Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 14

Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 H _________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ahyggjur fulltrúa á Búnaðarþingi vegna útbreiðslu hrossasóttarinnar I afréttareign felist réttur til hefðbundinnar notkunar Skógarbændur óánægðir með að fá ekki fulla aðild að Bændasamtökunum Hitt húsið 10,6 milljón- ir í starfs- nám BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu Atvinnu- og ferðamálanefndar um að styrkja starfsnám 7 í Hinu húsinu um rúmar 10,6 milljónir króna. I umsókn til nefndarinnar kemur fram að ráðgert er að halda þrjú námskeið á árinu fyrir atvinnulaus ungmenni með bótarétt og er áætl- aður kostnaður borgarinnar 36 milij. Þrjátíu unglingar verða teknir á hvert námskeið en auk þess er gert ráð fyrir sértækum úrræðum fyrir bótalausa, sem felast í ráðgjöf, sérstökum námskeiðum sniðnum að þeirra þörfum o.fl. Einnig er gert ráð fyrir að nýta hluta kostnaðar í þágu bótalausra ungmenna. ----------------- 19-20 á Netinu FRÁ og með deginum í dag verður fréttaþátturinn 19-20 sendur út bæði í sjónvarpi og á alnetinu. í frétt frá Islenska útvarpsfélag- inu kemur fram að þeir sem hafa aðgang að netinu geta fylgst með 19-20 í beinni útsendingu, en einnig verður hægt að kalla upp sérstak- lega þær fréttir sem viðkomandi vill skoða. Þannig geta þeir sem missa af þættinum skoðað hann eða hluta hans síðar um kvöldið eða nokkrum dögum seinna. Slóðin er http://frettir.is. Enn- fremur kemur fram að þetta sé í fyrsta skipti sem fréttaþáttur á borð við 19-20 sé sendur út í heild sinni á netinu á hverjum degi. Á LOKADEGI Búnaðarþings á laugardag lýstu þingfulltrúar þung- um áhyggjum yfir örri útbreiðslu sóttarinnar sem herjað hefur á hross á Suðvesturlandi. I ályktun sinni skoraði Búnaðar- þing á alla hlutaðeigandi að fara í einu og öllu að fyrirmælum yfir- dýralæknis. Jafnframt var hvatt til öflugrar fræðslu meðal bænda og hestamanna um hvernig beri að varast það að smitsjúkdómar berist til landsins og um landið, nái þeir hingað. Búnaðarþingi var slitið und- ir kvöldmat á laugardag. í samtali við Morgunblaðið sagði Álfhildur Ólafsdóttir hjá Upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins að á þinginu hefði verið horft til framtíð- ar í mörgum málum og að nokkrum málum hefði verið sinnt betur en áður hefði gefist tækifæri til. Búnaðarþing fékk meðal annars til umsagnar lagafrumvarp um þjóð- lendur og ákvörðun marka eignar- landa, en eignarhald á hálendinu hefur verið nokkurt hitamál að und- anfömu. Búnaðarþing lýsti í ályktun sinni áhyggjum vegna hinna miklu krafna sem dómstólar gera um sönnun á eignarrétti á landi, einkum á hálendinu, jafnvel þótt afsöl væru fyrir hendi. Jafnframt var lögð áhersla á frekari skilgreiningu á takmörkuðum eignarrétti á land- svæðum innan þjóðlenda sem verða í eigu ríkisins skv. lagafrumvarpi. Skilgreining afréttareignar Búnaðarþing gerir kröfu um að í afréttareign felist réttur til beitar, önnur sjálfbær nýting gróðurs, veiði í ám og vötnum, dýraveiði og önnur nýting hlunninda, sem talist geti til hefðbundinnar afréttamotkunar. Áhersla er einnig lögð á að vand- lega verði gætt réttar aðila, sem telja sig eiga land sem áformað er að gera að þjóðlendu, og þeirra sem em ósáttir við úrskurð óbyggða- nefndar um mörk þjóðlendu. Séð verði til þess að útgjöld vegna þessa komi ekki í veg fyrir að þeir geti haldið