Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ___AÐSENPAR GREINAR_ Þjóðin kallar á bætt siðferði EITT alvarlegasta mál sem komið hefur upp í stjómsýslunni á síðari áram og áratug- um er gegndarlaust só- un og spilling hjá Landsbankanum í alls- konar lúxus og fríðindi. Persónulegir hags- munir og græðgi virð- ast iðulega hafa ráðið ferðinni. Þessi alvar- lega meinsemd rotinna stjórnarhátta og sið- spilhngar, sem íslenska þjóðin hélt að helst væri að finna í Austur- og Suður- Evrópu eða Suður-Ameríku, virðist einnig hafa grafið um sig hér á landi. A hinum Norðurlöndunum og víða í þeim ríkjum Evrópu sem við helst beram okkur saman við era svona mál yfirleitt tekin föstum tökum og valdhafar látnir sæta ábyrgð gjörða sinna. A það reynir nú á Islandi. Alvarlegt áfall En þó svo að þeir verði látnir axla ábyrgð, sem ábyrgðina bera í þessu máli, þá er ekki hægt að láta þar staðar numið. Ef endurreisa á trúnað milli fólksins og stjómsýsl- unnar og koma í veg fyrir algjöran trúnaðarbrest í framtíðinni milli löggjafarþings og framkvæmda- valds, þarf fleira að koma til. Ljóst er að löggjafarþingið hef- ur orðið fyrir miklu áfalli í sam- skiptum sínum við framkvæmda- valdið. Sú staða verður ekki liðin að löggjafarsamkoma þjóðarinnar sé lítilsvirt með rangri upplýsinga- gjöf. Hér eftir mun algjör tor- tryggni ríkja um svör ráðherra til þingsins, nema hart verði við bragðist. Nú reynir ekki síst á for- sætisnefnd þingsins og hvernig hún og þingheimur allur mun bregðast við til að styrkja stöðu þingsins gagnvart framkvæmda- valdinu. Setja þarf nýjar leikreglur Eftirfarandi þarf að skoða sérstaklega: 1. Ljóst virðist að heilbrigð dómgreind og siðgæðisvitund gagn- vart óskráðum siða- reglum dugar ekki. Siðferðismat virðist vera í molum og leik- reglur þarf því að setja. Kanna þarf því þær skráðu og óskráðu reglur sem ríkja um embættisfærslur í op- inberri stjómsýslu. Markmiðið er að leggja mat á hvort rétt sé að setja siðareglur í opinberam rekstri, sérstaklega að því er varðar meðferð opinberra fjármuna og ým- iskonar hlunninda og tengdra kostnaðargreiðslna í stjórnsýslunni. 2. Fara þarf ofan í alla löggjöf og opnar heimildir AJþingis til fram- Fólkið gerir kröfu, segir Jóhanna Sigurð- ardóttir, um samfélag þar sem siðgæði ríkir en ekki siðspilling. kvæmdavaldsins. Þannig verði varpað ljósi á það hvort of rúmar eða óskýrar heimildir Alþingis til framkvæmdavaldsins geti verið or- sök sóunar eða of lítils aðhalds í meðferð opinberra fjármuna eða skilvirks eftirlits af hálfu löggjafar- valdsins með framkvæmdavaldinu. í lögum þarf líka að skýra betur og skilgreina hver ber ábyrgð og hvernig með skuli farið ef eitthvað fer úrskeiðis. 3. Lög um ráðherraábyrgð þarf að endurskoða og að ráðherra sem gefur Alþingi rangar eða villandi upplýsingar skuli sæta ábyrgð, eins og gerist í löndunum í kringum okkur, en að hann geti ekki áfram borið ábyrgðina á undirmenn sína eða aðra. Ætla má að ráðherra vandi þá betur undirbúning á svör- um sínum til Alþingis og verði gagnrýnni á hverjum verði falið af þeirra hálfu að afla upplýsinga sem beðið er um af hálfu þingsins. 4. Starfsaðstaða og verksvið Rík- isendurskoðunar verði með þeim hætti, að hægt sé að fela Ríkisend- urskoðun en ekki ráðherra að svara fyrirspumum þar sem hætta getur verið á hagsmunaárekstram, ef ráðherra eða undirstofnanir hans era vanhæf til að svara fyrir- spurnum frá Alþingi. 5. Lögum verði breytt á þann veg að öllum ríkisstofnunum eða fyrirtækjum sem ríkið á að hluta eða öllu leyti verði gert skylt að sundurliða og skýra í ársreikning- um sínum allan risnu-, ferða- og bílakostnað og hvers konar hlunn- indagreiðslur og tilefni þeirra. 