Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 50

Morgunblaðið - 17.03.1998, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUGLÝSINGAR Laust starf hjá ríkistollstjóra Embætti ríkistollstjóra auglýsir hér með eftir viðskiptafræðingi af endurskoðunar- og/eða stjórnunarsviði eða manni með hliðstæða menntun á háskólastigi. Embætti ríkistollstjóra starfar samkvæmt lögum nr. 55/1987 og fer í umboði fjármálaráð- herra með yfirstjórn tollheimtu og tolleftirlits. Starfið felur meðal annars í sér • vinnu við heildarskipulagningu og áætlana- gerð vegna endurskoðunar- og innheimtu- kerfis tollsins; • eftirlit með framkvæmd tollstjóraembætt- anna við álagningu og innheimtu aðflutn- ingsgjalda; • endurskoðun vinnuferla við tollendurskoðun m.a. vegna tölvuvæddra skila á upplýsing- um úrtollskýrslum, þ.e. SMT- tollafgreiðsla; • miðlun upplýsinga til starfsmanna tollsins, viðskiptalífsins og almennings um tollskýrsl- ugerð og tollafgreiðsluhætti; • vinnu við gerð tillagana til fjármálaráðuneyt- isins um breytingu á lögum og reglugerðum í því skyni að auka hagræði og einfalda tollafgreiðsluhætti og • þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um tollamál. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af stjórnunarstörfum og haldgóða þekkingu á tölvumálum. Að öðru leyti þurfa þeir að vera nákvæmir og skipulagðir í vinnubrögðum, geta haft frumkvæði og eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt eða með öðrum að verkefnum sem heyra undir embætti ríkistolIstjóra. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kjara- félags viðskipta- og hagfræðinga, eða viðkom- andi kjarasamningi, og fjármálaráðherra. Skriflegar umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og önnur atriði sem máli skipta skulu berast ríkistolIstjór- aembættinu, Tryggvagötu 19,101 Reykjavík, fyrir 15. apríl 1998. Aætlað er að ráða í stöðuna frá og með 1. maí 1998. Öllum umsóknum verðursvarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Frekari upplýsingar veita Jóhann Ólafsson, stafsmannastjóri, eða Karl F. Garðarssonk, forðstöðumaður rekstrardeildar, í síma 560 0500. Sigurgeir A. Jónsson, ríkistollstjóri Iðnaðarverkfræðingur/ Framleiðslustjóri 36 ára, óskar eftir vinnu. Hefur að baki mikla starfsreynslu við margskonar iðnaðarfyrirtæki erlendis og hérlendis. M.a. matvæla-, flugvéla-, bíla- og lyfjaframleiðslu. Opinn fyrir alls kyns nýjungum. Upplýsingar í síma 561 1515. Aðalfundur Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Ingólfs verður haldinn þann 19. mars kl. 20 í Gróubúð á Grandagarði 1. Stjórnin. Fræðslu- og menningarsvið Flataskóli — alþjóðleg atferlismeðferð Óskað er eftir að ráða einstaklinga til að stýra og taka þátt í atferlismeðferð fyrir sex ára ein- hverfan dreng í Flataskóla samkvæmt með- ferðarleið Dr. Lovaas, prófessors við Kaliforn- íuháskóla í Los Angeles. Þessi vinna tengist sams konarverkefni sem unnið hefur verið að í Osló undanfarin ár. Sérfræðingurfrá Osló er ráðgefandi um meðferðina og því gefur starfið kost á alþjóðlegum samskiptum. Þeir sem verða ráðnirfá starfsþjálfun. Leitað er eftir tveim starfsmönnum: 1. Stjórn meðferðar, fullt starf. Starfsmaðurinn hefuryfirumsjón með meðferðinni. Starfið felur í sér einstaklingsþjálfun, skýrslugerð, samhæfingu meðferðaráætlunar og ábyrgð á samstarfi allra aðila sem að meðferðinni koma. Leitað er meðal annars eftir einstakl- ingi með BA próf í sálfræði, kennara eða aðra sambærilega reynslu og þekkingu. 2. Starfsmaður, hálft starf. Starfsmaðurinn vinnurvið einstaklingsþjálfun. Leitað er eftir þroskaþjálfa, leikskólakennara eða öðrum áhugasömum. Mikilvægt er að aðilar geti hafið störf um miðj- an apríl. Tekið skal fram að hér er um mjög markvissa meðferð að ræða sem krefst mikils aga og úthalds en sem um leið er tækifæri til að vinna að tímamóta verkefni varðandi með- ferð á einhverfum börnum hér á landi. Við leit- um að duglegum, sjálfstæðum og umfram allt áhugasömum einstaklingum sem eiga auðvelt með mannleg samskipti. