Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 66

Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 66
MORGUNBLAÐIÐ 66 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 >----------------------- FÓLK í FRÉTTUM Ég vil geta þess að stúlkan á næsta borði hældi sveppamaukinu sér- staklega. Kunningjakona úr einum árshátíðarhópnum sem þarna var lýsti yfir sérstakri ánægju með súpuna og kalkúninn og var raunar ánægð með allan matinn. Fyrir ut- an súkkulaðikökuna en þeim dómi er ég ósammála. Laddi stendur fyrir sínu Um klukkan hálf ellefu hófst skemmtidagskráin Ferðasaga - Há dú jú læk Æsland? - og lauk ekki fyrr en undir miðnætti. Sagan ger- ist á ferðamálaráðstefnu sem hald- in er í Hótel Höfuðstól í sveitinni og í henni er gert óspart grín að ís- lensku ferðaþjónustunni og ýmsum tilburðum okkar á ferðasviðinu. Laddi, Þórhallur Sigurðsson, er í aðalhlutverki og snýst skemmti- dagskráin að miklu leyti um hans mörgu og ótrúlegu gervi. Með hon- um skemmta bróðir hans, Harald- ur, Steinn Armann Magnússon og Helga Braga Jónsdóttir. Þetta er úrvalsfólk sem allt átti sína góðu spretti. Ég reyndi eftir bestu getu að fylgjast með skemmtidagskráinni þótt ég hafi verið svo óheppinn að lenda úti í horni, á bak við tvær súlur. Aðstæðumar rændu mig því hluta af ánægjunni en allavega var hægt að fylgjast með í beinni út- sendingu í sjónvarpi sem komið hafði verið fyrir á annarri súlunni. Maður hefur alltaf gaman af Ladda. Sum gervin eru reyndar orðið dálítið útjöskuð en í þessari sýningu hefur honum og félögum hans tekist að koma með ýmislegt nýtt til þess að halda athygli gest- anna. I Bændahöllinni voru nokkrir hópar þetta umrædda kvöld, meðal annars frá Fóðurblöndunni, Hita- veitu Suðurnesja, Jóhanni Ólafs- syni & co, Hótel Keflavík og Sendi- bílastöðinni Þresti. Þrátt fyrir að mikið fjör væri í sumum hópanna héldu skemmtikraftarnir athygl- inni á réttum stað, eins og Flosi myndi segja, í hálfan annan klukkutíma. Og aldrei varð ég var við klið í salnum. A miðnætti tók við hljómsveitin Saga klass sem lék fyrir dansi fram á nótt ásamt söngvurunum Sig- rúnu Evu Armannsdóttur og Reyni Guðmundssyni. Ferðasagan á Sögu og allt sem henni fylgir er hin besta skemmt- un, þótt að mínu mati vanti eitt- hvað upp á stemmninguna sem var fyrir tveimur eða þremur árum þegar ég sótti hliðstæða skemmtun á Sögu og skemmti mér afar vel. Þama getm- dagsform gestsins ráðið eins miklu og skemmtikraft- amir og hótelstarfsmennimir sem allir lögðu sig fram. Kannski mun- urinn liggi bara í súlunum frægu í Súlnasalnum sem vom á milli mín og sviðsins? PÁLL Óskar getur farið að vara sig með tilkomu þessa fína dúetts. BRÆÐURNIR tveir úr HLH-flokknum tóku lagið með Elvis. Morgunblaðið/Halldór ÞÓRÐUR húsvörður og nokkrir hjólabrettagæjar sungu um miðbæ- í beinni útsendingu ur með þá þjónustu sem við feng- um við mitt borð, eiginkonan og ég. Matarskammturinn gæti hentað meðal matmönnum eða þaðan af minni en brúnin léttist þegar boðin var ábót. Ég sagði „ágætlega" þeg- ar þjónninn spurði hvemig matur- inn hefði bragðast og stend við það. Maturinn var ágætur, raunar mjög góður miðað við þá færibandavinnu sem áreiðanlega þarf að vera þegar matreitt er ofan í svona stóran hóp. KARLAKÓRINN Lóuþrælar úr Húnavatnssýslu söng að hætti sannra íslendinga. LIPRIR og nettir dansarar þeyttust um gólfið í suður-amerískum dansi. Skemmtanir ' LADDI og félagar fara á kostum í ferðabransanum. Þessa fullyrðingu skemmtanahaldara á Hótel Sögu um skemmtunina Ferðasögu sem þar er haldin þessar vikurnar má til sanns vegar færa. Undirritaður var