Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LANDSBANKINN MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 13 Samþykkt bankaráðs Landsbankans eftir afsögn þrig-gja bankastjóra Einn bankastj óri verði við bankann fyrst um sinn HALLDÓR J. Krist- jánsson var ráðinn bankastjóri Lands- bankans í gær. ÞÓRÐUR Friðjóns- son hefur verið sett- ur ráðuneytisstjóri iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins til næstu áramóta. FRIÐRIK Már Bald- ursson gegnir starfi forsljóra Þjóðhags- stofnunar til ára- móta. bundinn sjálfstæðismaður. Þannig að það ætti í sjálfu sér að svara þeirri spurningu hvort þetta er póli- tísk ráðning.“ Bankaráðsformaðurinn var spurð- ur hvers vegna ekki hefði verið ráð- inn bankastjóri úr starfsfólki bank- ans og svaraði hann því til Halldór hefði víðtæka reynslu og það hefði verið metið svo að gott væri að standa að ráðningu nýs bankastjóra með þessum hætti. Hann sagði að Halldór væri ráðinn til framtíðar. Einn í stað þriggja Með Halldóri er ráðinn einn bankastjóri í stað þriggja, sem voru að hætta. í fréttatilkynningu frá bankaráði er vitnað í bókun frá fundi þess í gær: „Með vísan til samþykkta fyrir Landsbanka Islands hf. hefur bankaráðið í dag ákveðið að fyrst um sinn verði einungis ráðinn aðal- bankastjóri að bankanum en ráðn- ingu annarra bankastjóra frestað. Jafnframt samþykkh' bankaráðið að taka skipulag æðstu framkvæmda- stjómar bankans til endurskoðunar m.a. með tilliti til þess að í framtíð- inni verði einn bankastjóri við bank- ann. Þetta telur bankaráðið rétt að unnið verði í samvinnu bankaráðs og viðskiptaráðuneytis.“ Helgi sagði á blaðamannafundin- um að þetta mál yrði rætt á næstu dögum. Hann sagði að það fyrir- komulag að hafa þrjá bankastjóra hefði verið barn síns tíma og nú yrði það endurskoðað. Hann sagði eftir fundinn að það væri fljótgert að breyta umræddri samþykkt. Til þess þyrfti að kalla hluthafafund og það væri auðvelt. Samþykkti ráðningu vegna hagsmuna Landsbankans í lok blaðamannafundarins í gær kvaddi Jóhann Arsælsson banka- ráðsmaður sér hljóðs og kvaðst vilja gefa yfiriýsingu þar sem hann hefði staðið að samþykkt um að ráða nýj- an bankastjóra. „Ég gerði það vegna hagsmuna Landsbankans og tel að það hafi ver- ið mikið atriði fyrir Landsbankann eftir þessar hremmingar, sem hann hefur lent í, að það næðist full sam- staða um nýja yfirstjórn hérna,“ sagði hann. „Það er ekki þar með sagt að það hafi allt gengið eins og ég hefði helst óskað eða við höfum fengið tækifæri til að fjalla um ein- hvern hóp manna til að velja úr, en þetta er niðurstaðan og við munum standa að henni.“ Hann kvaðst vilja vekja athygli á því að nú yrði einn bankastjóri Landsbankans. Hann hefði barist fyrir því ásamt fleirum, þar á meðal Onnu Margréti Guðmundsdóttur, og það hefði í raun og veru verið ríkj- andi skoðun í bankaráðinu þrátt fyr- ir fyrirmæli um að hafa annan hátt á. „Ég fagna því alveg sérstaklega og tel að nú muni bankinn eiga möguleika á að komast upp úr þess- um erfiðleikum mjög hratt," sagði hann. „Ég ætla að geyma mér allar yfirlýsingar um framtíð bankans næstu daga vegna þeirra hluta, sem munu koma fram í skýrslu ríkisend- urskoðunar, en ég vil að það komi fram að það er fyrst og fremst vegna hagsmuna Landsbankans, sem ég styð þessa niðurstöðu." Hann sagði að ekki mætti skilja orð sín sem svo að hann hefði látið beygja sig. Það hefði einfaldlega ekki gefist tími til að fjalla um aðra, sem kæmu til greina. „Þessi maður er örugglega mjög vel hæfur,“ sagði hann. „En vegna þess að það þurfti að vinna hratt að þessu máli töldum við að það væri rétt að styðja þessa niðurstöðu. Ég hefði viljað að við hefðum komist að þessu máli fyrr til að ræða um þá, sem hefðu komið til greina hér, og getað fengið tækifæri til að vinna að málinu saman hér í bankaráðinu.“ Til greina hefði komið að ráða mann tímabundið meðan lagt hefði verið mat á stöðuna, en betra væri að geta sagt að kominn væri maður til frambúðar, en að komið væri bráðabirgðaástand. Þegar Jóhann var inntur eftir þvi hvernig hefði átt að vinnast tími þegar afsagnir bankastjóranna bárust ekki fyrr en á mánudag kvaðst hann ekki vilja fara út í það nema hvað ljóst hefði verið fyrir nokkru að gera mátti ráð fyrir breytingum innan bankans. BANKARÁÐ Landsbanka íslands hf. réð í gær Halldór Jón Krist- jánsson, ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, í starf að- albankastjóra Landsbankans. Hef- ur hann þegar tekið til starfa og hefur honum verið veitt lausn frá störfum sínum við ráðuneytið. I frétt frá bankaráði Landsbank- ans segir að Halldór J. Kristjáns- son hafi yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á alþjóðlegu og innlendu viðskiptasamstarfi, atvinnuþróun- arstarfi og skipulagi