Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
LISTASMIÐJA Bahá’ía flutti dans gegn vímuefnum.
FJÖLMENNI var á Hótel Björk þar sem Hvergerðingar ræddu mál-
efni unglinga nýverið.
Húsfyllir á fundi um
málefni unglinga í
Hveragerði
Hveragerði - Húsfyllir var á mjög
líflegum fundi um málefni unglinga
í Hveragerði nýlega. Það var for-
eldrafélag Grunnskólans í Hvera-
gerði sem sá um skipulagningu
fundarins í samvinnu við unglinga
bæjarins.
Fundurinn hófst á því að Ingólf-
ur Snorrason frá Selfossi sagði
tæpitungulaust frá sínum viðhorf-
um til forvama og vímuefna.
Ingólfur á sæti í forvamanefnd
Selfossbæjar jafnframt því sem
hann æfir og keppir í karate en
hann er Norðurlandameistari í
þeirri íþrótt.
Þá fluttu þrír nemendur Grunn-
skólans í Hveragerði mjög skömg-
legar ræður. Þau Eva Harðardótt-
ir, Hulda Magnúsdóttir og Sigurð-
ur Gústafsson gerðu grein fyrir
sinni afstöðu til málefna unglinga
og til þess sem betur má fara í
þeim málaflokki. Komu þau inná
það sem í boði er fyrir unglinga í
bæjarfélaginu í dag en einnig komu
í máli þeirra fram margar hug:
myndir að bættu unglingastarfi. í
máh unglinganna kom fram mikill
vilji til að Hveragerði yrði „fyrir-
myndarbær fyrir unglinga". Að
loknum ræðum sýndi Listasmiðja
Bahá’ía áhrifamikinn frumsaminn
dans gegn vímuefnum.
í lok fundarins svöruðu síðan
Einar Mathiesen bæjarstjóri, Gísh
Páll Pálsson, forseti bæjarstjómar,
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður
skólanefndar, Guðjón Sigurðsson
skólastjóri og Kristinn Kristinsson
félagsmálastjóri, fyrirspumum
fundarmanna.
Að sögn Bee McEvoy, formanns
foreldrafélagsins, vora skipu-
leggjendur mjög ánægðir með það
hve jákvæðir hinir fjölmörgu
fundargestir vora og hve góðar
umræður urðu á fundinum. „Von-
andi verður þessi fundur aðeins
upphafið að öðra og meira starfi
fyrir unghngana hér í bæ,“ sagði
Bee að lokum.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
Óvenju mikill ís í Rifshöfn
Hellissandi - Ovenju mikill ís hefur
verið í höfninni í Rifi síðustu daga í
þessum fimbulkulda. Vindáttir hafa
verið norðanstæðar. Þó hefur frost
aldrei orðið jafnmikið hér á útnes-
inu, í samanburði við það sem gerð-
ist inn til landsins. Fyrir bragðið
hafa smærri bátar átt í mestu erfið-
leikum með að komast um höfnina
og sumar trillumar hafa ekkert far-
ið á sjó. Myndin er tekin um síðustu
helgi þegar höfnin var ísilögð en
eftir helgina snerist vindur til vest-
anáttar og hvarf þá ísinn af höfn-
inni á svipstundu.
Unnið að nýrri vegalögn
á Hellissandi
Hellissandi - Nú er verið að vinna
að framlengingu götunnar Snæ-
fellsáss, milli Klettsbúðar og
Hehuhóls. Sá vegur sem var fyrir
hefur verið hin mesta slysagildra
og þar safnaðist auk þess mikill
snjór sem oft hefur valdið íbúum
við Helluhól miklum erfiðleikum að
vetrarlagi. Til að bæta úr þessu
verður að breyta vegarstæðinu og
brjóta niður hólinn sem var aðal-
tálminn á veginum. Þessari fram-
kvæmd átti að vera lokið en snjór
og frost að undanförnu hafa tafið
fyrir verkinu. Verktaki er Bjami
Vigfusson á Kálfárvöllum. Myndin
sýnir framkvæmdir við framleng-
ingu Snæfellsáss.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
SVAVAR Sigurðsson við veggmyndina sem nú prýðir vegg
Sundmiðstöðvar Keflavíkur. Myndin er 15 fermetrar.
Helgar líf sitt
baráttunni gegn
frkniefnum
Keflavík - Svavar Sigurðsson hef-
ur helgað líf sitt baráttunni gegn
fíkniefnum og hefur hann gefið al-
eigu sína til þessara mála. Svavar
sagðist hafa fengið köllun árið
1994 og síðan hefði hann ekki gert
annað.
Hann hefur gefið fíkniefnalög-
reglu, tolli og þeim sem vinna að
fíkniefnamálum fjölda tækja sem
koma sér vel í starfinu auk þess
sem hann hefur staðið að auglýs-
ingaherferð þar sem sérstaklega
börn og unglingar eru vöruð við
afleiðingunum af neyslu fíkniefna.
Svavar hefur nú komið upp 15
fermetra mynd á gafli Sundmið-
stöðvar Keflavíkur sem hann von-
ast th að muni hafa fyrirbyggj-
andi áhrif. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið af þessu tilefni
að hann liti á fíkniefnasala sem
fjöldamorðingja og hann léti þá
ekki drepa böm án þess að snú-
ast til varnar. Hann sagði að mik-
ið ofbeldi væri 1 fíkniefnaheimin-
um en hann óttaðist ekki þessa
menn.
Q stgr.
Lítill og
þægileguz
Ericsson GA628
GSM HANDSÍMI
. 217 g með rafhlöðunni
• Rafhlaða endist í allt að
83klst.íbið
• Númerabirting
• SMS skilaboðasending
og viðtaka
LANDS SÍMINN
Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800
Þjónustumidstöd i Kirk|tistræti, sími 800 7000
Söltideild Kringlunni, simi 550 6690
Afgreiöslustaðir íslandspósts um land allt