6. Nefndum þingsins verði falið rannsóknarvald, þannig að hvenær sem er, líka þegar þing starfar ekki, getið nefndirnar tekið fyrir mál, sem m.a. snerta viðlíka mál og nú hefur komið upp og koma m.a. við meðferð á opinberam fjármun- um og sóun og misnotkun á fé skattborgaranna. Bregðast þarf við um allt samfélagið Þessu máli er langt frá því að vera lokið. Virðing Alþingis er í húfi að á þessu máli sé tekið. Þjóð- in krefst þess að þeir sem hún kall- ar til forystu og þeir sem fengið er vald til ákvarðanatöku og ráðstöf- unar á skattfé almennings séu ábyrgir gjörða sinna. Fólkið gerir kröfu um að leikreglur samfélags- ins séu með þeim hætti að valdhaf- ar búi þeim samfélag þar sem sið- gæði ríkir en ekki siðspilling. Við því þarf nú að bregðast um allt samfélagið. Höfundur er þingmaður. Jóhanna Sigurðardóttir Meinatækni - lykill að lækningu í DAG 15. apríl er alþjóðadagur meina- tækna. Meinatæknar nota þennan dag til að kynna starf sitt og menntun og er hann haldinn hátíðlegur víða um heim. Þema hans er: „Meinatækni - lyk- ill að öryggi við blóð- gjöf og ígræðslu". I samræmi við þema dagsins er við hæfi að kynna á hvern hátt meinatæknar koma að þessum málum á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur. Þegar ígræðsla líf- færa er undirbúin á sjúkrahúsinu fer af stað ákveðið ferli sem stórt teymi starfsmanna er þátttakandi í. Meinatæknar era hluti þessa teymis eins og yfirleitt þegar flóknar aðgerðir era undir- búnar. Gera þarf margar og vandasamar rannsóknir bæði á líf- færagjafa og líffæraþega til að hægt sé að taka ákvörðun um líf- færaflutning. Miklu máli skiptir að líffæragjafi beri ekki í sér smit, sé ekki með veirasýkingu eða annað það sem gæti riðið þeganum að fullu vegna veiks ónæmiskerfis hans, en ónæmiskerfi líffæra- þega er bælt til þess að hann hafni ekki hinu utanaðkomandi líffæri. Til að kanna hvort líffæragjafi hafi veirasýkingu er tekið blóðsýni og mælt hvort hann hafi lifrarbólgu af völdum lifrarbólgu- veiru B og C, en þær era tvær algengustu lifrarbólguveirarnar sem berast með blóð- smiti. Mikil straum- hvörf urðu þegar lifr- arbólguveira B var uppgötvuð en meðgöngutími henn- ar er 2-6 mánuðir. Lifrarbólgu- veira C er tiltölulega nýskilgreind veira sem olli flestum lifrar- bólgutilfellum er komu í kjölfar blóð- eða blóðhlutagjafa og ekki voru af völdum þekktra lifrar- bólguveira. Meðgöngutími hennar er 5-12 vikur, að meðaltali 8 vikur. Rannsaka þarf hvort líffæragjaf- inn hafi nýlega cytomegaloveira- sýkingu, en sýking af hennar völd- um hjá heilbrigðum fullorðnum í dag, 15. apríl, er al- þjóðadagur meina- tækna. Ingibjörg Halldórsdóttir segir meinatækni lykil að öryggi við blóðgjöf og ígræðslu. einstaklingi hefur yfirleitt frekar óljós einkenni en getur orðið af- drifarík hjá fólki með bælt ónæmis- kerfí eins og líffæraþegar era. HIV smit hefði einnig alvarlegar afleið- ingar fyi'ir þegann. Framantaldar fjórar rannsóknir á veirasmiti era veigamikill þáttur í undirbúningsrannsóknum vegna líffæraflutninga. Að auki era gerð- ar ýmsar efnarannsóknir sem mæla starfsemi hinna ýmsu líffæra líkamans svo sem briss, nýma og lifrar. Höfundur er deildarmeinatæknir á Smitsjúkdómadeild Sjúkrahúss Reykjavfkur. Ingibjörg Halldórsdóttir MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 41 Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. apríl 1998. 1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.853.546 kr. 185.355 kr. 18.535 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 500.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.649.299 kr. 824.649 kr. 164.930 kr. 16.493 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 8.122.151 kr. 1.624.430 kr. 162.443 kr. 16.244 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.994.685 kr. 1.598.937 kr. 159.894 kr. 15.989 kr. 1. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.362.690 kr. 1.472.538 kr. 147.254 kr. 14.725 kr. 3. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.727.467 kr. 1.345.493 kr. 134.549 kr. 13.455 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.571.044 kr. 1.314.209 kr. 131.421 kr. 13.142 kr. 1. flokkur 1995: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. innlausnarverð: 6.195.239 kr. 1.239.048 kr. 123.905 kr. 12.390 kr. 1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.164.225 kr. 116.423 kr. 11.642 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. [»□ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFAOEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 569 6900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.