Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavík
Kosið á níu
stöðum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu um að kosið verði á níu stöðum
í Reykjavík við borgarstjórnarkosn-
ingarnar 23. maí nk. Gert er ráð
fyrir sérstakri kjördeild á Kjalar-
nesi en frekari umfjöllun bíður laga-
setningar á Alþingi um sameiningu
Kjalarneshrepps og Reykjavíkur.
í Reykjavík verður kosið í Haga-
skóla í 15 kjördeildum í stað Ráð-
hússins eins og við síðustu kosning-
ar, þar sem gera þarf ráð fyrir
stærri kjördeildum en þá. Á Kjar-
valsstöðum verður gert ráð fyrir 17
kjördeildum, í Laugardalshöll verða
16 kjördeildir, í Breiðagerðisskóla
verða 9 kjördeildir og í Árbæjar-
skóla verða 7 kjördeildir. í Fella-
skóla verða 11 kjördeildir, í
Ölduselsskóla verða 8 kjördeildir, í
Foldaskóla verða 9 kjördeildir og í
Sjálfsbjargarhúsinu verður ein
kjördeild.
Ekki verður gert ráð fyrir sér-
stakri kjördeild á elliheimilinu
Grund og á Hrafnistu enda gert ráð
fyrir að þar fari fram fyrirfram aug-
lýst atkvæðagreiðsla utan kjörfund-
ar með sama hætti og á öðrum
stofnunum fyrir aldraða.
Kvíin væntanleg til
hafnar á mánudag
BRESKUR dráttarbátur er vænt-
anlegur til hafnar á mánudag
með flotkvína sem losnaði úr togi
suðvestur af iandinu um þarsíð-
ustu helgi. Varðskipið Óðinn var
sent héðan aðfaranétt miðviku-
dags í síðustu viku til að freista
þess að ná kvínni í tog.
Frá því varðskipið Iagði af stað
og þar til það náði kvínni hafði
hana rekið um 180 sjémflur suð-
suðaustur. Varðskipið var komið
að henni sl. föstudag.
Kvfin dré varðskipið
Að sögn Magna Óskarssonar,
skipherra varðskipsins, gekk vel
að ná kvínni í tog eftir að hægt
var að senda menn um borð í
hana, en það var ekki éhætt fyrr
en á laugardag vegna mikils sjós.
Fjórir menn fóru í gúmbát að
kvínni og féru tveir um borð,
Haraldur Stefánsson og Sævar
Sævarsson, við hinar verstu að-
stæður. Þar var vír sem dráttar-
taug varðskipsins var fest í. „Við
náðum að stoppa á henni rekið
eftir hádegi á laugardag og sner-
um henni upp í vindinn en þá var
samt enn of mikill sjér til að
dráttarbáturinn gæti gert nokk-
uð. Við biðum með kvína aftan í
okkur í sólarhring áður en þeir
byrjuðu að toga og á meðan dró
hún okkur svoh'tið afturábak.
Veðrið batnaði á þessum tíma,
vind lægði og sjólag skánaði. Það
ték þá rúmlega hálfan daginn að
koma sínu fyrir og tékst það á
endanum með aðstoð okkar
manna,“ sagði Magni.
Hann sagði að varðskipsmenn
hefðu skilið eftir hluta af sinni
taug þannig að ef kvíin slitnar
aftur frá þarf ekki að fara um
borð í hana tii að ná henni í tog.
Varðskipið fylgdi dráttarbátnum
1 u.þ.b. einn sélarhring áður en
hann var skilinn eftir og varð-
skipið sigldi áleiðis til Islands.
Ferðin gengur vel
Að sögn Eiríks Orms Víglunds-
sonar, framkvæmdasljóra Vél-
smiðju Orms og Víglundar, sem á
kvína, var dráttarbáturinn með
kvina í togi í blíðskaparveðri um
420 mflur undan Reykjanesi í
gærmorgun og gekk ferðin vel.
