Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 31

Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 31 Ferð um víðerni fegurðarinnar TÖJVLIST Kirkjuhvoll LJÓÐATÓNLEIKAR Rannveig Fríða Bragadóttir og Gerrit Schuil fluttu söngverk eftir Schumann, Mahler, Grieg og Sibelius. Laugardaginn 14. mars 1998. AÐ syngja litla vögguvísu eða tónverk, þar sem mannleg átök rísa hátt, er samstofna á þann máta, að í lagtónun söngvarans þurfa að birt- ast öll tilfinningablæbrigði textans og það sama gildir um píanóleikinn, því þótt tónar píanósins hafi ekki orðlega merkingu er í þá ofinn sami skilningur tilfinningalegrar upplif- unar og býr í textanum. Sem listamaður er Rannveig Fríða Bragadóttir að nálgast það svið töfranna, þar sem kunnátta og listfengi hverfast saman í eitt. Þá var hljóðumhverfi það er Gerrit Schuil léði söngverkunum einnig magnað sérstæðri samtvinnun leikni og skilnings, þannig að í heild voru tónleikarnir gæddir því list- fengi, er gerir þá að miklum listvið- burði. I lagaflokknum Frauenliebe und Leben eftir Schumann er að finna undurfagra tónlist, er tengist inni- legu efni ljóðanna eftir Chamissons með svo einstæðum hætti, að tísku- bundin afstaða til ástarinnar nær ekki að hindra fólk í að upplifa hnf- andi fegurð þessa listaverks. Öll átta Ijóðin voru mjög vel flutt og til að nefna eitthvert sérstaklega var sérlega skemmtilegt samspilið eða samtal píanós og söngraddar í fyrsta ljóðinu, Seit ich ihn gesehen, sem er fagnaðaróður til ástarinnar. Næstu tvö ljóðin fjalla einnig um aðdáun konunnar á ástvini sínum er rís hæst er hann biður hennar, þar sem sterkar andstæður tilfinning- anna birtast og flytjendur náðu að túlka með einstæðum hætti. Eitt sérstæðasta lagið í þessum flokki er Du Ring an meine Finger, sem var sérlega innilega flutt, og þar gat að heyra eftirspil, sem Schumann fullkomnaði lögin oft- lega með og var sérlega fallega mótað, sem og öll eftirspil laga- flokksins og þá sérstaklega niður- lagið. Gifting var á þessum tíma mikið mál og kvíðinn gagnvart hinu ókomna var sérlega glæsilega túlk- aður í Helft mir, ihr Swestern. Hamingjan er oft hljóðlát og við vöggu barnsins, sem enn er tóm, má ei segja neitt óvarlegt en í næsta lagi brýst gleðin út í ástríðu- fullum fögnuði, en þá einmitt kem- ur Dauðinn með sorgina og þar gat í lokalagi Ijóðaflokksins að heyra áhrifamikla túlkun beggja. Flutn- ingur Rannveigar Fríðu og Gerrits á þessu sérstæða listaverki Schumanns var sannarlega mikill listviðburður. Fjögur lög úr Des Knaben Wund- erhorn eftir Mahler voru sérlega fallega flutt en tónmál söngvanna er einmitt laust við hina rómantísku skrúðmælgi. Þetta er einföld og tær tónlist, sem flytjendur náðu að túlka með einstæðum hætti, sér- staklega í síðasta laginu, Wo die schönen Trompeten blasen, sem er ótrúlega margslungið tónverk, þrátt fyrir einfaldan rithátt. Lagið er byggt á þremur myndum; er svipur hins látna hermanns vitjar elskunn- ar sinnar, gráti hennar og svo hugg- unarorðum hermannsins er þarf að halda þangað sem heyra má fagran hljóm trompetanna og gröf hans