Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 62

Morgunblaðið - 17.03.1998, Síða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Það var gaman að taka þátt í keppninni og ég er reynslunni ríkari KEPPNIN um matreiðslumann Skandinavíu var haldin í Osló nú á dögunum. Fulltrúi íslands var Há- kon Már Örvarsson, matreiðslu- maður Islands árið 1997, og lenti hann í þriðja sæti keppninnar. „Það var gaman að taka þátt í keppninni og ég er reynslunni rík- ari. Það er margt sem situr eftir og ég er þakklátur fyrir að fá að vera með,“ sagði Hákon um þátttöku sína. „Um áramótin var keppendum kunngjört hvaða hráefni ætti að nota en það matreiða allir úr því sama. Það var þorskur með hrogn- um og lifur í forrétt. Svo var grísa- hnakki í aðalrétt og pera í eftirrétt. Hver þurfti að elda þessa þriggja rétta máltíð fyrir tólf manns á fimm klukkutímum," sagði Hákon. Að hans sögn þurfti að eyða tíma í að finna út hvemig væri best að matreiða úr hráefninu og svo voru herlegheitin prófuð nokkrum sinn- um áður en haldið var í keppnina. „Það vora starfsfélagar mínir og annað gott fólk sem tók að sér að bragða á matnum, útvega ýmislegt og gefa góð ráð. Það fer ósjálfrátt mikill tími í undirbúninginn og maður er að vinna fulla vinnu með þessu,“ sagði Hákon sem er mat- reiðslumaður á Hótel Holti. Hann var valinn nemi ársins þegar hann útskrifaðist árið 1994 og fékk flugfar til útlanda og að- stoð við atvinnuleit í verðlaun. Hann vann í Lúxemborg í sjö mán- uði á veitingahúsi Leu Linster. „Eg fékk mikinn og góðan lærdóm þar og líkaði mjög vel.“ Hákon segist alltaf hafa ætlað sér að verða matreiðslumaður og því aldrei spuming hvert lífsstarfið yrði. Hann er 25 ára gamall og á sæti í landsliði íslenskra mat- reiðslumanna sem hlýtur teljast góður árangur og viðurkenning á hæfileikum hans. DICAPRIO virðist eiga vin í fyrrverandi ritstjóra „Play- girl“, sem neitaði að birta nektarmyndir af honum. Sagði upp af siðferðisástæðum RITSTJÓRI kvennablaðsins „Playgirl" sagði starfi sínu lausu um helgina til að mótmæla fyrir- hugaðri myndabirtingu eigenda blaðsins. Um er að ræða nektar- myndir af stórstjörnunni Leon- ardo DiCaprio, sem teknar voru í leyfisleysi. „Þetta stríðir gegn siðferðis- reglum mínum,“ sagði Ceslie Armstrong í viðtali við dagblaðið New York Post. „Þetta er innrás í einkalíf fólks og ég get ekki tengst þvi.“ Armstrong tók við ritstjórn blaðsins, sem sérhæfir sig í birt- ingu mynda af nöktum karlmönn- um, í júlí síðastliðnum. Að sögn eigenda blaðsins var Armstrong rekin og var engin ástæða gefin fyrir uppsögninni og ekki staðfest hvort myndirnar af DiCaprio yrðu birtar. Armstrong sagðist ekki hafa séð myndirnar. TROND Moi frá Noregi sem lenti í öðru sæti, sigurvegarinn Hen rik Nordström frá Svíþjóð og Hákon MárÖrvarsson frá fslandi sem lenti í þriðja Simpson- fjölskyld- an vill launa- hækkun ►LEIKARARNIR seni tala inn á teiknimyndaröðina um Simp- son-fjölskylduna hafa snúið bök- um saman og beðið um mikla launa- hækkun á næsta tímabili. Framleiðsla Fox á tíunda tímabili þáttanna átti að hefjast um miðjan mars, en kjaraviðræður hafa sett strik í reikninginn. Leikararnir, þ.á m. Hank Az- aria, Nancy Cartwright, Dan Castellaneta, Julie Kavner, Harry Shearer og Yeardley Smith, fá allir tæp- lega 35 þúsund dollara á hvern þátt en krefjast þess að fá 100 þúsund dollara fyr- ir þá tveggja daga vinnu sem það tekur að tala inn á þættina. Ef leikurunum tekst að knýja fram hækkunina yrðu þeir í svipuðum launa- flokki og leikararnir í Vinum eða „Friends" sem fengu mikla launahækkun í fyrra. Matt Groening, höfundur Simpson-íjöl- skyldunnar, er með aðra þætti í bígerð hjá Fox sem nefnast „Futurama“. Ungfrú Albanía krýnd aftur ►UNGFRÚ Albanía var krýnd aftur eftir tveggja ára hlé og bar Aldona Elezi, sem er nítján ára, sigur úr býtum. Keppnin hefur ekki verið haldin síðan árið 1995 vegna pólitísks óstöðugleika og ólgu í landinu. Elezi hlaut að launum gullkórónu sem er 15 þúsund dollara virði og dágóða verðlaunaupphæð. Ætti það að koma henni til góða í þessu fátækasta landi Evrópu þar sem kennarar og lögreglumenn fá sem svarar fjórum til fimm þúsund krónum í laun á mánuði. Stúlkan sem hafnaði í öðru sæti var aðeins 14 ára. lanr Miap Pitrets er i dag, alla þessa vtka og nœstu belgl verðuro við eins grœBlr og bœgt er... ...og staðarínn er fullur af Ilíílan) grœnam úlfuro, þá þekkir þa á grœna liínaro BOÐIÐ var upp á léttar veitingar í tilefni afmælis félagsins. Morgunblaðið/Þorkell VARAFORMAÐUR Málarameistarafélags Reykjavíkur, Aðalsteinn Aðalsteinsson, og formaðurinn, Helgi G. Jónsson. Fögnuðu afmæli fé- lagsins MÁLARAMEISTARA- FÉLAG Reykjavíkur fagnaði 70 ára afrnæli sínu á dögunum en það var stofnað 26. febrúar 1928 af 16 málurum í Reykjavík. Félagar í dag era 105 talsins og er til- gangur félagsins að efla samvinnu meðal málara- meistara, gæta hags- muna félagsmanna og stuðla að menntun stétt- arinnar. I tilefni afmælisins var haldin móttaka gesta í Skipholti 70 þar sem meðal annars var boðið upp á léttar veitingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.