Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 25
Willey skýrði frá atvikinu í 40
mínútna viðtali sem sýnt var í
fréttaþætti CBS-sjónvarpsins, „60
mínútum“, á sunnudagskvöld. Hún
kvaðst hafa ákveðið að skýra frá at-
vikinu opinberlega þar sem hún
teldi tímabært að sannleikurinn
kæmi fram. „Eg tel bara að það sé
kominn tími til að segja frá þessu,“
sagði hún. „Of margar lygar hafa
verið sagðar. Líf of margra hefur
verið eyðilagt.“
Willey var spurð hvort Clinton
hefði framið meinsæri þegar hann
neitaði því í eiðsvarinni yfirlýsingu
að hafa áreitt hana kynferðislega og
hún svaraði því játandi.
Clinton undirritaði yfírlýsinguna
17. janúar vegna málshöfðunar
Paulu Jones, sem sakar forsetann
einnig um kynferðislega áreitni.
Hann kvaðst þar hafa hitt Willey í
Hvita húsinu en ekki hafa áreitt
hana kynferðislega. „Ég neita því
eindregið," sagði hann. „Það gerðist
ekki.“
Trúverðugasta vitnið
Willey bar vitni í vikunni sem leið
fyrir kviðdómi, sem á að skera úr
um hvort ákæra verði heimiluð
vegna rannsóknar Kenneths Starrs
saksóknara á ásökunum um að
Clinton eða bandamenn hans hafi
reynt að hindra framgang réttvís-
innar.
Willey er álitin trúverðugra vitni
en hinar konurnar sem Clinton er
sakaður um að hafa verið í tygjum
við eða áreitt kynferðislega. Hún er
dyggur stuðningsmaður demókrata
og því er ekki hægt að saka hana um
aðild að „samsæri hægrimanna"
eins og Paula Jones og fleiri konur,
sem tengjast málum Clintons, hafa
verið sakaðar um.
Þar sem Willey dró það í fjögur ár
að skýra frá atvikinu virðist hún ekki
vilja nota það sér til framdráttar.
„Forsetinn veit ekki sitt rjúkandi
ráð,“ sagði Robert Bennet, lögfræð-
ingur Clintons. „Honum er fyi'ir-
munað að skilja hvers vegna þessu
er haldið fram.“
Bennet viðurkenndi að ekki væri
hægt að bendla Willey við „haturs-
menn Clintons“ en bætti við að enn
hefðu ekki verið birtar mikilvægar
upplýsingar um vitnisburð hennar
og þær myndu grafa verulega undan
trúverðugleika hennar. Hann vildi
þó ekki greina nánar frá þessum
upplýsingum.
Willey bar einnig vitni í máli
Paulu Jones íyrir tveimur mánuðum
en virtist þá treg tO að skýra frá at-
vikinu í smáatriðum. Frásögn henn-
ar í sjónvarpsviðtalinu á sunnudags-
kvöld var mun skýi’ari og hún sakaði
forsetann um að hafa þuklað á
brjóstum hennar og lagt hönd henn-
ar að kynfærum hans.
Beitti Landow þrýstingi?
Willey sagði að Nathan Landow,
auðugur bandamaður Clintons, hefði
rætt mjög „ítarlega" við hana um
vitnisburðinn en vildi ekki skýra
frekar frá samtölum þeirra, kvaðst
ekki geta þáð vegna rannsóknar St-
arrs, sem er að kanna hvort reynt
hafi verið að knýja hana til að bera
ljúgvitni. Landow hefur neitað því
að hafa reynt að hafa áhrif á vitnis-
burð hennar.
Willey hélt því ennfremur fram í
íyrsta sinn að Clinton hefði reynt að
fá hana á stefnumót í kosningabar-
áttunni árið 1992. Clinton hafði séð
hana á kosningafundi og beðið að-
stoðarmann sinn að fá; símanúmer
hennar. Hann var hás þegar hann
hringdi og hún kvaðst hafa ráðlagt
honum í gríni að borða kjúklinga-
súpu. Hann hefði þá spurt hvort hún
vildi færa honum súpu og ságst ætla
að losa sig við lífverði sína ef hún
kæmi. Hún kvaðst hafa afþakkað
boðið. „Ég fann það á mér að hann
hefði ekki áhuga á kjúklingasúpu,“
sagði hún.
