Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 LANDSBANKINN MORGUNBLAÐIÐ Nýr bankastjóri Landsbankans hyggst koma baiikainim í fremstu röð í N-Evrópu Kveðst ekki ráðinn á pólitískum forsendum Morgunblaðið/Ásdís TILKYNNT um ráðningu nýs bankastjóra Landsbankans í gær, frá vinstri: Kjartan Gunnarsson, Anna Margrét Guðmundsdóttir, Halldór J. Kristjánsson og Helgi S. Guðmundsson. Kjartan Gunnarsson boðar grundvallarbreytingar Farið út fyrir öll mörk Halldór J. Kristjáns- son, nýráðinn banka- stjóri Landsbankans, sagði í gær að það væri markmið sitt að bank- inn yrði í fremstu röð í Norður-Evrópu. Hann kvaðst vera flokksbund- inn sjálfstæðismaður, en ráðning sín væri ópólitísk. BANKARÁÐ Landsbankans boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem nýi bankastjórinn var kynntur. Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Islands, hófst handa á því að segja að Halldór hefði verið ráðinn bankastjóri og hefði hann þegar tekið til starfa. Halldór hafði reyndar þegar komið sér fyrir í gömlu skrifstofu Halldórs Guðbjamasonar síðdegis í gær, þótt nafnið hans væri ekki komið á hurð- ina. Halldór kvaðst vilja byi-ja á að þakka það traust, sem sér hefði verið sýnt með „ráðningu í starf aðal- bankastjóra við þessar aðstæður“ og kvaðst þakklátur fyrir að um hana hefði verið samhljóða stuðningur í bankaráðinu. „Ég hef haft tækifæri til að ræða við framkvæmdastjóra bankans og treysti á mjög gott samstarf við hann,“ sagði Halldór. „Það eru krefj- andi verkefni framundan. Það eru að verða miklar breytingar á fjár- magnsmarkaði. Ég hef unnið við stefnumótun stjórnvalda á því sviði síðustu mánuði.“ Staða í breyttu umhverfi Halldór bætti við að það væri mik- ið verkefni framundan fyrir stjórn bankans að taka ákvörðun um það hvar Landsbankinn ætlaði að vera í því breytta umhverfi. Halldór kvaðst lítið geta sagt um það atriði á þessu stigi málsins: „Ég mun ræða við starfsmenn, ég mun ræða betur við framkvæmdastjórana, ég mun ein- beita mér að starfi inn á við í bank- anum og stefnumótun næstu vikur og gera betri grein fyrir sínum við- horfum innan skamms. „Ég vil þó segja að starf mitt mun að sjálfsögðu miðast við að styrkja traust á bankanum og efla starfsem- ina,“ sagði hann. „Ég styð þá megin- stefnu, sem mörkuð var i málefnum bankans með kaupunum á VIS, að bankinn einn beiti sér að almennri fjármálastarfsemi, verði traustur og sterkur viðskiptabanki og verði í for- ustu til íramtíðar eins og segir í kjörorði bankans." Halldór var spurður hvaða augum hann liti hugmyndii- um sameiningu banka til að draga úr kostnaði í bankakerfinu. Hann vísaði til þess að Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra hefði sagt á ársfundi Seðlabankans að til að ná endanlegum markmiðum við að koma tilkostnaði í bankakerf- inu hér á landi niður á það stig, sem best gerðist í nágrannalöndunum, þyrfti samruni eininga og stækkun þeirra að eiga sér stað. Landsbankinn langstærsta einingin „Landsbankinn er langstærsta einingin," sagði hann. „Það þarf að vinna úr kaupunum á VÍS og ná fram enn frekari samlegðaráhrifum af þeim kaupum. Ég held að það verði verkefni Landsbankans, að ein- beita sér að því viðfangsefni, og sam- KJARTAN Gunnarsson, sem situr í bankaráði Landsbanka Islands, sagði á blaðamannafundi í gær að farið hefði verið út fyrir öll mörk í laxveiðum á vegum bankans og bætti við að grundvallarbreytinga væri þörf. Þrír bankastjórar bank- ans sögðu af sér á öðrum degi páska og í gær var Halldór J. Kristjáns- son, ráðuneytisstjóri iðnaðar- og við- skiptaráðuneyta, ráðinn nýr banka- stjóri. Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðsins, sagði á fundinum að misjafnar forsendur væru fyrir því að þrír bankastjórar Landsbankans, Björgvin Vilmundarson, Halldór Guðbjarnason og Sverrir Her- mannsson, hefðu sagt af sér á mánu- dag. „Einn gerði það vegna veikinda og tveir gera það vegna þess að þeir telja að þeirra persóna hafi áhrif á ímynd bankans," sagði hann. „Ég er þakklátur fyrir það að þeir meta það með þessum hætti.