er. Hann lofar henni að koma aftur að ári og þá verði hún hans. Þetta und- arlega tónverk var í raun einn af há- punktunum á þessum annars af- burðagóðu tónleikum. Lagaflokkurinn Haugtussan eftir Garborg og Grieg er ekta rómantík, ekki eins innhverf og hjá Schumann og Mahler, heldur nær myndrænni túlkun á náttúrunni og á köflum svipuð franskri myndtúlkun, enda sóttu frönsku tónskáldin margt í tónmál Griegs, sérstaklega varð- andi útfærslu hljóma. Tónmálið allt er mettað ferskleika fjallanna, er flytjendur náðu að túlka einstaklega vel. Þá ekki síður leikinn í Bláber-Li og Killingdans og dapurleikann í Möte, Elsk og Vond dag. í lokin er leitað huggunar í fegurð náttúrunn- ar í laginu Ved Gjætle-bekken. Öll þessi litbrigði tilfinninga og mynda voru sérlega glæsilega mótuð og eins og fyrr segir mettuð feskleika náttúrunnar. Annar norrænn meistari söng- lagsins var Sibelius og eftir hann fluttu listamennimir fjögur lög, Demanten pá marssnon, Den första kyssen, meistaraverkið Flickan kom ifrán sin álsklings möte, sem var ótrúlega glæsilega flutt, og tón- leikunum lauk svo með Var det en dröm. Það þarf ekki að segja meira um þessa tónleika en að þeir voru í heild mikill listviðburður og í Rann- veigu Fríðu eigum við frábæran listamann. Slíkt samspil sem heyra má hjá henni og Gerrit Schuil er að sjálfsögðu einstæður viðburður, því tvístirni eins og hér um ræðir á ekki oft samleið á ferð sinni um víðemi fegurðarinnar. Jón Ásgeirsson Nýjar geislaplötur TRYGGVI Hiibner, Torfí Ólafsson, Þórir Ulfarsson og Martial Nardeau flytja tónlist- ina á hljómplötunni Islandstónar II. • ÍSLANDSTÓNARII er leikin tónlist (instru- mental) í útsetningu iyrir panflautu, flautu og gítar. Flytjendur eru Martial Nardeau flauta, Tryggvi Hiibner gítar og um annan hljóðfæra- leik sér Þórir Úlfarsson, leikur m.a. á „sampl- aða“, hljóðritaða pan- flautu sem gefur tónlist- inni sérstakan blæ. A plötunni eru fjögur lög eftir útgefandann Torfa Ólafsson; Vorljóð, Islandsbarn, Vor og Hús við Hávallagötu. Auk þess er Dagný, eft- ir Sigfús Halldórsson; Skýið, eftir Björgvin Halldórsson; Erla, eftir Pétur Sigurðsson; Draumalandið, eftir Sigfús Einarsson; í fjarlægð, eftir Karl 0. Runólfsson; Þú átt mig eina, efth- Magnús Þór Sig- mundsson og Söknuður, eftir Jó- hann Helgason. Torfi Ólafsson hefur sent frá sér hljómplötur með lögum við ljóð margra skálda, m.a. Kvöldvísur (1980), en á þeirri plötu eru ein- göngu ljóð eftir Stein Steinárr. Aðr- ar plötur em Nóttin flýgur (1987); Aldarminning Daviðs Stefánssonar (1995); Jólahátíð (1996); íslandstón- ai' I (1996) og síðast Poems and melodies from Iceland (1997). Dreifingarðili er Spor hf. Verð 1.599 kr. A opinni æfingu KÓR Langholtskirkju, ásamt kóræfingar í Kringlunni í síðustu Bach sem flutt verður í dymbil- Gradualekór Langholtskirkju, viku, en kórinn æfir nú viku. Stjórnandi kórsins er Jón buðu almenningi til opinnar Mattheusarpassíuna eftir J.S. Stefánsson. Látið gleðiópið gjalla TOJVLIST Hljómdiskar GLEÐIFRÉTTIR Litlir lærisveinar Landakirkju. Lög og textar: Helga Jónsdóttir. Strengjaútsetning