Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Refsitollar á
lax framlengdir
• TUTTUGU
og fjögur
norsk fyrir-
tæki, sem
stunda út-
' flutning á
eldislaxi,
þurfa næstu
ijóra mánuði að sæta refsitoll-
um í Evrópusambandinu, ESB.
Þessi ákvörðun ráðherraráðs
ESB var birt í lögbirtingi ESB
(Official Journal) í gær.
Þar með er ljóst orðið að
flest hinna 29 norsku fyrir-
tækja, sem framkvæmdastjórn
ESB sakaði í desember síðast-
liðnum um að hafa gerzt sek
um undirboð á eldisfiski,
þurfa að sætta sig við að
greiða 3,8% refsitoll í fjóra
mánuði til viðbótar. Fimm
þessara 29 fyrirtækja hafa
hins vegar verið fjarlægð af
refsitollalistanum.
Það magn sem þessi 24 fyr-
irtæki flytja af eldislaxi á
markað ESB-landanna er að-
eins brot af heildarsölu
norskra framleiðenda þar, en
hún nemur um 50 milljörðum
ísl. króna árlega.
Skozkir og írskir eldis-
laxframleiðendur höfðu í
fyrra borið fram við fram-
kvæmdastjórn ESB kvartanir
vegna undirboða Norðmanna.
• DUBLIN-samkomulagið,
samningur ESB-landanna um
samræmda
stefnu í flótta-
mannamálum,
hefur leitt til
þess að mun
fleiri flótta-
mönnum er
nú vísað frá
Danmörku en þangað er vísað
annars staðar úr Evrópu.
Jyllands-Posten hefur þetta
eftir Claes Nilas, forstöðu-
manni danska utlendingaeftir-
Iitsins, í gær. Á þeim sjö mán-
uðum sem liðnir eru frá því
Dublin-samkomulagið gekk í
gpldi hefur Danmörk vísað úr
landi 377 umsækjendum um
pólitískt hæli, en 53 slíkir hafa
verið sendir frá öðrum ESB-
löndum til Danmerkur á sama
tfmabili. Reglan sem Iiggur
þessu til grundvallar er að
maður frá landi utan ESB,
sem leitar pólitísks hælis þar,
getur aðeins sótt um það í
einu aðildarlandanna 15.
• GILES Radice, formaður
fjárlaganefndar brezka þings-
ins, sagði í gær að hann bygg-
ist ekki við því að efnt yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um
þátttöku Bretlands í Efna-
hags- og myntabandalagi
Evrópu, EMU, fyrr en á
næsta kjörtímabili. Næstu
þingkosningar í Bretlandi
fara fram í síðasta lagi um
mitt ár 2002.
Ofbeldishneigð
í heilanum?
Washington. The Daily Telegraph.
SUMIR kunna að vera fæddir með
tilhneigingu til ofbeldis, að því er
niðurstöður nýrrar rannsóknar
benda til. Andrian Raine, við Há-
skólann í Kaliforníu, stýrði rann-
sókninni, og segir hann að mögulegt
sé að fæðast án þess hluta heilans
sem stuðlar að „tilfinningu fyrir
samvisku“.
Rannsakaðir voru 38 morðingjar
og borin saman heilastarfsemi í
þeim sem höfðu átt erfiða æsku og
þeim sem höfðu hlotið harla gott
uppeldi. Óvenju lítil starfsemi virt-
ist vera í framhluta heilans, sem á
þátt í hvatastýringu.
„Margir foreldrar þurfa að horfa
upp á böm sín lenda á glapstigu
þrátt fyrir að þeir hafi gert sitt
besta í uppeldinu," segir Raine.
„Foreldramir finna til mikils sam-
viskubits og leita svara í örvænt-
ingu. Sú staðreynd, að hægt er að
benda á líffræðilega tilhneigingu,
bendir til þess að spumingin snúist
ekki um það hvernig bamið hafi
verið alið upp. Það sem um er að
ræða, er að bamið hafði líffræðileg-
an galla, sem fór saman við aðstöðu
sem leiddi til ofbeldis."
Reuters
Námaslys
í Tansaníu
BRÓÐIR þessa tansamska námu-
verkamanns var einn Ijölmargra
er lokuðust inni er gífurlegt flóð
varð í gimsteinanámu í norður-
hluta landsins vegna úrhellis á
fimmtudag í síðustu viku. I gær
hafði 21 verkamaður bjargast,
fjögur lik fúndist en tansamsk
stjómvöld sögðu að um 55 manns
væru enn f námunni að minnsta
kosti, en gætu verið allt að hund-
rað. Starfsmenn f námunum eru
ekki skráðir sérstaklega og fjöldi
þeirra jafnan óljós. Skortur á tælq-
um, sérstaklega öflugum dælum,
hefúr hamlað björgunarstarfi.