Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 15
Þjónustufyrirtækið Coopers
& Lybrand - Hagvangur
Aukin þjónusta
á Akureyri
Morgunblaðið/Kristjá
Kynnti útilista-
verkið Niflheim
Eldur
læsti sig
í glugga-
tjöld
ELDUR kom upp í íbúð við
Hamarsstíg um miðjan dag á
laugardag, en að mestu var
búið að slökkva þegar lög-
regla og slökkvilið komu á
vettvang.
Kviknað hafði í út frá kert-
um sem stóðu í gluggakistu,
en glugginn var opinn og
feykti vindur gluggatjöldun-
um til þannig að eldurinn náði
að læsa sig í þau. Þaðan barst
eldurinn í föt sem voru á ofni
undir glugganum. Heimilis-
fólk varð einskis vart fyrr en
reykskynjari fór í gang.
Nokkurt tjón varð en betur
fór þó en á horfðist.
Handtekinn
með falsaðan
peningaseðil
MAÐUR var handtekinn laust
eftir miðnætti aðfaranótt laug-
ardags fyrir að koma fólsuð-
um peningaseðli í umferð.
Upplýstist málið fljótt, en
nokkur ungmenni höfðu útbú-
ið 500 króna seðla í tölvu og
komið nokkrum þeirra í um-
ferð. Handbragðið þótti frem-
ur klént en virtist samt geta
blekkt önnum kafíð verslunar-
fólk.
NÝTT alhliða þjónustufyrirtæki fyr-
ir atvinnulífíð varð til um síðustu
áramót. Þá sameinuðust tvö rótgróin
fyrirtæki, Endurskoðunarmiðstöðin
Coopers & Lybrand og Hagvangur.
Nýja fyrirtækið byggir starfsemi
sína á breiðum grunni og er vel í
stakk búið til að mæta vaxandi og
breytilegum þörfum fyrirtækja,
stofnana og einstaklinga.
Coopers & Lybrand - Hagvangur
er með skrifstofu í Reykjavík og í
fímm kaupstöðum utan höfuðborgar-
svæðisins, Keflavík, Grindavík,
Akureyri, Selfossi og Húsavík. Verið
er að auka þjónustuna á Akureyri og
hefur starfsfólki skrifstofunnar verið
fjölgað úr fjórum í sex og er ráðgert
að starfsfólki þar eigi eftir að fjölga
enn frekar. Þá er á döfínni að bæta
við starfsmanni á Húsavík.
HELDUR þótti konu einni sem
hringdi á lögreglustöð eftir miðnætti
kvöld eitt nýlega hún hafa fengið
dularfullt símtal. Maður nokkur
hafði hringt í hana og sagst vera með
fíkniefnasendingu til hennar. Ekki
nóg með það, heldur hygðist hann
njóta blíðu hennar eftir afhendingu
sendingarinnar. Átti konan á
hvorugu von og fannst tilhugsunin
ekki hugnanleg.
Á Akureyri hefur fyrirtækið boðið
upp á endurskoðun og reikningsskil,
lögfræðiþjónustu og fjármálaráðgjöf.
Með fjölgun starfsmanna er nú
einnig boðið upp á starfsmannaþjón-
ustu, markaðsrannsóknir og ráðgjöf,
upplýsinga- og tækniráðgjöf og
stjórnunarráðgjöf. Fyrirtækið getur
því nú veitt sömu þjónustu á Norður-
landi og veitt er í Reykjavík.
Coopers & Lybrand - Hagvangur er
til húsa í Geislagötu 12 á Akureyri
en flytur í maí nk. í nýinnréttað hús-
næði í Glerárgötu 34.
Á síðasta ári voru_ starfsmenn
Coopers & Lybrand á Islandi fjöru-
tíu talsins og velta fyrirtækisins um
220 milljónir króna. Starfsmenn
Hagvangs í fyrra voru tuttugu og
velta fyrirtækisins um 100 milljónir
króna.
Þegar málið var skoðað kom í ljós
að aðkomumaður einn hafði hitt
mann niðri í bæ sem sagðist þurfa að
koma fíkniefnasendingu til konu sem
hann nafngreindi. Sagði hann
jafnframt að ef maðurinn væri
tilbúinn til að fara með sendinguna
og borga sér tvö þúsund krónur
íylgdi blíða konunnar í kaupbæti.