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Garða- bæjar. Upplýsingar um starfið veitir Oddný Eyjólfs- dóttir, grunnskólafulltrúi í síma 525 8500. Umsóknir skulu sendar á Fræðslu- og menn- ingarsvið, Bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ fyrir 26. mars nk. Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs. Gorðabær Lögmannsstofa Lögmannsstofa óskar eftir starfsmanni sem fyrst í hálft starf frá kl. 13.00—17.00. Viðkom- andi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafa góða tölvukunnáttu. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila til afgreiðslu Mbl. merktar: "L — 808" fyrir 20. mars. Fullum trúnaði er heitið. Hársnyrtistofa — miðbær í undirbúningi er uppsetning nýrrar hársnyrti- stofu í miðbænum fyrir 3—4 meðferðarstóla. Hársnyrtar sem hafa áhuga á að leigja stóla sendi nöfn og símanúmertil afgreiðslu Mbl. fyrir 23. mars, merkt: "Hársnyrtistofa — 3846". Gott tækifæri fyrir rétta aðila. Farið verður með innsend nöfn sem trúnaðarmál. Sumarstörf Mosfelisbær auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi sumarstörf árið 1998: Vinnuskóli og skólagarðar: Yfirflokkstjóri, flokkstjóri, umhverfisfræðsla ásamt leiðbeinanda við skólagarða. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í stjórnun og hafi unnið við almenn ræktunarstörf. í um- hverfisfræðslu þarf kennara með líffræði- menntun. Upplýsingar veitir Edda Davíðsdóttir í síma 566 6058. Garðyrkjudeild: Verkstjóri með reynslu í stjórnun ásamt góðri almennri menntun. Verkamenn til almennra garðyrkjustarfa. Nánari upplýsingarveitirgarðyrkjustjóri í síma 525 6700 á milli kl. 11-12:00. Umsóknareyðublöð fyrir öll ofangreind störf liggja frammi á bæjarskrifstofum Þverholti 2. Umsóknarfrestur er til 8. apríl nk. JLÍD f S LAN D ClO ÁRIÐ 2000 Starfsmaður í móttöku ísland 2000 er sameiginleg skrifstofa Reykjavík- ur, menningarborgar Evrópu árið 2000, Kristni- hátíðarnefndar og Landafundanefndar og mun starfa þar til í byrjun ársins 2001. Leitað er að starfsmanni með góða framkomu, mjög góða enskukunnáttu og færni í einhverju Norðurlandamálanna, reynslu af almennum skrifstofustörfum og ritvinnslu. Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi, vinsamleg- ast sendið upplýsingar um menntun og fyrri störf í pósthólf 1430, merkt ísland 2000, fyrir 31. mars n.k. Öllum umsóknum verður svarað. ísland 2000 Aðalstræti 6, Reykjavík. Fræðslumiðstöð Reykjavílajr Háteigsskóli. Starfsmaður óskast í lengda viðveru (heilsdagsskóla). Helstu verkefni: Umsjón með léttum hádegis- verði nemenda, aðstoða nemendur í leik og starfi, og ýmislegt fleira. Upplýsingar um starfið gefa skólastjóri og að- stoðarskólastjóri skólans í síma 563 3950. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is RAOAUC3LV5IINIGAR TIL SÖLU Borgarnes Til sölu er Verslunin Borgarsport í Borgarnesi ásamt vörulager (íþróttavörur) og verslunar- innréttingum. Verslunin er vel staðsett. Húsa- leigusamningurtil 2ja ára fylgir. Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður. Gísli Kjartnasson hdl., lögg. fasteigna- og skipasali, Borgarbraut 61, Borgarnesi, sími 437 1700, fax 437 1017. Svalalokanir — sólstofur Mjög vandaðar þýskar svalalokanir úr við- haldsfríu verksmiðjulökkuðu áli. Mikil opnun. Fyrir tvöfalt eða einfalt gler. Hentugt fyrir öll hús. Mikil gæði, gott verð. Seljum einnig vandaðar amerískar sólstofur (Four Seasons) með sérstöku sólstofugleri sem ver gegn miklu sólskini, frábær hitaeinangrun. Tæknisalan, Kirkjulundi 13, Garðabæ, (ekið inn frá Vífilsstaðavegi), sími 565 6900. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum miðvikudaginn 25. mars 1998 kl. 16:00. Fífilgata 3, efri hæð, þingl. eig. Sesselja Guðrún Guðjónsdóttir, gerð- arbeiðandi Jón Ragnar Sigurðsson. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 16. mars 1998.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.