Það eru svipaðar sléðir og kvfin
var á þegar varðskipið Iagði af
stað héðan aðfaranétt miðviku-
dags fyrir viku.
Eldur í húsi í Kópavogi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
GESTIR í fimmtugsaftnæli í byggingunni þurftu að halda veislunni
áfram utan dyra eftir að eldur varð laus í aðliggjandi skrifstofum.
Afmælisveislu hætt
í miðjum klíðum
FJÖLDA gesta í fimmtugsafmæli
var gert að yfirgefa veislusal í
Hamraborg í Kópavogi eftir að eld-
ur varð Iaus í nærliggjandi húsnæði,
skrifstofum sem tilheyra Alþýðu-
bandalaginu. Eldurinn var tilkynnt-
ur til lögreglu um klukkan 18.30 í
fyrradag.
Skrifstofuhúsnæðið er á þriðju
hæð í byggingunni og þar hafði
myndast talsverður eldur, reykur
og hiti þegar slökkviliðið í Reykja-
vík kom þar að.
Slökkvistarf gekk greiðlega íyrir
sig en tjón á innanstokksmunum er
talsvert af völdum reyks og sóts,
auk þess sem lítilsháttar vatn lak
niður á næstu hæð. Við hliðina á
skrifstofunum er veislusalur og
barst reykur inn í salinn, þannig að
lögreglan sá ástæðu til að vísa öllum
gestum út meðan slökkvistarf stóð
yfir.
Ekki er vitað um eldsupptök
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Sjúkrabifreið og fólksbfll skullu saman
Einn maður slas-
aðist alvarlega
sjúkrabifreið á suðurleið var að fara
ffam úr fólksbifreið þegar, að því er
virðist, fólksbifreiðin beygði, með
þeim afleiðingum að sjúkrabifreiðin
skall bílstjóramegin á fólksbifreið-
inni.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar,
sem var einn í henni, slasaðist al-
varlega en er þó ekki talinn í lífs-
hættu samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út um klukkan 18.30 vegna
slyssins og lenti við Sjúkrahús
Reykjavíkur klukkustund síðar.
Auk hins slasaða flutti hún sjúkling-
inn sem sjúkrabifreiðin var að flytja
og annan mann til, en meiðsli hinna
síðamefndu voru ekki talin alvar-
leg. Fólksbifreiðin er talin ónýt og
sjúkrabifreiðin talsvert mikið
skemmd.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
VARÐSKIPIÐ við dráttarkvína lengst suður í höfum eða á sömu breiddargráðu og Dublin á írlandi.
EINN maður slasaðist alvarlega
eftir að bifreið sem hann ók og
sjúkrabifreið skullu saman laust
eftir klukkan 18 á mánudagskvöld
við bæinn Galtarholt í Borgar-
hreppi, um fimmtán kflómetra ffá
Borgamesi.
Málsatvik em þau helst að
Oheppnin elti aðalleikarann í myndinni Stuttum frakka
Varð fyrir
bfl en fær
ekki bætur
JEAN-PHILIPPE Labadie lék
éheppinn Frakka sem sendur var
til Islands í myndinni „Stuttur
Frakki“ og frumsýnd var hér á
landi hinn 5. apríl 1993. f dag
starfar Jean-Philippe ekki lengur
sem leikari því óheppnin virtist
elta hann, jafnvel út fyrir ramma
hvíta tjaldsins.
Jean-Philippe var leikari og
dansari, hann hafði stundað Qög-
urra ára dansnám við virtan dans-
skéla í París og fyrir fimm árum
beið hans íjöldi verkefna sem leik-
ari. Hann var á leiðinni til Banda-
ríkjanna að leika í farandleikhúsi,
hafði nýlokið við að leika í „Stutt-
um frakka“ og hafði hafði fengið
boð um að leika í nokkrum öðmm
kvikmyndum.
