Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 27 Ur fórum Karls Isfelds BÆKUR L j ó ð a b ó k KARL ÍSFELD: KVÆÐI Utg.: Thorarensen lyf ehf., 1997, 48 bls. Framangreindur útgefandi hefur tekið upp þann góða sið að gefa út ljóðakver á jólum og senda sem kveðju til þeirra heilbrigðisstétta sem mest er skipt við. Að þessu sinni urðu fyrir valinu áður óbirt kvæði eftir Karl Isfeld, sem Magnús Oskarsson hafði undir höndum. Karl Isfeld var kunnur vel á sinni tíð og enn minnast margir hans, a.m.k. af eldri kynslóðinni. Hann gat sér orð sem snilldarþýðandi bæði á bundið mál og laust. Kunnastar munu vera þýðingar hans á ævintýri góða dátans Svejk og á Kalevala- kvæðunum. Karl var gott ljóðskáld, þó að ekki kæmi frá honum nema ein bók ljóða, Svartar morgunfrúr, 1946. Karl fædist árið 1906 og lést árið 1960. Sú litla kvæðabók sem nú er prentuð er með nokkuð sérstökum hætti. Þar eru átján frumort smákvæði um fulltrúa jafnmargra starfsgreina eða atferlis og tvö kvæði eru svo annars eðlis. Kvæðin átján eru eins konar gamankvæði, en oft er nokkur broddur í þeim og jafnan einnig lífs- speki. Bragleikni sú sem Karl var kunnur fyrir leynir sér ekki, þó að hann notist við létta hætti. Sem sýnishorn af þessum kvæð- um skulu tilgreind þrjú niðurlagser- indi. Ritdómarinn: Og í mínu vinsæla verki er ég hvorki veill eða hálfur. Eg níði það allt sem ég girntist að gera, en gat ekki sjálfur. Tannlæknir: Sá hlálegi grunm- í hug minn læðist í húmi nætur, í dagsins önn: Að heimurinn sé í hnattanna keríi sem holufylling í skemmdri tönn. Skáld: Þó stæði ég oft í stímabraki við stuðlasetning og þess lags kíf, sú raunin alltaf mér reyndist hörðust að ríma saman mitt eigið líf. Þetta htla kver er Karl ísfeld. einkar smekklega útgef- ið. Ljósprentun er af tit- ilsíðu hinnar gömlu ijóðabókar Karls og á tveimur síðum er ljósprentuð ein kvæðaþýðing úr þeirri bók, Vögguvísa í skammdeginu eftir Nordahl Grieg. Sú þýðing er einkar falleg og hugljúf. Eg hygg að þeim sem þessa jóla- gjöf fengu hafí þótt gjöfin góð og muni geyma þessa kvers vel. Sigurjón Bjömsson íslensk kórtónlist vek- ur athygli í dagskrá BBC DAGSKRÁRGERÐARMENN frá BBC í Bretlandi komu hingað til lands í janúar sl. til að gera dagskrá um íslenska kórtónlist. Af því tilefni ræddu þeir við fjölda íslenskra tón- listarmanna og aðstoðaði íslensk tónverkamiðstöð BBC við dagskrár- gerðina. í þættinum Choir Works, á rás 3 hjá BBC, hljómaði svo íslensk tónlist í tveggja tíma löngum þætti sem var á dagskrá sunnudagskvöldið 1. febr- úar. í þættinum var rakin þróun söngsins, allt frá rímnakveðskap og tvísöng til söngs blandaðra íslenskra kóra í dag, og hafa viðbrögð hlust- enda verið mjög góð og hafa dag- skrárgerðarmenn BBC fengið fjölda fyrirspurna um íslenska kórtónlist. Einnig hafa hlustendur á Bret- landseyjum og víðar skrifað til Tón- verkamiðstöðvarinnar og lýst há- stemmdum orðum fegurð íslensks kórsöngs. Ánægðir hlustendur Hlustandi í Vigo á Spáni skrifar, að hann hafi aldrei heyrt aðra eins tónlist, svo margþætta en um leið einfalda t og ríka af tilfínningum. Annar hlustandi í Hampshire leitar eftir aðstoð við útvegun tónlistar, sem geti aftur leitt hann í hæstu hæðir og kórstjóri í Edinborg segist hafa hlustað á þætti Jeremy Summ- erlys um kóratónlist frá norðrinu og hafi mörg íslenzku laganna hrifið hann sérstaklega. Oxford Camerata með íslenzk kórverk I kjölfar þáttarins mun íslensk kórtónlist hljóma víðar á næstunni, meðal annars á Kirkjutónlistarhátíð- inni í Edington í ágúst, þar sem Ox- ford Camerata mun m.a. flytja verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Þorkel Sigurbjörnsson. BBC3 mun útvarpa frá hátíðinni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Tón- verkamiðstöðinni. Viltu fræðast um bahá'í trú? Heimasíöa íslenska bahá'í samfélagsins er: www.itn.is/bahai | og heimasíða Alþjóðlega bahá'í samfélagsins er: lass í Linsunni starfar sérmenntaö fðlk sem veitir þér faglega ráögjöf og þjónustu viö val á réttum linsum. Augun þin eiga þaö skiliö aö þú gerir kröfur. UN5AN Aðalslraeti 9 slmi 551 5055 Morgunblaðið/ Þorkell ÞORSTEINN frá Hamri heilsar einuni afmælisgesta, Guðrúnu Ás- mundsdóttur leikkonu og leikritahöfundi. Afmæli Þorsteins frá Hamri BÓKAÚTGÁFAN Iðunn bauð á sunnudaginn, 15. mars, til af- mælishófs á Hótel JBorg í til- efni af sextugsafmæli Þor- steins skáids frá Hamri. Fjöl- menni var í hófinu og margar ræður fluttar skáldinu til heið- urs. -----------1------------------- FaUeg oggagnleg fermingargjöf Ensk-íslensk orðabók 34.000 ensk uppflettiorð Fæst hjá öllum bóksölum íslensk-ensk orðabók 35.000 íslensk uppflettiorð 2.200 blaðsíður Saman í fallegri gjafaöskju á aðeins kr. 3.990 Gagnleg og glæsileg fermingargjöf, sem nýtist vel í nútíð og framtíð Orðabókaútgáfan alla ævi! ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.