sjónarmiðum sínum til streitu, eins og segir í ályktuninni. Fjallað um auðlindir í jörðu Búnaðarþing hafði einnig til um- fjöllunar stjómarfrumvarp til laga um eignarhald og nýtingu á auðlind- um í jörðu. Þingið Iagðist ekki gegn samþykkt þessa fmmvarps ef tekið yrði tillit til nokkurra athugasemda sem Búnaðarþing gerir. Það telur t.d. að ekki megi með setningu reglugerða þrengja eign- ar- og nýtingarrétt bænda og sveit- arfélaga. Jafnframt vill Búnaðar- þing að við lögin verði bætt laga- grein sem kveði á um að bændur, sem eigendur landsins, eigi kost á lögfræðilegri aðstoð án endurgjalds komi upp ágreiningur um eignar- og nýtingarrétt auðlinda milli þeirra og rflrisins. Óánægja Landssamtaka skógareigenda Á Búnaðarþingi var samþykkt aðild Landssamtaka skógareigenda að Bændasamtökunum, en forsvars- menn samtakanna em óánægðir með þær móttökur sem umsókn þeirra fékk. Samtökunum var veitt formleg aðild en þegar kom að því að greiða atkvæði um það hvort Landssamtök skógareigenda fengju fulltrúa á næsta Búnaðarþingi náði sú tillaga ekki fram að ganga. Hörður Harðarson, bóndi á Lax- árdal, sagði að ekkert hefði komið fram efnislega sem mælti gegn fullri aðild samtaka skógarbænda og reyndar væri í 3. grein sam- þykktar Bændasamtakanna tekið fram að skógrækt félli undir bú- rekstur. Að sögn Harðar fékk sú nefnd sem fjallaði um þetta á þing- inu Eirík Tómasson, prófessor í lög- fræði, til að gefa sitt álit. Hann benti mjög ákveðið á þetta atriði í samþykktum Bændasamtakanna og sagði að það væri nánast ekki hægt að ganga framhjá skógarbændum. Hörður sagði að þarna væri því fyrst og fremst um geðþóttaákvörð- un aðila að ræða sem ekki kærðu sig um að bændasamtökunum yrði beitt sem baklandi og stuðningsað- ila fyrir aukin skógræktarstörf bænda. „Almenningur hefur litið mjög til þess að það hefur átt sér stað mikil viðhorfsbreyting í íslenskum land- búnaði,“ sagði hann. „Möguleikar sveitafólks til að skapa sér auknar tekjur hafa meðal annars verið tald- ir liggja í auknum skógræktarstörf- um. Við þekkjum þetta af þeirri lagasmíð sem átt hefur sér stað á síðustu árum, t.a.m. með lögum um héraðsskóga og með lögum um suð- urlandsskóga og stórauknum fjár- framlögum frá hinu opinbera í þessi störf. Skógarbændum þykir því þessi meðferð aðildarumsóknar þeirra eins og köld vatnsgusa frá heildar- samtökum íslenskra bænda og ég tel að þeir verði að íhuga mjög rækilega hvort aðildin eftir þessar viðtökur sé þess virði að henni sé fylgt eftir.“ Hörður sagði það koma mjög til álita að draga umsóknina til baka: „Þarna munu menn ekki finna það bakland og þann stuðning sem þeir höfðu vænst." Alþjóðleg hundasýning Morgunb!aðið/J6n Svavarsson BESTI hundur sýningarinnar var valinn þýski fjárhundurinn IS.M. Gildewangen’s Aramis. Hér er hann ásamt eigendum sinum, Hjördísi H. Ágústsdóttur og Eiríki Guðmundssyni. Keppt um meistarastig HUNDARÆKTARFÉLAG fs- lands hélt helgina 28. febrúar til 1. mars Alþjóðlega hundasýn- ingu í ReiðhöII Gusts í Kópavogi. Á sýningunni voru valdir bestu hundar tíu tegundarhópa og að auki var valinn besti hvolpurinn, besti öldungurinn, besti af- kvæmahópurinn, besti ræktunar- hópurinn auk besta hunds sýn- ingarinnar og besta unga sýn- andans. Fjölmargir hundaeig- endur tóku þátt í sýningunni og best ræktuðu hundarnir, að mati tveggja dómara frá Svíþjóð og Noregi, unnu til verðlauna, en á sýningu sem þessari hljóta hund- ar af ólíkum tegundum dóm