Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 43
ŒICfAJHWJOHOM MORGUNBLAÐIÐ 8G(H lí.fl'I! .P-I jTTnAfTTr,rnOTj/! 1- MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 43 AÐSENDAR GREINAR Aumlegt yfirklór Full búð af nýjum vörum FREKAR er hann þunnur þrettándinn hjá þeim nöfnum, Þorstein- um tveim, Þorsteins- syni og Gylfasyni, er þeir rísa til andsvara við grein minni frá 19. marz. Þorsteinn Gylfa- son skrifaði grein hinn 4. marz og nefndi hana „A að banna Brecht?" - og var sú grein skrifuð til að ráðast á mig með ruddaskap og hroka og lýsa „menningar- stefnu" minni, sem fólst í því að telja upp Arnór verk ýmissa höfunda, Hannibalsson sem ég, að hans sögn, vil „ekki að séu flutt á íslandi“. Nú bætir Þorsteinn um betur og segir, að í grein hans „stendur þessi full- yrðing hvergi og ekkert sem líkist henni“. í fyrri greininni gerði hann mér upp skoðanir, sem ég hef ekki. í þeirri seinni er atlaga þessi rétt- lætt með ofangreindri rökfræði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þor- steinn Gylfason snýr út úr og rang- túlkar mál andstæðings síns. Þegar sá sem verður fyrir barðinu á þess- ari aðferð leiðréttir og skýrir sitt mál svarar Þorsteinn með því að segja, að það sé andstæðingur hans, sem fer með staðlausa stafi. Þetta er ómerkilegur vopnaburður. Þorsteini þykir þetta sniðugt. En þessar hundakúnstir duga Annars vegar er málstað- ur alræðis og miðstýring- ar, segir Arnór Hanni- balsson, hins vegar mál- staður mannhelgi og virð- ingar fyrir réttindum ein- staklingsins. skammt. Þó sýnir þessi seinni grein örlitla framför, rostinn hefur aðeins lækkað. En hann ber sér á brjóst og þykist hafa hrakið mig á undanhald. Miklir menn erum við, Hrólfur minn. Hugsun í rembihnút Ég hef lýst því yfir í fyrri grein- um, að ég styð mannréttindi og mannhelgi. Ég er andvígur dauða- refsingum. En enn veður Þorsteinn Þorsteinsson fram og sakar mig um að standa fyrir sýndarréttar- höldum. Sýndarréttarhöld voni að- ferð einræðisherrans í alræðisrík- inu til að losna við andstæðinga sína. Þeir voru pyntaðir andlega og líkamlega mánuðum saman, unz þeir samþykktu að koma fram op- inberlega og játa á sig hina hrika- legustu glæpi. „Skjótum þessa óðu hunda!“ - sagði saksóknari Stalíns, Andrej Vishinski, þegar réttar- höldunum yfir Búkharín lauk. Hvað þarf kennari á íslandi að gera til að hægt sé að jafna honum við næst-afkastamesta morðstjóra mannkynssögunnar? Ég hef lýst því, að áróður fyrir þjóðskipulagi án mannréttinda er mér framar.di. Ég hef og lýst því, að verk Þjóðverja nokkurs, að nafni Bertolts Brecht, falla mér ekki í smekk að svo miklu leyti sem þau fela í sér áróður fyrir alræðis- flokknum og lögregluríkinu, sem ofannefndur einræðisheiTa var leiðtogi fyrir og tókst að breiða út um mörg lönd Austur-Evrópu eftir seinni heimsstyrjöld. Fáránleiki í hámarki Hvernig á nú að koma þessu heim og saman? Það að hafa ekki smekk fyrir ýmsum verkum eftir B. Brecht og að hafa kynnt fyrir lesendum Morgunblaðsins nokkur atriði úr ævi hans sýnir að „hugs- unarhátturinn lifir góðu lífi“. Hugsunarháttur lýðræðissinnans er hugsunarháttur einræðisherr- ans. Þetta er það, sem Þorsteinn Þorsteins- son er að reyna að fá lesendur Morgun- blaðsins til að trúa. Það er með ólíkind- um, hvemig