Morgunblaðið - 14.03.1998, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
%
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna teiknimyndina Litlu hafmeyj-
una, (The Little Mermaid), sem gerð er eftir hinu vinsæla
ævintýri H.C. Andersens, en myndin hefur nú verið endur-
gerð með aðstoð nýjustu tækni í mynd- og hljóðvinnslu.
Litla hafmeyjan
í nýjum búningi
LITLA hafmeyjan er 28. teikni-
myndin sem Walt Disney
I gerði en myndin var frum-
sjnd árið 1989 og vann þá til
Oskarsverðlauna fyrir bestu tón-
list. Myndin hlaut á sínum tíma
metaðsókn um allan heim og skil-
aði tæplega 200 milljónum dollara í
aðgangseyri. Myndin markaði
ákveðin tímamót hjá Disney fyrir-
tækinu en að gerð hennar stóðu
kvjkmyndgerðarmennimir John
Musker og Ron Clements, sem síð-
ar áttu eftir að gera Aladdin og
Herkúles og þá komu einnig til
sögunnar hjá Disney laga- og
textahöfundamir Howard Ashman
og Alan Menken sem gert höfðu
garðinn frægan með lögunum í
Litlu hryllingsbúðinni.
I þessari endurgerð myndarinn-
ar hefur nýjasta stafræna tækni
verið notuð til að lagfæra filmuna
og hreinsa og einnig hefur hljóðið í
myndinni verið endurgert þannig
að hljóðgæðin em mun meiri en í
upphaflegu myndinni. í myndinni
er stuðst við hið sígilda ævintýri
H.C. Andersens um litlu hafmeyj-
una sem í myndinni heitir
Ariel og þráir hún að verða
hluti af mannheimum. Hún
er staðráðin í að komast í
kynni við draumaprinsinn
sinn og gerir samning við
sænornina Ursúlu um að
skipta á rödd sinni og
sporði fyrir fótleggi og
tækifæri til að hitta hinn
myndarlega Eirík. Þetta
gerir hún í andstöðu við
föður sinn, sækonunginn
Tríton, og verndarkrabbann
Sebastian og fljótlega kemst hún
að því að þögnin er ekki gulls ígildi
og jafnframt að eitthvað er bogið
við samninginn sem Ursúla gerði
við hana.
Þegar Litla hafmeyjan var frum-
sýnd árið 1989 var hún lofuð í há-
stert sem ein af skemmtilegustu
teiknimyndunum sem gerð hefði
verið hjá Walt Disney og skipað í
flokk með helstu klassísku teikni-
myndunum sem komið höfðu á
markaðinn frá fyrirtækinu. Áhorf-
endur létu sig heldur ekki vanta og
ekki leið á löngu þar til myndin
hafði slegið öll fyrri met sem
teiknimyndir höfðu sett. Voru vin-
sældir hennar slíkar að áhugi á
gerð teiknimynda tók mildnn kipp
og í kjölfarið hafa fylgt myndimar
„The Beauty and the Beast“,
„Aladdin", „The Lion King“,
„Pocahontas", „Toy Storý‘, „The
Hunchback of Notre Dame“ og
„Hercules".
Frumsýning
Riafrænn
“ afsláttur!
Þessi fyrirtæki veita öllum sem
greiða með VISA kreditkorti
rafrænan afslátt
Fjöldi annanra fyrirtækja veitir einnig afslátt
FRÍÐINDAKLÚBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
TÖLVUKU&R
DUOT
Jeanswear
SILFURBÚÐIN
***!•©*
Kaupgarður
/ MJÚDD
mxMm, M
Fjut&mQTv n
sss ##<§#
ugnsyn
GAP
FJALLAHJOLABUDIN - FAXAFENI7 S. 5200 200 - MÁN - FÖS. KL. 9 -18. LAU. KL. 10 -14.
ISLUR ISl
á tilboði 4 ^
Seljum '97 árg.
og rýmum lyrir
árgerð ‘98.
Grípið gæsina!
Threshold
Verö áöur kr. 32.691
Sycamore
Verð áöur kr. 44.673
Maneuver
Verö aöur kr. 27.944
Tilboðsverð kr. 18.163
Tilboðsverð kr. 26.804 H Tilboösverð kr. 21.250
Fjallahjólabúoin hefur flutt
starfsemina f FAXAFEN 7
Komdu viö í FJALLAHJOLABUÐINNI á nýja
staðnum í Faxafeni 7 og fáöu boðsmiða
á sérstaka M0NG00SE forsýningu á
stórmyndinni The Man In The Inon Mask
í Laugarásbíó 2. apríl kl. 21.00.
ATH: Takmarkaður miðaljöldi
er á þessa einu sérsýningu sem
haldin veröur aðeins fyrir gesti
FJALLAHJÓLABÚÐARINNAR. LAUGA