“ Bankastjóranna að svara fyrir hvers vegna þeir hætta Helgi sagði að bankastjóramir fyrrverandi hefðu tekið ákvörðun um að óska lausnar frá störfum og þeir yrðu sjálfir að svara fyrir það hvers vegna þeir hefðu gert það. Helgi sagði að ekki hefði komið til greina að einhver í bankaráði segði af sér og það hefði ekki verið rætt. Hann vissi ekki hvort það yrði rætt. „Svona mál eru náttúrulega mjög erfið fyrir fyrirtæki,“ sagði Helgi. „Ég þori ekki um það að segja hvað þetta hefur skaðað bankann. Við horfum hér fram á við og við munum öll leggja okkur fram um að byggja upp bankann." Kjartan Gunnarsson, bankaráðs- maður og framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, var spurður hvaða ábyrgð hann bæri og hvort segja mætti að bankaráðið hefði brugðist eftirlitsskyldu sinni. „Nei, það gerði ráðið ekki,“ sagði Kjartan. „Það mun koma fram í skýrslu ríkisendurskoðunar þegar hún liggur fyrir hvernig eftirlits- skyldu bankaráðsins er háttað og hvemig það hafi rækt hana og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að niðurstaðan verði sú að bankaráðið hafi ekki I neinu brugðist." Fékk ekki athugasemdir vegna laxveiðiferða Kjartan var spurður hvort fréttir, sem birst hefðu um að endurskoðandi bankans hefði ítrekað gert athuga- semdir við laxveiðikostnað Lands- bankans í formannstíð hans og þá sérstaklega vegna Hrútafjarðarár, væru rangar. „Ég hef engar athugasemdir feng- ið frá neinum um laxveiðiferðir á vegum Landsbankans þann tíma, sem ég var formaður bankaráðs," svaraði Kjartan. Skýrsla ríkisendurskoðunar er væntanleg í dag. Helgi kvaðst hafa séð ýmis atriði hennar, sem banka- stjóramir hefðu þurft að skýra, en hann myndi ekki ræða um neitt í henni fyrr en hún kæmi. Helgi sagði að ekki hefði verið gengið frá samkomulagi um starfslok bankastjóranna þriggja og ákvörðun hefði ekki verið tekin um það hvort gerðir yrðu starfslokasamningar. Halldór Guðbjarnason sagði í yfirlýs- ingu, sem hann gaf frá sér vegna af- sagnar sinnar, að hann væri reiðubú- inn til að koma aftur til starfa hjá Landsbankanum. Helgi sagði að eng- in ákvörðun hefði verið tekin um það. Helgi sagði að ekki hefði verið tek- in ákvörðun um að hætta laxveiðum á vegum bankans, það yrði rætt við nýjan bankastjóra. Halldór sagði að leiðinlegt væri að gera þetta að um- ræðuefni, en hann hefði aldrei stund- að laxveiðar af neinu kappi. Hann sagði að sér hefði aldrei verið boðið í laxveiði á vegum Landsbankans. Sjálfgefíð að Landsbankinn hætti öllu bruðli á þessu sviði Kjartan Gunnarsson lýsti yfir því að grundvallarbreytinga væri þörf. „Mér finnst sjálfgefið og sjálfsagt að Landsbankinn hætti öllu bmðli á þessu sviði,“ sagði Kjartan Gunnars- son. „Það er augljóst af þeim upplýs- ingum, sem fram hafa komið, að þetta hefur allt keyrt úr hófi hér í bankanum og það er sjálfgefið og sjálfsagt - og bankaráðið mun nátt- úrulega beita sér fyrir því - að á þessu verði grundvallarbreyting. Ég þarf ekki að skýra þetta neitt nánar. Þetta er augljóst. Mín persónulega skoðun er sú að þetta hafi verið kom- ið út fyrir öll mörk og það hafi komið í Ijós í þessum upplýsingum, sem fram komu þegar ríkisendurskoðun gerði sína athugun, og auðvitað dett- ur engum manni hér í Landsbankan- um í hug að halda þessu áfram með þessum hætti. Þó að það sé rétt, sem formaðurinn segir, að engin formleg ákvörðun hafi verið tekin, leiðir það af eðli þessa máls að á þessu verður grundvallarbreyting." Halldór J. Kristjánsson, nýráðinn bankastjóri, sagði að kostnaðareftir- lit og stöðu innri endurskoðunar yrði að efla. „Það verður að sjálfsögðu gætt aðhalds í rekstrarkostnaði bankans," sagði hann. „Það eiga við- skiptamennimir að geta treyst á og við munum vonandi á næstu vikum geta sannfært viðskiptavini okkar um að við séum á réttri leið í þeim efnum. Þannig að ég tek mjög undh' það, sem Kjartan segir. Án þess að ég sé að víkja þar með neitt að for- tíðinni í þessu er ljóst að það er eitt af meginverkefnum nýs bankastjóra að gera rekstui'inn sem hagkvæm- astan á öllum sviðum og almennt séð á ekki að stofna til útgjalda nema það leiði til tekna. Það leiðir af eðli rekstrarins." Á blaðamannafundinum var spurt um hlut Lýsingar, sem er í eigu Bún- aðarbanka og Landsbanka, í lax- veiðiferðum. Þær upplýsingar myndu ekki koma fram í skýrslu rík- isendurskoðunar, en spyija mætti hvort Landsbankinn hygðist beita sér fyrir því að þær upplýsingar yrðu gerðar opinberar. Helgi sagði að óskaði ríkisendur- skoðandi eftir því við bankaráðið að það beitti sér fyrir því að fá stjóm- endur Lýsingar til að gefa þessar upplýsingar yrði fjallað um það. Björgvin Vilmundarson og SveiTh’ Hermannsson sitja enn í stjórnum ýmissa fyrirtækja á vegum Lands- bankans, þar á meðal Lýsingar. Helgi sagði að ekki hefði verið fjallað um þetta í bankaráðinu, það hefði ekki tekist enn sem komið væri. mninn muni gerast meðal annan'a stofnana. Það eru mín fyrstu viðhorf og einnig er til þess að líta að Lands- bankinn er_ langstærstur viðskipta- bankanna. Ut frá samkeppnissjónar- miðum mætti ætla að aðrh' kostir væru ofar á blaði.