Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Viðræður Kóreu- ríkja út um þúfur Reuters ODDVITI samninganefndar Suður-Kóreu, Jeong Se-hyun, ræðir við fréttamenn í Peking í gær. Hann heldur á lofti eintaki af grundvallar- samkomulagi Kóreuríkjanna frá 1991. FAA gefur út forgangslista Washington. Reuters. Norðanmenn vildu ekki ræða samein- ingu fjölskyldna Peking, Tdkýó. Reuters. SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum Norður- og Suður-Kóreu í Peking í Kína en Suður-Kóreumenn settu það skilyrði fyrir að hjálpa Norður- Kóreumönnum um áburð að sundruðum fjölskyldum yrði leyft að sameinast. Yfirmaður Matvæla- aðstoðar Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi n-kóresk stjómvöld harðlega í gær fyrir að koma með ýmsum hætti í veg fyrir að hjálpar- starfsmenn geti sinnt störfum sín- um. Aðalsamningamenn ríkjanna kenndu hvor öðrum um viðræðu- slitin en N-Kóreumenn höfðu farið fram á fundinn í því skyni að verða sér úti um áburð, 500.000 tonn, vegna vorsáningarinnar. Jon Kum- chol, formaður n-kóresku sendi- nefndarinnar, sagði að viðræðurn- ar hefðu farið út um þúfur vegna þess að S-Kórea hefði bundið þær pólitískum skilyrðum en Jeong Se- hyun, oddviti sunnanmanna, sagði að norðanenn gætu ekki ætlast til aðstoðar ef þeir legðu ekkert á móti. Sagði hann að viðræðunefnd- imar yrðu áfram í Peking næstu tvo daga og myndu hafa samband ef ástæða þætti til. Catherine Bertini, yfirmaður Matvæiaaðstoðar SÞ, hefur skýrt stjórnvöldum í Pyongyang frá því að haldi þau áfram að koma í veg fyrir að hjálparstarfsmenn komist til sumra svæða i Norður-Kóreu verði dregið úr matarsendingum til landsins. Sagði hún að dreifing- arkerfi kommúnistastjómarinnar væri hrunið og víða drægi fólk fram lífið á grasi, trjáberki, rótum og öðru slíku. Hún kvaðst þó ekki geta staðfest fullyrðingar samtakanna Lækna án landamæra um að ofbeldi og mannát færi vaxandi og herinn og embættismenn létu greipar sópa um neyðarsendingar. FORGANGSLISTI yfir úrbætur í flugöryggismálum, er miðar að því að draga úr slysum um 80% á næstu tíu árum, var gefinn út í Bandaríkj- unum í gær. Flugmálayfirvöld þar í landi leggja áherslu á samstarf við flugfélögin með það fyrir augum að slysum og dauðsföllum fjölgi ekki þótt búist sé við gífurlegri aukningu í umferð um flugvelli í Bandaríkjun- um fram til 2010. „Eftir því sem flugumferð eykst getum við búist við því að slysum og dauðsföllum fjölgi einnig. Það er óviðunandi,“ sagði A1 Gore, varafor- seti, er hann tilkynnti um listann á Ronald Reagan-flugvelli í Was- hington í gær. Aðaláhersla verður fyrst um sinn I PASKAAVARPI sínu hvatti Jó- hannes Páll II páfi til þess að mann- kynið endurtæki ekki þau mistök sem á öldinni sem er að líða hefðu orsakað verstu hörmungar mann- kynssögunnar. Varaði páfi við því að er heimurinn nálgast árið 2000 sé verið að sá nýjum „fræjum dauð- ans“. Hann bað einnig sérstaklega fyrir friði í Miðausturlöndum og gagn- rýndi ákvarðanir ríkisstjórnar Isra- els óbeint, með því að segja að sam- lögð á að koma í veg fyrir slys er hljótast af því er hreyfilblöð gera gat á flugvélabúk og þegar flogið er í jörðina vegna þess að áhöfn er ókunnugt um staðsetningu flugvélar vegna veðurs eða bilana í flugleið- sögutækjum. Jane Garvey, yfirmaður banda- rísku flugmálastjórnarinnar (FAA), sagði að vænta mætti reglugerðar frá stjóminni í júní þar sem kveðið væri á um strangara eftirlit með hreyflum. Fljótlega muni FAA síðan, í samvinnu við flugfélög, gefa út reglur um að allar flugvélar sem knúnar era túrbínuhreyflum og geta borið sex farþega eða fleiri verði búnar viðvörunarkerfum er gefi merki um of mikla nálægð við jörð. komulagi um frið í hinni helgu borg Jerúsalem væri stefnt í voða vegna „hættulegra pólitískra ákvarðana". A annan í páskum fagnaði páfi því samkomulagi sem náðist um frið á Norður-írlandi, með þeim orðum að það gæfi fyrirheit um bjartari fram- tíð fyrir norður-írska borgara, sem svo lengi hefðu þurft að þola miklar þjáningar. Um 150.000 manns hlýddu á páskamessu páfa, svokall- aða „Urbi et orbi“-ræðu, á torgi Péturskirkjunnar í Róm. Páskaboðskapur páfa Mannkynið endurtaki ekki mistök 20. aldar Páfagarði. Reuters. Á Olísstöð með Vildarkorti Visa og Flugleiða eru þér allir vegir færir. Nú getur þú safnað enn fleiri punktum í Vildarklúbbi Flugleiða hjá Olís þegar þú greiðir með Vildarkorti Visa og Flugleiða. Með því að nota Vildarkortið færð þú afslátt í formi punkta hjá 160 fyrirtækjum um land allt og á Olísstöðvunum. Vildarkortið gefur þér margvísleg fríðindi, víðtækar ferðatryggingar og spennandi ferðatilboð eins og tveir fyrir einn, svo nokkuð sé nefnt. Hafðu samband við bankann þinn strax í dag og sæktu um Vildarkort Visa og Flugleiða - aðeins eitt símtal og þú ert með rétta kortið. Þú safnar ferðapunktum í Vildarklúbbnum hjá Olís og tekur þátt í ferðapotti. Það er um að gera að drífa sig strax á næstu Olísstöð og nota kortið (greiða með Vildarkortinu) því þá áttu möguleika á að vinna vikuferð fyrir tvo til Minneapolis. Gisting og flugvallarskattur eru innifalin í ferðinni. Það eru fimm ferðir í pottinum og dregið verður í beinni útsendingu á Matthildi. flugleidir fmt í Minneapolis á bökkum Mississippiárinnar þarf enginn að láta sér leiðast því þar gefst kostur á að kynnast á einum stað mörgu af því besta sem Bandaríkin hafa upp á að bjóða. Vingjarnlegt fólk á sögufrægum stöðum úr villta vestrinu og að ógleymdu Mall of America sem er ein stærsta yfirbyggða verslunarmiðstöð heimsins með skemmtigörðum, veitingastöðum og afþreyingu sem fátt jafnast á við. * Vildarkortsferðir frð Olísstöðvunum bjóðast til 1. mai 1998.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.