Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
+ Þórður Ingi-
mundur Þórðar-
son var fæddur í
Bolungarvík 14.
ágúst 1918. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 2. aprfl
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ingimunda Guð-
bjartsdóttir, f. 9.1.
1885, d. 6.12. 1918,
og Þórður Ingimar
Arason, f. 29.5.
1889, d. 8.7. 1949.
Systkini Þórðar
Ingimundar, öll lát-
in, voru: Emelía Margrét, Björg
Andrésa, Guðmundur og Ari.
Einnig átti Þórður hálfbróður
(samfeðra), Óskar, og fóstur-
bróður, Ásgeir Jónsson, báðir á
lífi. Þórður missti móður sína
aðeins rúmra þriggja mánaða
gamall og var komið í fóstur til
hjónanna Jónu Jónsdóttur og
Guðmundar Jónssonar. Guð-
mundur lést þegar Þórður var á
barnsaldri. Fósturforeldrar
Þórðar áttu eina dóttur, Ingi-
björgu, og ólust þau Þórður upp
Ein fyrsta bernskuminning mín
um pabba tengist því þegar ég var
nýkominn suður til Reykjavikur
með móðurömmu minni. Eg hafði
dvalið um skeið hjá afa og ömmu á
Hallbjarnareyri í Eyrarsveit á Snæ-
. fellsnesi. Afi lést 1947, þegar ég var
I fjögurra ára gamall, og fluttist
| amma suður vorið 1948 og átti
i heima eftir það hjá pabba og
mömmu í Sogamýrinni.
Pabbi hafði byggt hús (parhús) á
Sogavegi 152 ásamt mági sínum
Magnúsi Jóhannessyni. Magnús lést
í bílslysi 1948 tæplega tvítugur að
aldri. Eg man þegar pabbi var að
vinna í lóðinni við að sprengja klapp-
ir og aka í burtu grjótinu og fylla
með mold og þekja með þökum sem
hann keypti og risti sjálfur af túni
) upp við Rauðavatn. Á þessum tíma
| átti pabbi gamlan Pontiae bíl sem
' hann notaði við bygginguna og lóð-
saman. Hún er lát-
in.
Þórður var tví-
kvæntur, og hét
fyrri kona hans
Ingibjörg Sigríður
Jóhannesdóttir, f.
12.5. 1918, d. 3.10.
1995. Þau eignuðust
þrjú börn: Jóhannes
Guðmund og á hann
þrjú börrr, Huldu
Magneu, gifta Þor-
valdi Þórðarsyni og
eiga þau íjögur
börn, og Jónu Guð-
rr'ði, gifta Þorsteini
Eyjólfssyni og eiga þau þrjár
dætur. Þórður og Ingibjörg
slitu samvistir 1958. _ Seinni
kona Þórðar heitir Ástrrður
Ólafsdóttir, f. 20.4. 1920, og
eignuðust þau eina dóttur,
Ágústu Áróru, gifta Leo van
Beek og eiga þau tvö börn.
Þórður og Ástrrður slitu sam-
vistir 1988. Barnabamaböm
Þórðar eru alls sjö.
Útför Þórðar fer fram frá Ás-
kirkju í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
arvinnuna. Þótti mér gaman að sjá
hann göslast á þessum bíl með
kerruna fulla af efni í aftanídragi
langt upp í lóð yfir allar torfærurn-
ar.
Pabba var margt til lista lagt, m.a.
var hann smiður góður, sjálflærður,
og eftir að hann hætti á Sendibíla-
stöðinni hf. sem hann var á í nokkur
ár kom hann sér upp aðstöðu til tré-
smíða í bílskúrnum sem hann hafði
byggt hjá húsinu á Sogaveginum.
Hann byrjaði á því að smíða þær tré-
smíðavélar sem hann þuifti fyrst,
eins og sambyggðan fræsara/afrétt-
ara og hjólsög. Þykktarhefíl og
bandsög keypti hann notuð. Blokk-
þvingur, bandpússivél og fleiri tæki
smíðaði hann seinna. Hóf hann þar
framleiðslu á svefnsófagrindum og
stofusófasettum. Ég byrjaði að vinna
með honum 13 ára gamall og smíð-
uðum við saman m.a. 14 manna borð-
MINNINGAR
stofuborð og tilheyrandi stóla með
fyrir ferminguna mína.
Nokkrum árum seinna flutti hann
verkstæðið í húsnæði sem hann
leigði í Skipasundinu. Ogleymanleg-
ar og jafnframt skemmtilegustu
stundirnar voru þegar við vorum að
finna upp og smíða og prófa allskon-
ar útfærslur á hreyfibúnaði fyrir
svefnsófa eða hanna ný sófasett. Við
smíðuðum fyrstu sjónvarpshæg-
indastólana hér á landi (TV-
recliners) að bandarískri fyrirmynd.
Við pöntuðum stillibúnaðinn frá fyr-
irtæki þar vestra, en smíðuðum
grindumar sjálfir og fengum hús-
gagnabólstrara til að bólstra þær.
