Morgunblaðið - 17.03.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 59 v-
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Sigurður G. Tómasson
HJÖRLEIFUR Sveinbjörnsson, Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra,
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gæða sér á réttunum.
ÖRN Garðarsson matreiðslu-
maður ræðir við einn af
veislugestum.
Skyrið sló í
gegn!
New York. Morgunblaðið.
Á MÁNUDAGINN hófust íslenskar
vikur í veitingasal sendifulltrúanna,
„The Delegate’s Dining Room“ hér í
húsi Sameinuðu þjóðanna við
Austurá á Manhattan. Það voru sæl-
kerar og matarskríbentar af ýmsu
tæi sem sátu til borðs inni í eldhús-
inu og nutu þess sem fram var borið.
Nýskipaður sendiherra Islands í
Washington, Jón Baldin Hannibals-
son ávarpaði gesti og bauð heiðurs-
gestinn Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur velkomna. Ingibjörg Sólrún
flutti svo innblásna ræðu um ís-
lenska menningu, hreinleika og
mat. Aðalrétturinn var fjallalamb,
sjávarfang, aðaallega hörpudiskur í
forrétt en það var eftirrétturinn,
skyr með bláberjasultu sem sló í
gegn.
Sigmar B. Hauksson kynnti rétt-
ina og í lokin var matreiðslumönn-
unum klappað lof í lófa. Það var
mál manna að vel hefði til tekist og
réttirnir hefðu bragðast prýðilega,
en eins og stundum áður var það ís-
lenska skyrið sem sló í gegn.
Pakistanskar vörur
Rýmingarsala v/flutnings
flllt að
50%afslattur
Háholti 14,
Mosfellsbæ
(annar eigandi, áður Karatchi,
Armúla)
Síðir leöurfrakkar
st. S-XXXL, jakkar,
koparstyttur, kínasilkí,
ullarteppi frá Kasmir,
reiöskálmar,
útskornar gjafavörur.
Opið virka daga frá kl, 13-18
Opið laugardag frá kl. 13-16
Verið velkomin.
Símar 566 8280 og 566 6898 (á kvöldin).
- kjarni málsins!
MYNPBÖND
Vopn
- völd
Sannleikann eða lífið
Truth or Consequences. N.M.)
Glæpamynd
★★
Framleiðandi: Higgins/Messick/Way-
ne. Leikstjóri: Kiefer Sutherland.
Handritshöfundur: Brad Mirman.
Kvikmyndataka: Ric Waite. Tónlist:
Jude Cole. Aðalhlutverk: Vincent
Gallo, Mykelti Williamson, Kiefer
Sutherland, Kevin Pollak, Kim Dick-
ens og Grace Phillips. 101 mín.
Bandaríkin. Colombia Tristar/Skífan.
Utgáfud.: 25. febrúar. Myndin er
bönnuð börnum yngri en 16 ára.
Kvikmyndaleikarar eiga það til að
vilja færa út kvíarnar og verða
leikstjórar. Þeir eru ekki einir um
það í þessum
heimi, en hafa
hins vegar
greiðan aðgang
að peninga-
mönnum og
draumur þeirra
rætist því oftar
en annarra sem
ættu það meira
skilið. Sumir þeirra verða samt
Oskarsverðlaunahafa eins og Mel
Gibson, Kevin Costner og fleiri. Ef
Kiefer Sutherland stefnir líka á
gullnu styttuna þá held ég að hann
verði að gerast eitthvað frumlegri
en hann reynist í þessari mynd.