í hópi gesta sem skemmti sér í Súlnasalnum um síðustu helgi. Ferðasaga hefur verið í Súlnasal Hótels Sögu á laugardagskvöldum frá 21. febrúar. Aðsókn er góð og er að verða upppantað út þennan mánuð þrátt fyrir að skipulagðar hafi verið aukaskemmtanir einhver fóstudagskvöld. Ág^reiningpir um kökuna Samkoman byijar upp úr klukk- an átta með þríréttaðri máltíð. Forrétturinn var úthafsrækju- og humarsúpa með epla Sabayon. Með henni var borið fram ástralskt hvítvín, Jacob’s Creek. I aðalrétt var lambavöðvi fylltur með kjör- sveppamauki og kalkúnabringa, framreidd með kartöfluböku og -^garðávöxtum. Kjötinu skolaði ég niður með Jacob’s Creek-rauðvíni. Æinnig stóð til boða að velja græn- metisrétt. Eftirrétturinn reyndist vera súkkulaðikaka með mokka- og núgatkremi á hvítri súkkulaðisósu. Vel gekk að bera fram matinn þrátt fyrir marga gesti, allt að 350 manns. Ég var sérstaklega ánægð- Ungfrú Bandaríkin KEPPNIN um ungfrú Bandaríkin 1998 var haldin nú f vikunni í Shreveport í Louisiana. Það var hin 26 ára Shawnae Jebbia, ungfrú Massachusetts, sem sigraði í keppninni og verður fulltrúi Bandarikjanna í keppninni um ungrú heim, sem fer fram á Hawaii í maí næstkomandi. Abdul sækir um skilnað SÖNGKONAN Paula Abdul hefur sótt um skilnað frá íþróttafata- framleiðandanum Brad Beckerm- an, að því er talsmaður hennar greindi frá á þriðjudag. Abdul hitti Beckerman í fyrsta skipti á stefnumóti sem komið var á af vinum þeirra. Þau giftust í október árið 1996. Abdul, sem er 35 ára, var áður klappstýra Los Angeles Lakers og danshöfundur sem komst í efsta sæti bandaríska vinsældalistans með fyrstu breiðskífunni „Forever Your Girl“. Hún skildi við leikar- ann Emilio Estevez árið 1994. Þetta var fyrsta hjónaband Beckermans. Hann er 31 árs. AFMÆLISBARNIÐ með gjöf frá bróður sínum, Birgi, sem vinnur hjá auglýsingastofúnni Yddu. „Hann setti þetta saman mér til hrellingar,11 sagði Aðal- steinn vinalega og brosti. SKÁLDIÐ Þorsteinn frá Hamri og Ævar Kjartansson útvarps- maður ræða málin. THOR Villijálmsson trúir Guð- jóni Bjarnasyni arkitekt og listmálara fyrir einhverju. KOLBRÚN Björgólfsdóttir hlýðir á tónverkið Blast ásamt hjónunum Baltasar og Krist- jönu Samper. Tónverk í afmælisgjöf TÓNVERKIÐ Blast var frum- flutt í fimmtugsafmæli Aðal- steins Ingólfssonar sem haldið var í Galleríi Sævars Karls um síðustu helgi. Er það einleiks- verk fyrir trompet samið af Atla, bróður Aðalsteins, sem starfar í Bologna á Ítalíu. Verk- ið var vitaskuld flutt á staðnum og fékk góðar viðtökur. „Þetta er í fyrsta skipti sem galleríið er notað undir afmæl- isfagnað," sagði Aðalsteinn þeg- ar slegið var á þráðinn til hans. „Sævar skýrði frá því að það hefði verið gert á þeim forsend- um að þetta væri eiginlega myndlistai-uppákoma.“ Ekki fjarri sanni. Enda heiðruðu fjölmargir myndlistar- menn afmælisbarnið með nær- veru sinni. „Það var mjög ynd- islegt að allt þetta góða fólk skyldi vera að gera mér þetta til geðs,“ sagði Aðalsteinn og bætti glettnislega við: „Þá er nú mun- ur að geta byrjað svona snemma dags og haldið svo áfram.“ Uppákoman var nefnílega í hádeginu á laugardag. „Svo tók við stund með fjölskyldunni og nánustu vinum heima hjá mér,“ sagði Aðalsteinn að lokum. LISTMUNAUPPBOÐ Sunnudaginn 15. mars kl. 20.30 á Hótel Sögu Komió og skoðið verkin í Gallerí Fold, Rauðarárstíg, í dag kl. 10.00-17.00 og á morgun kl. 12.00-17.00. ________________________________Rauðarárstíg, sími 551 0400. Seld veröa um 80 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna. ART GALLERY

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.