hægt er að beygla mannlega skynsemi saman í hnút. Vart er hægt að hugsa sér ömurlegri rökleysu og fárán- leika. Þorsteinn Þ. getur þess, að hugtak- ið sýndaméttarhöld eigi sér „virðulega" og meir en sextíu ára sögu. Þrátt fyrir þetta er eins og hann álíti, að sýndarréttarhöld séu ekki alveg siðlegt athæfi. Ætla mætti, að Þor- steinn Þorsteinsson væri sammála þeirri hetju, sem hann dýrkar hvað mest og hefur gert að leiðtoga lífs síns, að fómarlömb sýndarréttar- haldanna verðskuldi að deyja fyrir það eitt að andæfa einræðisherran- um. Það hefði verið miklu hressi- legra og einarðlegra, að Þorsteinn Þorsteinsson hefði lýst opinskátt yfir eftirfarandi: Ég trúi á Bertolt Brecht, sem var alla ævi samkvæmur sjálfum sér í trú sinni á alræðisflokkinn og lögregluríkið og var óbundinn af borgaralegu siðgæði. Sem íylgis- maður alræðisflokksins og lög- regluríkisins álít ég að réttlæti þess eigi að koma yfir þá, sem and- æfa þeiiTÍ hugmyndafræði. En Þorsteinn er illa staddur. Alræðis- flokkurinn og lögregluríkið em hmnin til gmnna. Hann á í ekkert hús að venda. Hið eina sem honum dettur í hug er að slengja því fram- an í þá, sem taka fram nokkur sannleikskom um alræðið og áróð- ursmenn þess, að þeir standi fyrir sýndari'éttarhöldum. Þeir Þor- steinar hafa ekki getað sýnt fram á, að eitt einasta atriði, sem ég hef nefnt um skáldsnillinginn B. Brecht sé rangt. Sannleikurinn er lágvær, en hann kemur í ljós, hversu staðfastlega sem menn trúa lyginni. Þorsteinn Þorsteinsson heldur fast í sína trú og þverskall- ast við að trúa staðreyndum. Það er að sjálfsögðu erfitt að ræða mál á þeim granni. Þeir nafnar víkja sér undan að ræða málið með rökum, en veitast þess í stað að minni persónu. Það hefur aldrei verið hátt risið á þeirri aðferð. Ólíkur málstaður Þorsteinn Þorsteinsson segir mig hafa tekið mér fyrir hendur að „gera upp öldina sem nú er að kveðja“. Ékkert slíkt hef ég reynt í þessum greinum, en ég hef bent á að hér er um ólíkan málstað að ræða. Annars vegar er málstaður alræðis, ofbeldis, lögregluríkis og miðstýringar. Hins vegar er mál- staður frelsis, mannhelgi og virð- ingar fyi'ir réttindum einstaklings- ins. Þeir nafnar hafa með skrifum sínum tilgreint skýrlega, hvora megin þessa hryggjar þeir kjósa að liggja. Það er mér að meinalausu. En lesendur þessara greina draga væntanlega sínar ályktanir. Höfundur er prófessor. Laugavegi 20 b sími 5522515 V. o Q. e <v 4—< c VINTERSPORT ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG Vitekennt gæðaginseng af Kóreskum yflrvöldum í Kóreu er það ginseng eöalvara, sem hlotið hefur sérstakt gæðainnsig li yfirvalda. Að öðru leiti er óþarfi að taka fram að varan sé „eðal“. Það segir sig sjálft. Það er ekki að ástæðulausu að 11 Hwa er stærsti framleiðandi ginsengs í Kóreu. Gæði ræktunar og framleiðslu uppfylla ýtrustu kröfur yfirvalda. Líttu eftir gœöainnsigUnu næst þegar þú kauþir ginseng. Verdsamanburöur á 500mg af IL HWA ginsengi og Raubu „Eöal“ Ginsengi Vörutegund Verö á 500 mg* 23,50 Rautt „Eðal" Ginseng 47,00 Dreifing: Logaland ehf. ♦Verösamanburöurinn var geröurí Nóatúni 27.01.98. Borin voru saman verö á 500mg af ginsengi í 50 hylkja pakkningum ofangreindra vörutegunda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.