Morðóði gæinn, svertingja-
hipphopparinn, sem einn hugsar
áður en hann framkvæmir, og svo
ástfangna parið (hann í svörtum
leðurjakka og hún í gervihlébarða-
pels) eru fólk sem lifa fyrir lífsstíl-
inn og við þekkjum persónurnar
vel. Þau fremja misheppnað rán og
taka ósköp venjulegt par sem
gísla, en parið á eftir að læra
margt um sjálft sig meðan það er
neytt til að vera með þessu fólki
sem er svo ólíkt því. Um þetta
fjallar myndin og ekki mikið
meira, og reynt er að bæta fyrir
það með byssuskotum og popptón-
list. Kiefer hefði sem sagt átt að
velja sér frumlegra handrit til að
byrja með, því hann er ágætur
leikstjóri. Persónurnar eru ósköp
miklar klisjur en lifna samt ótrú-
lega mikið við í höndum þessara
leikara. Þvi miður lætur Martin
Sheen sjá sig og virðist halda að
hann sé Christopher Walken en
það er misskilningur. Leikari að
nafni Max Perlich leikur h'tið hlut-
verk en hann er frábær og gaman
væri að sjá hann meira.
Þetta er frekar kraftlaus mynd
en á góða spretti.
Hildur Loftsdóttir
TIL SÖLUAÐILA
VIDSKIPTASKILMÁLAR
CAGNVART KORTHÖFUM VISA.
Gildistöku ákvörðunar Samkeppnisráðs frestað
til 1. október nk.
Áfrýjunamefnd Samkeppnismála hefur birt úrskurð sinn í máli VISA ÍSLANDS gegn Samkeppnisráði
vegna banns þess á „jafnræðisreglunni" svonefndu í kortaviðskiptum.
Hér er um að ræða 2. gr. samstarfssamnings VISA og söluaðiia, sem kveður m.a. á um:
„Að söluaðila sé skylt að veita korthöfum sömu viðskiptakjör, verð og þjónustu og þeim sem
greiða með reiðufé. Óheimilt er að hækka verð á vöru eða þjónustu þegar kaupandi framvísar
greiðslukorti við kaup. Söluaðila ber, þegar verð er auglýst eða sett fram á sölustað, jafnan að
gæta þess að fram komi það almenna verð sem öllum viðskiptavinum stendur til boða. Söluaðila
er í sjálfsvald sett hvort hann auglýsir samhliða staðgreiðsluafslátt eða staðgreiðsluverð."
Úrskurður meirihluta áfrýjunarnefndar eða tveggja nefndarmanna af þremur hljóðaði svo:
„Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 1/1998, er staðfest með þeirri breytingu að hún komi ekki til
framkvæmda fyrr en 1. október 1998."
Minnihluti áfrýjunarnefndar skilaði séráliti um málið og tekur undir það sjónarmið VISA að sjálfsagt
sé að fresta ákvörðuninni meðan að beðið sé fjölþjóðlegrar niðurstöðu frá Evrópu-sambandinu
í Brussel, sem er að vænta síðar á árinu. Einnig er talið að hagsmunir neytenda hafi ekki verið
hafðir nægilega að leiðarljósi og „því beri að fella niðurstöðu samkeppnisráðs úr gildi".
Eins og ofanritað ber með sér eru því allar breytingar á framsetningu verðs til korthafa VISA
óheimilar fyrr en nýjar reglur hafa tekið gildi, sem samkvæmt úrskurði þessum verður í fyrsta lagi
hinn 1. Október nk. Til greina kemur af VISA ÍSLANDS hálfu að skjóta málinu til dómstóla,
enda kveður 35. gr. samkeppnislaga skýrt á um „Að þess skuli gætt að viðskiptahættir í
greiðslukortastarfsemi séu sambærilegir hér við það sem almennt gerist í helstu
viðskiptaríkjum íslendinga. “
Öllum söluaðilum ber því að virða samstarfssamning sinn við VISA ÍSLAND í samræmi við ofangreindan
úrskurð Áfrýjunarnefndar samkeppnismála eða þar til annað verður ákveðið af yfirvöidum.
VISA
1 Btf F: I.Vil
Creiðslumiðlun hf.
ÁLFABAKKA 16, 109 REYKJAVlK sími 525 2000 - fax 525 2020