Bandarískar kvenréttindahreyf-
ingar hafa hingað til verið tregar til
að gagnrýna Clinton vegna ásakan-
anna á hendur honum en afstaða
þeitTa hefur breyst eftir sjónvarps-
viðtalið. „Þetta er ekki aðeins kyn-
ferðisleg áreitni. Ef þetta er rétt er
þetta kynferðisleg árás,“ sagði Pat-
ricia Ireland, forseti Landssamtaka
bandarískra kvenna.
Orrin G. Hatch, formaður laga-
nefndar öldungadeildar Bandaríkja-
þings, sagði í viðtali við CNN-sjón-
varpið að ef ásakanir Willey væru
réttar teldi hann að Clinton væri bú-
inn að vera sem forseti.
Kveðst aðeins hafa
viljað hugga hana
Willey kvaðst hafa farið á skrif-
stofu Clintons til að skýra honum
frá vandræðum sínum og óska eftir
launuðu starfi. Forsetinn hefði boðið
henni hressingu og þau hefðu farið í
lítið eldhús til að ná í kaffi.
„Hann sagðist ætla að gera allt
sem hann gæti til að hjálpa mér,“
sagði Willey. Þegar þau gengu að
skrifstofu forsetans nam hann stað-
ar og faðmaði Willey að sér. „Hann
sagði að sér þætti mjög miður að
þetta hefði komið fyrir mig,“ sagði
hún.
Þetta er í samræmi við eiðsvarna
yfirlýsingu Clintons, sem kvaðst
hafa faðmað Willey og ef til vill
kysst hana á ennið til að reyna að
hugga hana. „Það var ekkert kyn-
ferðislegt við þetta,“ bætti hann við.
Willey sagði hins vegar að forset-
inn hefði síðan kysst hana, dregið
hana að sér, þuklað brjóst hennar og
hvíslað: „Þetta hef ég viljað gera síð-
an ég sá þig fyrst.“
Hún kvaðst hafa orðið reið og
hissa á athæfi forsetans, einkum
vegna þess að starfsfólk Hvíta húss-
ins hefði verið nálægt skrifstofunni.
„Mér fannst þessi bíræfni ótrúleg,"
sagði hún.
Atvikið kom fyrst fram í fjölmiðl-
unum síðastliðið sumar eftir að lög-
fræðingar Paulu Jones komust á
snoðir um það og skýrðu
Newsweek frá því. Linda Tripp
kvaðst í samtalið við blaðamann
Newsweek hafa hitt Willey eftir at-
vikið, en hún starfaði í Hvita húsinu
Willey var
meðal þeirra
fyrstu sem
gekk til liðs
við forseta-
framboð
Clintons
á þessum tíma og afhenti síðar
Starr upptökur af samtölum sínum
við Monicu Lewinsky, sem er sögð
hafa átt í kynferðislegu sambandi
við Clinton.
Tripp sagði að Willey hefði virst
„kát“ þegar hún sagði henni frá at-
vikinu en Willey kvaðst telja að
Tripp hefði dregið ranga ályktun af
orðum sínum. „Ég tel að þegar ég
sagði: „þú munt ekki trúa þessum",
þá hafi hún ef til vill tekið því sem
kátínu.“
Tripp og Willey höfðu verið vin-
konur en eftir atvikið fékk Willey
launað starf á lögfræðistofu Hvíta
hússins, en Tripp fékk nýtt starf í
varnarmálaráðuneytinu þótt hún
hefði viljað vera áfram í Hvíta hús-
inu. Tripp ræddi þetta við hana og
sagðist telja að hún hefði misst
starfið í Hvíta húsinu vegna þess að
hún vissi um atvikið.
„Hún var mjög reið. Mjög æst.
Mjög bitur,“ sagði Willey. „Og hún
lauk samtalinu með því að segja: „ég
skal ná mér niðri á þér og öllum öðr-
um á þessum stað áður en þessu lýk-
ur“.
Willey andmælti einnig vinkonu
sinni, Julie Hiatt Steele, sem sagði
blaðamanni Newsweek að Willey
hefði sagt henni frá atvikinu kvöldið
eftir. Seinna dró Steele þetta til
baka og sagði í eiðsvarinni yfirlýs-
ingu að Willey hefði beðið hana um
að ljúga þessu að blaðamanninum.