og rekstri fjármálastofnana. Halldór, sem fæddur er 13. janúar 1955, lauk stúdentsprófi í Noregi árið 1973, tók próf í lífefnafræði frá Loma Linda háskólanum í Bandaríkjun- um árið 1975 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Islands árið 1979. Hann stundaði framhaldsnám í þjóðarétti og alþjóðaviðskiptarétti við New York University og hefur sótt námskeið í alþjóðlegri samn- ingagerð, meðal annars við Har- vard Law School. Halldór starfaði sem fulltrúi hjá bæjarfógetanum á Selfossi og sýslumanninum í Arnessýslu á ár- inu 1981 en hefur síðan að mestu starfað í iðnaðarráðuneytinu, sem fulltrúi, deildarstjóri og síðar skrifstofustjóri. Vann hann þá m.a. að samningum um erlend fjárfest- ingaverkefni hér á landi og að end- urskoðun á eldri samningum um stóriðju og segir í frétt Lands- bankans að hann hafi þar öðlast víðtæka reynslu af alþjóðlegri samningagerð og verkefnafjár- mögnun. Aðstoðarbankastjóri við Evrópubankann Árin 1991 til 1994 starfaði Hall- dór sem aðstoðarbankastjóri við Evrópubankann í London og sat í fyrstu stjórn bankans. Þar tók hann meðal annars þátt í stefnu- mótun bankans og mótun starfs- reglna sem varða m.a. lánamál, áhættustýringu og eftirlit með rekstri. Haustið 1994 tók hann á ný við starfi í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu og hefur starfað sem ráðu- neytisstjóri frá árinu 1996. „Hann hefur í starfi sínu þar m.a. stýrt undirbúningi á breytingu ríkisvið- skiptabankanna í hlutafélög og samruna fjárfestingarlánasjóða at- vinnuveganna í Fjárfestingabanka atvinnulífsins hf. og Nýsköpunar- sjóð atvinnulífsins. Halldór hefur stýrt vinnu ráðuneytanna sem lýt- ur að aukinni erlendri fjárfestingu og atvinnusköpun auk þess að stýra umfangsmiklum samninga- viðræðum um stækkun Isal, um stofnun Norðuráls, um stækkun Jámblendiverksmiðjunnar á Gmndartanga og verið formaður sameiginlegrar nefndar Hydro Aluminium og íslenskra stjórn- valda um byggingu nýs álvers hér á landi.“ Kona Halldórs er Karolína Fabína Söebech, BA í stjórnmála- fræði, ráðgjafi. Þau eiga tvö börn. Skipulag framkvæmdastjórnar endurskoðað Auk aðalbankastjóra starfa í framkvæmdastjóm Landsbanka Islands hf. fimm framkvæmda- stjórar, þeir Barði Árnason, Björn Líndal, Brynjólfur Helgason, Jak- ob Bjamason og Jóhann Ágiists- son. Þá var samþykkt eftirfarandi bókun á fundi bankaráðsins: „Með vísan til samþykkta fyrir Landsbanka íslands hf. hefur bankaráðið í dag ákveðið að fyrst um sinn verði einungis ráðinn aðal- bankastjóri að bankanum en ráðn- ingu annarra bankastjóra frestað. Jafnframt samþykkir bankaráðið að taka skipulag æðstu fram- kvæmdastjórnar bankans til end- urskoðunar, m.a. með tilliti til þess að í framtíðinni verði einn banka- stjóri við bankann. Þetta telur bankaráðið rétt að unnið verði í samvinnu bankaráðs og viðskipta- ráðuneytis.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, hefur verið settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu til næstu áramóta. Hefur hann fengið leyfi frá starfi sínu í Þjóðhagsstofnun þann tíma. Friðrik Már Baldursson hag- fræðingur mun gegna starfi for- stjóra á meðan en hann hefur síð- asta áratuginn starfað hjá Þjóð- hagsstofnun og meðal annars verið forstöðumaður hagrannsókna. Friðrik, sem einnig hefur lokið ein- leikaraprófi í fiðluleik, starfaði sem lausamaður í Sinfóníuhljómsveit Islands árin 1979-1990, var um tíma forritari hjá Verk- og kerfis- fræðistofunni og aðstoðarkennari og lektor við tölfræðideild Col- umbia háskólans í New York árin 1982 til 1987. Áhugaverð verkefni í ráðuneytinu „Þarna era mörg ákaflega áhugaverð verkefni í gangi sem ég hlakka til að takast á við og til dæmis mikið að gerast í fjármála- lífinu,“ sagði Þórður Friðjónsson í samtali við Morgunblaðið. Sagði hann að stjórnarflokkarnir hefðu lagt áherslu á að hann tæki starfið að sér þennan tíma. „Sömuleiðis er mikið um að vera í sambandi við fjárfestingar erlendra aðila hér á landi og verið er að vinna að end- urskoðun á stefnunni í raforku- málum þannig að þarna eru mörg verkefni sem hafa með einhverj- um hætti tengst verkefnum hér við Þjóðhagsstofnun og ég hef mikinn áhuga á,“ sagði Þórður ennfremur. H O N D A d y r a 2.0 i 12 8 h e s t ö{ l Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður Innifaiið í verði bíisins ^ 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél s Loftpúðar fyrir ökumann 05 V Rafdrifnar rúður og spegla s ABS bremsukerfi ri" Veghæð: 20,5 cm S Fjórhjóladrif ✓ 15" dekk ■s Samlæsingar v' Ryðvörn og skráning S Útvarp og segulband ■S Hjólhaf: 2.62 m Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m Verð á götuna: 2.285.000.- með abs Sjálfskipting kostar 80.000,- (H) HONDA Sfmi: 520 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.