
fegurð hennar, í þessari nýjustu
mynd Bernandos Berolucci, eru öllu
liflegri. Þeir eru m.a. Jean gamli
Marais (í fínu formi, hefur ekki verið
betri síðan á uppgangstímum þeirra
Jeans Cocteau), W Moffet og stór-
leikarinn Jeremy Irons. @l:Saklaus
fegurð (Stealing Beauty, ‘96), er að
mörgu leyti frambærileg mynd, en
nánast vonbrigði fyrir aðdáendm-
Beroluccis, sem er óravegu frá sínu
besta. ★★‘/2
Stöð 2 ► 01.00 Endursýning á
Svipul sæmd (Fat City, ‘72), einni
bestu mynd Johns Hustons. ★★★★.
Missið ekki af henni.
Stöð 2 ► 2.45 Himinn og jörð (Hea-
ven And Earth, ‘93), er lokamyndin í
þrennu Olivers Stones um Vietnam
stríðið og eftirhreytur þess í Banda-
í-íkjunum. Afdrif vietnamskrar
stúlku sem gengur í hjónaband með
amerískum hermanni. Nokkuð at-
hyglisverð og byggð á sönnum at-
burðum, mikilli hörmungarsögu, en
umfjöllunarefnið tekið að lýjast. Mun
síðri en Platoon og Born on the Fo-
urth of July. Tommy Lee Jones mik-
ilúðlegur að vanda. -k-k/z
Sæbjörn Valdimarsson
ÞAU fengu vinninga í happdrætti kvöldsins: Þrándur Sigurjón Ólafs-
son, Arnar Ólafsson, Arndís Sveinsdóttir, Kristján Örn Jónsson, María
Maronsdóttir, Birkir Rúnar Gunnarsson og Ilelgi Ragnarsson, ásamt
Páli Óskari og starfsfólki Úrvals - Útsýnar.
Geimferðir
á Broadway
STÓRDANSLEIKUR Úrvals -
Utsýnar og FM957 var haldinn
á Broadway fyrir skömmu þar
sem Geimferðarbæklingurinn
var kynntur. Hljómsveitirnar
Reggie on Ice og Skítamórall
spiluðu en kynnir kvöldsins var
Páll Óskar. Tískusýning var
lialdin þar sem sýnd voru föt
frá verslunum sem bjóða
íþrótta- og baðfatnað. Að lokum
voru dregnir út ferðavinningar
en aðgöngumiðinn gilti sem
happdrættismiði.
Frábær stemmning var í hús-
inu sem troðfylltist á skömmum
tíma og ætlaði allt um koll að
keyra þegar Páll Óskar tók lag-
ið. Á myndunum má að líf og
fjör var hjá geimferðarfólki á
Broadway.
INGVELDUR Sigurjónsdóttir,
Elísabet Kristjánsdóttir, Vil-
borg Atladóttir og Jóna Haf-
steinsdóttir dreifðu bæklingum
og upplýsingum.
PÁLL Óskar í stuði eins og
alltaf.
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir rómantísku myndina „She’s So Lovely“ sem gerð er eftir handriti
Johns Cassavetes heitins. I myndinni segir frá sérstæðu ástarsambandi þar sem ýmislegt skondið á sér
stað. Með aðalhlutverk fara Sean Penn, Robin Wright Penn, John Travolta, Harry Dean Stanton
og Gena Rowlands.
