Morgunblaðið - 15.04.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 11
FRÉTTIR
Fangar gagnrýna að-
stöðu á Litla-Hrauni
Síðasta ferð
Stuðlafoss
FANGAR á Litla-Hrauni hafa sent
frá sér greinargerð um aðstöðu í
fangelsinu þar sem ýmislegt er tí-
undað er betur mætti fara að þeirra
mati. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins stendur stór hluti fanga
á Litla-Hrauni að greinargerðinni
en hún er ekki undirrituð. Hún er í
20 liðum og fjallar hver um sig um
tiltekið atriði eins og það snýr að
fóngum.
Ymislegt, sem fram kemur í
gi-einargerðinni, er efnislega sam-
hljóða sumu því sem fram kom í
ályktun aðalfundar Fangavarðafé-
lags Islands frá 4. aprfl sl. en þar
kom m.a. fram að bæta þyrfti geð-
læknis- og sálfræðiþjónustu, al-
menna kennslu og áfengis- og fíkni-
efnameðferð í fangelsum.
Fangelsismálastjóri
hyggst svara síðar
Porsteinn Jónsson fangelsismála-
stjóri vildi í gær ekki tjá sig um ein-
stök atriði greinargerðarinnar.
Hann sagði að þar væri á mörgum
stöðum ranglega farið með stað-
reyndir og myndi verða brugðist við
þeim atriðum á formlegan hátt ein-
hvern næstu daga.
í greinargerð fanganna kemur
fram að sárlega vanti geðlæknis-
þjónustu og félagsráðgjöf á Litla-
Hrauni. Margir fangar flýi á náðir
lyfja og fíkniefna, margir hafí talað
um sjálfsmorð og sumir reynt.
Vegna sparnaðar í mannahaldi séu
eldri fangar í sjálfboðavinnu við að
líta til með yngri föngum. Fangar
segjast telja að svokölluð húsasótt
hafi gert vart við sig í fangelsinu
en ekkert sé gert í að rannsaka
hvað hæft sé í því. Þá segja þeir að
allnokkrir sprautufíklar séu með
gulu og lifrarbólgu, og séu þeir
saman á deildum með ósýktum
föngum, og kvarta undan tann-
læknisþjónustu.
Fangar telja fæði það sem boðið
er uppá í fangelsinu ekki fullnægj-
andi og vilji þeir bæta sér upp mein-
tan fæðuskort þá geti þeir verslað í
einokunarverslun í fangelsinu, þeim
sé ekki leyft að fá senda neysluvöru
að utan.
Engin gjöld greidd
af launum fanga
Aðstaða til íþróttaiðkunar er sögð
vel viðunandi að undanskildum lyft-
ingasal, sem rúmar aðeins fáa menn
í einu. Þá telja fangarnir tækifæri
til útivistar ekki næg 'og vekja at-
hygli á að aðeins fangar á 3. hæð
fangelsisins hafi afnot af íþróttasal
um helgar.
Bókasafn fangelsisins er sagt
búa við hin verstu skilyrði og heim-
sóknaraðstaða gagnrýnd þótt fyrir-
komulag heimsókna hafí batnað
mjög við að flytja heiinsóknir úr
fangahúsum. Fangar gagnrýna
einnig að ekki sé tekið tillit til
þeirra sem þurfa að fara um langan
veg til að hitta fjölskyldur sínar í
dagsleyfum, þeir fái ekki lengri
leyfi en hinir, sem búi tiltölulega
nálægt fangelsinu. Rúmdýnur eru
sagðar lélegar og þeirri spurningu
velt upp hvort ekki myndi minnka
lyfja- og lækniskostnaður ef pen-
ingar yrðu settir í dýnukaup. Vakin
er athygli á því að ekki sé greitt í
lífeyrissjóði og stéttarfélög, ekki
orlof og engin opinber gjöld af
launum fanga, sem þeir fá fyrir
vinnu í fangelsinu.
Of fáir fangaverðir
Auk þess sem að ofan hefur ver-
ið talið er m.a. framkvæmd lyfja-
leitar í þvagi gagnrýnd, reglugerð-
ir um málefni fanga sagðar óná-
kvæmar og það gagnrýnt að ekki
sé farið að reglum um greiðslu
dagpeninga til fanga. Þá er í lokin
vakin athygli á skilningsleysi
stjórnenda á tillögum fangavarða
til úrbóta í heilbrigðismálum fanga
og stórhættulegri undirmönnun
fangavarða í nýbyggingu Litla
Hrauns þar sem aðeins séu 2 menn
á næturvakt og 3 á dagvakt en 55
fangar á 5 deildum.