“ Hann kvaðst hins vegar ekkert vilja útiloka og sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri sammála því að til þess að ná því markmiði á næstu árum að tilkostnaður í banka- kerfinu hér á landi sem hlutfall af tekjum verði áþekkur því sem best gerist í nágrannai'íkjunum þurfi að stækka einingar. „Stefnumótun um það efni er í höndum eigenda hlutabréfanna og ríkisstjórnin og viðskiptaráðhen-a verða að móta þá stefnu og einstakir bankar að vinna úi' aðstæðum eins og þeir best geta,“ sagði Halldór. „Það verður hlutverk Landsbankans að falla að þeirri stefnumótun og treysta og efla bank- ann í breyttu umhverfi. A þessu stigi væri bæði of snemmt og órökrétt að loka á möguleika. Hins vegar er ljóst að verkefnið, sem framundan er hjá mér, er að setja skýr árangursmark- mið um rekstur bankans, skýr rekstrarmarkmið með hliðsjón af því, sem best gerist á Norðurlönd- um.“ Forsendur ráðningarinnar Halldór sagði þegar hann var spurður um forsendur fyrir ráðningu sinni að hann hefði gegnt for- mennsku í nefndinni, sem skipuð var samkvæmt lögum til að undirbúa formbreytingar ríkisviðskiptabank- anna og stýra þeim. Hann hefði þvi verið kunnugur málefnum Lands- bankans, enda hefði nefndin velt fyr- h' sér næstu skrefum í rekstri bank- ans. „í því sambandi lagði undirbún- ingsnefndin áherslu á sölu á hluta- bréfum og skráningu á verðbréfa- þingi,“ sagði hann. „Síðan hafði ég einnig tekið þátt í vinnu við að skil- greina markmið ríkisins sem hlut- hafa við endurskipulagninguna í mínu fyrra starfi. Ég geri ráð fyrir að mitt nafn hafi komið upp vegna þeirrar fagvinnu, sem ég hafði unnið við undirbúninginn að þessu, og ég væri í stakk búinn til að takast á við þetta hlutverk.“ Hann kvaðst þess utan hafa mikla reynslu af ýmsum viðskiptasamning- um, sem gengið hefðu vel, og hefði nægilega breiðan grundvöll til að taka þetta starf að sér og reyna að leysa það vel af hendi. Hann vildi ekki fara út í atburða- rás ráðningar sinnar í einstökum at- burðum, en sagði að mánudagurinn hefði verið dagur hinna stóru ákvarðana. „Það var ekki fyrr en þá að at- burðarásin fór að verða skýr,“ sagði hann. „En ég ætla ekki að rifja upp hvenær hlutir voru fyrst ámálgaðir." Hann stýrði á sínum tíma undir- búningi á breytingu ríkisviðskipta- bankanna í hlutafélög og þekkir því til skipulags hjá keppinautum sínum í Búnaðarbankanum. Hann sagði að hann hefði rætt þessa stöðu við bankaeftirlitið og yfirmenn Búnaðar- bankans í gær. ,Að sjálfsögðu hafa þeir engar at- hugasemdir við ráðningu í þetta starf,“ sagði hann. „Það er ekkert at- hugavert við það að starfsmaður Landsbankans fari í Búnaðarbank- ann. Hann hefur miklu betri upplýs- ingar heldur en ég hafði af mínu starfi, þannig að svo framarlega, sem menn skipta um starf nákvæmlega á deginum, skilja eftir í gamla stai'finu þær upplýsingar, sem þar voru, og taka við störfum að nýju, er þetta fullkomlega eðlilegt." Helgi S. Guðmundsson sagði að eining hefði verið um ráðningu Hall- dórs í starf bankastjóra og hló við þegar hann var spurður hvort engir pólitískir flokkadrættir byggju að baki um leið og hann svaraði neit- andi. Halldór, sem áður var ráðuneytis- stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytum, sagði í samtalinu við Morg- unblaðið að hann væri ekki ráðinn á pólitískum forsendum að nokkru leyti. „Ég hef ekki starfað í stjórn- málaflokki á liðnum árum,“ sagði hann. „Það samræmist ekki starfi ráðuneytisstjóra að vera í pólitísku flokksstarfi, en það hefur komið fram opinberlega áður og ég get staðfest það að ég hef verið flokks-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.