og hljóðfæraleikur Sigurður Rúnar Jónsson. S.RJ.: pan- flauta, ásláttarhljóðfæri, harmonika, Hammond orgel, fiðla, mandolín, hljómborð og útsetti fyrir þessi hljóð- færi. mjóðfæraleikarar: Arnór Her- mannsson gítar, Högni Hilmisson bassi, Brynjólfur Snorrason tromm- ur, Guðni Fransson klarinett, Tatu Kantomaa harmonika. Söngur: Litlir lærisveinar Landakirkju, stjómandi Helga Jónsdóttir. Einsöngur Orri Amórsson og Sæbjörg Helgadóttir. Upptökur hófust í Landakirkju, Vest- maimaeyjum. Upptökumaður í Vest- mannaeyjum: Sveinn Hauksson. Upp- tökum fram haldið í Stúdíó Stemmu. Upptökumaður: Sigurður Rúnar Jónsson. Hljóðblöndun í Stúdíó Stemmu: S.R.J. Utsetning: Helga Jónsdóttir og Araór Hermannsson. Framleiðandi: Landakirkja, Vest- mannaeyjum. SÓKNARNEFND Landakh-kju í Vestmannaeyjum hefur gefið út bráð- fjörugan geisladisk með lögum fyrir sunnudagsskóla bama, en lögin eru flutt af bamakór Landakirkju sem heitir Litlir lærisveinar og er Helga Jónsdóttir stjómandi kórsins, en hún hefur einnig samið lögin og textana sem ég kann nú ekki alveg að skil- greina eða þannig, sbr. „Skúbbiddí, dúbeddí dú ég á trú“ - heyrist reynd- ar hljóma á diskinum „skúbbídúbbídú Jesús!“, en það má einu gilda þegar sungið er af krafti, gleði og trúar- trausti með ýmsum skemmtilegum uppákomum, svosem „gúbeddí- gúbbeddígúbb-takti í tútú tútú himna- lestin kemur, kemur“ svo dæmi sé tekið, eða „Hann (Nói) fór að smíða glakk glakk“ o.s.frv. Fjömgasta lagið af öllum er Gleðifréttir („Eg gekk til grafar, hún var auð og tóm, ég gat ei lengur fundið hann þar. Jesús lifir, Jesús er upprisinn. Hósanna dýrð sé Guði, syngjum Hallelúja" o.s.frv.). Enda þótt þetta láti svolítið einkenni- lega í eymrn venjulegs lútersks synd- ai'a er ekki annað hægt en að hrífast af þessum yndislega flutningi krakk- anna sem geislar af sönggleði, trúar- trausti og einlægni hjartans. Stjóm- andinn og höfundur texta og laga á mikinn heiður skilið, hér era sannai'- lega engin vettlingatök á hlutunum! Það eiga Iíka aðrir sem að þessum skemmtilega og fallega hljómdiski standa, en þó enginn meir en Sigurð- ur þúsundþjalasmiður Rúnar. Þetta er hljómdiskur sem aðstand- endur geta verið stoltir af. Oddur Björnsson HONDA Verð á götuna: 1.295.000,- Aðrar vélarstærðir einnig á lager, viðbótarbúnaður tilgreindur: Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri nnitaiið í verði bíisins. M400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun ► Loftpúðar fyrir ökumann og farþega ► Rafdrifnar rúður og speglar IVindskeið með bremsuljósi tútvarp og kassettutæki Mfonda teppasett M4" dekk kSamlæsingar kABS bremsukerfi iRyðvörn og skráning Honda Civicl.6 VTiVTEC ■ Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1 Honda Civic 1.4 Si 1.890.000,- 160 hestöfl 1.490.000,- 115 hestöfl 1.375.000,- 90 hestöfl 15" álfelgur Rafdrifin sóltúga 6 hátalarar Sportinnrétting Leöurstýri og leðurgírhnúður Fjarstýðar samlæsingar Höfuðpúðar aftan 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- HONDA Sími: 520 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.