STUÐLAFOSS áður Hofsjökull
lét úr höfn frá Þorlákshöfn á
miðvikudaginn í sína síðustu
ferð með frystar afurðir til
Rússlands eftir að hafa þjónað
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Eimskipi í nær 25 ár. Var
skipið eitt hið elsta í íslenska
kaupskipaflotanum.
Eimskip keypti skipið af
Jöklum, dótturfyrirtæki SH, ár-
ið 1997 og var það í flutningum
með frystar afurðir milli Nor-
egs, Norður-Ameríku og
Eystrasaltsríkjanna en Eimskip
hóf þá flutninga um mitt ár
1996. í frétt frá Eimskip segir
að afráðið hafí verið að fjölga
skipum á þessari Ieið um tvö og
taka jafnframt í notkun nýrri
skip. Því hafi Stuðlafoss verið
seldur til norskra aðila og
verður afhentur þeim síðar í
þessum mánuði.
I Flugvélin lenti í sjónum um 80
| sjómílur suðsuðaustur af Hornafirði
—
REYKJAVi
S L A N D v
jr
Hornafjörður
Flugvél fórst út
af Hornafírði
TVEGGJA hreyfla flugvél af gerð-
inni Aero Commander, á leið frá
Færeyjum til Reykjavíkur, nauð-
lenti á hafinu u.þ.b. 80 sjómílur
suðsuðaustur af Hornafirði kl.
13.50 á skírdag. Flugstjórinn, sem
var Englendingur, var einn um
borð og er hann talinn af. Flugvél-
in var skráð í Israel.
Að sögn Ásgeirs Pálssonar,
framkvæmdastjóra flugumferðar-
þjónustu hjá Flugumferðarstjóm,
tóku ýmsir þátt í leit að vélinni og
flugstjóra hennar á skírdag og
föstudaginn langa. Til leitarinnar
voru sendar flugvél Flugmála-
stjórnar, þyrla frá Landhelgis-
gæslunni og tvær Orion-vélar og
tvær þyrlur frá vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Einnig var haft
samband við skip og báta á svæð-
inu.
Leitin stóð til kl. 23.15 á skírdag
og var haldið áfram á föstudaginn
langa en leit hætt síðdegis þann
dag.
Hljóðfæraleikarar:
Gunnar Þórðarson
Vilhjálmur Guðjónsson
Gunnlauuur Briem
Jóhanp Asmundsson
Þórir Ullarsson
Kristinn Svavarsson
Kjarian Valdimarsson
Kristján
Gfslason
Hulda
.Gestsdóttir
Sigurður H.
Ingimarsson
Rúna G.
Steíánsdóttir.
irinsdótfír
Hljómsveitin
‘V'&ins
HÓTEL fSLANDI
Miða- og borðapantanir í síma 533 1100.
Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, sýning. 950, dansleikur.
leikur fyrir dansi til kl. 3.
Frábærir söngvarar! Sviðssetning: Egill Eðvarðsson. Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þóröarson. Dansstjórn: Jóhann Örn.
g
25.APRI á nýrri söngskemtr L itun:
W Lyk n
Tilboð sem bakið
hefii beðið eftk:
Nú rýmum við til í DUXIANA versluninni
fynr 98 árgerðinni af DUX rúmdýnum.
Þess vegna verða nokkrar tegundir af 97 árgerðinni
af rúmdýnum seldar á næstu vilcum með 15-30%
afslætti á meðan birgðir endast.
Komdu strax og slcoðaðu úrvalið í búðinni eða
hiingdu og nýttu þér þetta einstaklega góða tilboð.
Öllum dýnunum fylgja fætur að eigin vali og
DUX rúmdýnan verður send samdægurs til pm,
hvert á land sem er ! Hefurðu vitað pað betra ?
Hvers vegna ekki að prófa DUX rúmið?
Aumir hryggjaliðir og þreyttir bakvöðvar
hafa grátbænt þig um það !
DUXIANA
Ármúla 10 108 Reykjavík Sími 568 9950