Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 17.03.1998, Blaðsíða 68
Atvinnutryggingar Viö sníöum þær aö þínu ~<k, fyrirtæki. vfrl MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Bruniim í Fljótsdal Mátti ekki muna nema 50 sekúndum „ÞAÐ mátti ekki muna meiru en svona 50 sekúndum, það voru engar mínútui-. Við hjónin hlup- um beint úr rúminu og út á hlað og ég greip yngsta strákinn sem var heima í leiðinni fram gang- inn og henti honum á brókinni út fyrir dymar í storminn og kuld- ann,“ sagði Þórarinn Rögnvalds- son, bóndi á Víðivöllum II í Fljótsdal, en eldur gjöreyðilagði bæjarhúsið í gærmorgun. Þórarinn kvaðst hafa ætlað að snúa inn á ný og grípa einhver fót rétt innan við útidymar en þá hafi mikill reykur vamað honum þess. Hann settist því beint inn í bíl og um leið kvað við mikil sprenging. „Það er alveg ljóst hvað hefði orðið um þann sem hefði verið inni í húsinu þegar sprengingin varð og þakið fór niður,“ sagði Þórarinn. Sviss- lykillinn var í bílnum og kveikt á farsímanum þótt ekki næðist samband strax. Ok hann þegar af stað í átt að Klúku til að sækja hjálp en á leið þangað komst far- síminn í samband og hringdi hann þá í nágranna sem létu slökkvilið vita og komu síðan til aðstoðar. Bærinn varð alelda á skammri stund og sveitungamir réðust þá að sinueldi sem breiddist hratt út um túnið utan við bæinn, enda hefur það ekki verið slegið þar sem jörðin er nú fjárlaus í annað sinn vegna riðu. Tókst að hefta sinubrunann við bæjar- lækinn. Þá stóð vindur af útihús- um sem skemmdust ekki en Þórarinn kveðst um þessar mundir aðallega halda hross en starfa jafnframt við smíðar. Hús og innbú vom tryggð en Þórarinn sagði þau ekki eiga annað en brókina sem þau stóðu í, allar eigur hefðu orðið eldinum að bráð. Hann sagðist reikna með að bærinn yrði byggður upp á ný, þau ættu þó eftir að hugsa það mál. ■ Sluppu á náttklæðum/4 Morgunblaðið/RAX VEGNA ísingar og ókyrrðar var lítið um innanlandsflug í gær en útlit var þó fyrir flug í gærkvöld. Seinkun varð í millilandaflugi og einni feijuflug- vél tókst að lenda í Reykjavík og annarri að hafa sig á loft. ísing og hvassviðri raskaði víða samgöngum á annan sólarhring • • Flug hófst og Oxna- dalsheiði opnaðist AFLEITT veður var á Norður- landi og Vestfjörðum í gær og fyrradag og raunar víðar á land- inu og truflaði samgöngur í lofti, á Iáði og legi. Hvöss vestanátt var og éljagangur og Veðurstof- an varaði við fsingu og ókyrrð í lofti fram á kvöld. Oxnadalsheiði opnaðist í gærkvöld og byrjað var að fljúga innanlands. Talið var að um þúsund manns hefðu beðið beggja vegna Öxna- dalsheiðar þegar mest var eftir að rutt yrði í gærkvöld. Vegagerðar- menn hófú að ryðja heiðina síð- degis þegar veður lægði en skömmu síðar herti vestanvind á ný og hætt var frekari ruðningi. Eftir kvöldmat hófst ruðningur aftur enda veður þá skánandi og snerist til norðan- og norðaust- anáttar. Tókst að opna heiðina á níunda tímanum og fylgdu vega- gerðarmenn bflalestum bæði aust- ur og vestur yfir. Fóru um 100 bflar vestur yfir á 20 mínútum fyrst eftir að leiðin varð greið. Milli tuttugu og þijátíu bflar tepptust í vonskuveðri á leið aust- ur af Öxnadalsheiði á sunnudag, að sögn Markúsar Sigurðssonar, bflstjóra hjá Norðurleið. Bflamir vom tepptir í Bakkaselsbrekku í um það bil fimm klukkustundir. Björgunarsveitir og Vegagerðin komu bflunum til aðstoðar rétt fyrir kl. 19. Steingrímsfjarðarheiði varð ófær í gær en að öðm leyti var víðast fært þótt tafsamt væri vegna skafrennings og hvassviðr- is. Ekkert var