Áðkomumaðurinn sem sá fram á
kvenmannslausa nótt í kulda og
BANDARÍSKI listamaðurinn David
Hebb kynnti vinnu sína við verkið
Niflheim í Ketilhúsinu á Akureyri
nýlega. Niflheimur er þrívi'ddarinn-
setning og hluti af stærra útilista-
verki sem heitir Yggdrasill og er
byggt á goðafræði. Verkið sem verð-
ur fullbúið um tveir metrar á hæð
trekki norðan heiða gekk að
tilboðinu og var hann að reyna að
hafa uppi á heimilisfangi konunnar
eftir símaskránni þegar hann
hringdi í konuna.
I Ijós kom að hér hafði óprúttinn
náungi haft fé af komumanni með
blekkingum því fíkniefnasendingin
reyndist ekki innihalda nein fíkniefni
og uppgefíð nafn konunnar var
tilviljun ein.
verður sett upp í Hrísey í sumar.
David Hebb hefúr hlotið styrk frá
Fulbright-stofnuninni til að vinna
að verki sfnu. Hann dvelur í gesta-
vinnu Gilfélagsins við undirbúnings-
vinnuna. Á myndinni er Hildigunn-
ur Sigvaldadóttir að virða fyrir sér
líkan af verkinu.
Hrossa-
flutningur
stöðvaður
LÖGREGLAN á Akureyri
stöðvaði í síðustu viku flutning
á hesti til bæjarins, en allur
flutningur hrossa milli staða er
nú bannaður vegna hitasóttar í
hestum sem geisað hefur sunn-
anlands síðustu vikur. Var
hrossaflytjanda gert að draga
hest sinn til baka.
Blíða í kaupbæti kæmist
fíkniefnasending til skila
MtRSU
vorsins?
Byrjaöu á því
PENSLAR ... INNIMÁLNING ...
ÞJÓNUSTA ... MÁLNINGARRÚLLUR ...
NÁTTÚRUSVAMPUR ... ÁHÖLD ...
TRÖPPUR ... RÁÐGJÖF
... ÚTIMÁLNING ... M
Q SKÖFUR ... SPARTL ... flB
LAKK ... TILBOÐ ...
W MÁLNINGAR-
BAKKAR ... SVAMPUR
... LITAPALLETTUR ...
HAGSTÆÐ GREIÐSLU-
RYKGRÍMUR ... FÚGUEFNI ... i
FJÖLBREYTNI ... MÚRSKEIÐAR l
... GLATTBRETTI ... FLÍSA-
KROSSAR ... MÁLNINGAR-
VERKFÆRI ... ALLIR LITIR ...
HAMMERITE ... FLÖGUR ... .
TEKKOLÍA ... TERPENTÍNA ...
SPRAY ... LÁQT VERÐ ...
PENSLAR ... INNIMÁLNING .
ÞJÓNUSTA ... MÁLNINGARRÚLLUR
NÁTTÚRUSVAMPUR ... ÁHÖLD
TRÖPPUR ... RÁÐGJÖF ... ÚTIMÁLNING
| ... SKÖFUR ... SPARTL ... LAKK ...
I TILBOÐ ... MÁLNINGARBAKKAR ...
k SVAMPUR ... LITAPALLETTUR ...
\ HAGSTÆÐ GREIÐSLUKJÖR ...
4 FYLLINGAREFNI ... SANDPAPPÍR
4 ... LÍMBAND ... KlTTI ... BOROAR
... GÓLFMÁLNING ...
VIÐARVÖRN ... FLOT ...
YFIRBREIÐSLUR ... ^ >
VEGGFÓÐUR ... ÞYNNIR ... '
KJÖR
FYLLINGAR- -jCjfHK
EFNI ... SANDPAPPÍR ... &*£ “
LÍMBAND ... KÍTTI ...
BORÐAR ... GÖLFMÁLNING
■T ... VIÐARVÖRN ... FLOT ...
H YFIRBREIÐSLUR ...
VEGGFÓÐUR ... ÞYNNIR ...
HREINSIEFNI ... RÓSETTUR ...
ÞEKKING ... PALLAÖLÍA ...
MÁLNINGARFÖTUR ... FLÖTSPARTL ...
SKRAUTLISTAR ... SAMFESTINGAR ...
Rlsatilboö 1 öllum regnbogans
lltum á BYKO málningu:
4 lltra fata á aöeins 1.990 kr.
OPNUNARTÍMAR í BYKO
Vlrkif dagar Sunnud.
Brelddln 8-18 Slmi: 515 4001 10-16
Hringbraut 8-18 Slml: 562 9400 10-16 11-15
Hafnarfl. 8-18 Slmi: 555 4411 9-13
Su&urnes 8-18 Slml: 421 7000 9-13