Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 21 NEYTENDUR LGG+ mjólkurafurð á markað Mjólkursýrugerill sem eykur jafnvægi í meltingu ÞESSA dagana er að koma á mark- að ný mjólkurafurð sem heitir LGG+. Hún er unnin úr fitulausri mjólk og inniheldur LGG gerla. Að sögn Einars Matthíassonar, fram- kvæmdastjóra vöru- og tækniþróunarsviðs hjá Mjólkursamsölunni, inniheld- ur LGG+ bæði a- og b-gerla og trefjaefnið oligofrúktósa sem örvar vöxt heilnæmra gerla í meltingarvegi. Kemur jafnvægi á meltinguna „LGG+ dagskammturinn kemur í litlum 65 ml flöskum og hann hent- ar heilbrigðu fólki á öllum aldri. Það er líka mælt með drykknum fyrir fólk sem býr við ójafnvægi í melt- ingu af völdum ytri þátta eins og streitu, kaffidrykkju, inntöku fúkkalyfja og t.d. geislameðferða. Það tekur LGG+ einn mánuð að byggja gerlaflóruna upp á ný og til að viðhalda áhrifum til fulls er mælt með daglegri neyslu." Einar segir að drykkurinn hafi verið á markaði í Sviss um skeið undir heitinu Emmi Aktifit Plus. Hann segir að framleiðsa LGG+ sé undir mjög ströngu gæðaeftirliti og segir að framleiðsluaðferðin eigi að tryggja að gerlamagn sé alltaf hæfilegt svo drykkurinn hafí tilætluð áhrif. LGG+ er fæðutegund en ekki lyf en aðal- tilgangurinnn er að styrkja og stuðla að vellíðan fremur en að vera til næringar. - Hversvegna eru flöskum- ar ekki merktar með inni- haldslýsingu og næringar- gildi? „Drykkurinn er eingöngu seldur í sex flaskna kippu og utan á þeim pakkningum er að finna bæði næringargildi og innihaldslýsingu.“ Frekari nýjungar væntanlegar Einar segir að hægt sé að fá drykkinn með þremur bragðteg- undum, jarðarberjum, bragð- bættan og með eplum og perum en sá síðastnefndi er án viðbætts sykurs. Þegar hann er spurður hvort frekari nýjunga sé að vænta í þess- um vöruflokki segir hann þessar vörur þær fyrstu í vöruflokknum og segir að frekari nýjunga sé að vænta síðla vors og í haust. Fæða með hlutverk Birgit Eriksen, næringar- fræðingur á Næringarstofu Landspítalans, segir að LGG+ sé svokölluð markfæða sem er ný kynslóð af matvörum. „Þetta er fæða með hlutverk eða eins og hún kallast er- lendis functional food. Mark- fæða hefur tvenns konar hlutverk, hún hefur holl- ustuáhrif auk þess sem hún hefur hefðbundið næring- argildi. \ L stendur fyrir lactobacillus sem eru mjólkursýrugerlar. GG eru upphafsstafir tveggja bandarískra vísindamanna Gorbach og Golden en þeir uppgötvuðu gerilinn í byrj- un níunda áratugarins.“ Þegar Birgit er spurð hvort þessi mjólkurafurð sé mjög frábrugðin ab mjólkinni segir hún að lacto bacillus GG sé mest rannsakaði mjólkursýrugerill í heimi hvað varðar áhrif á heilbrigði. „Hann er virkur, harðgerður og lifir af ferðina frá munni og niður í ristil. Hann eflir vöxt a- og b-gerlanna og stuðlar að heilbrigðri meltingu, á að efla ónæmiskerfí líkam- ans í görninni og koma jafn- vægi á gerlaflóru okkar,“ seg- ir Birgit. „Ab mjólkin flokkast einnig sem markfæða en i þeirri vöru er lögð ríkari áhersla á hefðbundið næring- argildi en í LGG+.