„Fyrir nákvæmlega fimm ámm,
á meðan á kynningu myndarinnar
„Stuttur frakki" stéð, var ég að
skemmta mér í Reykjavík. Eg beið
í röð fyrir utan veitingahúsið 22
við Laugaveg þegar bíll keyrði inn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRANSKI leikarinn
Jean-Philippe Labadie.
í röðina og ék yfir báða fætur
míha. Ökumaðurinn reyndist vera
dmkkinn sautján ára piltur í leyfis-
Ieysi á bfl foreldra sinna. Vinstri
fóturinn brotnaði auk þess sem ég
hlaut aðra áverka. Ég var á sjúkra-
húsi í margar vikur, óvinnufær í
níu mánuði og í dag er ég haltur
og er langt frá því að vera í sama
líkamlega formi og ég var í fyrir
slysið," sagði Jean-Philippe í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Slysið gerbreytti lífi mínu þar
sem ég gat ekki lengur dansað auk
þess sem ég þurfti að byrja frá
gmnni á leikferli mínum af því að
ég var frá vinnu í svo langan tíma,“
segir Jean-Philippe, en hann kom
meðal annars hingað í fyrra í ör-
orkumat vegna slyssins, þó ekki _
hafi enn bólað á örorkubótum: „Ég
er öskureiður. Það em fimm ár lið-
in frá slysinu og ég hef enn ekki
fengið neinar bætur. Ég skil þetta
ekki,“ segir Jean-Philippe og bætir
við að ekki bæti úr skák að hann sé
í Frakklandi og bótakerfið á ís-
landi.
Hann er ekki frá því að atburð-
irair sem hentu hann hér á landi
hafi verið nokkuð kaldhæðnislegir:
„Frakkinn sem ég lék ( myndinni
„Stuttur frakki" var sendur til ís-
iands þar sem óheppnin elti hann á
röndum og á endanum stóð ég sjálf-
ur í sömu spomm og hann! Ég fékk
ekkert borgað fyrir að leika í
myndinni, ég lenti í slysi sem
breytti lífi mínu og hingað til hef
ekki fengið neinar örorkubætur,“
sagði Jean-Philippe. Að lokum
bætti hann þó við að þrátt fyrir
óhöppin ætti hann einnig góðar
minningar frá íslandi.
í dag býr hann í París þar sem
hann rekur eigið fyrirtæki sem
framleiðir stuttmyndir.
Fólskuleg*
líkamsárás í
Stykkis-
hólmi
GESTUR á vínveitingastað í
Stykkishólmi varð fyrir fólsku-
legri líkamsárás á aðfaranótt
páskadags. Hann var sleginn
með hálfs lítra bjórkrús með
þeim afleiðingum að af hlutust
talsverðir áverkar, var hann
mikið skorinn og missti talsvert
blóð.
Árásarmaðurinn flúði af vett-
vangi og var í fyrstu ekki vitað
hver hann var, en hann gaf sig
síðan fram við lögreglu á mánu-
dagskvöld. Gaf hann þá skýr-
ingu á athæfi sínu að ósætti
hefði verið með málsaðilum fyrr
um kvöldið og hann talið sig
hafa harma að hefna.
Maðurinn sem slasaðist gekk
undir aðgerð vegna áverka
sinna en fékk að fara heim að
henni lokinni. Hann fékk fimm
skurði á höfuðið og er talin
mildi að ekki fór verr, enda um-
ræddar bjórkönnur þung og
hættuleg vopn samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu. Málið
telst upplýst.
Margir
sinueldar í
Reykjavík
Á ANNAN tug sinuelda var til-
kynntur til lögreglu og slökkvi-
liðs í Reykjavík um páskahelg-
ina og voru þeir kveiktir víðs-
vegar um borgina.
Vegna veðurblíðu um pásk-
ana var gróður mjög þurr og
auðvelt að kveikja eld í sinu.
Lögregla og slökkvilið telur
ástæðu til að vara sérstaklega
við að kveikja slíka elda,
endageti þeir valdið miklum
skemmdum bæði á eignum og
gróðri, auk alvarlegra áhrifa á
fuglalíf.