Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.03.1998, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Um Hollý- vúddveldið / „I ævintýrum er sífellt verið að segja og fella saman nýjar sögur úr endur- nýttu efni sem má kljúfa niður í for- múlur og frásagnarliði" ILOK Títanikmyndar James Camerons er kjarninn í inntaki Hollý- vúddframleiðslunnar á þessari öld dreginn saman í eina senu; gamla konan, sem misst hafði manninn sem hún elskaði í sjóinn 14. apríl 1912, kastar sínu dýrasta djásni í haf- djúpið og sameinast ást sinni aftur og um alla eilífð á tákn- rænan hátt. Hér fær ævintýrið um kostum prýdda kotungs- strákinn sem VIÐHORF eftir Þröst Helgason sigraði hjarta fallegu prinsessunnar loks sinn óum- flýjanlega farsæla endi; við áhorfendur höfum séð enn eitt ævintýrið renna yfír tjaldið og göngum út í nóttina með gleði endaloka þess i hjarta og fullviss um að hamingjan rati einn dag- inn til okkar - hvemig sem allt veltur. Hollývúddmyndir eru ævin- týri nútímans. Ef við skoðum skilgreiningu bókmenntafræð- inga á frásagnarmynstri ævin- týra kemur í ljós að hún gæti allt eins átt við bróðurpartinn af þeim kvikmyndum sem fram- leiddar hafa verið í drauma- smiðjunni svokölluðu á þessari öld: „... í ævintýrum er sífellt verið að segja og fella saman nýjar sögur úr endurnýttu efni sem má kljúfa niður í formúlur og frásagnarliði. Þar takast á góð og ill öfl; mannúð, örlæti, ást, tryggð og vinátta, gegn tröllskap, græðgi, hatri, öfund og afbrýði. Þær persónur sem iðka dyggðirnar sigra álög og galdra hinna illu sem fá ævin- lega makleg málagjöld að sögu- lokum“ (Gísli Sigurðsson: ís- lensk bókmenntasaga III, MM 1996). Umfjöllunarefnið er klassísk átök góðs og ills og kjarninn í boðskapnum er sigur hins góða; í Títanik Camerons er það sigur vináttunnar, tryggðarinnar og umfram allt ástarinnar á kostn- að græðginnar. Gæti verið að sami galdur lægi á bak við Hollývúddveldið á tuttugustu öld og margra alda vinsældir ævintýranna? Skyldi það vera þessi æpandi einfald- leiki sem dregur fólk í bíó hvað eftir annað að horfa á Hollý- vúddmyndir? Þráum við ekki þetta öryggi einfaldleikans rétt eins og þörnin sem vilja heyra sömu söguna aftur og aftur vegna þess að þau vita hvemig hún endar? Hvers vegna ætti annars evrópsk sögu- og menn- ingarþjóð eins og Islendingar að vilja horfa á fjöldaframleidda endurtekningu frá Hollývúdd ár eftir ár? Samkvæmt því sem banda- ríski sagnfræðiprófessorinn Richard Pells segir í bók sinni, Not Like Us (BasicBooks 1997), hafa kvikmyndagerðarmenn í Hollývúdd markvisst reynt að laga myndir sínar að alþjóðleg- um smekk. Af ýmsum ástæðum - meðal annars vegna tilkomu sjónvarpsins, mikillar verðbólgu og sífellt meiri kostnaðar við gerð bíómynda - neyddust framleiðendur í Hollývúdd til þess að sækja inn á Evrópu- markað á fimmta áratugnum. Þeir leituðu aðstoðar ríkisins - sem var raunar ekkert nýtt því bandaríska ríkið hafði allt frá öndverðri öldinni litið á kvik- myndir sem góða leið til að aug- lýsa bandaríska lifnaðarhætti, lífsgildi og framleiðslu - og ákveðið var að hefja markvissan útflutning á bandarískum kvik- myndum - og þar með lífsstíl - til Evrópu. Kvikmyndafyrirtæk- in stofnuðu útflutningssamband sem með fulltingi Bandaríkja- stjórnar ýmist samdi við eða beinlínis þvingaði evrópsk ríki til að létta öllum hömlum af inn- flutningi og sýningum á banda- rískum kvikmyndum. Þær Evr- ópuþjóðir sem þáðu Marshall- aðstoð gerðu það til að mynda með því skilyrði að innflutning- ur á bandarískum kvikmyndum yrði óheftur. I stað aðstoðar sinnar ætlaðist bandaríska ríkið til þess að myndirnar endur- spegluðu þjóðfélagið á jákvæðan hátt en framleiðendur fóru þó ekki alltaf eftir því. Evrópuþjóðir reyndu að bregðast við með því að setja kvóta, segir Pells, en með litlum árangri; þegar árið 