“ Fyrst á markað í Finnlandi Birgit segist hafa fylgst með þessari markfæðu um skeið. Hún var fyrst sett á markað í Finnlandi árið 1990 og síðan hafa ýmis lönd fylgt eftir eins og Noregur, Sviss, Þýskaland, Holland, Belgía og Bretland. Birgit segir að LGG+ kunni að fyrirbyggja sýkingu í meltingarvegi, koma í veg fyrir meltingartruflanir á ferðalögum og styrkja ónæmiskerfið. Rannsóknir benda til að LGG gerillinn geti fyr- irbyggt eða dregið úr bólgubreyt- ingum í meltingarvegi. Þá kann af- urðin einnig að virka gegn hægða- tregðu. Nýtt Fjórar kaffitegundir NÝLEGA var byrjað að selja fjórar nýjar kaffitegundir hjá Kaffi Puccini við Vitastíginn. í fréttatilkynningu frá Kaffi Puccini kemur fram að um er að ræða Guatemala Atitlan en það er búið til úr baunum sem eru ræktaðar í þorpinu Atitlan í Guatemala. Þess má geta að af sölu hvers 500 gramma pakka renna 73 krónur til uppbygging- ar í þorpinu. Þá er komið í sölu svokallað ástarkaffi. Um er að ræða blöndu kaffibauna frá Afríku og Indónesíu. Þriðja kaffitegundin er bananakaffi frá Barnie’s sem er blanda af bönunum, karamellu og rommi. Fjórða og síðasta teg- undin er ostakökukaffi. Bakarar í New York unnu við að þróa þá blöndu með sérfræðingum kaffi- fyrirtækisins Barnie’s. Hættuleg efni í mjúkum leikföngum úr plasti MJÚK leikföng sem eru gerð úr PVC plasti innihalda talsvert magn af mýkingarefnum, þar með talin svokölluð tallöt. Þessi efni eru grunuð um að líkja eftir estrógen hormónum og að þau geti dregið úr frjósemi. Einnig er talið að sum þeirra geti valdið krabbameini. Þessi skaðlegu efni geta leyst upp í munnvatni þegar börnin sjúga leikföngin og hafa þessi málefni t.d. verið í umræðunni í sambandi við tannhringi. Þetta kemur fram í nýju tölublaði norska neytenda- blaðsins Forbruker rapporten. Þar er foreldrum ung- barna ráðlagt að kaupa frekar hörð plastleikföng og ti'édót fyrir börn sín og sniðganga mjúk plastleikföng. „Það er verið að skoða mjög gaumgæfilega mýking- arefni í mjúku plasti en ekki er enn farið að banna notkun PVC plasts í leikföng," segir Sigurbjörg Gísla- dóttir forstöðumaður eiturefnasviðs hjá Hollustuvernd ríkisins. „Margt bendir þó til að takmörkuð verði notkun mjúkra plastefna í leikföng svo sem naghringi og hringlur fyrir yngstu börnin einkum eftir að fundist hafa á markaði leikföng sem gefa frá sér mikið af þess- um efnum. Þar vegur þungt öryggissjónarmiðið. Hætt- an er fólgin í að börnin stingi þessum hlutum upp í sig og munnvatnið leysi efnin úr plastinu." Rafrænn afsláttur! VAKA-HELGAFELL Forlagsverslun 15% © veitir öllum sem greiða M mc® V,SA krcditkorti w rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt FRIÐINDAKLUBBURINN www.fridindi.is ■ www.visa.is Kynnstu töfrum Suzuki Finndu hve rýmið er gott Baleno Wagon er aflmikill og hagkvæmur í rekstri, hefur einstaklega góða aksturseiginleika og býður upp á allt að 1.377 lítra farangursrýmil SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00 BALENO WAGON GLX: 1.445.000 KR WAGON GLX 4x4: 1.595.000 KR $ SUZUKI ALLIR SUZUKI fiÍLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM. rSUZUKÍ^ AFLOG I ÖRYGGI 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.