með tilliti til ræktunarmarkmiða hverrar tegundar. Að sögn Guðbjargar Helga- dóttur, sem situr í sýningar- stjóm Hundaræktarfélags fs- lands auk þess að vera starfs- maður félagsins, heldur félagið þijár hundasýningar á ári, þar af tvær alþjóðlegar eins og þessa. „Á alþjóðlegum sýningum geta allar tegundir hunda verið með og öðlast alþjóðlegt meist- arastig en smærri sýningar geta verið deildarsýningar þar sem til dæmis eingöngu islenski fjár- hundurinn eða eingöngu veiði- hundar era sýndir,“ sagði Guð- björg. „Hundaræktarfélag Islands samanstendur af öllum þeim sem láta sér annt um velferð hundsins,“ segir Guðbjörg, „og sumir meðlimir eiga ekki hunda. Félagið heldur einnig utan um allar ættbókarfærslur hunda og gefur út ættbækur, en með þeim er hægt að sanna að hundurinn sé af ákveðinni tegund, hrein- ræktaður eða ekki.“ Aðspurð um hvað væri á döf- inni hjá félaginu sagði Guðbjörg að framundan væru veiðipróf sem veiðihundadeildin stæði fyrir, sýning á íslenska fjár- hundinum verður í maí og árleg augnskoðun þar sem danskir dýralæknar kanna arfgenga augnsjúkdóma um svipað leyti. í júní verður árleg sýning félags- ins á Akureyri og í október er næsta alþjóðlega sýning fyrir- huguð. BESTI Borzo-hundurinn var ÍS.M. Annyuris-Czar Almas Nicolai, en hann var jafnframt eini hundurinn í tegundarhópi 10. Með honum er eigandi hans og ræktandi, Katrín Friðriksdóttir. Sigurvegarar f einstökum flokkum SIGURVEGARAR í einstökum flokkum sýningarinnar voru: Besti hvolpur: Tandra-Mirra, tegundarhópi 7, írskur setter. Eigandi: Guðrún Hreiðarsdóttir. Ræktandi: Tryggvi Þór Jóhannsson. Besti öldungur: ÍS.M. Eðal-Darri, tegundarhópi 7, írskur setter. Eig- andi: Magnús Jónatansson. Ræktandi: Hreiðar Karlsson. Besti afkvæmahópur: ÍS.M. Gildewangen’s Joop, tegundarhópi 1, þýskur fjárhundur. Eigandi: Hjördís H. Ágústsdóttir og Eirfkur Guðmundsson. Ræktandi: Leif & Hilde Wangberg. Besti hundur: IS.M. Gildewangen’s Aramis, tegundarhópi 1, þýskur fjár- hundur. Eigandi: Hjördís H. Ágústsdóttir og Eiríkur Guðmundsson. Rækt- andi: Hilde Wangberg. Besti ungi sýnandinn: ÍS.M. Ardbraccan Famous Grouse, írskur setter. Eigandi: Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Tegundarhópur 1: ÍS.M. Gildewangen’s Aramis, þýskur fjárhundur. Eig- andi: Hjördís H. Ágústsdóttir og Eiríkur Guðmundsson. Ræktandi: Hilde Wangberg. Tegundarhópur 2: Bonus Pater, enskur bulldog. Eigandi: Sigurður Helgi Guðjónsson. Ræktandi: Inga Lís Hauksdóttir. Tegundarhópur 3: ÍS.M. Season Autumn King of Tradition, West Hig- hland White Terrier. Eigandi: Súsanna Poulsen. Ræktandi: Lennart & Car- in Nordlander. Tegundarhópur 4-6: Ránar-Sólon íslandus Ýrar, dalmatíuhundur. Eig- andi: Órn Helgason. Ræktandi: Davíð Steinþórsson. Tegundarhópur 5: Snæ-Lukku-Kátur, íslenskur fjárhundur. Eigandi: Kristín Jóhannsdóttir. Ræktandi: Svala Rós Loftsdóttir. Tegundarhópur 7: ÍS.M. Ardbraccan Famous Grouse, írskur setter. Eig- andi: Jóna Th. Viðarsdóttir. Ræktandi: Ms. Trudy Walsh. Tegundarhópur 8: Jökla-Þruma, enskur springer spaniel. Eigandi: Ásta Arnardóttir. Ræktandi: Rúnar Halldórss/Hrafnh. Þórðar. Tegundarhópur 9: Santosha Silfur Sol, Shih Tzu. Eigandi: Sara M. Jó- hannsdóttir. Tegundarhópur 10: ÍS.M. Annyuris-Czar Almas Nicolai, Borzoi. Eig- andi: Katrín Friðriksdóttir. Ræktandi: Katrín Friðriksdóttir. i f c i i I I 1 I l í i s I k 1 I I i I I í I I I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.