1951 voru 61% allra mynda sem sýndar voru í vestur-evrópskum kvik- myndahúsum bandarískar; árið 1995 var hlutfallið orðið 81%. Pells segir ástæðuna fyrir þess- um yfirburðum fyrst og fremst vera þá að Hollývúdd hefur pen- ingana og tækniþekkinguna til að færa dagdrauma Stevens Spielbergs og hans líka upp á hvíta tjaldið. Og svo eru það einmitt þessir dagdraumar, seg- ir Pells, draumar og fantasíur bemskunnar sem gert hafa Hollývúddmyndirnar svo vin- sælar en ekki endilega löngunin til að brjóta á bak aftur menn- ingu annarra þjóða eða þær himinháu upphæðir sem lagðar eru í markaðssetninguna. Kvik- myndaframleiðendurnir í Hollý- vúdd hafa einfaldllega haft næmara skyn á hvað áhorfendur vilja sjá í bíó, að mati Pells. Hvað sem öðru líður þá eiga þessar skýringar á ótrúlegum vinsældum Hollývúddmyndanna að minnsta kosti við Títanik Camerons; myndin endurnýtir ævintýrið um ást í meinum, ást- ina sem sigrar græðgi og dauða ,markaðslega byggir hún á traustum sögulegum giunni, hún er dýrasta mynd sem gerð hefur verið og hún uppfyllir örugglega alla dagdrauma leikstjórans, Camerons. En suma leyndar- dóma Hollývúdds er erfiðara að skýra. Hvað veldur því til dæmis að ein mynd slær í gegn þegar önnur - sem virðist eiga sömu möguleika - kolfellur á sama tíma? Hollývúddframleiðendurn- ir sjálfir hafa engin svör við þessari ráðgátu en handritshöf- undurinn William Goldman komst kannski að kjarna hennar - og Hollývúdds yfirleitt - þegar hann sagði í æviminningum sín- um, Adventures in the Screen Trade, að í Hollývúdd vissi eng- inn neitt; þegar kæmi að því að ákveða hvaða mynd ætti að gera og hverja ekki væri aðeins eitt lögmál í gildi: „Nobody knows anything." AÐSENDAR GREINAR Lækkun aldursmarks til áfengiskaupa eykur unglingadrykkju RANNSOKNIR hafa sýnt, að draga má úr áfengisnotkun og áfengistengdum vanda- málum með 1) tak- mörkun á aðgengi, svo sem framboði og fjölda útsölustaða, opnunar- tíma og hverjum megi selja eða veita áfengi (aldurslágmark), og 2) háu verðlagi. Fræðsla er gagnleg með þessum aðgerðum, svo að fólk skfiji betur nauðsyn þeirra, en hefur tak- markað gagn ein sér án takmörkunar á aðgengi, eins og t.d. með þvi að ákveða í lögum að ekki megi selja eða af- henda fólki undir 20 ára aldri áfengi. Sú regla hefur gilt hér á landi síðastliðin tæp 3 ár, en áður var lágmarksaldur til að mega kaupa áfengi hér 21 ár eins og nú er í Bandaríkjunum. Nýlega hefur sjálfræðisaldur verið hækkaður í 18 ár. Tilgangur- inn með því var meðal annars að auðvelda meðferð unglinga, sem ratað höfðu í vanda vegna vímu- efnanotkunar, en áreiðanlega ekki að auðvelda unglingum að verða sér úti um áfengi með því að lækka aldursmark til kaupa og neyslu þess. Að bjóða hættunni heim Það er hlálegt að í sömu viku og forseti Islands var að heimsækja meðferðarstofnanir áfengissjúk- linga til þess að kynna sér vímu- efnavandann skuli nokkrir alþing- ismenn ræða um að lækka ald- urslágmark til áfengiskaupa úr 20 í 18 ár. Enn hlálegra er að í frétt um þetta var sagt að Félags- málaráð Reykjavíkur og tveir embættis- menn, sem einnig eiga að stuðla að for- vörnum og hafa eftir- lit með því að lögum sé hlýtt, styðji þessa hugmynd. Meðal þeirra upp- lýsinga sem forsetinn fékk var að 7% karla sem eru 24 ára hafi einhvem tímann ver- ið í meðferð á sjúkra- stöð SÁÁ. Halda þessir alþingismenn og aðrir, að þeim sem þurfa að leita sér aðstoð- ar vegna ofneyslu áfengis muni fækka með þvf að heimila yngra fólki en verið hefur að kaupa áfengi? Og halda þeir að slík lækk- un áfengiskaupaaldurs verði til að minnka unglingadrykkju eða hefta aðgengi unglinga að áfengi? Þvert á móti mun raunin verða sú að yngri börn og unglingar munu eiga léttara með að biðja vini sem em lítið eldri að kaupa fyrir sig áfengi. Því miður sýnir þessi frétt enn einu sinni hve máttur