Mörgum árum seinna sá ég einn af
stólunum okkar í kjallara Landa-
kotsspítalans þar sem sjúklingar
koma til blóðsýnatöku og voru þeir
látnir sitja í honum og halla sér aft-
ur á meðan á sýnatöku stóð. Þótti
öruggur ef sjúklingurinn skildi falla
í yfirlið.
Pabbi rak húsgagnagerð sína víða
í Reykjavík, m.a. á Hverfisgötunni,
inni í Súðarvogi, vestur á Neshaga
og síðast í Hamarshúsinu við Ægis-
götu. Var oft glatt á hjalla hjá honum
á verkstæðinu enda hafði pabbi yndi
af söng og sungu menn oft hástöfum
við vinnu sína. Hann hafði að jafnaði
2 til 3 menn í vinnu hjá sér og ekki
sakaði ef þeir gátu tekið lagið.
Pabbi var Bolvíkingur og vann
fyrstu árin öll algeng sveitastörf.
Hann fluttist suður til Reykjavíkur
1938 og vann alla algenga verka-
mannavinnu þar til í hernáminu að
hann fór í Bretavinnuna. Eftir það
vann hann víða við trésmíðar. Hann
vann hjá Agli Vilhjálmssyni við yfir-
byggingar jeppabíla, hjá Bílasmiðj-
unni, hjá Trésmiðjunni Víði, hjá
Trésmiðjunni Meið, hjá Gamla
Kompaníinu og fleiri stöðum sem ég
kann ekki að nefna.
Minningar mínar um pabba eru
fyrst og fremst minningar um
skemmtilegar stundir með honum
við smíðar, sem voru honum meiri
ástríða en hversdagslegt starf.
Hann hafði yndi af fallegum smíðis-
gripum hvort heldur þeir voru hand-
verk hans sjálfs eða annarra lista-
smíð.
Blessuð sé minning þín, elsku
pabbi minn, og ég veit að þú munt
hafa næg verkefni undir handleiðslu
hins mikla smiðs og skapara allrar
tilveru okkar.
Þinn sonur,
Jóhannes.
ÞORÐUR
INGIMUNDUR
ÞÓRÐARSON
I “Wlblómaverkstæði
' I ISlNNA
Skóla\örðuslíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090
I
I
)
I
I
I
,
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA JÚLÍANA KJARTANSDÓTTIR,
Vesturgötu 14,
Keflavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn
8. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 18. apríl kl. 14.00.
Sigurður Arason, Ágústína Albertsdóttir,
Þorgerður Aradóttir, Örn Bergsteinsson,
Daníel Arason, Ingibjörg Óskarsdóttir,
Anna Aradóttir, Halldór Marteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför bróður okkar og
frænda,
JAKOBS BENEDIKTS BJÖRNSSONAR,
Bergþórugötu 2,
Reykjavík,
er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
31. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þórður Björnsson,
Unnsteinn Björnsson,
Bjarni Hólm,
Helgi Hólm,
Hörður Björnsson,
Eygló Björnsdóttir,
Rúnar Bjarnason,
Heiðar Bjarnason.
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 49
t
Ástkær eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR A. SVEINBJÖRNSSON,
Hjarðarhaga 62,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni
þriðjudagsins 14. apríl.
Gurid Sveinbjörnsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
PÉTUR PÁLMASON,
Norður-Gröf,
Kjalarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn
11. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elín Þórunn Bjarnadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Maðurinn minn,
VALDIMAR PÁLSSON,
Fagurgerði 1,
Selfossi,
lést á Ljósheimum á skírdag.
Ragnheiður Pálsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar og afi,
BJÖRN SV. BJÖRNSSON,
Kveldúlfsgötu 12,
Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 14. apríl.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Brynhildur Georgía Björnsson,
Hjördís Björnsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
laugardaginn 11. apríl sl.
Guðrún Ólafía Sigurgeirsdóttir,
Guðjón Viðar Sigurgeirsson, Sigrún H. Jóhannesdóttir,
Sigmundur Sigurgeirsson, Guðný Guðnadóttir,
Helga Sigurgeirsdóttir, Jón Berg Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, sonur,
bróðir, mágur og tengdasonur,
EIRÍKUR ÞÓR GUÐMUNDSSON,
Forsæti,
Vestur-Landeyjum,
lést að morgni fimmtudagsins 9. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Hjördís Helga Ágústsdóttir,
Hulda Katrín Eiríksdóttir,
Katrín Þórarinsdóttir,
Guðmundur Gíslason, Margrét Einarsdóttir,
Gísli G. Guðmundsson, Svanhiidur Eiríksdóttir,
Sigurður Torfi Guðmundsson, Helga Guðmundsdóttir,
Rúnar Guðmundsson, Kristin Nathanaelsdóttir,
Hulda Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson,
Sigurður Örn Ágústsson, Ágúst Ágústsson.
i