Willey kvaðst telja að Steele hefði
verið „beitt þrýstingi" til að breyta
frásögn sinni. „Starfsmenn Hvíta
hússins vildu reyna að gera mig tor-
tryggilega," sagði hún, „og hún er
peð í höndum þeirra.“
VlÐSKIPTAHÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
óskar eftir að ráða lektora í fullt starf og stundakennara til kennslu í Við-
skiptadeild og Tölvufræðideild skólans. Kennslan hefst í nýju húsi þann 1.
september 1998 og byggist á fyrirlestrum og hagnýtum verkefnum þar
sem lögð er áhersla á bein tengsl við atvinnulífið. Tölvuháskóli VÍ (TVI)
verður að Tölvufræðideild Viðskiptaháskólans.
speiuaiaiudi Kennari við Viðskiptaháskólann ( Reykjavík í fullu starfi eða meðfram
uppBYGGiNGAR- starj:j S|'nu j atvjnnyiffjnu tekur þátt í spennandi uppbyggingarstarfi í afar
vel búnum skóla sem leggur áherslu á að kenna það sem er hagnýtast
hverju sinni með skilvirkum kennsluaðferðum.
STUNDAKEIUNARAR
í VtÐSKIPTADEILD
lektoraroc Viðskipanámið er 3ja ára B.S. nám og verða alls um 500 nemendur í
báðum deildum skólans. Jafnframt verður nemendum boðið að Ijúka
námi með diploma að loknum fyrstu tveimur árunum. Nemendum verður
gefinn kostur á að sérhæfa sig á einu af eftirfarandi þremur kennslusvið-
um í Viðskiptadeild:
I Markadsfrædi og alþjódaviðskipti
I Rekstur og reikningshald
Stjórnun og starfsmannahald
Námsskeið 1. árs eru sameiginleg fyrir nemendur allra kennslusviða í Við-
skiptadeild og verða eftirfarandi:
NAIVISSKEID T. ARS
[ Markaðsfræðil;
I Fjármál I
Hagfræði
I Fjárhagsbókhald
I Hagnýt stærðfræði
2. OIUIU
I Stjórnun I
B Lögfræði og umhverfi fyrirtækja j
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja I
I Rekstursbókhald
I Upplýsingatækni j
lektorarog í Tölvufræðideild er boðið upp á tveggja ára nám í kerfisfræði og auk
i^TöiAaiERÆÐiDEiLD þess verður nú bætt við þriðja árinu til B.S. prófs í tölvufræði. Námsgrein-
ar í tölvufræði eru eftirfarandi og þarf nokkra kennara til þess að annast
kennslu í þeim:
KERFISFRÆDI
F
| Forritun I
I Viðmótshönnun
Tölvur, stýrikerfi og net
I Kerfisgreining
I Verklegt námskeið
3. oiuiu
Gagnaskipan og reiknirit
| Gluggakerfi II j
Hugbúnaðarfræði
I Tölvusamskipti
Iverklegt námskeið
2. OIUIU
IForritun II
I Gagnasafnsfræði I
Skipulag og notkun upplýsinga
| Gluggakerfi I
I Verklegt námskeið
4. ÖIUIU
I Uppsetning og rekstur vélbúnaðar j
I Rekstur upplýsingakerfa |
Fjölnotendaumhverfí
Lp—r——--------—
| Lokaverkefni
B.S. í TÖLVUFRÆOI
F
| Stærðfræði I
I Forritunarmál
Gagnasafnsfræði II
| Gluggakerfi III
I Kerfisforritun
6. OIUIU
I Stærðfræði II
■ Tölvugrafík
Þýðendur
[Valin efnij
I Lokaritgerð
frágangur Með umsókn skal senda afrit af prófskírteinum. Þá skal senda skýrslu um
umsóka |<enns|ureyns|Ui hagnýta starfsreynslu, rannsóknir, stjórnunarreynslu, og
annað sem getur skipt máli. Krafist er a.m.k. meistaraprófs, eða
jafngildrar þekkingar og reynslu. Þá skal koma fram í umsókn við hver
ofangreindra námskeiða í Viðskiptadeild (eitt eða fleiri) umsækjandi vill
kenna. Hlutfall kennslu- og rannsóknarskyldu lektora er samningsatriði.
launakíör Laun verða samkvæmt samkomulagi.
umsóknar- Umsóknarfrestur rennur út þann 1. apríl n.k.
FRESTUR
Umsóknir skal senda til Þorláks Karlssonar, Viðskiptadeild, sem veitir
einnig frekari upplýsingar í síma 568 8400 (netfang thorlakur@tvi.is) og
Nikulásar Hall, Tölvufræðideild, sem veitir einnig frekari upplýsingar i
síma 568 8400 (netfang nick@tvi.is).
VlÐSKIPTAHÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
Ofanleiti 1-103 Reykjavík