fræðslunnar í vímuefnavörnum er lítill, að jafn- vel þeir sem gerst ættu að vita um hætturnar sem fylgja því að fólk byrji snemma að neyta áfengis skuli ljá máls á slíkum hugmynd- um. Ef til vill þarf að útvíkka for- varnaverkefnið sem heilbrigðis- ráðuneytið samdi nýlega um við SÁA til annarra stjórnsýsluaðila en sveitarfélaga? Einnig væri vafalítið gott að það næði til Fé- lagsmálaráðs Reykjavíkur. Með Raunin verður sú, segir Tómas Heigason, að yngri börn og ungling- ar munu eiga léttara með að biðja vini sem eru lítið eldri að kaupa fyrir sig áfengi. lækkun aldursmarks til áfengis- kaupa er verið að bjóða hættunni heim og aðrar hugmyndir um for- varnir era gerðar ótrúverðugar. Hver verða viðbrögð annarra sem láta sig forvamir varða? Áfengisvarnaráð hefur þegar bmgðist við og varað við hættunni. Væntanlega munu eftirtaldir aðil- ar mótmæla kröftuglega hug- myndum um að lækka lágmarks- aldur til áfengiskaupa í 18 ár: Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁA), Vímu- laus æska, Bamavemdarstofa, Fræðslumiðstöð í fíknivömum, Vímuvarnaskólinn og síðast en ekki síst verkefnisstjórn áætlunar- innar Island án eiturlyfja árið 2002. Lækkun lágmarksaldur til áfengiskaupa í 18 ár er ekki fallin til að hefta aðgengi barna og ung- menna að áfengi eða draga stór- lega úr áfengisnotkun þeirra eins og segir í stefnu ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaks- vörnum í desember 1996. Höfundur er dr. med., prófessor emeritus og fyrrv. forstöðumaður geðdeildar Landspftalans. Tómas Helgason Röng* túlkun ILLUGI Gunnars- son og Orri Hauksson rangtúlka hluta af setningu sem höfð var eftir mér í nýlegu við- tali við Morgunblaðið. Þetta hafa þeir gert í tveimur blaðagreinum. Þeir halda því rang- lega fram að það sem ég sagði styðji pólitísk- an áróður þeirra. Við þetta verður ekki unað. Aðalatriðið er að nú- verandi handhafar kvóta sitja að fiskveiði- arðinum á Islandi eins og flestir vita senni- lega. Ef þeir missa þessa tekjulind sína myndi það skaða þá og þeirra fjölskyldur. Slíkur missir gæti einnig skaðað tiltekna útgerðarbæi ef kvótahafar eru þar búsettir og eyða tekjum sínum í heimabyggð. Þetta er hins vegar einungis hluti af sögunni. Ef tillögur þær, sem við Ingólfur Bender settum fram í skýrslunni sem við gerðum íyrir Samtök iðnaðarins nýverið, kæmu til framkvæmda þá myndi ríkið bjóða kvótahlutdeildirnar út til leigu. Tekjunum væri síðan dreift til ís- lensku þjóðarinnar t.d. í formi lægri skatta eða tilfærslna. Það er ekki endi- lega til hagsbóta íyrir útgerðarbæina að fá núverandi handhöfum kvótahlutdeilda fisk- veiðiarðinn en láta al- menning í staðinn greiða hærri skatta. Ef tillögur okkar kæmu til fram- kvæmda myndu íbúar útgerðar- bæja sem og aðrir íbúar landsins greiða lægri tekjuskatta en nú. Ibúar útgerðarbæja gætu þá einnig fengið í sinn hlut bætur frá ríkinu í einhverju formi. Að öllu samanlögðu gæti vel verið að út- gerðarbæir högnuðust af fram- gangi tillagna okkar. Eg vill ítreka eitt atriði. Sambúð sjávarútvegs, iðnaðar og þjónustu Robert Rowthorn Það er ekki endilega til hagsbóta fyrir út- gerðarbæina, segir Robert Rowthorn, að fá núverandi handhöf- um kvótahlutdeilda fískveiðiarðinn en láta almenning í staðinn greiða hærri skatta. á íslandi hefur verið blómleg. Ég trúi því hins vegar að með tiltekn- um breytingum megi gera þessa sambúð enn blómlegri. Ávinning- urinn mun verða meiri hagvöxtur og bætt lífskjör íslensku þjóðarinn- ar. Til að svara öllum mótbáram Illuga og Orra þyrfti ég að skrifa heila skýrslu. Ég hef annað að gera. Þar fyrir utan liggja bolla- leggingar mínar um íslenska hag- kerfið þegar fyrir í þeini skýrslu sem ég skrifaði með Ingólfi Bend- er. Höfundur er prófessor í hagfræði við Cambridge háskóla í Bretlandi. Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.