flogið innanlands á sunnudag en um 9-leytið í gær- kvöld ætlaði íslandsflug að senda þijár vélar frá Reykjavík til Akureyrar og Flugfélag Islands ráðgerði fjórar ferðir þangað og eina til Egilsstaða. Á þriðja þús- und manns beið eftir flugi innan- lands. Millilandaflug gekk að mestu vel en nokkuð var um seinkanir. Ferð Herjólfs milli lands og Eyja féll niður á sunnu- dag en siglt var á ný í gær. Þá féllu einnig niður ferðir Akra- borgar og Baldurs í gær. Ferðir sérleyfisbfla röskuðust lítillega, aðallega ferðir Norðurleiðar. I dag er spáð norðaustlægri átt og frosti fyrst í stað en siðan hlýnandi. Ríkissáttasemjari leggur fram miðlunartillögur vegna sjómannaverkfalls Sjómenn jákvæðir _ en útvegsmenn ekki FORSVARSMENN sjómanna eru almennt já- kvæðir í garð þeirra miðlunartillagna, sem ríkis- sáttasemjari lagði fram í gær til lausnar á sjó- mannaverkfallinu, sem hófst á miðnætti á sunnu- dag. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Farmanna- ■^ig fiskimannasambands íslands, Sævar Gunnars- son, formaður Sjómannasambands íslands og Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, segjast munu mæla með samþykkt tillagnanna við félags- menn sína. Talsmenn útgerðarmanna lýsa óánægju með ýmis atriði tillagnanna og munu hvorki mæla með né á móti samþykkt þeirra við útvegsmannafé- lögin, að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, fram- kvæmdastjóra VSI. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að ríkissáttasemjari taki í tillögum sínum ekkert tillit til þefrra sjónar- miða sem útvegsmenn hafa lagt fram í kjaradeil- unni. Lögfesting lagafrumvarpanna sem unnin voru af þríhöfðanefndinni, sem sjávarútvegsráð- herra skipaði í kjölfar þess að verkfalli sjómanna var frestað í febrúar, er forsenda miðlunartillagna ríkissáttasemjara. Það felur í sér að setji Alþingi fyrir vorið ekki lög um t.d. veiðiskyldu og kvóta- þing telst sá samningur, sem kemst á milli útvegs- manna og sjómanna við samþykkt miðlunartillagn- anna, úr gildi fallinn. Efni miðlunartillagnanna sjálfra er kjarasamn- ingur sem gildfr til 15. febrúar 2000. Einstakir kaupliðir hækka um 13% við gildistöku samningsins og um 3,65% til viðbótar 1. janúar 1999. Fæðispen- ingar hækka við gildistöku um 11,1%. Þá er gerð breyting á dánar- og slysabótum til sjómanna og fjárhæðir þeirra hækkaðar um 30-50% að sögn Guð- jóns A. Kristjánssonar, formanns Farmanna- og fískimannasambands Islands. Sérmál vélstjóra varðandi endurskoðun skipta- hlutar eru, samkvæmt miðlunartillögu ríkissátta- semjara, falin þriggja manna úrskurðarnefnd, með oddamanni ráðherra. Nefndin fái heimild til að skera úr um og ákveða hvort tilefni sé til sérstakra greiðslna til vélstjóra, hve mikið og frá hvaða tíma þær greiðslur eiga að gilda. ■ Kvótaþing og veiðiskylda/34 Úthafsveiðikvóti 300 millj- ónir fyrir veiðileyfin ISLENZK skip og útgerðfr, sem stunduðu veiðar á rækju á Flæmska hattinum og Reykjaneshrygg á síð- asta fiskveiðiári urðu lögum sam- kvæmt að afsala sér veiðiheimildum að verðmæti um 300 milljónir króna. Skipum sem fá úthlutað aílahlut- deild á Flæmska hattinum er gert að afsala sér aflaheimildum innan lög- sögu sem nema 4% af úthlutuðum heimildum á „Hattinum“ og skipum, sem fá úthlutað heimildum í út- hafskarfa á Reykjaneshiygg, er gert að afsala sér 8% af úthlutuðum heim- ildum utan landhelginnar. Skip, sem ekki hafa aflaheimildir innan lögsögu, eru skert á sambærilegan hátt utan lögsögunnai’. ■ Greiða um 300/22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.