Heitar ástríður
- utang’arðs
Frumsýning
AU Eddie (Sean Penn) og
Maureen (Robin Wright
Penn) eru kolvitlaus hvort í
annað. Þau eru hins vegar drykkju-
sjúk og óáreiðanleg og um það bil að
eignast barn saman, en þau búa í
heimi barflugna og annarra dreggja
samfélagsins og ástin ein gerir þeim
kleift að komast af. Þegar makalaust
ástarsambandið sekkur öðru þeirra
nánast alveg til botns snýst gæfan í
lið með hinu sem kemst á ævintýra-
legan hátt úr örbirgð til allsnægta,
en þrátt fyrir þetta getur ekkert orð-
I Tímamót hjá Kompaníinu
í tíiefni flutnings stofunnar í Ármúla 1
bjóöum viö viðskiptavinum okkar
að fagna þessum tímamótum meö okkur
í dag, laugardaginn 14, mars, kl, 17-19
á nýju stofunni,
hárgreiðslustofa
Ármúla 1, 2. hæð • Sími 588 9911
ið til þess að slíta samband þessara
óvenjulegu einstaklinga.
Myndin er gerð eftir tuttuga ára
gömlu kvikmyndahandriti eftir
John Cassavetes, sem er látinn, en
það er Nick Cassavetes, sonur hans,
og Gena Rowlands sem leikstýrir
myndinni. Vinur hans, Sean Penn,
átti hönd í bagga með að gera
myndina að veruleika og reyndar
hafði hann rætt um að leika í henni
löngu áður en John Cassavetes lést.
Síðan eftir að hann fór að leikstýra
sjálfur vildi Sean leikstýra mynd-
inni, en þegar að því kom að Nick
vildi taka verkefnið að sér ákvað Se-
an að taka að sér aðalhlutverkið.
Hann stakk upp á Robin Wright,
verðandi eiginkonu sinni, í aðal
kvenhlutverkið og samþykkti Nick
það eins og skot og sömuleiðis leik-
konan og þá reyndist auðvelt að fá
John Travolta til að taka að sér
stórt hlutverk í myndinni.
„She’s So Lovely" er önnur mynd-
in sem Nick Cassavetes leikstýrir en
fyrri myndin var „Unhook the St-
ars“ með þeim Gena Rowlands, Ger-
ard Depardieu og Marisa Tomei í að-
alhlutverkum. Nick er lærður leikari
og meðal mynda sem hann hefur
leikið í eru „Mrs. Parker and The
Vicious Circle" og „The Doors“ sem
Oliver Stone leikstýrði. Þá hefur
hann meðal annars leikið í sjón-
varpsþáttaröðunum „L.A. Law“ og
„Quantum Leap.“
Sean Penn hefur margsinnis sleg-
ið í gegn fyrir sannfærandi leik í
erfíðum hlutverkum og er skemmst
að minnast hans úr myndinni „Dead
Man Walking", sem hann hlaut til-
nefningu til Oskarsverðlauna fyrir,
og þar áður úr „Carlito’s Way“ sem
hann hlaut Golden Globe verðlaunin
fyrir. Síðast sást hann leika á móti
Michael Douglas í „The Game“ og
næsta mynd hans er „U-Turn“ sem
Oliver Stone leikstýrir.
EDDIE (Sean
Penn) og
Maureen
(Robin Wright
Penn) eru
drykkjusjúkt
lágstéttarfólk
sem elskast á
ákafan en sér-
kennilegan
hátt.
Robin Wright Penn fór með
fyrsta kvikmyndahlutverk sitt í
myndinni „The Princess Bride“, en
síðan kom hún við sögu í „Toys“,
„The Playboys", „State of Grace“,
„Denial“ og „The Crossing Guai-d“.
Stærsta hlutverk hennar kom svo
þegar henni bauðst að leika bestu
vinkonu Toms Hanks í „Forrest
Gump“ og í kjölfarið fylgdi aðalhlut-
verkið í „Moll Flanders". Næsta
mynd hennar verður „Loved“ þar
sem hún leikur á móti William
Hurt.
SEAN Penn leikur hinn ofbeldisfulla Eddie sem
elskar konuna sína takmarkalaust en lendir oft-
ar en ekki í útistöðum við umhverfi sitt.
JOIIN Travolta
fer með hlut-
verk Joey sem
gefur Maureen
tækifæri til að
hefja nýtt líf.